Morgunblaðið - 20.05.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990
Minning:
Ragnar S. Sigurðs
son yfírvélsijóri
Fæddur 9. september 1931
Dáinn 13. maí 1990
„Dáinn, horfinn;“ - Harmafregn;
Hvílíkt orð mig dynur yfir;
En ég veit, að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
Hvað væri annars guðleg gjöf,
geimur heims og lífið þjóða?
Hvað væri sipr sonarins góða?
Illur draumur opin gröf.
Mig langar að gera þessi orð
Jónasar Hallgrímssonar að mínum
nú þegar ég vil þakka svila mínum
Ragnari S. Sigurðssyni samfylgdina
hér á jörð. Þegar dauðann ber brátt
að eins og hér átti sér stað verður
maður eitthvað svo lítill og hjálpar-
vana. Okkur skortir orð til að tjá
þær tilfinningar og þá samúð sem
við gjarnan viljum sýna. Það er
erfitt að trúa því að hann sé ekki
lengur hér á meðal okkar en stað-
reyndin talar sínu máli. Hver hefði
átt von á því við fermingu Berglind-
ar á annan í páskum að það væri
í síðasta sinn sem Ragnar væri í
þessum stóra hópi. Ég bið góðan
Guð að styrkja þá sem nú syrgja.
Skarðið er stórt, söknuðurinn mikill.
Ragnar var fæddur 9. september
1931. Hann var einkasonur hjón-
anna Sigurðar Ágústar Helgasonar
(dáinn 1978) og Sigríðar Oddsdótt-
ur. Eiginkona Ragnars er Sigríður
S. Jónsdóttir. Sigga og Ragnar
eignuðust fjögur börn sem eru Sig-
urður Jón, Ólöf Þuríður, Þór Birgir
en hann lést árið 1970 aðeins átta
ára gamall og Berglind Ósk. Marg-
ar minningar hafa komið upp í
hugann síðustu daga, ótal smáatriði
um samverustundirí góðra vina hópi
á gleðistundum, minningar um al-
vöru lífsins og ábyrgð Ragnars og
væntumþykju gagnvart fjölskyldu
og samferðafólki. Mér er ofarlega
í huga þegar ég hitti Ragnar í
fyrsta skipti. Það var.á fallegu vor-
kvöldi fyrir um tveimur áratugum
er ég fór með núverandi eiginmanni
mínum í heimsókn til Siggu systur
hans og Ragnars. Ég var að vonum
kvíðin yfir því hvernig mér yrði
tekið og hvernig fólk þetta væri.
Eftir að ég kynntist Ragnari betur
og komst að því hversu hlédrægur
hann var innan um ókunnuga sá
ég hvað hann hafði lagt sig fram
um að gera mér þetta auðvelt.
Hann sýndi mér svo ekki var um
villst að ég var velkomin. Tveim
kvöidum síðar sýndu þau hjón okk-
ur litskyggnur úr ýmsum áttum,
bæði frá árum Ragnars hjá Eim-
skip og af rjölskyldunni við ýmsar
aðstæður. Skugginn og sorgin yfir
fráfalli Bibba var enn mjög nálægur
og því veit ég að þetta var þeim
erfitt því Bibbi var á sumum mynd-
anna, en á þennan hátt sögðu þau
mér frá honum. Ég var kominn í
fjölskylduna í gleði og sorg. Ég
minnist vel gleði Ragnars þegar
Berglind fæddist og hvernig hann
fagnaði hveiju barnabarninu af
öðru, þeim Hörpu Sólrúnu, sem
spyr nú hver eigi að gera við hjólið
hennar, Kristinu Völu, Ragnari og
Birgi. Þó Ragnari þætti vænt um
að fá nafna þá held ég að hann
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöf ða 4 — sími 681960
Reykjavíkurhátíð Nýs vettvangs
í tilefni borgarstjórnarkosninganna, sem fram fara í Reykjavík þann 26. maí nk.,
efnir H-Iisti Nýs vettvangs til Reykjavíkurhátíðar á Hótel íslandi miðvikudag-
inn 23. maí. Hátíðarhöldin hefjast kl. 21.00 og munu standa fram eftir nóttu.
Húsið opnað kl. 20.00.
Hrafn
Ólína
Þeir, sem koma fram eru m.a. Bubbi Morthens,
Ómar Ragnarsson, Síðan skein sól, Ríó tríó, hljómsveit Hauks
Morthens, Sigrún (Diddú) Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafsson o.fl.
