Morgunblaðið - 20.05.1990, Síða 48
I
I
FORGANGSPOSTUR
UPPLYSINBASÍMI 63 77 90
MORGUNBLAÐID, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVIK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 20. MAI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Stöð 2 og Sýn;
Innlend
»éagskrár-
g-erð verður
skorin niður
- segir stjórnar-
formaður Sýnar
Ríkisútvarpið Sjónvarp steinir
að því að stórauka innlenda dag-
skrárgerð, á sama tíma og for-
svarsmenn Stöðvar 2 standa
frammi fyrir niðurskurði. „Okk-
markmið er, að á næsta ári
verði um helmingur dagskrár-
innar innlent efiii,“ sagði Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri i
samtali við Morgunblaðið. For-
svarsmenn Stöðvar 2 segja ekki
íjárhagslegan grundvöll til að
auka hlut innlendu dagskrárinn-
ar, á meðan verið sé að rétta fjár-
hag fyrirtækisins. „I samkomu-
laginu sem gert var við samein-
ingu Stöðvar 2 og Sýnar þann
4. maí, var skýrt tekið fram að
^ Ípjjlend dagskrá yrði skorin nið-
ur. Sú_ ákvörðun stendur enn,“
sagði Arni Samúelsson stjórnar-
formaður Sýnar.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá Stöð
2 var kostnaður við
’ innlenda dagskrár-
gerð, þar með taldar
íþróttir, 121 milljón krónaárið 1988
og 168 milljónir árið 1989. Fyrstu
áætlanir fyrir árið 1990 gerðu ráð
fyrir 160 milljónum, en sú áætlun
er í endurskoðun, til lækkunar. í
þessum tölum er allur kostnaður
við dagskrárgerðina.
. Ekki tókst að fá sambærilegar
tölur frá Ríkisútvarpinu, en sam-
kvæmt upplýsingum Harðar Vil-
hjálmssonar fjármálastjóra RÚV er
áætlað að 200 milljónir fari beint
til innlendrar dagskrárgerðar í ár,
sem er svipað að raungildi og
síðustu tvö ár. Inni í þeirri upphæð
er ekki kostnaður vegna íþrótta,
og ekki kostnaður við tækniþjón-
ustu og leikmyndagerð. Heildar-
kostnaðurinn er því mun hærri.
Samkvæmt fyrstu tillögum fyrir
Ijárlagagerð næsta árs, er gert ráð
fyrir 250 milljónum króna til _inn-
lendrar dagskrárgerðar hjá RÚV.
Sjá nánar „íslenskt sjónvarp —
„ ckki fátæklegt endurvarp" á
bls. 16 og 17.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Halldór Sveinsson tínir fylsegg úr stakknum sínum eftir velheppnaða ferð í bjargið.
Eggjataka Eyjamanna
Karl Birgisson stóðst ekki mát-
ið og bragðaði á fengnum.
EYJAMENN hafa löngum farið
Fýlseggjataka er hafin, en upp
svartfúglnum.
Eyjamenn fara í flestallar úteyj-
ar til fýlseggjatökunnar og
sýta það lítt þó fýlnum sé haldið í
skefjum. Hann veldur oft miklu
ónæði við lundaveiðar, þegar hann
truflar flug lundans.
' Lítill hópur manna fór fyrir
nokkrum dögum út í Álfsey til fýls-
eggjatöku. Eyjan er brött og erfið
yfirferðar. Við fýlseggjatöku síga
menn ekki í bjargið á sama hátt
og þegar svartfuglseggin eru tekin,
heldur handstyrkir hver maður sig
niður eftir reipi. í einni ferð í bjarg-
í úteyjarnar á vorin til eggjatöku.
úr helginni fara menn að huga að
ið tekur hver maður 30-50 egg og
er nokkur þrekraun að komast upp
á brún aftur og þarf að gæta mik-
illar varúðar með viðkvæm eggin.
Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari
Morgunblaðsins í Eyjum, var í för
með Jóni Þóri Geirssyni, vélstjóra,
Halldóri Sveinssyni, lögregluþjóni,
og Karli Birgissyni, háseta, í eggja-
tökuferð þeirra í Álfsey. Alls höfðu
fjórmenningarnir um 800 egg upp
úr krafsinu eftir daginn.
Sjá einnig Á íornum vegi bls.
C 32.
Fyrstí fermur af stál-
slaggi á leið tíl lands
HLAÐBÆR-COLAS, undirverktaki Hagvirkis, og Reykjavíkurborg
hafa keypt einn farm af svonefndu stálslaggi, gijótmulningi sem
notaður er í bundið slitlag vega og verður efiiinu skipað upp úr flutn-
ingaskipinu Nauma í Haftiarfjarðarhöfn á morgun, alls 2.900 tonn-
um. Hluti Reykjavíkurborgar af farminum er 750 tonn.
Efninu verður blandað í ákveðn-
um hlutföllum í íslensk vega-
gerðarefni. Von er á öðru skipi eft-
ir tvær vikur með 1.900 tonn af
stálslaggi sem Reykjavíkurborg
hefur fest kaup á. Efnið sem hér
.um ræðir er af gerðinni lysit en
helstu eiginleikar þess, fyrir utan
að vera harðara en íslenskt gijót,
eru að í dimmu virðist lysit hvítt
og eykur þar með birtumagn á veg-
unum.
Nýr vettvang’ur fær mest
fylgi frá Alþýðubandalagi
ÞEIR sem segjast ætla að kjósa Nýjan vettvang við borgarstjórnar-
kosningarnar koma úr kjósendahópum allra flokka við síðustu
kosningar en hlutfallslega mest fylgi fær listinn frá Alþýðubanda-
l.agi, samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofiiun gerði
' '—íyrir Morgunblaðið. 40% af þeim sem nú hyggjast kjósa Nýjan
vettvang höfðu ekki kosningarétt 1986, skiluðu auðu, kusu ekki,
bjuggu utan Reykjavíkur eða neituðu að segja hvað þeir kusu.
Af þeim sem kusu G-listann
síðast og hafa ákveðið sig
ætla álíka margir að kjósa Al-
þýðubandalagið og Nýjan vett-
_yang við borgarstjórnarkosning-
’arnar og af þeim sem kusu
Kvennalistann 1986 hyggst um
þriðjungur kjósa Nýjan vettvang
en um tveir þriðju Kvennalistann.
4% af kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins fyrir fjórum árum ætla
að kjósa Nýjan vettvang, en flokk-
urinn missir nánast ekkert fylgi
til annarra flokka.
Kjósendur Nýs vettvangs dreif-
ast einkum á fjóra flokka þegay
þeir eru spurðir hvaða flokka þeir
myndu kjósa í alþingiskosningum,
Alþýðuflokk, Kvennalista, Al-
þýðubandalag og Sjálfstæðis-
flokk. 42% kjósenda Nýs vett-
vangs segjast ekki vita hvað þeir
myndu kjósa í alþingiskosningum
eða þá að þeir myndu ekki kjósa.
Langflestir kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins til borgarstjórnar
myndu líka kjósa flokkinn til Al-
þingis, en mjög fáir kysu aðra
flokka, samkvæmt könnun Fé-
lagsvísindastofnunar.
Sjá blaðsíðu 6.
( *isft *■ f
Sigurður Sigurðsson, hjá
Hlaðbæ-Colas, sagði að sú krafa
hefði verið gerð af Vegagerð ríkis-
ins að notuð yrðu ljós efni í slitlag-
ið á Arnarneshæð. Efnið verður
blandað í hlutföllunum 30 af lysiti
á móti 70 af öðrum innlendum og
erlendum steinefnum. Blanda verð-
ur lysit öðrum efnum, að öðrum
kosti yrði það of ljóst.
Von er á öðru skipi um helgina
til Keflavíkurhafnar sem losar dura-
split sem er heldur dekkra en lysit
og hefur verið lagt á hluta Reykja-
nesbrautar og Nýbýlavegar. Kaup-
andi efnisins er Islenskir aðalverk-
takar.
