Morgunblaðið - 09.05.1990, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 09.05.1990, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1990 33 Gíslína Sigurðar- dóttir - Minning Fædd 20. júní 1891 Dáin 30. apríl 1990 I dag kveð ég tengdamóður mína Gíslínu Sigurðardóttur sem andaðist aðfaranótt 30. apríl sl. Gíslína dvaldi á Hrafnistu í Reykjavík síðastliðin 9 ár og hefði hún orðið 99 ára gömul 20. júní nk. Gíslína fæddist á Helgastöðum í Reykjavík 20. júní 1891, ásamt tvíburabróður sínum Siguijóni, sem nú er látinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Jónsdóttir frá Snotru í Þykkvabæ, fædd 7. nóvember 1847 og dáin 18. janúar 1924, og Sigurð- ur Jónsson frá Hofi á Kjalarnesi fæddur 15. september 1826, dáinn 30. maí 1915. Foreldrar Gíslínu voru orðin nokk- uð roskin er þau eignuðust hana og þóttu mikil tíðindi þegar tvíburarnir fæddust sem var heldur fátíður at- burður í Reykjavík. Gíslína sagði að fátæktin hafi verið mikil, en með hjálp góðra manna hafi allt gengið vel. Gíslína giftist Sigurði Agúst Guð- mundssyni 16. október 1915 sem þá var skútuskipstjóri og síðan skip- stjóri á togurum þar til hann fór í land og gerðist verkstjóri við fisk- vinnslu í Reykjavík. Sigurður lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík rétt eftir alda- mótin. Sigurður var félagi í Odd- fellowreglunni. Sigurður og Gíslína hófu búskap sinn á Grettisgötu 42b í húsi Sigurðar sem hann átti þegar hann gifti sig. Þau eignuðust þijú börn sem eru: Sigurður Gunnar, fyrrverandi varaslökkviliðsstjóri í Reykjavík, giftur Ragnhildi Guð- mundsdóttur sem lést 26. nóvember 1984, Sigurgísli innanhússarkitekt giftur undirritaðri og Sigríður Bára húsmóðir, gift Reyni Þórðarsyni, byggingameistara. Barnabömin eru nú orðin 10 talsins og barnabarna- \ börnin 15. Hjónaband Gíslínu og Sigurðar var afar farsælt. Reglusemi og sam- heldni hafa verið þeirra aðalsmerki. Gíslína annaðist aldraða foreldra sína til æviloka. Þau bjuggu nokkur ár á Grettisgötu 42b, þar til þau byggðu tvílyft steinhús á Mjölnis- holti 10. Hefur það verið töluverð framtakssemi í þá daga. Bjuggu þau þar, en Sigurður lést árið 1950, 66 ára gamall og var hans sárt saknað. Gíslína bjó nokkur ár í Mjölnisholti 10, eftir að hún var orðin ekkja, flutti síðan í Stigahlíð 32 og bjó þar þangað til hún fluttist á Hrafnistu í Reykjavík. Gíslína og Siguijón tvíburabróðir hennar, sem starfaði lengst af hjá Alafossi, liöfðu alla tíð mjög náið og gott samband og einnig við íjöl- skyldu hans. Gíslína var mjög frænd- rækin. Gíslína var sérstaklega greið- vikin manneskja og naut sín best þegat' hún gat orðið einhveijum að liði og var mjög barngóð enda nutu barnabörnin þess. Gíslína var mjög glæsileg kona og var alla tíð mjög heilsuhraust enda bar hún aidurinn vel. Það má segja að hún hafi haft sérlega tign- arlegt fas ekki síst er hún skartaði íslenska búningnum við hátíðleg tækifæri. Gíslína var mikil sjálfstæðiskona og var meðlimur í sjálfstæðiskvenna- félaginu Hvöt. Hún starfaði einnig í Kvennadeild Verkstjórafélagsins. Hún var sérstaklega mikil félagsvera og naut sín vel í öllum íjölskylduboð- um eða öðrum félagsskap. Það voru heldur ekki fáir sem komu til henn- ar í Mjölnisholtið til að rabba og fá sér kaffisopa er þeir áttu leið um. Hún var sérlega myndarleg í hönd- unum og var mikið saumað heima og ptjónað fyrir heimilið utan þess sem - hún aðstoðaði ýmsa aðra. Gíslína var trúhneigð kona. Hún ias mikið um dulræn efni og trúði hún á aðra tilveru eftir þessa. Þegar hún á efri árum var að riíja upp gömlu dagana í lífi sínu sagði hún mér stundum frá veru sinni í Skarði í Landssveit þar sem hún var nokkur sumur í kaupavinnu þegar hún var ung. Ævintýraljómi var yfir henni þegar hún sagði mér frá þeirri