Morgunblaðið - 20.05.1990, Side 1
112 SIÐUR B/C
113. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Rúnar Þór
í HÚSDÝRAGARÐINUM í LAUGARDAL
Fúlga í boði
fyrir skrímsli
Lundúnum. dpa.
BRESKT veðmálafyrirtæki áformar um-
fangsmikla leit að skrímslinu í Loch
Ness-stöðuvatninu í Skotlandi dagana
5.-7. október. Hyggst það meðal annars
bjóða 250.000 punda (25 milljóna íkr.)
verðlaun geti einhver lagt frarn óyggj-
andi sönnun fyrir því að ófreskjan sé í
vatninu. Allir sem vilja geta tekið þátt
í leitinni og verða sérfræðingar frá nátt-
úrugripasafninu í Lundúnum dómarar.
Þeir taka ekki óskýrar myndir eða hljóð-
sjármælingar gildar heldur vilja þeir
helst beina- eða vefjasýni. Þátttakendur
mega ekki beita skutlum eða öðrum
vopnum. Skipuleggjendur leitarinnar
telja afar ólíklegt að skrímslið fínnist.
Vilja girðingu
kringum Sfinxinn
Kaíró. Reuter.
ALÞJÓÐLEG sveit
vísindamanna sem
beðin hefur verið að
leggja á ráðin um
verndun Sfinxins og
pýramídanna miklu í
Egyptalandi hefur
lagt til að allt að sex
metra hár veggur verði reistur um-
hverfis þessar fornminjar til þess að
vernda þær fyrir ágangi ferðamanna.
Innan hans verði öll mannvirki seinni
tíma rifin og þar með bjóðist gott út-
sýni til pýramídanna og Sfinxins af
múrnum. Einnig leggja vísindamenn-
irnir til að umferð ökutækja verði nán-
ast bönnuð í nágrenni fornminjanna og
malbikaðir vegir sem liggja þvers og
kruss um minjasvæðið verði rifiiir upp.
Menningar- og menntamálaráðherra
Egypta bjóst í gær við að tillaga
vísindamannanna yrði samþykkt og
veggurinn reistur innan tveggja ára.
Hægrimenn í
sókn í Svíþjóð
Stokkhólmi. Frá Claes von Hofsten,
fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKIR hægrimenn (Moderatarna)
eru í sókn um þessar mundir og hefúr
fylgi þeirra aldrei verið jafii mikið í
60 ár, samkvæmt Gallup-könnun, sem
birt var á fóstudag. 27 af hundraði
kjósenda styðja flokkinn, ef marka má
könnunina. Fylgi jafnaðarmanna er
33,5%, sem er meira en tíu prósentu-
stigum minna en þeir hafa fengið á
undanfórnum áratugum. Borgaralegu
flokkarnir njóta stuðnings 49,5% Svía
en vinstriflokkarnir 41%.
Enduireisnarráðmu
spáð sigri í Rúmeníu
Búkarest. Reuter, Daily Telegraph.
RÚMENAR ganga að kjörborðinu í dag og verða þetta fyrstu frjálsu og lýðræðis-
legu kosningarnar í landinu í rúma hálfa öld ef marka má leiðtoga Endurreisnar-
ráðsins sem fer með völdin. Stjórnarandstæðingar hafa deilt hart á ráðið fyrir
ólýðræðisleg vinnubrögð og bent á að flestir forystumenn ráðsins hafi áður ver-
ið kommúnistar og taglhnýtingar Nicolae Ceausescus einræðisherra sem drepinn
var í desemberbyltingunni. Stjórnir Bandaríkjanna og Bretlands hafa lýst áhyggj-
um vegna þess að stjórnarandstæðingum hefúr verið mismunað á ýmsan hátt, m.a.
í rúmenskum ríkisljölmiðlum, auk þess sem þeim hefur verið hótað ofbeldi.
A
Ottast var að til blóðugra átaka gæti
komið í kosningabaráttunni en þrátt
fyrir mikla heift, brigsl um kommúnisma
og fleiri ávirðingar, hefur ekki farið svo.
Þúsundir óánægðra stúdenta og andófs-
manna hafa teppt umferð á Háskólatorginu
í Búkarest vikum saman til að krefjast
þess að kosningunum yrð. seinkað og mót-
mæla Endurreisnarráðinu en yfirvöld hafa
ekki reynt að fjarlægja þá með valdi.
Flestir spá ráðinu sigri í þingkosningun-
um og sama er að segja um forsetafram-
bjóðanda þess, Ion Iliescu, starfandi for-
seta. Aðrir frambjóðendur til embættisins
eru Radu Campeanu, úr Fijálslynda flokkn-
um, og Ion Ratiu, frambjóðandi Bænda-
flokksins. Yfir sextán milljónir manna eru
á kjörskrá og kjörseðlarnir eru þrír þar eð
barist er um embætti forseta auk sæta í
báðum deildum þingsins, 119 í efri deild,
387 í neðri. Landinu er skipt í 40 kjör-
dæmi auk Búkarest. 82 flokkar bjóða fram
og verður þingsætum“skipt eftir hlutfalli
þeirra af heildaratkvæðamagninu. Hljóti
enginn forsetaframbjóðandi yfir helming
atkvæða verður kosið aftur milli tveggja
efstu manna 3. júní. Þá á einnig að kjósa
aftur um þingsæti í þeim kjördæmum þar
sem kosningaþátttaka er undir 50%, verði
það nauðsynlegt.
Um 430 erlendir eftirlitsmenn munu
reyna að fylgjast með því hvort kosningarn-
ar fari heiðarlega fram og nær 1.300 er-
lendir fréttamenn eru í landinu vegna kosn-
inganna. Fyrstu tölvuspár eru væntanlegar
skömmu eftir kl. 20 í kvöld að íslenskum
tíma.
EKMBARA
KÚLKEÐ/io
MANNSMYND
Vytutas Landsbergis forseti
Lithái Iííiiii í
Hngnrgóma
AFMGRIM
FRM.....
RÚSSNESKi
PÍANÓ-
LEIKARINN
LEONÍD
TSJÍSJIK
MSM
DAGSKRARGERÐ
ISLENSKT
SJÓNVARP
EKKIFÁTJEKLEGT EHDURVARP