Morgunblaðið - 27.03.1990, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
Eldur í frystiskáp:
Báðir slökkvibílarnir
festust á leið á eldstað
ELDUR kom upp í frystiskáp
í geymslu við Stóragerði á
laugardagsmorgun og átti
slökkvilið í nokkrum erlíðleik-
um með að komast á staðinn
vegna ófærðar. Skemmdir
vegna eldsins urðu þó óveru-
legar.
Slökkvilið var kallað út klukk-
an rúmlega tíu á iaugardags-
morgun, en þá hafði kviknað í
mótor frystiskápsins. Færð var
erfið og festust báðir slökkvi-
bílarnir á leiðinni'. Tómas Búi
Böðvarsson slökkviliðsstjóri
sagði að tekist hefði að losa ann-
an bílinn fljótt, en snjórinn
hrundi niður undan hinum
bílnum og datt hann niður í hita-
veitubrunn. Hann þurfti að
draga í burtu. Veður var einnig
leiðinlegt og erfitt að athafna
sig, að sögn Tómasar.
Vel gekk að slökkva eldinn
þegar á staðinn var komið og
urðu skemmdir í kjölfar hans
óverulegar.
Slökkviliðið hefur verið kallað
út 17 sinnum það sem af er árs-
ins, sem er jafn mikið og var á
sama tíma á síðasta ári, en Tóm-
as sagði að í þau skipti sem eld-
ur hefði komið upp á þessu ári
hefði fólk verið í meiri hættu og
jafnvel sloppið út úr núsum á
nærklæðunum á síðustu stundu.
Auður Hjaltadóttir,
flokki.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Akureyri sigraði í kvenna-
Jóhann V. Gunnarsson, Akureyri, sigraði í ungl-
ingaflokki undir 70 kg þyngd.
íslandsmót í vaxtarrækt:
Hörð og tvísýn keppni í öllum flokkum
ÍSLANDSMÓT unglinga og B-
íslandsmót í flokki fullorðinna
luoðdýrarækt í Eyjafírði:
Hrynur eins og spilaborg
ef fleiri bændur hætta
- segir Jón Hjaltason formaður Loð-
dýraræktarfélags Eyjaflarðar
LOÐDYRABÆNDUM í Eyjafirði
hefur fækkað um tæplega helin-
ing á síðustu tveimur árum og
segir Jón Hjaltason formaður
Ólafsgörður:
Norskur tog-
ari landar
rækju
NORSKI togarinn, Drotholm,
landaði 185 léstum af rækju í Ól-
afsfirði í gær, en rækjuvinnsla
hefst hjá Hraðírystihúsi Ólafs-
fjai'ðar eftir páska.
Finnbogi Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafs-
fjarðar sagði að ætlunin væri að
setja rækjuvinnsluna af stað eftir
nokkrar vikur, eða einhvern tíma
eftir páska. Rækjan sem norski tog-
arinn landaði hjá HÓ í gær fer til
endurvinnslu í rækjuvinnslunni. Frá
því í haust hefur ekki verið unnin
rækja hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarð-
ar.
■* Nokkur hráefnisskortur hefur
verið í frystingunni, en Finnbogi
sagði að þó hefðu ekki dottið niður
margir vinnudagar. „Það er eins
með okkur og velflest frystihús
landsins, það hefur verið nokkur
hráefnisskortur hér. Það hefur vant-
að í þetta dálftið meiri kraft,“ sagði
Finnbogi.
Loðnubræðsla HÓ hefur tekið á
móti um 6.000 tonnum af loðnu frá
áramótum, en þar hefur verið stopp
um nokkum tíma. „Það var þokka-
legt að gera í loðnubræðslunni, en
nú er botninn dottin úr henni og við
'trum hráefnislausir."