dvöl sinni. Það hefur verið mikil til- breyting að fara af möiihni í Reykjavík og dvelja í sveitinni með góðu fólki. í niðjatali Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur var Gíslína talin elsti ættinginn í 8. lið sem kunnugt var að væri þá á lífi en faðir hennar, Sigurður Jónsson, var í 7. lið. Sigríður móðir Gíslínu er í niðjatali Víkingslækjarættar. Þakka ber starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun og þægilegt viðmót sem henni var sýnt. Blessuð sé minning hennar, hvíli hún í friði. Edda Vikar Guðmundsdóttir í dag verður gerð útför ömmu minnar, Gíslínu Sigurðardóttur, frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Hún an- daðist 30. apríl sl. á Hrafnistu en þar hefur hún dvalið undanfarin ár. Gíslína var 98 ára er hún lést. Oft hafði hún orð á því að líklega yrði allt samferðafólk farið á undan sér og hennar útför því fámenn. Gíslína fæddist á Helgastöðum í Reykjavík 20. júní 1891. Foreldrar hennar voru Sigríður Jónsdóttir ætt- uð frá Snotru í Þykkvabæ og Sigurð- ur Jónsson bóndi að Lykkju á Kjalar- nesi, síðar verkamaður í Reykjavík. Tvíburabróðir Gíslínu var Siguijón Sigurðsson sem vann lengst af sinni starfsævi hjá Álafossi. Siguijón an- daðist á 80 ára afmælisdegi þeirra systkina. Mjög kært var með þeim systkinum og samrýnd voru þau, minnist ég þess að fyrstu misserin eftir að Siguijón andaðist taldi hún víst að hún yrði einnig kölluð burt úr jarðríki fljótlega en svo varð ekki fyrr en nú, nítján árum síðar. 16. október 1915 giftist Gíslína Sigurði Ágúst Guðmundssyni skip- stjóra. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau á Grettisgötu 42b. Þar ól amma börnin þeirra þijú, Sigurð Gunnar, Sigurgísla og Báru. Seinna byggðu þau hús í Mjölnisholti 10. Sigurður Ágúst lést 1950. Lengst framan af ævi var amma heilsuhraust, hún var rúmlega átt- ræð þegar hún þurfti fyrst að fara á sjúkrahús en góða heilsu hafði hún þar til fyrir um fimm árum er hún lærbrotnaði. Eftir það óhapp fór að halla undan og lífsþróttur minnkaði. Amma fylgdist vel með þjóðmálum og hafði mjög ákveðnar skoðanir í þeim efnum. Hún var áskrifandi Moggans frá fyrstu útgáfu. Æskuminningar frá heimsóknum í Mjölnisholtið eru góðar. Amma var örlát við okkur barnabörnin, hún gaf sér tíma til að hlusta en þess minn- ist ég sérstaklega. Amma lifði langa og góða ævi, dó í hárri elli, södd lífdaga. Hún var sátt við sitt líf og sátt við að deyja. Hún reyndist okkur barnabörnunum vel og vil ég þakka samveru og góða leiðsögn í lífinu. Guðmundur Sigurðsson Okkur langar að minnast ömmu okkar, Gíslínu Sigurðardóttur, sem lést þann 30. apríl sl. á Hrafnistu í Reykjavík. Hún fæddist að Helgastöðum í Reykjavík, 20. júní 1891, ásamt tvíburabróður sínum, Siguijóni Sig- urðarsyni. Amma giftist ung afa okkar, Sig- urði Á. Guðmundssyni, sem lést þann 3. febrúar 1950. Þau eignuð- ust saman þijú börn, þau Sigurð Gunnar, Sigurgísia og móður okkar, Sigríði Báru. Amma er okkur öllum einstaklega minnisstæð þar sem við frá unga aldri höfðum hana hjá okkur. Ýmist vorum við á heimili hennar eða hún í húsi foreldra okkar. Hún var sér- staklega hjálpsöm. og tók virkan þátt í lífi okkar. Glaðlyndi og hressi- leiki einkenndi hana aila tíð. Sér- staklega eru okkur minnisstæð þau ár sem amma Gilla bjó í Stigahl- íðinni. En það var í göngufæri við Safamýri þar sem við bjuggum. Amma bjó ein í Stigahlíðinni frá 72 ára aldri til 89 ára aldurs, hún hugsaði alveg um sig sjálf. Hún lét sig ekki muna um að ganga yfir umferðarþyngstu gatnamót lands- ins, komin nærri á tíræðisaldur. Það var mjög tíguleg sjón að sjá hana þráðbeina í baki storma eftir Miklu- brautinni með hatt og göngustaf. Hún taldi ekki eftir sér að koma og aðstoða þegar á þurfti að halda og til hennar var alltaf