Ávörp flytja þau Ólína Þorvarðardóttir, Kristín Á. Ólafsdótt-
ir, Bjarni P. Magnússon, Guðrún Jónsdóttir, Hrafn Jökulsson
og Ásgeir Hannes Eiríksson, en þau skipa
sex efstu sæti H-lista Nýs vettvangs.
Veislu- og fundarstjóri Jakob Frímann Magnússon.
Aldurstakmark er 18 ár / Áðgangseyrir kr. 500 / Frjáls klæðnaður.
Kosningaskrifstofa, Þingholtsstræti 1, símar 625525 og 626701.
Guðrún
Kristín
r-
Asgeir Hannes
Bjarni
hafi verið enn sælli með nafnið
Birgir. Ég held að skírnarathöfn
Birgis litla verði ógleymanleg öllum
þeim sem þar voru. Hugurinn hefur
flögrað fram og til baka og m'argar
minningar komið fram sem ekki er
ástæða til að tíunda hér. Ég, Oli,
Jón Gestur, Freyja og Edda Rún
þökkum Ragnari samfylgdina og
alla hjálpina á liðnum árum og biðj-
um algóðan Guð að geyma hann.
Elsku Sigga, Berglind, Siggi, Erla,
Lóa og Þröstur, Guð gefi ykkur
styrk í sorginni.
Margrét F. Sigurðardóttir
Með fáeinum orðum langar okkur
að minnast Ragnars Sigurðar Sig-
urðssonar. Andlátsfréttin kom eins
og reiðarslag, enginn átti von á
slíkri frétt. Oft hafði hann verið á
sjó í aftakaveðrum en þeim ferðum
hafði öllum lokið farsællega, því var
svo sárt að kallið kom svo skyndi-
lega þegar síst var von, hafði nokkr-
um dögum fyrr lagt af stað í
blíðskaparveðri í sína síðustu sjó-
ferð er varð að hans hinstu för.
Ragnar var sonur hjónanna Sig-
urðar Ágústs Helgasonar sjómanns
d. 1978 og Sigríðar Oddsdóttur.
Árið 1959 kvæntist hann Sigríði
Sólrúnu Jónsdóttur og var heimili
þeirra lengst af í Kópavogi. Börn
þeirra eru: Sigurður Jón kvæntur
Erlu Alexandersdóttur og eiga þau
tvo syni, Ragnar og Birgi; Þór Birg-
ir er dó á áttunda ári 1970; Ólöf
Þuríður gift Þresti Valdimarssyni
og eiga þau tvær dætur, Sólrúnu
Hörpu og Kristínu Völu, og Berg-
lind Ósk yngst þeirra systkina,
fermd nú í vor.
Ragnar útskrifaðist sem vélstjóri
og starfaði síðan hjá Eimskip um
nokkurra ára skeið, þá vann hann
um árabil sem verkstjóri hjá frysti-
húsinu Vogum, Vatnsleysuströnd
þar sem vinnudagurinn var oft lang-
ur en þar var hann afar vel liðinn
af starfsfólkinu.
Þá fór Ragnar aftur til sjós og
nú á togarann Júní hjá Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar, sem síðan var breytt
í frystitogarann Venus gerður út
af Hval hf. Oft var Ragnar lang-
dvölum erlendis fjarverandi frá fjöl-
skyldu sinni bæði vegna viðgerða
og breytinga á skipinu, þar sem
honum var falið að hafa umsjón
yfir verkinu. Hann var ákaflega vel
verki farinn og starfsamur bæði
heima og heiman.
Ljúfar og góðar minningar og
sameiginlega lífsreynslu bæði í
gleði og sorg er okkur hlotnaðist
að eiga saman munum við varð-
veita og minnast hans með þakk-
læti.
Við viljum senda eiginkonu, móð-
ur, börnum og fjölskyldum þeirra
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum Guð að gefa þeim styrk.
Fjölskyldurnar
Hrauntungu 89
og Fiskakvísl 7.
Leiddu mína litlu hendi
ljúfi Jesú þér ég sendi
bæn frá minu bijósti sjáðu
blíði Jesú að mér gáðu.
Vertu með oss, vaktu hjá oss.
Kveðja frá barnabörnum.
Blömastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík, Sími 31099
Opið öll kvöld .
til ki. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.