Loðdýraræktarfélags Eyjafjarðar
að bændur hafi verið að gefast
upp hver á fætur öðrum. Verði
fækkunin hins vegar öllu meiri
sé hætta á að loðdýraræktin
hrynji eins og spilaborg. Margir
bændur hugleiði að hætta búskap
með loðdýr, en þráist við því að
með því kippi þeir fótunum undan
þeim sem eftir standa.
Jón Hjaltason formaður Loðdýra-
ræktarfélags Eyjafjarðar sagði að
nú ylti framtíðin á því hvernig tekið
yrði á málum loðdýrabænda og fóð-
urstöðva hjá stjórnvöldum og kvaðst
hann- vonast til að mál myndu skýr-
ast í þessari viku. Stjórn félagsins
fundaði fyrir skömmu en ákvarðanir
um framhaldið voru ekki teknar og
var ákveðið að fresta frekari funda-
höldum þar til eitthvað lægi fyrir
um aðgerðir. Jón sagði að yrði bænd-
um komið til aðstoðar gæti hluti
þeirra skrimt áfram, að því tilskyidu
að þeir gætu náð sér í aukatekjur.
„Loðdýrabændur eru djúpt sokkn-
ir, en nokkuð misjafnlega þó. Stærsti
óvissuþátturinn nú er málefni fóður-
stöðvanna, en ef bændum yrði kom-
ið til aðstoðar gætu þeir haldið ein-
hverju af stofninum eftir og siglt
lygnan sjó um tíma. Við bíðum eftir
því hvort einhver botn fáist í þessi
mál, hvort greinin er búin að vera
eða ekki,“ sagði Jón. Hann sagði að
á síðustu tveimur árum, en einkum
þó á því síðasta hefði verið mikil
fækkun í greininni eða á bilinu
40-50%, en mestu munaði um lokun
Böggvisstaðabúsins. Bændum mætti
ekki fækka mikið meira á svæðinu,
en töluverður hópur hefði hug á að
hætta. Menn þraukuðu þó áfram þar
sem þeir vilja ekki kippa fótunum
undan hinum, því hættu mikið fleiri
bændur blasti ekkert annað en hrun
við.
„Menn eru á fullu í að para þessa
dagana upp á von og óvon. Það er
auðvitað ömurlegt að vera að standa
í því og vita svo ekkert hvort þetta
endi með að dýrin verði drepin og
allt unnið fyrir gýg,“ sagði Jón.
Hann sagði einnig að víða væri
málum þannig háttað að þó menn
hættu loðdýrabúskap væri ekkert
annað framundan, þar sem menn
byggju langt frá vinnumarkaði og
hefðu afsalað sér öðrum framleiðslu-
rétti.
Stjórn Loðdýrafélags Eyjaljarðar
hefur farið fram á það við Byggða-
stofnun að gerð verði úttekt á fóður-
stöðvunum á Dalvík og á Sauðár-
króki og hafði þá í huga hvort unnt
yrði að loka annarri stöðinni, en Jón
sagði að engin svör hafi borist við
þeirri málaleitan.
í vaxtarrækt var haldið í Sjal-
lanum á Akureyri á sunnudag.
Keppt var í 7 flokkum og voru
þátttakendur um 30. Keppnin
var hörð í flestum flokkum og
tvísýnt um úrslit, bæði í kvenna-
flokki og í karlaflokki yfir 80
kíló.
íslandsmeistari í unglingaflokki
undir 70 kg varð Jóhann V. Gunn-
arsson Akureyri, Elmar Þ. Diego
Reykjavík varð í öðru sæti og Jón
Guðmundsson Reykjavík í þriðja.
í unglingaflekki undir 80 kg varð
Páll Valdimarsson Reykavík ís-
landsmeistari og Kristján Jónsson
og Sölvi Fannar Viðarsson urðu í
örðu og þriðja sæti, en þeir eru
báðir úr Reykjavík. í unglinga-
flokki yfir 80 kg. varð Magnús
Bess Hafnarfirði íslandsmeistari
og Oskar Svanur Barkarson
Reykjavík í öðru sæti. í opnum
unglingaflokki sigraði Magnús
Bess nokkuð örugglega, Óskar
Svanur Barkarson Reykjavík varð
annar, Páll Valdimarsson
Reykjavík þriðji.
