Morgunblaðið - 27.03.1990, Side 39
39
Það er með ljóði Hannesar Pét-
urssonar, Söknuði, sem ég kveð afa.
Fjallið sem þögult fylgdi mér eftir hvert skref
hvert fótmál sem ég steig, nú er það horfið.
Á beru svæði leita augu mín athvarfs.
Um eilífð á burtu fjallið sem fylgdi mér eftir
til ijærstu vega, gnæfði traust mér að baki.
Horfið mitt skjól og hreinu, svalandi skuggar.
Nú hélar kuldinn hár mitt þegar ég sef
og hvarmar mínir brenna þegar ég vaki.
Ólafur Tr. Mathiesen,
Ithaca.
Á kveðjustund er mér ljúft að
þakka fyrir þá dýrmætu reynslu,
að fá að kynnast Sveinbirni Árna-
syni og þær minningar sem hann
skilur eftir.
Nú munu vera liðin 70 ár frá því
Sveinbjörn steig sín fyrstu spor við
verslunarstörf í höfuðborginni, í
Haraldarbúð við Austurstræti, og
þau spor voru gæfuspor eins og
önnur spor hans á ævinni, þar sem
hann kynntjst sínum lífsförunaut,
Súsönnu Maríu Grímsdóttur, en hún
lést fyrir tæpum þremur árum.
Saman skópu þau heimili sem er
ógleymanlegt þeim er því kynntust.
Með krafti sínum og dugnaði
lauk hann lengri starfsævi en al-
mennt gerist, nánast fram á síðasta
dag, og með hjálpsemi sinni og
greiðvikni varð hann að úrvals
verslunarmanni, sem hafði að leið-
arljósi „að hafa góðar vörur á boð-
stólum á sanngjörnu verði, að þú
kaupir ekki köttinn í sekknum",
eins og hann sagði sjálfur.
Sveinbjörn var ákveðinn en sann-
gjafn og tókst það sem hann ætlaði
sér, uppgjöf var ekki til. Svo hraust-
ur var hann að honum varð vart
misdægurt allt sitt líf, þó að nokk-
urn skugga bæri þar á nú undir
það síðasta. Með sínu jákvæða hug-
arfari, bjartsýni og léttu lund tókst
hann á við erfiðan sjúkdóm nú
síðustu misserin og gerði þannig
sér og sínum nánustu lífið léttara,
þegar kveðjustundin nálgaðist.
Á sínum yngri árum stundaði
Sveinbjörn verslunarnám í London,
með gluggaútstillingar se_m sérsvið
og mun hann vera fyrsti íslending-
urinn sem lauk þannig námi. Þegar
heim kom fékkst hann við að
skreyta glugga ýmissa verslana og
þegar skammdegið færðist yfir og
jólin nálguðust tóku gluggaútstill-
ingarnar á sig hátíðlegan blæ og
fólkið skrapp í bæinn til að líta
dýrðina augum. Þarna var svo
sannarlega réttur maður á réttum
stað, en Sveinbjörn hafði afar næmt
auga fyrir því sem fallegt var og
sérstakt lag á að fá aðra til að
hrífast með sér.
Mér er minnisstætt stutt ferðalag
sem við fórum hér fyrir austan einn
fagran sumardag og horfðum yfir
Suðurlandsundirlendið baðað sól-
skini og það sem mér þótti hvers-
dagslegt breyttist á augabragði í
einhvern ævintýraheim með jöklana
í hásæti. Þannig var Sveinbjörn,
hann hafði eitthvað við sig sem
hafði góð áhrif á aðra og líkt og
sumardagurinn forðum er minning-
in um hann, björt og hlý.
Hans er gott að minnast.
Far þú í friúi,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdemar Briem.)
Tryggvi Steinarsson
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
Mhming':
Jón V. Guðvarðsson
Fæddur 17. júní 1905
Dáinn 15. mars 1990
í dag er borinn til hvílu afi minn
og uppeldisfaðir, Jón Víglund Guð-
varðsson.
