Morgunblaðið - 20.05.1990, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990
„Enginn annar hefur getað brætt saman
þau mörgu og ólíku sjónarmið, sem hér
hafa komið fram.“
Eduardas Potasinkas, þingmaður
„Landsbergis er of
mikili Lithái til að
svíkja okkur.“
María Stankaviciene,
litháísk kennslukona.
„Hannerenginn
Ronald Reagan.“
Romualdas Ozolas, varafor-
sætisráðherra Litháens.
Munurinn á þeim er sagður sá að
Mazowiecki geri sér grein fyrir
takmörkunum sínum og þeim
skorðum, sem völdum hans séu
settar.
Það hefur ekki komið í hlut
Landsbergis heldur Kazimieru
_Prunskiene forsætisráðherra (sem
er kommúnisti) að koma fram fyr-
ir hönd Litháens á erlendri grund.
Varaformenn hafa verið í forsæti
sendinefnda, sem hafa farið til
Moskvu. Fleygustu ummæli Lit-
háa eru ekki höfð eftir Landsberg-
is heldur vini hans og aðstoðar-
manni, Algis Cekuolis, sem sagði
nýlega um framferði Rússa:
„Þetta er kúgun með mannlegu
yfirbragði.“
Fáir draga í efa að Landsbergis
sé fulltrúi þjóðarviljans, en hjá
Litháum togast á þjóðerniseld-
móður og pólitískt raunsæi. Efa-
semdir um pólitískar baráttuað-
ferðir Landsbergis og siðferðilega
þijózku hans hafa aukizt að sögn
Bills Keller í The New York Times:
Um þriðjungur fulltrúa á lithá-
íska þinginu virðist eins tregur til
að fara samningaleiðina og Lands-
bergis. Annar þriðjungur heldur
tryggð við Landsbergis, en er
tvíbentur í afstöðu sinni til aðferða
hans. Loks styður einn þriðji þing-
manna hugmyndir um sveigjan-
legri afstöðu til Gorbatsjovs, þótt
sá hópur sé alveg eins staðfastur
í stuðningi sínum við sjálfstæðið
og aðrir þingmenn.
„Hreinn meirihluti Litháa er
ekki ánægður með afstöðu Lands-
bergis," segir Arvydas Juozaitis,
sem hefur sagt sig úr stjórn Saju-
dis. „Um leið fær þessi hreini
meirihluti ekki séð hvernig hægt
sé að breyta því sem orðið er.“ í
marz kallaði Juozaitis kosningu
Landsbergis „söguleg mistök".
Juozaitis telur að árekstrarnir
við Moskvuvaldið kunni að efla
þann hóp, sem vilji fara samninga-
leiðina, en bætir við: „Landsbergis
nýtur enn mikils stuðnings, því
að ekki liggur í augum uppi að
einhver önnur stefna komi til
greina."
Cepaitis, einn af samstarfs-
mönnum forsetans, óttast hug-
myndir um að friða Moskvuvaldið.
Hann sagði nýlega að sovétkerfið
væri í andarslitrunum. „Máttur er
það eina sem Moskvuvaldið skil-
ur,“ sagði hann. Hann viðurkennir
að traust staða Gorbatsjovs vegi
þyngra á metunum en frelsi Lithá-
ens, en telur að hrun Sovétríkj-
anna yrði blessun. „Það er skylda
okkar við heiminn að eyða þessu
heimsveldi," sagði hann.
Eduardas Vilkas, stuðnings-
maður málamiðlunar, álítur að
Landsbergis sé smám saman að
færast í átt til samkomulags. „Ég
hélt einu sinni að þróunin til lýð-
ræðis í Rússlandi mundi taka þrjú
til fimm ár, en þróunin er miklu
örari vegna fordæmis Austur-Evr-
ópubúa,“ sagði hann. „Það er
hættulegt að búa með reiðum ná-
grönnum," bætti hann við til að
útskýra að Litháar hefðu hag af
því að Gorbatsjov héldi völdunum.
VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, heftir litla stjórnmála-
reynslu, en er af gamalli og virtri ætt menntamanna og ætt-
jarðarvina og hefur verið andstæðingur kommúnista alla ævi.
Hann er 57 ára gamall og var tónlistarfræðingur og píanóleikari
við tónlistarháskólann í Vilnius áður en hann var kjörinn leiðtogi
sjálfstæðishreyfingarinnar Sajudis.
