Morgunblaðið - 27.03.1990, Side 44
44
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ Í990
íímmífí
Þetta er ný gerð flugnaveið-
ara, sem ég vil fá einkaleyfi
á ...
Með
morgunkaffimi
Ég finn brunalykt.. .?
HÖGNI HREKKVÍSI
Slælega launuð lífgjöf
Vel heppnað-
ir Sparidagar
Kæri Velvakandi
Ég má til með að vkja athygli
á svonefndum Sparidögum sem
voru haldnir á Hótel Örk í Hvera-
gerði frá 19 til 22. febrúar undir
stjórn Hermanns Ragnars Stef-
ánssonar. Það var tekið á móti
okkur hjónum mánudaginn 19.
febrúar kl. 16 ásmt 130-150 öðr-
um „sparigestum“, allt fólk 60 ára
og eldra. Byijað var með skemmti-
legri kynningu. Þarna var fólk
frá Keflavík, Hafnarfirði, Borgar-
firði og úr Reykjavík.
Þetta stórglæsilega hótel og
Hermann Ragnar buðu upp á dá-
samlega daga með góðum mat,
góðri þjónustu og góðu skemmti-
prógrammi frá kl. 8 til 23. Til
staðar er sundlaug, gufubað, ljós
o. fl. sem gestir geta notað að
vild. Þetta er það ódýrasta og
langbesta frí sem við hjónin höfum
átt hér á landi, hvað þá annars
staðar í heiminum. Því skora ég
á Hótel Örk og Hermann Ragnar,
sem er ómissandi á þessum vett-
vangi, að efna til fleiri slíkra
sparidaga.
Jón Guðmundsson
Til Velvakanda.
' Með þessum titli birtist grein í
Velvakanda 27. janúar sl. Telur
höfundur að án sauðkinda hefðu
íslendingar orðið aldauða og lýkur
þessu skrifi sínu með svohljóðandi
áskorun: „Reisum nú sem fyrst
veglega kapellu til heiðurs þessum
látnu lífgjöfum okkar, þangað sem
við gætum leitað t.d. á Sviðamessu
og sameinast í þögulli bæn fyrir
sáíum framiiðinna sauðkinda.
Gæti Steingrímur Sigfússon emb-
ættað þar sem æðsti prestur.
Myndi honum þá vel sæma að
skrýðast sauðargæru.“
í Sandkorni DV segir fyrir
nokkru að Steingrímur landbúnað-
arráðherra sé mesti framsóknar-
maður hér í heimi. Ennfremur að
hann og sauðkindin séu orðin eitt.
Ef þessi samruni er orðinn svo
náinn mætti með réttu kalla
Steingrím tvíeinan. Fér hann þá
að slaga hátt upp í heilaga þrenn-
ingu.
Éljagrímur
Óréttlátt reykingabann
Til Velvakanda.
Ég las í dagblaði fyrir nokkru
að mitt uppáhalds flugfélag, Flug-
leiðir, íhugi að setja á reykinga-
bann í vélum í millilandafiugi.
Vafakust áhrif frá Bandaríkjun-
um. Ég er smáhluthafi í Flugleið-
um og er mjög annt um allan
hag félagsins. En að fara að
banna fullorðnu fólki að fá sér
sígarettu um leið og það fær sér
hressingu er mjög alvarlegt brot
á mannréttindum hins almenna
borgara, og ég veit ekki betur en
að stór hluti flugvéla sé reyklaus.
Ég spyr, á ofstækisfólk á móti
reykingum að ráða ferðinni í
rekstri Flugleiða. Og ég spyr,
erum við sem reykjum réttlausir?
Ég skora á forráðamenn flugleiða
að hugleiða að þetta bann gæti
skaðað félagið. Ég mun fljúga
með SAS eða Arnarflugi ef of-
stækismenn á móti reykingum
ráða ferðinni í rekstri Flugleiða.
Ég veit líka að ef slíkt bann
verður sett á mun öll sala á varn-
ingi stórminnka um borð í flugvél-
unum. Færri munu fá sér drykk
ef ekki má reykja. Ég óska Flug-
leiðum alls góðs og vona að jafn-
rétti ríki milli allra farþega á öllum
leiðum millilandaflugs. Ég skora
á fólk sem reykir að láta skoðun
sína í ljós.