Jón var fæddur og uppalinn í
Reykjavík. Hann var sonur hjón-
anna Guðvarðar Vigfússonar frá
Hróarsholti í Flóa og Guðlínar
Helgadóttur frá Ytri-Galtalæk í
Skilmannahreppi. Systkinin voru
alls sex en nú er aðeins ein systir
eftirlifandi, Jóna, en hún býr á
Akranesi.
Jón byijaði á unga aldri að vinna
fyrir s'ér, enda tíðarandinn þá annar
en nú er, hann stundaði meðal ann-
ars sjósókn á skútum, en síðar rak
hann fiskbúð og um tíma fiskimjöls-
verksmiðjuna á Kletti. Jón kvæntist
Þuríði Guðmundsdóttur, mikilli
prýðiskonu, 15. júlí 1933 ogeignuð-
ust þau einn son, Walter Helga, en
hún var ekkja og átti þijár dætur
frá fyrra hjónabandi, Guðmundu,
Jónheiði og Guðjónu Guðjónsdætur.
Fyrstu ár hjúskapar síns bjuggu
þau á Njálsgötunni, en síðar keyptu
þau húseignir ásamt húsgagna-
verslun og bólstrun á Hverfisgötu
82 þar sem þau bjuggu til dauða-
dags.
Eg á margar góðar minningar
frá æskuárunum, kemut' meðal ann-
ars upp í huga mér hvað hann lagði
sig eftir að hafa jákvæð og upp-
byggjandi áhrif á mig, en jafnframt
var hann ákveðinn uppalandi, hon-
um var alltaf umhugað um velferð
mína og entist það meðan hann lifði.
Vil ég í því sambandi minnast
þess hve dyggilega hann studdi við
bakið á mér er ég var að byggja,
en án hans hjálpar hefði sá draum-
ur trauðla ot'ðið að veruleika.
Umhyggja hans og kærleikur
náði einnig til fjölskyldu minnat' og
hafði hann sérstakt dálæti á dætr-
um mínum, enda fögnuðu þær hon-
um ávallt er þær hittu hann eða
þegar hann kom í heimsókn og ef
einhver tími hafði liðið frá því að
þær höfðu séð hann- spurðu þær
einatt hvort langafi færi ekki að
koma í heimsókn.
Blessuð sé minning afa míns.
Honum færi ég kærar þakkit' fyrir
allt og allt. Jórt V. Pétursson
t
Innilegar þakkir faerum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför systur okkar,
ÁRNÝJAR ÖNNU JÓNSDÓTTUR,
Meðalholti 12.
Ástriður Jónsdóttir,
Jónatan Jónsson.
t
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinsemd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
I. SVÖLU JÓNSDÓTTUR
frá Engey,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heimahlynningar Krabbameinsfé-
lagsins og deildar 11A Landspítala fyrir þá miklu alúð sem það
veitti henni í veikindum hennar.
Ómar Runólfsson, Auður Eiríksdóttir,
Margrét Runólfsdóttir, Sigurður Rafn Jóhannsson,
Dagmar Svala Runólfsdóttir, Ari Tryggvason
og barnabörn.
Sími 688500
Sérfræöingar
í blómaskreytingum
viö öll tækifæri
blómaverkstæði
SlNNA
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaöastrætis
sími 19090
GALDURINN VIÐ GÓÐAN DAG
leik og starfi
LUMCOLN
/ NORWELD
Rafsuðuheimurinn í tveimur orðum
Ameríska stórfyrirtækið Lincoln og evrópska Norweld
samsteypan sameinuðu krafta sína 1989.
Sameining þessara risa í rafsuðuiðnaðinum þýðir einfaldlega að
við í Sindra-Stáli erum nú enn betur í stakk búnir til að þjóna
viðskiptavinum með ailt er snertir rafsuðu og plasmaskurð.
Það þarf bara að muna tvö orð: Lincoln Norweid.
SINDRa/vÁSTÁLHF
BORGARTÚNI 31 • SÍMAR: 627222 - 21684