Móðurafi Lands-
bergis samdi
fyrstu kennslubók
Litháa í nútíma-
málfræði. Föðurafi hans var leik-
skáld og blaðamaður, sem barðist
gegn stjóm Rússakeisara á síðari
hluta 19. aldar, skrifaði greinar í
ólöglegt blað stjórnarandstæðinga
á litháísku — sem þá var bönnuð
— og var sendur í útlegð til Rúss-
lands.
Faðir hans og alnafni var einn
fremsti arkitekt Litháa, tók þátt
í sjálfstæðisbaráttu þeirra 1918
og var félagi í neðanjarðarhreyf-
ingunni, sem barðist gegn nazist-
um í síðari heimsstyrjöldinni. Þeg-
ar Vytautas var 11 ára var bróðir
hans, Gabrielus, handtekinn af
nazistunm fyrir að skipuleggja
mótmælaað- _________________
frelsisbaráttu Litháa fyrr en sjálf-
stæðishreyfingin Sajudis var
stofnuð sumarið 1988. „Hann var
jafnlítill andófsmaður og allir aðr-
ir,“ segir Jorias Vruveris, fv. sam-
starfsmaður hans í tónlistarskó-
lanum.
Sundurleitir hópar stóðu að
hreyfingunni og áttu oft í hörðum
innbyrðis eijum. Landsbergis var
laginn að jafna slíkan ágreining
og ávann sér traust fyrir mála-
miðlunarhæfileika, útsjónarsemi,
kænsku og skipulagsgáfu. Þegar
hann var kjörinn formaður hreyf-
ingarinnar hlaut hann viðumefnið
gvdri lape — „refurinn snjalli" —
og samstarfsmenn hans hafa kall-
að hann „meistarann" með hrifn-
ingu og aðdáun.
Fyrr á þessu ári líkti Jurate
Gustaite, kenn-
MANNSIVIYNP
eftir Gudm. Halldórsson
gerðir.
Skiljanlegt
var að manni
af slíkri ætt
væri falið að
stjóma baráttu
fyrir algerum aðskilnaði við ríkja-
samband, sem Litháar báðu aldrei
um aðild að. „Þjóðerniskennd
stendur djúpum rótum í Litháen,“
sagði Vytautas Landsbergis í
marz. „Öldum saman hafa ásælnir
nágrannar undirokað land okkar.“
Hann hefur sagt að hann líti
sovézka stjórn Litháens sömu aug-
um og stjóm nazista og keisara-
stjómina á sínum tíma og sovézk-
um valdamönnum hefur gramizt
sú afstaða hans.
Að öðm leyti en því að Lands-
bergis er af kunnri ætt föðurlands-
vina lá hins vegar ekki í augum
uppi að hann yrði leiðtogi Litháa
í þijózkufullri baráttu þeirra gegn
Moskvuvaldinu. Tónlistin hefur átt
hug hans allan og það á greinilega
betur við hann að sitja við píanóið
en að ávarpa mannfjölda og leikur
hans virðist falla fólki betur í geð
en skrif hans um stjórnmál.
Hann þykir fær píanóleikari og
hefur sent frá sér tvær hljómplöt-
ur auk níu bóka. Seinni kona hans,
Gazína, leikur einnig á píanó og
stór íbúð þeirra er full af
blómavösum, kristal og fornmun-
um, sem Landsbergis-fjölskyldan
faldi á þjóðnýtingarárunum eftir
innlimun Litháens í Sovétríkin
1940. Landsbergis er stoltur af
því að öll fjölskyldan tekur þátt í
baráttunni fyrir sjálfstæði af lífi
og sál, þar á meðal sjö ára afkom-
andi hans, sem veifaði þjóðfána
Litháens á fundum í fyrra.
„Drengnum finnst að hann sé að
beijast fyrir Litháen í samræmi
við glæsta hefð Landsbergis-ætt-
arinnar," sagði hann.„Fjölskyldan
er tengd þessari hreyfingu tilfinn-
ingaböndum."
Landsbergis fæddist 18. októ-
ber 1932 í Kaunas, sem þá var
höfuðborg Litháens. Hann er lút-
erstrúar,' þótt flestir landsmenn
séu rómversk-kaþólskir, og þegar
lýst var yfir sjálfstæði Litháens
hóf hann daginn á því að biðjast
fyrir í dómkirkjunni í Vilnius.
Hann tók ekki virkan þátt í þjóð-
ari við tónlist-
arskólann,
Landsbergis
við skáksnill-
ing: „Mér hefur
oft dottið það í
hug þegar ég hef fylgzt með leik-
fléttum hans og séð hann beita
kænskubrögðum, stjórna með
lagni og færni og hugsa sífellt
nokkra leiki fram í tímann."
