Morgunblaðið - 26.05.1990, Side 28

Morgunblaðið - 26.05.1990, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990 Bryndís Brynjólfsdóttir, Selfossi: Vanefhdir ríkisins áberandi í mikilvægfum málaflokkum Kosið um raunsæja stefhu og örugga forystu í bæjarmálunum „ÞAÐ LIGGUR margl fyrir hjá okkur, við höfum unnið að mörgum góðum málum á kjörtímabilinu," sagði Bryndís Brynjólfsdóttir sem skipar fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna á Selfossi. Konur eru í efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á fimm stöðum á landinu. Af þessum fimm er Selfoss stærst. Bryndís hefur ásamt tveimur fulltrú- um Sjálfstæðisflokksins setið í bæjarstjórn síðasta kjörtimabil. „Við ætlum að reyna að koma Sjúkrahúsi Suðurlands aftur inn á fjárlög, vinna áfram að byggingu íbúða fyrir aldraða en þar vantar á að Húsnæðisstofnun samþykki byggingu alls 24 íbúða sem búið er að fullhanna en stofnunin hefur aðeins heimilað fjármagn í helming byggingarinnar sem nýtist ekki nema hún sé byggð í einum áfanga. Á þessu stendur, verkið er full- hannað og þetta er eitt af okkar baráttumálum. Þá viljum við að sorphaugamir fari úr landi Selfoss en sorp frá öðmm byggðarlögum á Suðurlandi er urðað í okkar landi þó Selfoss sé landminnst af sveitarfélögunum. Reyndin er sú að sorphaugasvæðið mun fyllast 1991 samkvæmt þeirri áætlun sem gerð hefur verið. Við munum beita okkur fyrir lægra raforkuverði til atvinnu- rekstrar og vonum að fyrirtæki á landsbyggðinni og önnur sjái hve hagkvæmt það er að vera staðsett utan mesta þéttbýlisins og nánast í sveit sem hefur þó flesta kosti þéttbýlis. Það er okkur mikið kappsmál að uppbygging Fjölbrautaskólans haldi áfram og síðari áfangi hans rísi ásamt íþróttahúsi. En auk íþróttahússins viljum við að mark- viss uppbygging eigi sér stað á íþróttaaðstöðunni á Selfossi. Það sem við höfum verið að gera á síðasta kjörtímabili hefur byggst á því sem bæjarfélagið hefur gert upp á eigin spýtur. Þar ber helst að nefna viðbyggingu grunnskól- ans, kaup á KA húsinu, lagningu gatna og gangstétta ásamt stór- átaki í skipulagsmálum og fjárfest- ingum í lóðum. Vanefiidir hjá ríkinu Það er athyglisvert að þau verk- efni sem vinna átti að, svo sem stækkun Sjúkrahúss Suðurlands og bygging þjónustuíbúða fyrir aldraða komust aldrei á fram- kvæmdastig vegna vanefnda ríkis- stjómarinnar. Vinstri menn hér í bænum hömr- uðu gjaman á því á sínúm tíma að ríkisþátturinn ætti að vera klár Bryndís Brynjólfsdóttir. og borðleggjandi og sérstaklega höfðu þeir mörg orð um þetta þeg- ar sjálfstæðismenn voru í ríkis- stjóm en það heyrist minna í þeim núna enda fer sú reynsla sem við höfum af núverandi ríkisstjórn ekk- ert á milli mála í þessum efnum. Ríkisþátturinn er sem sagt úti í kuldanum þrátt fyrir einstæða skattpíningarstefnu ríkisstjómar- innar. Þá eru augljós svik ríkis- stjórnarinnar í gerðum samningum um verkaskiptinguna og má þar' til dæmis nefna tannlæknakostnað- inn þar sem bæjarbúar á Selfossi töpuðum 5 milljónum króna. Virðis- aukaskatturinn á byggingar sveit- arfélaga kom eins og köld gusa á sveitarfélögin því sá skattur var ekki inni í myndinni þegar fjallað var um málið milli aðila en á þeim pósti innheimtir ríkið