Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 1990
15
Helgi Hálfdanarson:
Helmingi hærri
Nýlega birtist grein í einu dag-
blaðanna, þar sem mælt var gegn
því að talan 200 væri sögð helm-
ingi hæiri en talan 100. Var því
haldið fram, að sú tala, sem teldist
helmingi hærri en 100, hlyti að
vera 150, vegna þess að helmingur-
inn af 100 er 50. Samtímis var
mælt með því sem réttu máli, að
200 væri tvisvar sinnum hærri tala
en 100.
Þetta er svo sem ekki ný kenn-
ing. Hún hefur verið barin inn í
börn og fullorðna árum saman með
þeim árangri, að fáir dirfast lengur
í gegn að rísa. En hér er samt um
misskilning að ræða.
Fyrir nokkrum árum sýndi und-
irritaður fram á það í greinarstúf,
að samkvæmt langgróinni mál-
venju væri tuttugu helmingi hærri
tala en tíu, og væri þar ekki aðeins
um hefð að ræða, heldur einnig
alls kostar rökrétt mál, því að í
samanburði af þessu tagi væri jafn-
an miðað við hærri töluna. Talan
tuttugu er helmingi sínum hærri
en talan tíu. Fimmtán er ekki helm-
ingi heldur þriðjungi (sínum) hærri
en tíu. Og talan tíu er helmingi
(tölunnar tuttugu) lægri en tutt-
ugu. Á þessu hefur aldrei ieikið
neinn vafi fyrr en upp kom sú nýja
reikningskúnst, að fimmtán væri
helmingi. hærri tala en tíu.
Nú segir einhver, að ekkert
mæli gegn því, að miðað sé við
lægri töluna fremur en þá hærri.
Því er til að svara, að til þess þarf
jafnvel meiri sérvitring en undirrit-
aðan að vilja fyrir hvern mun gera
ráð fyrir að orðin merki það
sem öll þjóðin hefur öldum saman
vitað að þau merkja ekki.
Orðalagið tvisvar sinnum er útaf
fyrir sig málleysa, sem reyndar er
ekki ný af nálinni. Rétt er að segja
annað hvort tvisvar eba.tveim sinn-
um; en þetta tvennt hefur runnið
saman og orðið tvisvar sinnum,
sem er engu skárra en að segja
tvisvar skiptum, ef einhveijum
dytti það í hug.
En jafnvel þótt tvisvar sinnum
sé leiðrétt, fær hvorki tvisvar né
tveim sinnum staðizt í þessu sam-
bandi. Ef talan 200 er sögð tvisvar
hærri en 100, þá er öll íslenzk
málhugsun fokin út í veður og
vind. Það er eins og sagt væri:
Talan 200 er hvað eftir annað
hærri en 100. Hins vegar merkir
nafnorðið sinn upphaflega ferð og
síðan skipti. Og ætti einhver mein-
ing að vera í orðalaginu tveim sinn-
'um hærri tala en 100, þá hlyti sú
tala að vera 300, því samkvæmt
sögðu ættu 200 að bætast við 100.
Tuttugu er fjórum sinnum fimm,
að sjálfsögðu, en ekki fjórum sinn-
um hærri en fimm.
Stundum heyrist sagt sem svo,
að tuttugu sé tvöfalt hærri tala en
tíu. Illa fer á því. í slíkum saman-
burði er rétt að gera ráð fyrir þágu-
falli á undan miðstigi, þó ekki virð-
ist sú regla að öðru leyti án undan-
tekninga. Þarflaust er að leita uppi
svo afkáralegt orðbragð til þess
eins að bijóta gegn gróinni mál-
hefð. Rökrétt mál væri tvöföldu
hærri én tíu; en sú tala væri ekki
tuttugu, heldur þrjátíu.
Loks ætla ég að vera svo hygg-
inn að vísa til minna eigin rök-
semda um þetta mál í kverinu
Skynsamleg orð og skætingur, 69.
bls. Sú bók bóka réttlætir tilkomu
prentlistarinnar.