„Enginn annar hefur getað
brætt saman þau mörgu og ólíku
sjónarmið, sem hér hafa komið
fram ,“ segir Eduardas Potasinkas
þingmaður. Ræður hans lýsa festu
og ákveðni og einörð afstaða hans
gegn Rússum hefur vakið
traust.„Landsbergis er of mikill
Lithái til að svíkja okkur með því
að fallast á tilslakanir og mála-
miðlanir," er haft eftir Maríu
Stankaviciene, litháískri kennslu-
konu. Hins vegar virðist hann
ekki gæddur sérstökum hæfileik-
um til að hrífa fjöldann með sér
og hann þykir ekki taka sig vel út
í sjónvarpi.
Þrátt fyrir það hól, sem Lands-
bergis hefur fengið, hefur aukinn
þrýstingur Rússa ýtt undir efa-
semdir um hvort hann sé rétti
maðurinn í hlutverk þióðarleið-
toga. Dregið hefur verið í efa að
hann hafi til að bera nógu mikla
pólitíska lagni og hæfni til að
standast Míkhaíl Gorbatsjov snún-
ing, þótt viðurkennt sé að hann
standi honum fyllilega á sporði að
vitsmunum.
Þessir efasemdarmenn segja
meðal annars að Landsbergis
þekki ekki sovétkerfið, ólíkt leið-
togum hinna Eystrasaltslýðveld-
anna, og sé of tregur til að sætta
sig við málamiðlanir. Það sé einn-
ig galli að hann hafi ekki nógu
mikla hæfileika til að vekja hrifn-
ingu og traust meðal þjóðarinnar,
róa hana og stappa í hana stálinu.
Þegar Gorbatsjov kom í heim-
sókn til Litháens í janúar, tveimur
mánuðum áður en lýst var yfir
sjálfstæði, kallaði Landsbergis
hann „leiðtoga vinveitts grannrík-
is“. Sumum þótti þetta ekki hyggi-
lega mælt og Gorbatsjov virðist
hafa reiðzt, en Landsbergis hefur
aldrei hikað við að bjóða Rússum
birginn. Eftir heimsókn Gor-
batsjovs vísaði hann öllum umleit-
unum Moskvustjómarinnar á bug
og knúði fram sjálfstæðisyfírlýs-
ing^una 11. marz, rétt áður en
mikilvægt flokksþing hófst í
Moskvu.
Tortryggni hefur gætt í garð
Landsbergis meðal landsmanna
af rússneskum og pólskum ættum
og Landsbergis hefur brugðizt
hart við gagnrýni þeirra á fundum.
Hann talar rússnesku og pólsku
reiprennandi, en er aðeins sæmi-
legur í ensku.
„Hann er enginn Ronald Reag-
an,“ sagði gamall samheiji Lands-
bergis, Romualdas Ozolas varafor-
sætisráðherra, nýlega í samtali við
The New York Times. „Hann er
ekki reffilegur.ekki mjúkur í máli
og ekki sérstaklega vel máli far-
inn. En hann stendur fast við
sannfæringu sína og er gæddur
sterkri siðgæðisvitund. Nú á þess-
ari stundu getum við ekki leyft
okkur þann munað að velja for-
seta, sem bæði getur sett fram
hugmyndir og kemur vel fyrir.“
Nokkrir samstarfsmenn Lands-
bergis viðurkenna að helzti keppi-
nautur hans, Algirdas Brazausk-
as, leiðtogi kommúnista, hafi meiri
reynslu af samningum og mála-
miðlunum. Ýmsir telja að hann
hefði getað náð fram markmiðum
Litháa og friðað Rússa um leið.
„Ég held að hinn nýi leiðtogi
geri sér ekki fulla grein fyrir því
að við búum við hættulegt
ástand," sagði Justas J. Paleckas,
helzti hugmyndafræðingur komm-
únista. „Samskiptin við Moskvu-
stjórnina eiga að hafa algerari
forgang. Það er ekki raunsætt að
einblína á hugsjónir og grundvall-
an-eglur og ég er ekki viss um að
Landsbergis geti fundið milliveg."
Landsbergis er ekki eins hreinn
og beinn og Lech Walesa og ekki
eins veraldarvanur. Hann býr ekki
yfir eins mikilli andagift og Vaclav
Havel, sem varð að segja skilið
við listagyðjuna eins og hann.
Hann minnir meira á Tadeusz
Mazowiecki í Póllandi. Þeir eru
álíka gamlir og báðir lotnir í herð-
um, fálátir, hlédrægir og trúaðir.
Teikning/Pétur Haildórsson
VYTAUTAS LAAPSBERGIS FORSETI
Er Lithái
framí