Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
Þjónustugjöld á Kefla-
víkurfluffvelli eru há
eftirÞórarin
Kjartansson
í febrúarmánuði síðastliðnum
urðu nokkur blaðaskrif vegna sam-
dráttar á flugi Federal Express um
ísland og hugsanlegra tengsla við
há afgreiðslugjöld á Keflavíkur-
flugvelli. Var ljóst, að fulltrúar
Flugleiða annars vegar og Flugfax
hins vegar voru engan veginn á
sama máli. Þess var sjálfsagt ekki
að vænta.
Fraktflug um ísland er stórt
hagsmunamál fyrir innflytjendur
og útflytjendur á íslandi. Getur það
skipt sköpum þegar um er að ræða
að koma yörum skjótt á erlenda
markaði. Á þetta ekki síst við um
ferskan lax og aðrar ferskar fiskaf-
urðir, sem senda þarf á fjarlæga,
sveiflukennda og oft kröfuharða
markaði. Flutningsgeta fyrir frakt
með flugi til og frá landinu er hins
vegar takmörkuð. Fyrirsjáanlegt
er að flutningsgetan muni minnka
á næstunni, er Flugleiðir taka í
notkun nýjar farþegaflugvélar með
minna rúmmáli og burðargetu fyrir
frakt í lestum. Jafnframt munu
þeir síðar á þessu ári láta af hendi
B727-fraktvél þá, sem þegar hefur
verið seld. Það virðist því blasa
við, að allir vöruflutningar með
fraktflugvélum til og frá íslandi
verði með erlendum flugvélum,
annaðhvort ! leiguflugi fyrir inn-
lenda aðila, svo sem Flugleiðir,
Arnarflug og Flugfax, eða í nafni
erlendra aðila.
Það frumkvæði sem Flugfax
hefur tekið með því að bijóta sér
leið inn á fraktflugsmarkaðinn til
og frá íslandi, er í alla staði lofs
vert. Hér hafa framsýnir menn tek-
ið töluverða áhættu á sveiflukennd-
um og á margan hátt erfiðum
markaði. Hins vegar hafa þeir sýni-
lega gert sér grein fyrir því, að hér
er einnig um að ræða ný tækifæri
og vaxandi þörf sem getur borið
ávöxt ef vel tekst til. Þær breyting-
ar sem urðu þegar Federal Express
keypti Flying Tigers, og breytti þar
með nánast öllu Atlantshafsflugi
sínu frá B747 yfir í DClO-vélar,
hljóta hins vegar að hafa valdið
þeim miklum vonbrigðum. Burðar-
geta DC10 véla er 35-40% minni
en B747-véla í vöruflutningum og
réttlæting lendinga á íslandi í þeim
tilgangi að taka hér vörur þar með
mun ólíklegri.
Flugleiðir hafa brugðist við þess-
ari framsókn Flugfax-manna eins
og vænta mátti og sett sig í varnar-
stöðu. Hjá Flugleiðum starfar
margt hörkuduglegt hæfileikafólk,
sem er vant því að þurfa að beijast
í harðvítugri samkeppni á erlendum
mörkuðum, oft í beinni samkeppni
við mörg stærstu og öflugustu flug-
félög í heiminum. Hafi Flugleiðir
að einhveiju leyti notfært sér þjón-
ustuaðstöðu sína í Keflavík sér til
varnar, og tekið há gjöld fyrir þjón-
ustu við vélar á vegum keppinauta
sinna, þá með það teljast ósköp
eðlilegt. Myndu sjálfsagt ýmsir
aðrir gera það við sömu aðstæður.
— Cargolux flaug til dæmis nokkur
leiguflug sl. haust til Columbus í
Ohio í Bandaríkjunum. Þar var
aðeins einn aðili sem gat veitt þjón-
ustu fyrir B747 og kostaði sú þjón-
usta nákvæmlega fimmfalt meira
en samsvarandi þjónusta í Chicago,
þar sem fleiri en eitt fyrirtæki geta
veitt þessa þjónustu. Sá aðili í Col-
umbus var Federal Express. Lög-
mál framboðs og eftirspurnar er
ekki bundið við Keflavíkurflugvöll
einan!
