Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 18

Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990 Kosningar Hvers vegna er ég sjálfstæðismaður? eftir Kristján J. Gunnarsson í dag er bærinn allur á sífelldu iði og andlit manna fá á sig nýjan brag því fólk er allt í einu byijað að hugsa. Það á að kjósa bæjarstjómina í dag. Þannig hefst kvæðið „Kosning- ar“ eftir Tómas Guðmundsson. Og skáldið gefur sig rómantík- inni á vald og kemst að þeirri niður- stöðu að jafnvel þó að allir aðrir frambjóðendur falli muni það verða hinar ungu Austurstrætisdætur sem komast að, enda viss um að engin bæjarstjóm önnur verði að yndisleik þeirri bæjarstjórn jöfn. Ó, að guð vildi nú vera svo góð- ur að veita svolítilli rómantík inní kosningar og stjómmál! En það er ekki von hann geri það. Því að þá yrði pólitíkin líklega svo uppfull af einfeldningslegum bamaskap að fyrr en varði væri þjóðin komin á eitt allsherjar bamaheimili. Þessvegna er hin glettnislega kosningarómantík góðskáldsins ekki meiri veruleiki en hann hefur ætlað henni að vera. Og þessvegna getur heldur enginn flokkur lagt fram lista sem er skipaður svo yndislegum frambjóðendum að hann verði svosem sjálfkjörinn — ekki einu sinni kvennalistinn — enda frambjóðendur ekki valdir af Tómasi. Nei því miður. Stjómmál em ekki rómantík. Og rómantík ekki stjómmál. Kristján J. Gunnarsson Stjómmál felast í því að takast á við órómantískan — og stundum heldur nöturlegan — veruleika á raunsæjan hátt. Án tilfínninga- semi. Það er ekki hægt að galdra loftkastala niðurúr skýjunum upp- fulla af óskum hvers og eins, sem stundum em þar að auki heimsku- legar, bara með því að frambjóð- endur kraftaverkanna segi hókus- pókus í kosningaræðum. Má ég þá heldur biðja um pólitískt raunsæi. Jafnvel þó að sumum þyki kaldranalegt ef ekki er boðið uppá að gera allt fyrir alla. Strax. Reykjavíkurborg vitnar um að sjálfstæðismenn sem stjómendur hennar um áratugi hafa fremur kosið að hafa fast land undir fótum en loftkastala. Hæfilega jarð- bundnir til þess að borgin hefur risið á föstum granni. Svo að það sem byggt var fengi staðist. Og látið fleiri og fleiri óskir íbúanna rætast stig af stigi eftir því sem efni og ástæður hafa leyft. Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt- af haft á að skipa borgarstjóram sem vora til forystu fallnir. Óum- deilt er að svo er nú. í lítilsháttar stjómmálavafstri sem ég tók einu sinni þátt í, þar sem ég gerði mest lítið af mér til ills eða góðs, minn- ist ég samt með ánægju að hafa átt einhvem þátt í að Davíð Odds- syni, þá ungum háskólastúdent, var skipað í baráttusæti á fram- boðslista flokksins við borgar- stjómarkosningar. í þeirri baráttu fór hann með sigur af hólmi og hefur fáum orrastum tapað síðan. Vonandi fer hann samt mjúkum höndum um vinstri flokkana. Þetta eru gæðaskinn. Og enginn skyldi forakta góðmennsku þeirra sem vilja byggja barnaheimili, ekki að- eins yfir blessuð börnin sem alltaf eru að fæðast útí heimilisleysið, heldur líka yfir okkur gamlingjana sem gengnir eram í barndóm. Spumingin er bara hvort nokkuð er á því að byggja að þeir geti nokkuð byggt. Þegar allt kemur til alls kjósa flestir fremur íhaldið en vettlinga- tökin. Höfundur er fyrrverandi fræðslustjóri í Reykja vík. eftir Uhni * Agústsdóttur Eðli mitt hefur ætíð höfðað til þessarar stefnu. Ég ólst upp í smáþorpi úti á landi í stóram systk- inahópi og fjölmennum frænd- garði. Þorpsbúar voru tvö til þijú hundruð og þeir undu glaðir við sitt þótt efnin væra lítil á mörgum heimilum. í minum barnsaugum voru þetta allt „sjálfstæðismenn“. Sumir áttu skektu og reru til fiskj- ar í firðinum; það var þá er allir firðir á íslandi voru fullir af fiski. í þorpinu mínu var íshús (nú kallað frystihús), stór tjörn var þarna og þegar ísinn var orðinn nógu þykkur var hann sagaður í stykki og þau dregin inn í íshúsið. Þar var fiskurinn frá sumrinu og kjötið af sláturfénu síðan geymt. Margir þorpsbúar höfðu nokkrar ær og byggðu smáskúra yfir þær við heimili sín. Þeir sem áttu kú voru nánast hólpnir og allt blessað- ist þetta, því þeir voru ekki nískir að láta frá sér þá mjólk er eftir var að kveldi dags til þeirra sem enga höfðu, og ég vil taka það fram að hún var gefin en ekki seld. Flestir höfðu kartöflugarð sem vel var hlúð að og það feikna búbót. Oft vora haldnir pólitískir fundir í þorpinu og þá var mikið að ger- ast því þeir höfðu sína meiningu þorpsbúar og lágu ekki á skoðun- um sínum. Þótt margir væra fá- tækir og byggju við erfiðar aðstæð- Unnur Ágústsdóttir ur vora þeir „sjálfstætt fólk“ hvar í flokk sem þeir skipuðu sér. Menn bjuggu að sínu á sjálfstæða vísu, flestir gátu haldið sinni mannlegu reisn og verið veitendur fremur en þiggjendur og allir samtaka í að styðja þá sem höllum fæti stóðu í lífsbaráttunni. Þessi lífssýn frá bernskuárunum og það sem hún grandvallaðist á hefur runnið mér í merg og bein. Sjálfstæðisstefnan sem Sjálfstæð- isflokkurinn starfar eftir byggir á sama grunni og því hef ég ætíð verið sjálfstæðismaður. Höfundur er fyrrverandi formaður Thorvaldsensfélagsins og Bandalags kvenna í Rcykjnvík. BYKO B R E I D D ' VERÐLÆKKUN Á FÚAVÖRN OG ÚTIMÁLNINGU FRÁ SJÖFN BYKO BREIDD, BYKO HAFNARFIRÐI MJÓDDIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.