Morgunblaðið - 27.03.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
37
* *
Björn O. Agústsson
skipsljórí - Minning
Fæddur 26. janúar 1916
Dáinn 18. mars 1990
í dag verður gerð frá Akranes-
kirkju útför föðurbróður míns
Björns Ó. Ágústssonar, sem lést í
Sjúkrahúsi Akraness þann 18.
mars.
Björn Ólafsson Ágústsson, eins
og hann hét fullu nafni, fæddist á
Teig á Akranesi þann 26. janúar
1916, eldri sonur hjónanna Björn-
fríðar Sigríðar Björnsdóttur og
Ágústs Sigurbjörns Ásbjörnssonar,
er reistu húsið Sigurvelli við Mel-
teig á Akranesi og bjuggu þar síðan.
Yngri bróðir Björns var faðir minn,
Valdimar, sem lést fyrir réttu ári.
Björnfríður var ættuð frá Odds-
bæ á Akranesi, dóttir Björns Ólafs-
sonar formanns og Sigríðar Mel-
kjörníar Jónsdóttur. Ágúst Sigur-
björn var frá Melshúsum á Akra-
nesi, sonur þeirra Asbjörns Jóns-
sonar og Sigríðar Árnadóttur. Ás-
björn og Ágúst voru miklir afla-
menn og eftirsóttir formenn.
Eins og nærri má geta snerist
hugur Bjössa fljótt til sjómennsku
■ LEIFUR Blumenstein bygg-
ingafræðingur flytur opinberan fyr-
irlestur um varðveislu gamalla
timbur- og bárujárnshúsa á vegum
Stofnunar Sigurðar Nordals, í
dag, þriðjudaginn 27. mars, í stofu
101 í _Odda, hugvísindahúsi Há-
skóla íslands, kl. 17.15. í fyrir-
lestrinum, sem nefnist „Hvers
vegna ættum við að varðveita göm-
ul hús?“, mun Leifur fjalla um hús-
verndun, sérstaklega viðgerðir á
húsinu Þingholtsstræti 29, sem er
aðsetur Stofnunar Sigurðar Nor-
dals, en Leifur hefur séð um þær.
og fór hann til sjós aðeins 15 ára
gamall með Axel 'Sveinbjörnssyni,
fyrst á Sæfara og síðan á Sjöfninni.
Árið 1935 útskrifaðist Bjössi úr
Stýrimannaskólanum, en árið 1937
hófst fengsæll skipstjóraferill hans
er hann var með Úðafoss eina
vertíð. Árið 1938 kaupir hann 29
tonna bát, mb. Frigg, og gerði hana
út í rúm tvö ár. Árið 1943 létu
bræðurnir, Björn og Valdimar,
smíða fyrir sig bát á ísafirði, Ás-
björn Ak, sem þeir gerðu út næstu
árin.
Eftir það var Bjössi með báta frá
Haraldi Björnssyni & Co. um ára-
bil, s.s. Svaninn, Keili og Höfrung-
ana báða. Síðasta fiskiskipið, sem
Bjössi stjórnaði var Sif Ak, 82.
tonna bátur sem hann átti í félagi
við annan. Þegar þeir hættu útgerð
Sifjar var lokið fjörutíu ára sam-
felldum skipstjóraferli Björn Ó.
Ágústssonar.
Síðustu starfsár sín var.n hann
við Akraneshöfn, hafði hann m.a.
stjórn lóðsbátsins með höndum.
Á sjómannsferli sínum var Bjössi
mjög farsæll, aldrei missti hann
mann eða varð fyrir alvarlegum
slysum, þó svo fast hafi verið sótt
í þá daga sem nú. Þóttist hver sá
heppinn, sem hlaut skiprúm hjá
honum.
Mesta gæfuspor í lífi sínu steig
hann er hann gekk að eiga unnustu
sína, Elínu Elíasdóttur, þann 30.
nóvember 1939. Elín var dóttir
hjónanna Ólínar Ólafsdóttur og Elí-
asar Benediktssonar skipstjóra.
