Morgunblaðið - 28.04.1990, Page 41

Morgunblaðið - 28.04.1990, Page 41
Þessir hringdu Myndbandi stolið Sonja hringdi frá heimili sínu í Stóragerði og sagði að póstkassi hennar hefði vedð í lamasessi um hríð og þá hefðu óprúttnir náungar einhverjir stundað það að stela dagblöðum hennar. En það var ekki það versta segir Sonja, heldur að aðilar þessir hirtu átekna vídeóspólu sem sett hafði verið í kassann og Sonju var afar kær. Skoraði hún á þá að skila spólunni eða ef einhver vissi um afdrif hennar að láta sig vita í síma 34549. Sonja notaði tækifærið og kvartaði undan of miklum knattspymu- fréttum á íþróttasíðum, sagði að meiri rými ætti að leggja undir fregnir af minni félögum úti á landsbyggðinni, slíkt virk- aði hvetjandi á allt starf á slíkum stöðum. Kettlingafull á flandri Kattareigandi að Þorfmnsgötu 12 sló á þráðinn og sagði að kisan sín, svört og kettlingafull læða hefði sloppið út á sunnudag og ekki sést síðan. Hún ætti von á sér innan fárra daga og því brýnt að koma henni í hús, enda er um innikött að ræða. 1 ná- grenninu eru margir skúrar og vildi kattareigandi fara þess á leit við skúreigendur að þeir svipuðust um í kofum sínum og létu vita ef þeir yrðu einhvers vísari. Síminn er 19366. Næla týndist Kona hringdi og hafði týnt nælu úr smiðju Jens og var frá þessu greint í dálkinum fyrir nokkrum dögum. Þá féll hins vegar niður símanúmer eigandans sem er 71590. Nælan er eins og blað með hvítri kúlu neðst. Jón J. Jakobsson hringdi og vildi þakka Elfu Björgu Gunnarsdótt- ur fyrir pistil hennar í Morgun- blaðinu fyrir skömmu um ágæti hákarlalýsis • og fleira um þá vöru. Jón sagðist hafa alist upp vestur á Ströndum og faðir sinn hafi þar verið hákalraformaður. Aldrei hafi lýsi verið álitið annað en holl neysluvara og byggði fólk þar á reynslu sinni og til- fínningu. Hann undraðist því að öfl í þjóðfélaginu legðu stein í götu á innflutningi þessarar vöru frá Svíþjóð og vildi að gerð yrði opinberlega grein fyrir for- sendunum. Týndi úri m/slitinni ól Karlmaður hringdi og hafði týnt karlmannsúri á slitinni leðuról. Líklega í miðbænum. Finnandi vinsamlegast hringið í síma 19480 og láti vita. Ekki hugsað mikið um börnin Amma hringdi og sagði sögu sem hún taldi óskaplega ljóta. Hún segir frá: „Eitt bamabarna minna var einn af drengjunum sem voru á sviðinu er fegurðar- drottning íslands var valin á dögunum og lifði hann sig svo sannarlega inn í hlutverkið eins og nærri má geta. Ég var heima að passa annað barnabarn og fylgdist með í sjónvarpi. Klukk- an hálfeitt kom drengurinn heim gersamlega úrvinda bæði af þreytu og ekki síst hungri. Hann bað strax um mat því hann væri svo svangur. Ég varð undr- andi, þarna hafði hann verið í fleiri klukkustundir, og spurði hann hvort bömin hefðu ekkert fengið að borða. Jú, þau höfðu fengið pínulítið djús. Ég átti ekki til orð. Þarna í húsinu voru allir að borða, en börnin fengu ekki matarörðu. Þetta þykir mér skjóta svolítið skökku við þar sem markmið þessara fegurð- arsamkeppna er yfirlýst að hugsa sem best um börnin, en svo bara gleymast þau í öllum látunum." Af gefni tilefni er þess sérstak- lega óskað að sem flestir skrifi í Velvakanda undir nafni. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagmýni, ádeilur eða árás- ir á nafngreint fólk. - Ritstj. IVY VERHLAIINABOK jriOiílj'.iíi líiUJ: í pokahorninu er sagan um hann Didda. Hann er heldur væskilslegur drengur og strítt í skólanum. í draumum sínum er hann hins vegar hetja. En honum nægja ekki dagdraumarnir, hann vill að þeir rætist. Diddi tekur á öllu sem hann á og í ljós kemur að þessi drengur á sitthváð í pokahorninu sem kemur öðrum á óvart! í pokahorninu er Pimmta sagan sem hlýtur íslensku barnabókaverðlaunin. Höfundur hennar er Karl Helgason og er þetta fyrsta skáldsaga hans. Áður útkomnar verðlaunabækur-. 1986: Kmil og Skundi cftir Guðmund Ólalsson. 1987: l'ranskbrauð nieð sullu ellir Kiislínu Sleinsdóltur. 1988. Fugl í búri eltlr Krlstínu Loftsdóltur. 1989: Álagadalurinn eftir lleiði Baldursdóttur. HELGAFELL Síðumúla 6 Sími 688 300 HVÍTA HÚSfÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.