En hagur Flugleiða er ekki endi-
lega hagur þjóðarinnar allrar í
þessu tilviki. Það er ljóst að útflutn-
ingur á ferskum fiski eykur verð-
mæti vörunnar og þar með tekjur
til íslenskra hagsmunaaðila. Eftir-
spurn eftir ferskum sjávarafurðum
hefur farið vaxandi undanfarin ár
víða um heim og er fyrirsjáanlegt
að sú eftirspurn muni halda áfram
að aukast. Án reglubundins frakt-
flugs og góðra tengsla við alþjóðleg
dreifíngamet er nánast útilokað að
íslenskir útflytjendur geti brotið sér
leið inn á þessa markaði, nema þá
í mjög takmörkuðum mæli, í sam-
ræmi við flutningsgetu og áætlanir
farþegaflugvéla.
Þær hugmyndir sem upp hafa
komið nýlega, um að laða alþjóð-
lega starfemi til landsins í því skyni
að nýta hugsanlegt tollfijálst svæði
við Keflavíkurflugvöll, em og verða
draumórar einir, sé ekki til staðar
öflugt samgöngunet til og frá
landinu. Slíkt er að vissu marki til
staðar í dag fyrir sjófrakt, en ekki
fyrir flugfrakt.
Það er því að mínu mati mikið
hagsmunamál fyrir þjóðina að allt
sé gert sem unnt er til að laða hing-
að fraktflug frá hveijum þeim aðil-
um, sem reiðubúnir eru til að sjá
fyrir slíkri þjónustu, hvort sem þeir
aðilar em innlendir eða erlendir,
þó svo að æskilegt væri að sjálf-
sögðu að sem stærstur hluti slíkrar
starfsemi væri í höndum íslend-
inga.
Sjálfsagt er hægt að finna sam-
bærilegt verð fyrir þjónustu við
fraktflugvélar á nokkrum flugvöll-
um í Norður-Evrópu, en það eru
þá oftast flugvellir í Skandinavíu,
sem þekktir eru fyrir ein hæstu
gjöld í heimi. Alþjóðlegt fraktflug
um þessa flugvelli er að sama skapi
mjög lítið í samanburði við aðra
helstu flugvelli Evrópu og víðar.
Útflytjendur í Skandinavíu eiga
þess þó kost að senda vömr með
flutningabílum til annarra flugvalla
í Evrópu og nýta sér þar lægri gjöld
og betri þjónustu. Það hafa til
dæmis laxabændur í Noregi nýtt
sér í stómm stíl. Sá kostur er ekki
fyrir hendi á íslandi.
Ekki er þó eingöngu við Flugleið-
ir að sakast hvað kostnað snertir,
því lendingargjöld og eldsneytis-
verð er einnig hátt á Keflavíkur-
flugvelli.
Eftirfarandi tölur gefa hugmynd
um sambærilegan þjónustukostnað
og lendingargjöld í bandarískum
dollurum fyrir B747-vömflutninga-
vél á nokkrum helstu flugvöllum.
Tölur þessar sýna raunverulegan
kostnað Cargolux á þessum flug-
völium, nema gjöld á Keflavíkur-
flugvelli. Þar var miðað við þær
tölur, sem nefndar hafa verið í
blaðaskrifum um starfsemi Federal
Express og Flugfax.
Flugvöllur Þjónustu- Lendingar-
gjald gjald
Malmö 6850 1698
Keflavík 5400 2500
London/Gatwick 4588 2013
Bangkok 3538 1571
Prestwick 2866 645
Hong Kong 2421 1127
New York /
Kennedy 2300 1271
Seattle 2200 861
Brussel 1579 1722
Chicago 950 1082
Þjonustugjald innifelur í öllum
tilvikum hleðslu og affermingu á
fullri vél og er óháð raunverulegri
vigt þess sem hlaðið er. Þannig
kostar 2147 dollara að hlaða og
afferma B747 í Hong Kong, hvort
sem um er að ræða 200 tonn eða
2 tonn. Sé hins vegar þörf fyrir
þjónustu við að hlaða frakt á eða
af flugpöllunum sjálfum, er tekið
gjald fyrir það aukalega og miðast
þá við hvert kílógramm, enda þar
um vöruskemmuþjónustu að ræða.
— Lendingargjöld miðast við há-
marksvigt flugvélar, annaðhvort
hámarks-lendingarvigt, eða flug-
taksvigt og er misjafnt eftir flug-
völlum við hvora töluna er miðað.
Eins og þessar tölur bera með
sér, er algengt að það kosti á bilinu
2-3000 Bandaríkjadali að fá þjón-
ustu fyrir B747, án tillits til þess
magns sem hlaðið er á eða af vél-
inni. Það er því ljóst að þjónustu-
gjöld á Keflavíkurflugvelli eru há,
þó svo að svipuð eða hærri dæmi
finnist í Skandinavíu.