Helsta ástæðan fyrir flutningum
efnisins hingað til lands er að það
er slitgott og hentar vel til vega-
gerðar. Söluaðili stálslaggsins er
danska fyrirtækið Tarco vej a.s. en
umboðsaðili hér á landi er Sindra-
stál hf. Prófanir hafa verið gerðar
í grennd við Ósló á vegum sem lagð-
ir eru lysit þar sem kostir efnisins
hafa komið skýrt fram, að sögn
Júlíusar Sigurðssonar hjá Sindra-
stáli.
Efnið var kynnt forsvarsmönnum
Vegagerðar ríkisins í lok mars
síðastliðins og hefur meðal annars
verið rætt um að efnið verði lagt á
hluta Reykjanesbrautar og jafnvel
í göngingegnum Óiafsfjai'ðarmúla.
Húsdýra-
garðurinn
opnaður
HÚSDÝRAGARÐURINN í Laug-
ardal var opnaður formlega
klukkan 14 í gær. Garðurinn er
opinn almenningi frá kl. 10 í dag,
sunnudag.
Framkvæmdir við
byggingu garðs-
ins hófust árið 1989.
Heildarkostnaður
vegna framkvæmd-
anna í garðinum er um 145,9 millj-
ónir króna. Hann er um 2,6 hektar-
ar að flatarmáli og er staðsettur á
austan Múlavegar og sunnan
Engjavegar.
I garðinum hafa verið reist sex
hús vegna dýrahalds, steypt sela-
tjörn og gerði fyrir minka og refi.
Þijú fiskeldisker eru í garðinum og
innan hans eru afgirt beitarhólf,
meðal annars fyrir hreindýr.
Hafrafelli, gömlu íbúðarhúsi,
hefur verið breytt í fræðslumiðstöð1
og þar er jafnframt aðstaða fyrir
starfsmenn. í öðru húsi sem komið
var upp til bráðabirgða verður veit-
ingasala. Aðkomuleið að garðinum
er frá Reykjavegi um Sigtún, fram-
hjá Laugardalshöllinni.
Atvinnulausir námsmenn:
Fá bætur hafi
þeir verið í
vinnuífyrra
ÞAÐ skólafólk sem unnið hefúr
á síðustu t.ólf mánuðum meira en
sem nemur 425 tímum getur
fengið greiddar atvinnuleysis-
bætur í sumar að upphæð um
12.434 kr. á mánuði.
Almennt á skólafólk ekki rétt á
atvinnuleysisbótum í sumar,
enda veitir skólaseta engin réttindi
til slíks. Til þess að skólafólk geti
fengið atvinnuleysisbætur þarf það
að hafa verið í fastri vinnu síðastlið-
ið sumar, a.m.k. 425 tíma. Hafi
fólk þannig verið í fastri vinnu til
dæmis í þijá mánuði og það tíma-
bil fellui' innan 12 mánaða tímans,
þá eiga þeir aðilar rétt á greiðslu
atvinnuleysisbót.a í þijá mánuði.
Þetta á því aðeins við að vinnan á
síðasta ári hafi verið trygginga-
skyld, þ.e.a.s. að vinnuveitandi hafi
greitt í lífeyrissjóð og að viðkom-
andi námsmaður hafi verið í stéttar-
félagi. Verktakavinna og svört
vinna fullnægja ekki þessum skil-
yrðum.
Brotist inn
í 24 bíla
BROTIST var inn í 24 bíla við
bílasölur á Ártúnshöfða í fyrri-
nótt. Úr mörgum þeirra var stolið
hljómtækjum og hátölurum. Þá
stálu tveir menn Suzuki-bíl við
Ránargötu, en lögregla í Keflavík
stöðvaði þá á Reykjanesbrautinni
skömmu síðar.
Lögregla í Reykjavík og víðar
átti mjög annríkt fram eftir
morgni vegna mikillar ölvunar. í
Reykjavík voru fangageymslur meira
en fullnýttar til að koma fyrir um
-40 ölvuðurmmönnum.