í kvennaflokki sigraði Auður
Hjaltadóttir Akureyri, Inga S.
Steingrímsdóttir Reykjavík varð
önnur, Þórdís Anna Pétursdóttir
Akureyri varð þriðja.
í karlaflokki undir 80 kg sigr-
aði Kristján Ársælsson, Sveinn
Helgi Geirsson varð annar og Þór-
hallur Guðmundsson þriðji^ en þeir
eru allir úr Reykjavík. I karla-
flokki yfir 80 kg. var háð hörð
keppni á milli þeirra Guðmundar
Marteinssonar Akureyri og ívars
Haukssonar Reykjavík, en Guð-
mundur hafði betur og lenti í
fyrsta sæti, en ívar í öðru.
Ekiðá
ungan mann
EKIÐ var á ungan mann við
gatnamót Þingvallastrætis og
Mýrarvegar aðfarnótt sunnu-
dags og slasaðist hann lítilshátt-
ar.
Ökumaður stakk af eftir
ákeyrsluna, en gaf sig fram við
lögreglu skömmu síðar. Hann er
grunaður um ölvun við akstur.
Þá var brotin stór rúða í útibúi
íslandsbanka við Geislagötu að-
faranótt laugardags og fánastöng
við Landsbankann. Lögregla hefur
haft upp á þeim sem þar voru að
verki.
TIL LEIGU
Stórt raðhús á Akureyri til leigu frá 15. júní
1990 til 1 árs. Húsgögn geta fylgt.
Upplýsingar í síma 96-26488 eftir kl. 18.00.
Húsavík:
Hugmynd um stofiiun
kynbótastöðvar fyrir tré
Húsavík.
Á gróðurverndarráðstefn-
unni sem Húsgull á Húsavík
hélt, kom fram hugmynd um
stofnun kynbótastöðvar fyrir
tré. Þessi hugmynd kom fram
í erindi sem Þröstur Eysteins-
son flutti, en hann er nú í fram-
haldsnámi i Bandaríkjunum í
plöntulífeðlisfræði og fæst sér-
staklega við kynbætur lerk-
itrjáa. Þröstur er mikill áhuga-
maður um alla gróðurvernd og
talar 6 ára verk hans við skrúð-
garðinn á Húsavík sínu máli.
Þröstur kom frá Bandaríkjun-
um til að sitja þessa ráðstefnu
og flutti þar athyglisvert erindi
um kynbætur barrtrjáa.
Hann sagði að íslendingum
hefði vel tekist við kynbætur á
búfé, og eins gætu þeir kynbætt
tré. Sagði að margt hefði verið
gott gert í sambandi við skóg-
Þröstur Eysteinsson
Morgunblaðið/Silli
ræktina og með nútíma tækni
væri verið að vinna að því að
auka vaxtarhraða trjánna og væri
það eitt af verkefnum hans nú,
að vinna aðallega við lerki en einn-
ig hefði hann verið að fást við
greni, þarna við háskólann sem
hann er við vestra. En þetta tæki
allt sinn tíma og að fullvinna
slíkar tilreunir tæki 7—8 ár.
Þröstur taldi að árangur feng-
ist í því að auka vaxtarhraðann
og þar með að gera skógræktina
meira arðberandi. „Eins og við
vissum væri íslenzka birkið okkar
kræklótt, en ég tel að með kynbót-
um sé hægt að bæta það, láta það
vaxa bæði hraðar og beinna."
Hann varpaði fram þeirri hug-
mynd að stofnuð yrði kynbótastöð
fyrir tré á íslandi og undir það
tóku fleiri ráðstefnugestir.
— Fréttaritari