Hófu þau búskap á Sigurvöllum og
bjuggu þar í tæpa tvo áratugi, eða
þar til þau fluttu að Vallholti 17
og bjuggu þar til ársins 1979 er
Elín lést fyrir aldur fram. Björn bjó
síðan á Skarðsbraut 13 þar til í
febrúar 1988 er hann flutti á Dval-
arheimilið Höfða.
Varð þeim firnrn dætra auðið og
eru fjórar þeirra á lífi. Þær eru:
Björnfríður Sigríður, fædd 7. októ-
ber 1947, gift Oddi Gíslasyni skip-
stjóra. Þeirra börn eru: Ingileif,
Björn Ólafsson, Gísli Páll og Arnór
Steinar og eiga Björnfríður og Odd-
ur eitt barnabarn, Óskar Þorgils.
Næstelst dætranna er Ágústa Sig-
urbirna, fædd 2. apríl 1958, gift
Magnúsi Inga Hannessyni bónda í
Leirárgörðum í Leirársveit. Þeirra
börn eru: Hannes Adólf, Björn
Ágúst, Elín Málmfríður og Davíð
lngi. Þriðja í röðinni er Ólína Sig-
þóra, fædd 19. nóvember 1959, gift
Ólafi Jónssyni flugvirkja og eru
þeirra börn Elín, Ólafur Jón og
Jakob. Yngst systranna er Ólöf
Guðrún, fædd 29. nóvember 1960,
fyrrum sambýlismaður hennar er
Magnús Theodórsson sjómaður.
Sonur þeirra er Björn Aron.
Að lokum bið ég Guð að blessa
minningu þessa góða manns. Að-
standendum öllum sendi ég og fjöl-
skylda mín innilegar samúðarkveðj-
ur. Blessuð sé minning hans.
Sigríður K. Valdimarsdóttir
fmmmm vimmh
■— ' \ i — • •
Afþessumjeppa hafa íslend-.
. I ingar mjög mikla og góða
reynslu bæði sem fyrirtaks "
- ' fjölskyldu- og ferðabíl og •
—öflugum vinnuþjark.
• N Nú eiga bændur og rekstrar-.
N aðilar kost á þvf að draga virð- •
\ isaukaskattinn frá bílverði.
_ Tökum gamla bílinn upp í nýjan
og semjum um eftirstöðvar.
•\ ' \ / ~i . 1 . . ^
— Opid laugardaga frá kl. 10-14.
\ _______, \ • . \ \ .
VerúlistiLM
Staðgr.verð
1300 SAFÍR4G.........371.269,-
1500 STATION 4G......424.932,-
1500 STATI0N LUX5G...461.292,-
1600 LUX5G...........454.992,-
* 1500 SAMARA 5G, 3D.490.485,-
*1500 SAMARA 5G, 5D..518.524 -
1600 SP0RT4G.........661.620 -
1600 SP0RT 5G........723.289,-
*„Metallic“ litir kr. 11.000,-
Ofangreint veró er miðað við að
bifreiðarnar séu ryðvarðar og tilbún-
ar til skróningar. Innifalin er einnig
6 óra ryðvarnaróbyrgð samkvæmt
skilmólum ryðvarnarstöðvor.
/ " '
/
\
og allir af stað.J
Það er stórkostlegt skemmtanalíf í
Fríklúbbnum, íþróttir, uppákomur!
Hópurinn fer saman út að borða,á
diskótek, skellir sér á seglbretti eða í
jeppasafarí og.. og og..og.. alveg
pottþétt!
2ja vikna ferð til |L» Æg* %/)/}*
Costa del Sol frá Hfl ■f’Q*# l/l/f “
og 156.800,- fyrir alla fjölskylduna, tvo
fullorðna og tvö börn, 2 -11 ára
3ja vikna ferð 1-« ÆQ
til Mallorka frá fmfa TviSrl/I//1
2ja vikna ferð til \muá AH
til Portúgal frá ImH Hf/« 01/1// “
*Staðgreiðsluverö miðað við 4 - 6 i ibúð og 1000 króna innlegg i
ferðasjóöinn. Sjá innleggsmiða á öörum stað i blaðinu.
URVAL'UTSYN ZBSn
Álfabakka 16, simi 60 30 60