Guðrún Helga-
dóttir, forseti
sameinaðs þings:
Þörf á að
stórauka
kynningu
á störfiim
Alþingis
GUÐRÚN Helgadóttir, forseti
sameinaðs Alþingis, telur að
auka þurlí kynningu á störfum
Alþingis stórlega. Hefur hún lagt
til, að til þess verði ráðinn aðili,
sem verði ábyrgur gagnvart
þinginu.
Guðrún sagði í ræðu sinni við
þinglausnir á laugardag, að engu
væri líkara, en þjóðþingið ætti í vök
að veijast. Aukin tækni í íjölmiðlun
hefði fært störf þingsins inn á hvert
heimili í landinu og óvíða væri fylgst
svo grannt með störfum þess sem
hér á landi. Hins vegar réði þingið
litlu um það, sem birtist í fjölmiðlum
og oft virtist það sýnast áhugaverð-
ara, sem aflaga færi eða ekkert
væri, en það starf, sem unnið væri
landi og lýð til farsældar. Skoðun
■hennar væri því sú, að tímabært
væri að stórauka kynningu á störf-
um Alþingis og til þess ráðinn að-
ili, sem væri ábyrgur gagnvart
þinginu sjálfu. Fijáls fjölmiðlun
væri sjálfsögð í lýðræðisþjóðfélagi,
og þar ætti þingið engu að ráða
um, en það ætti jafnframt að hafa
sama frelsi til kynningar á eigin
störfum.
Ferðafélag íslands:
Ferðakynn-
ing í Nor-
ræna húsinu
FERÐAKYNNING Ferðafélags
íslands verður í Norræna húsinu
í kvöld, iniðvikudaginn 9. maí,
kl. 20.30.
Á ferðakynningunni verða kynnt-
ar ferðir, sem farnar verða í sum-
ar, og sýndar myndir, til dæmis frá
Vestfjarðahring, af Hornströndum,
frá Laugum og Þórsmörk, úr Suður-
landsferð, miðhálendisferð og frá
Lónsöræfum auk gönguferða um
Jötunheima í Noregi. Þá verður
sýnt nýtt myndband frá norska
ferðafélaginu um þeirra ungmenna-
starf og ferðamöguleika um fjalla-
svæði Noregs.
Ferðir um hvítasunnuna verða
kynntar sérstaklega.
(Úr fréttatilkynningu)
Já, hún Anna Karsldóttir hefur grennst um 27 kg á aðeins sex mánuðum. En hún er ekki
ein um það að hafa náð frábœrum árangri með aukinni hreyfingu og breyttu matarœði.
Fjöldi kvenna sem stunda leikfimi hjá HRESS eru til vitnis um það. Þú gcetir orðið ein
þeirra. Og við lofum þér miklum árangri ef þú ferð að okkar ráðum. Aukið þol, meiri
styrkur og færri kíló munu auka vellíðan og sjálfsöryggi þitt.
1. NÁMSKÍIÐ - NÝR LÍFSSTÍLL
Við bjóðum nú námskeið sem við köllum NÝJAN LÍFSSTÍL. Námskeiðið er einkum ætlað
konum sem þurfa að grennast mikið og mun Anna miðla þar af reynslu sinni. Námskeiðið
byggist uþþ á fræðslu, hvatningu, aðhaldi, leikfimi og göngu fjórum sinnum í viku í 4
vikur. Takmarkaður fjöldi kemst að.
2.NÁMSKEI0-SUMARÁTAK
SUMARÁTAK er námskeið sem sameinar kosti inni- og útileikfimi. Tvisvar í viku erfar-
ið í leikfimi og tvisvar í viku er gengin kraftganga sem er mjög vinsæl um þessar mundir
í Bandaríkjunum og býðst hérlendis aðeins hjá HRESS.
LEIKFIMI FYRIR ALLA - ALLAN DAGINN
Auk þessa býður HRESS leikfimi á morgnana, daginn og á kvöldin, leikfimi fyrir barns-
hafandi konur, eróbikk og leikfimi á laugardögum.
SKRÁDU ÞIG STRAX í SÍMA 65 22 12
Barnagœsla mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9:30-16:00
HRESS
IJKAMSRÆKT OG IJÓS
BÆJARHRAUNI 4/V1Ð KEFLAVÍKURVEGINN/SiMI 65 2212