Lendingargjöld eru einnig há,
þó dæmi séu e.t.v. til um hærri
gjöld. Það kostar t.d. 130% meira
að lenda í Keflavík en í Chicago.
Það er einnig athyglisvert að í
Prestvík á Skotlandi, sem er flug-
völlur er hefur mjög ákaft sóst eft-
ir auknum viðskiptum frá flugfé-
lögum um allan heim, kostar lend-
ingin u.þ.b. 26% af samsvarandi
gjaldi á Islandi. Ég er ekki í nokkr-
um vafa um, að það hefur átt ein-
hvern hátt í því að stjórnarformað-
ur Federal Express lýsti því yfir
nýlega, að hans fyrirtæki hefði
áhuga á að byggja þar upp vax-
andi aðstöðu til vörudreifingar og
auka ferðatíðni þar í gegn.
íslenska ríkið leggur eldsneytis-
toll á flugvélaeldsneyti sem tekið
er á vélar í alþjóðlegu flugi með
viðkomu á íslandi. Eftir því sem
ég kemst næst, þá er sá tollur 65
aurar á hvern lítra. Það samsvarar
u.þ.b. 5% gjaldi miðað við nýlegt
eldsneytisverð á Keflavíkurflug-
velli. Þar sem stórar flugvélar í
langflugi taka tugi þúsunda lítra í
hvert skipti sem þær koma hér við
er augljóst að um umtalsverða fjár-
muni er að ræða.
Það er Ijóst, að Jiörf er fyrir
fraktflug til og frá Islandi, og að
sú þörf kemur til með að vaxa,
eigi ýmsar viðkvæmar útflutnings-
greinar okkar að dafna og ná ör-
uggri fótfestu á erlendum mörkuð-
um. Það er því mikilvægt að íslensk
stjórnvöld geri allt sem í þeirra
valdi stendur til að stuðla að vexti
fraktflugs, hvort sem slíkt flug er
í nafni innlendra eða erlendra að-
ila. Að mínu mati gætu eftirfarandi
virkað sem hvatar að slíkum vexti:
1) Niðurfelling lendingargjalda
af fraktflugvélum á Keflavíkur-
flugvelli, svo framarlega sem þær
flytja frakt til eða frá landinu, með
lágmarksviðmiðun, t.d. 10 tonn í
hveiju flugi.
Þórarinn Kjartansson
„Eins og þessar tölur
bera með sér, er al-
gengt að það kosti á
bilinu 2-3000 Banda-
ríkjadali að fá þjónustu
fyrir B747, án tillits til
þess magns sem hlaðið
er á eða af vélinni. Það
er því ljóst að þjónustu-
gjöld á Keflavíkurflug-
velli eru há, þó svo að
svipuð eða hærri dæmi
finnist í Skandinavíu.“
2) Endurgreiðsla tolls á elds-
neyti fyrir fraktflugvélar, með
sömu lágmarksskilyrðum.
3) Afnám takmarkana á þjón-
ustustarfsemi við flugvélar á
Keflavíkurflugvelli, þannig að hver
sá aðili, er veita vill slíka þjónustu
og fjárfesta í tækjabúnaði og ann-
arri aðstöðu þar að lútandi, geti
gert það óhindrað.
4) Öflugri markaðssetningu
Keflavíkurflugvallar verði hrint af
stað, með það markmið að auka
alþjóðlegt flug um.flugvöllinn.
Keflavíkurflugvöllur er langt frá
því að vera fullnýttur og getur tek-
ið við vaxandi flugumferð um ófyr-
irsjáanlega framtíð. Með því að
hvetja til aukins fraktflugs um
flugvöllinn, án lendingargjalda,
eldsneytistolls og annarra hindrana
skapast sáralítill ef einhver um-
framkostnaður við rekstur vallar-
ins. Kostir þeir sem slíkt aukið flug
getur haft í för með sér fyrir þjóð-
ina eru hins vegar það miklir, að
þetta ætti að verða stjórnvöldum
létt ákvörðun, sem hægt væri að
framkvæma án tafar.
Höfundur er framkvænidastjóri
Norður-Ameríkusvæðis Cnrgolux.
Verðmætasköpun í
heilbrigðisþj ónustu
eftir Guðmund
Björnsson
Mörg ár eru síðan að menn fóru
í alvöru að ræða þann möguleika
að selja útlendingnm íslenska heil-
brigðisþjónustu. Öðru hvetju eru
viðtöl við áhugamenn eða greinar
skrifaðar í flölmiðla um þessi mál.
Því miður hefur lítið verið að gert.
