Morgunblaðið - 26.05.1990, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 26.05.1990, Qupperneq 7
7 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990 Skákmótið í Moskvu: Islensku skákmennirnir fera hægt af stað JÓN L. Árnason er með 1 vinning og lakari biðskák eftir 3 umferðir á úrtökumóti Heimsbikarmótsins í Moskvu sem nú stendur yfir. Jó- hann Hjartarson er með 1 vinning. Sautján skákmenn eru jafnir í efsta sæti með 2 vinninga. Morgunblaðið/Einar Falur Um tvö þúsund tonn af brota- járni frá Hringrás hf. komin um borð í norska skipið Nauman, þar sem það lá við Korngarða í Sundahöfn á miðvikudag. Hringrás hf.: 2 þúsund tonnum af brotajárni skipað út NORSKA stórflutningaskipið Nauman lestaði í vikunni 2 þús- und tonna farm af brotajárni frá Hringrás hf. í Sundahöfn í Reykjavík. Að sögn Sveins Ás- geirssonar framkvæmdastjóra Hringrásar er þetta fyrsti farm- urinn sem fyrirtækið flytur út á þessu ári, en fljótlega er væntan- legt annað skip til að taka um 1.500 tonn af annars konar efhi. Sveinn segir að þessi farmur hafí verið svonefnt þungt brotajárn, eða fyrsta flokks efni. Hringrás hf., sem tók við brotajárnvinnslunni sem Sindri hf. hafði starfrækt í um fjóra áratugi, flutti í fyrra út um 5 þúsund tonn af brotajárni. Að sögn Sveins falla til 10-12 þúsund tonn af nýtanlegu brotajárni hér á landi ár hvert. Hringrás hf. hefur séð um vinnslu áldósa frá Endurvinnslunni hf. og hefur tekið við um 20 milljón- um dósa, pressað þær saman og flutt út. Alls hafa farið um 200 tonn af dósaáli frá félaginu og er það flutt út í gámum. Á síðasta ári safnaði Hringrás um 4 þúsund bílflökum til endurvinnslu og hefur á þessu ári safnað um þúsund bílflökum. Sólarlandaferðir hafa hækkað um 2,4%: Ekkijaíii lít- il hækkun í sjö til átta ár FERÐIR til sólarlanda hafa hækkað um 2,4% frá 6. janúar að verðlistar ferðaskrifstofanna voru gefnir út. Ferðirnar hafa ekki hækkað jafnlitið að minnsta kosti undanfarin 7 til 8 ár, að sögn Helga Jóhannssonar, for- sijóra Samvinnuferða Landsýn- ar. Hann sagði að venjulega hefðu hækkanir verið miklu meiri, eða á bilinu 17-32%, frá því verðlistar voru gefnir út eftir áramót til vors þegar ferðirnar hófust. Helgi sagði að 2,4% hækkun á sólarlandaferðum nú mætti rekja til þess að gengi Bandaríkjadals hefði hækkað um tæpt 1% frá því í vetur og gengi peseta um 3%. Sá útreikningur hefði verið gerður 16. maí, en ferðaskrifstofurnar gerðu venjulega iíttekt á gengisbreyting- um á hálfsmánaðar fresti. Flug til sólarlanda er venjulega reiknað í dollurum, en gisting í pesetum og vegur hún talsvert þyngra í verði sólarlandaferða en flugið. í fyrstu umferð gerði Jóhann jafntefli við sovétmanninn Josif Dorfmann og Jón gerði jafntefli við Murray Chandler frá Bretlandi. í annarri umferð tapaði Jóhann fyrir Ungverjanum Gyula Sax en Jón gerði jafntefli við Efgeníj Bareev frá Sovétríkjunum. I 3. umferð gerði Jóhann jafntefli við Nick De- Firmian frá Bandaríkjunum en skák Jóns og bandaríska stórmeistarans Yassers Seirawans fór í bið og var tefld áfram í gærkvöldi. Að sögn upplýsingafulltrúa mótsins var staða Jóns mjög erfið. 17 skákmenn voru með 2 vinn- inga eftir 3 umferðir og tveir gátu bæst í hópinn eftir að biðskákum lauk. 42 stórmeistarar tefla á mót- inu um 12 laus sæti í heimsbikar- mótunum á þessu og næsta ári. Þar af keppa 25 Sovétmenn um 5 sæti en 17 skákmenn frá öðrum löndum keppa um 7 sæti. Tefldar eru 11 umferðir eftir Monrad-kerfi. IBM geislaprentari! Skyndilega kemur ekkert annað til greina Hafir þú einhvern tíma velt fyrir þér að kaupa geislaprentara, eða ef þú átt þegar geislaprentara sem aldrei hefur uppfyllt kröfur þínar eða sem uppfyllir þær ekki lengur þá eru hér upplýsingar sem geta komið þér að verulegu gagni. Frá IBM er nú kominn nýr geislaprentari í tveimur útgáfum, IBM LaserPrinter og IBM LaserPrinter E, sem skarar fram úr öllum þeim geislaprenturum sem fyrir eru á markaðnum.* Hvað er það sem gerir þessa prenlara svo sérslaka? Það eru meðal annars aukin leturgæði; fleiri leturgerðir en nokkur einn notandi getur hugsanlega haft þörf fyrir; prenthraði, sem er allt að 10 síðum á mlnútu; og svo má nefna aukabúnað eins og viðbótarbakka fyrir 500 síður og annan til fyrir 75 umslög, þannig að hafa má bréfsefni meö haus I einum bakka, auðar síöur í öðrum og umslög í hinum þriðja og láta síðan prentarann raða öllu upp eftir kúnstarinnar reglum. Geri aðrir betur! En það er ílelra: Minni prentarans er 512 K og stækkanlegt í 1 Mb, 2 Mb og 3,5 Mb fyrir enn fleiri leturgerðir, heilsíðugrafík og PostScript fyrir þá sem fást við útgáfustarfsemi í stórum eða smáum stil. Prentarinn gengur við IBM PS/2 og flestar IBM samhæfðar tölvur (og jafnvel sumar ósamhæfðar), IBM AS/400 og svo við hinar nýju IBM RISC System/6000. , * PC Magazine, 16. janúar 1990, bls. 117. Og enn fleira: Þessi prentari er nýsmíði frá grunni, og með útsjónarsemi hefur tekist að fækka hreyfanlegum hlutum um hvorki meira né minna en 60% í því skyni að minnka bilanatíðni og auka rekstraröryggi. Svo er prentarinn sjálfur minni þannig að minna pláss fer til spillis. Og biddu við: Þegar hönnun þessara prentara hófst var sú ákvörðun tekin snemma að hafa engin takmörk á stækkunarmöguleikum. Þannig getur þú byrjað með minni og ódýrari gerðina, IBM LaserPrinter E, og bætt síðan við eftir þörfum þar til öllum kostum hins dýrari og öflugri IBM LaserPrinter er náð: engin þörf á að festa fé í of viðamiklum búnaði og heldur engin þörf á að takmarka sig við þann prentara sem fyrst er valinn. Að lokuin: VERÐH). Hafi þér fundist geislaprentarar of dýr lausn fyrir þig, þá er ekki víst að þér muni þykja það lengur þegar þú hefur kynnt þér verð og kosti LaserPrinter prentaranna frá IBM. Hafðu samband við næsta söluaðila IBM. Fyrstu verðlaun og ritstjórnarverðlaun tímaritsins PC Magazinefyrir tœknilega yfirburði. m m , FYRST OG FREMST SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVlK SlMI 69V700 " ' - :x-r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.