hægt að koma og fá góð ráð. Henni féll ekki verk úr hendi og gestrisni hennar með eindæmum. Hún hafði fastar skoðanir á hlutun- um og livikaði aldrei frá þeim. Hún talaði oft um að fara á elliheimili, en hún sem sjómannsekkja vildi eyða ævikvöldinu á Hrafnistu. Ekki var sama hvert herbergið var, nei, hún hafði einnig ákveðna skoðun á því. Annars var elliheimili bara fyrir gamalt fólk, hún var ekki enn orðin gömul. En svo kom að því að henni fannst tími til kominn að fara á Hrafnistu. Hún fór þá sjálf 98 ára og útvegaði sér herbergi sem henni leist á. Pakkaði sjálf sinum föggum og flutti síðan með hjálp barna sinna inn eftir. Henni fannst í lagi að flytja inn á stofnun fyrir aldraða því hún var nú orðin svo vön að umgang- ast gamait fólk. Svona var amma okkar alltaf ung í anda og ijall- liress. Henni ieið vel á Hrafnistu alla tíð. En undir lokin var henni farið að leiðast biðin eftir því að Guð tæki hana til sín og sagði jafnan gjarnan að fóik ætti ekki að þurfa að lifa svona lengi. Henni hefur eflaust þótt erfitt að geta ekki haft stjórn á því líka. Amma Gilla gleymist okkur aldr- ei, svo mikið gaf hún okkur, sem ekki verður aftur fengið. Yndislega ættjðrð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættjörð, ástarkveðju heyr þú mína. (Sálmur.) Sigurður Reynisson, Þórunn Reynisdóttir og Hafdís Reynis- dóttir. Guðbrandur Þórðar- son - Kveðjuorð Fæddur 6. nóvember 1987 Dáinn 2. maí 1990 Mig langar til að kveðja elskuleg- an lítinn vin okkar, Guðbrand Þórð- arson, er lést að morgni 2. maí, aðeins tveggja og hálfs árs. Erfitt er að skilja, og sætta sig við, af hveiju hann svo ungur og fullur af fjörí skuli allt í einu ekki vera á meðal okkar. Af hveiju, spyr maður sig, en því getur enginn svar- að. Aldrei framar mun sonur minn banka uppá á móti og fá vin sinn út að leika og ekki verða rólóferð- irnar fleiri þar sem tveir vinir mættu daglega saman. Á stundu sem þess- ari er sorgin mikil en minningarnar eru margar um ljúfan dreng og þær tekur enginn frá okkur. Með þessum fátæklgu orðum vilj- um við, ég og fjölskylda mín, þakka fyrir þann tíma er við fengum að njóta með Guðbrandi. Blessuð sé minning hans. Elsku Þorbjörg, Þórður, Emilía og Marta, sorg ykkar er mikil, megi góður Guð styðja ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum. Hrönn Ég ætla að kveðja litlu hetjuna mína með nokkrum orðum og þakka Guði fyrir að hafa fengið að njóta nærveru Guðbrands þó að tíminn hafi verið stuttur. Auðvitað spyr maður af hveiju, að gefa líf til að taka það aftur innan skamms, en við verðum að trúa því að þetta hafi allt tilgang og að honum hafi verið ætlað annað hlutverk. Við eigum minningarnar sem enginn getur tekið, þær munu ylja okkur og vera huggun í harmi. Gammi minn var ákveðinn og oft gat maður brosað og hlegið þegar hann baukaði við að hafa hlutina eins og hann vildi hafa þá. Ég bið góðan Guð að styrkja foreldra hans og systur og okkur öll. Megi elsku litli vinurinn sofa vært. Ragga frænka Guð í náðar nafni þínu, nú til hvíldar legg ég mig. Hvíl þú nú í hjarta mínu, helga það svo elsk’ eg þig. Góði faðir gættu mín. Gefi blessun mildin þín, að í friði sætt ég sofi. Síðan þig, er vakna, lofi. (Sb. Nr. 548.) Elsku Þorbjörg, Þórður, Emilía og Marta. Við biðjum Guð almátt- ugan að styrkja ykkur og blessa. Sigmar, Hulda, Siggi Már, Stefnir Örn og Sævar Þór. Vortilboð á BV-handtjökkum Góður afsláttur í maí á meðan birgðir endast. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI672444 TELEFAX672580 íi Eigum ávallt fyrirliggjandi hina velþekktu BV-hand- lyftivagna meö 2500 og 1500 kílóa lyftigetu. • • FJALLAHJOL! _ — Reióhjolaverslunin ORNINNi Spitalastig 8 við Óðinstorg simar 14661 26888

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.