íslendingar eru í fararbroddi í heil-
brigðismálum í heiminum. Nægir
þar að nefna lágan ungbamadauða,
mikilvirkt forvarnarstarf og læknis-
fræðilega þekkingu og reynslu eins
og best gerist í heiminum. Vissu-
lega tala menn um að heilbrigðis-
þjónusta sé „of dýr“ án þess að
skilgreina það neitt nánar. Þessi
frasi er því miður innantómt
pólitískt slagorð. Nauðsynlegt er
að gera sér grein fyrir því að nútíma
heilbrigðisþjónusta er dýr, og að i
samanburði við nágranna okkar á
Norðurlöndum og í Evrópu er
íslensk heilbrigðisþjónusta mjög vel
rekin. Vissulega má gera betur með
því að leiða það besta fram hjá
þeim sem við 'þessi mál starfa. Það
er velþekkt staðreynd að fái ein-
staklingarnir frelsi til athafna verða
verkin verðmæt. Víða í Evrópu hafa
verið opnaðar heilbrigðisstofnanir
sem reknar eru af einkaaðilum í
hagnaðarskyni. Ljótt rnál segja
sumir, á nú að fara að hagnast á
veikindum og óförum annarra.
Bíðið þið við! Hér í Svíþjóð, seni
lengi hefur verið talið eitt af höf-
uðvígjum velferðarinnar og jafnað-
arstefnunnar, hafa menn ekki farið
varhluta af þessu. Hugmyndir um
hið fullkomna heilbrigðiskerfi hafa
að nokkru leyti vikið fyrir markaðs-
lögmálunum. Langir biðlistar !
mjaðmar- og augnaðgerðir hafa
knúið fram einkarekstur og í mörg-
um tilfellum kaupir ríkið þjónustu
af slíkum stofnunum. Samfara
þessu hafa menn áttað sig á því
að það gengur vel að selja sérþekk-
ingu í heilbrigðisþjónustu, bæði í
formi ráðgjafar til annarra landa
og með því að flytja sjúklinga inn
til meðferðar. Svíar eru þó aftarlega
á merinni í þessum efnum, og þar
hafa frændur okkar Danir að von-
um skotið þeim ref fyrir rass.
Einkaaðilar í Danmörku hafa byggt
sjúkrahús sem selur sína þjónustu
samkvæmt • verðskrá. Viðbrögðin
hafa verið með ólíkindum, þar sem
sívaxandi fjöldi aldraðra er vel efn-
um búinn í flestum tilvikum. Danir
ætla sér að markaðssetja þessa
þjónustu í Evrópu. Þetta er einnig
reynsla Þjóðveija og annarra Evr-
ópuþjóða.
Þetta leiðir hugann til baka til
íslands þar sem þessi mál eru enn-
þá á umræðustigi. Hvað hafa er-
lendir sjúklingar til Islands að
sækja? Jú, fullkomna heilbrigðis-
þjónustu, streitulaust umhverfi,
ósnortna náttúru og hreint loft.
Jarðhitinn er einnig auðlind sem
notaður er í ríkum mæli til lækn-
inga eins og margir þekkja m.a. frá
Heilsuhælinu í Hveragerði. íslend-,
ingar geta jafn vel og aðrir tekið
að sér að sinna þessu verkefni sér
og öðrum til hagsbóta. Ég er sann-
færður um að ef einkaaðilar taka
höndum saman við heilbrigðisstéttir
og ráða stjórnendur með reynslu
og þekkingu á ferðamálum og
markaðsöflun eigum við íslendingar
mikla möguleika til að gera heil-
brigðisþjónustuna að stórum út-
flutningsatvinnuvegi. Flytjum inn
sjúklinga og veitum þeim fyrsta
flokks þjónustu á heilsuhæli með
möguleika á aðgerðum, hvíld og
endurhæfingu. Heilbrigðiskerfið
„Ég er sannfærður um
að ef einkaaðilar taka
höndum saman við heil-
brigðisstéttir og ráða
stjórnendur með
reynslu og þekkingu á
ferðamálum og mark-
aðsöflun eigum við ís-
lendingar mikla mögu-
leika til að gera heil-
brigðisþjónustuna að
stórum útflutningsat-
vinnuvegi.“
getur einnig notið góðs af þessu
þar sem hægt verður að auka fram-
boð á þeirri þjónustu sem við íslend-
•ingar þurfum án þess að þær fjár-
festingar komi við pyngju skatt-
borgara.
Höfundur erlæknir ogstnrfnr við
cndurhæfíngu í Svíþjóð.