Flugfarþegi
Víkyerji skrifar
Mikið hefur verið rætt um
hlutabréf að undanförnu og
fer vel á því. Þessar umræður eiga
áreiðanlega eftir að örva mjög
áhuga almennings á hlutabréfa-
kaupum og ýta undir hlutabréfa-
viðskipti almennt, ekki sízt ef
stjórnvöld fylgja þessum umræð-
um eftir með nauðsynlegri lög-
gjöf, sem vekur traust og tiltrú á
hlutabréfamarkaðnum.
í þessum umræðum hefur tölu-
vert verið rætt um Flugleiðir og
það er ekki í fyrsta sinn, sem svipt-
ingar verða um hlutabréfaeign og
flug á íslandi. Nú er sú kynslóð,
sem kom við sögu við endurreisn
Loftleiða fyrir tæpum fjórum ára-
tugum að draga sig í hlé smátt
og smátt. Þess vegna voru það
mikil tímamót um daginn, þegar
Kristinn Olsen, flugstjóri, lét af
störfum, sem stjórnarmaður í
Flugleiðumm, en hann var einn
helzti þátttakandi í þeirri byltingu,
sem gerð var í Loftleiðum á þeim
tíma.
Annar maður, sem einnig var
lykilmaður í þeim átökum, er Sig-
urður Helgason, stjórnarformaður
Flugleiða, sem var einn þeirra,
sem skipulagði óvænt hlutabréfa-
kaup í Loftleiðum, sem leiddu til
stjórnarbyltingar í félaginu. Og í
stjórn Flugleiða situr Kristjana
Milla Thorsteinsson, ekkja Alfreðs
Elíassonar, fiugstjóra og forstjóra
Loftleiða, sem var helzti forystu-
maður Loftleiða á þeim tíma.
Þau Sigurður Ilelgason og
Kristjana Milla eru því ekki alveg
ókunnug sviptingum og átökum á
milli hluthafa um völd og áhrif í
millilandaflugi!
xxx
Aþeim tíma voru Loftleiða-
menn eins konar utangarðs-
menn í fluginu. Þá var Flugfélag
íslands undir forystu Arnar 0.
Johnson. Fyrir u.þ.b. tveimur ára-
tugum, þegar veldi Loftleiða var
sem mest flutti Örn fræga ræðu
við komu nýrrar flugvélar Flugfé-
lagsins til landsins — ef Víkverji
man rétt — þar sem hann varaði
við því, að fjáraflamenn væru að
reyna að leggja undir sig Flugfé-
lagið. Þessir fjáraflamenn voru
Loftleiðamenn, sem þá höfðu nóg
af peningum handa á milli og Örn
taldi, að hefðu uppi tilburði til
þess að kaupa upp hlutabréf í
Flugfélaginu. Þessi ræða Arnar
O. Johnson kom í veg fyrir, að
meira yrðu úr þeim áformum.
xxx
að hefur yfirleitt verið rólegja
í kríngum Eimskipafélag ís-
lands, Svo var þó ekki í upphafi.
í ævisögu Thors Jensens, sem
Valtýr Stefánsson, ritstjóri Morg-
unblaðsins skrifaði, kemur fra-m
mikill sársauki Thors yfir því að
ná ekki kosningu í_ fyrstu stjórn
Eimskipafélagsins. í bókinni segir
m.a.: „Ég hafði litið á mig sem
íslending í þrjátíu ár. Kannski
fann ég það aldrei betur en ein-
mitt nú, er ég var í Höfn og litið
var á mig þar sem hinn eindregn-
asta andstæðing' gamla verzlun-
arólagsins, sem Danir vildu halda
í. En ég náði ekki kosningu í stjórn
Eimskipafélagsins . . . Skömmu
eftir að ég koni heim úr utanför-
inni gaf ég 6.400 krónur af hluta-
bréfum mínum í Eimskipafélaginu
til sjóðsstofnunar við Vífilsstaða-
hæli og átti arðurinn að renna til
styrktar fátækum sjúklingum
þar.“
xxx
Sú var tíðin, að hlutabréf í Eim-
skipafélaginu voru ekki jafn
eftirsótt og nú. En samt var pass-
að upp á þau! Fyrir rúmum tveim-
ur áratugum vildi Lífeyrissjóður
verzlunarmanna, sem þá var að
byrja að kaupa hlutabréf kaupa
bréf, sem þá voru til sölu, fyrir 5
milljónir króna á þágildandi verð-
lagi. En stjórn Eimskipafélagsins
bannaði það og sagði að Lífeyris-
sjóðurinn mætti kaupa fyrir eina
milljón!