um 1000 milljónir króna á þessu ári og er slík skattpíning einsdæmi. Góð flárhagsstaða Fjárhagsstaðan hjá Selfossbæ er mjög góð, íjármagnskostnaður er lítill og fer lækkandi. Hann er til að mynda lægri á síðasta ári en árinu þar á undan. Árið 1988 var Selfoss með lægsta fjármagns- kostnað allra kaupstaða og árið 1989 er sú upphæð enn lægri. Við höfum verið forystuafl í bæjarfé- lagínu á síðasta kjörtimabili og munum halda áfram á sömu braut í þessum eftium fáum við til þess fylgi í kosningunum. Þurfum afgerandi forystu Kosningamar snúast um það að raunsæ stefna sjálfstæðismanna fái brautargengi þannig að athafn- ir fylgi orðum. Við bjóðum fram heilsteyptan lista þar sem fólk með ólíka reynslu býður fram krafta sína og fer ekki í grafgötur með uppruna sinn. Gagnvart þessum valkosti standa vinstri flokkarnir, Kvennalisti, Alþýðuflokkur og Al- þýðubandalag, sem bjóða fram saman en stefna þeirra hefur beðið skipbrot. Forystan er tvíræð og óvíst hver ræður og hver raunveru- leg stefna er þegar til kastannna kemur. Það er þekkt staðreynd að samsuða og málamiðiun ríkir við aðstæður þar sem margir ráða og stjórnunin verður lítt afgerandi og á slíku þurfa Selfossbúar síst að halda. Framsókn á við innbyrðis erfiðleika að etja og loks er það svokallað óháð framboð sem er runnið undan rifjum Borgara- flokksins. Þessir hópar hafa það sameiginlegt að óttast um eigin hag vegna tengsla við ríkisstjórn- ina. Það reynir á samstöðuna „Þetta er í fyrsta sinn sem kona leiðir lista sjálfstæðismanna á Sel- fossi. Við viljum reyna á það að önnur kona af listanum nái kjöri í bæjarstjórn. Við ætlum að efla þrótt sjálfstæðisstefnunnar og munum vinna saman að því. Stefna okkar er einföld og skýr enda höfum við lagt kapp á að vinna af markvísi til árangurs. Við leggjum mikið upp úr því að vinna málefnalega á breiðum grundvelli og opinskátt enda hefur fjöldi bæj- arbúa komið við sögu í mótun okk- ar stefnuskrár. Það fer líka vel á því vegna þess að við erum að bjóða okkur fram fyrir bæjarfélagið í heild sinni. Við viljum vera hvetj- andi og mér finnst á fólki á öllum aldri að það laðist að okkar stefnu- málum, stefnu sem byggir á góðum og mikilvægum málum fyrir okkar samfélag og ef við fáum ráðið ferð- inni mun verða festa og ábyrgð í stjórnun með tilliti til vona og óska bæjarbúa," sagði Bryndís Brynj- ólfsdóttir á Selfossi. Iþróttahöll í Kópavogi: Teiknistofan hf. kærð fyrir at- vinnuróg og fölsun teikningar Fögnum kærunni, segir Gunnar Birgisson, oddviti sjálfstæðismanna VALDIMAR Harðarson hjá Arki- tektum sf„ einn hönnuða fyrirhug- aðrar iþróttahallar í Kópavogi, hefur kært Teiknistofúna hf. til stjórnar Arkitektafélagsins vegna birtingar myndar I Vogum, mál- gagni sjálfstæðismanna í Kópa- vogi. „I texta með myndinni í Vogum er talað um „fyrirhugaða íþróttahöll," en þessi teikning er ekki af fyrirhugaðri íþróttahöll, þar sem hún er ekki frá okkur komin,“ segir Valdimar og hann segir myndbirtinguna vera alvar- legan atvinnuróg. Gunnar Brigis- son, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, segir sjálfstæðismenn fagna kærunni, þar sem þá komi hið sanna í Ijós. Hann segir for- sendur samnings við ríkið um byggingu hallarinnar brostnar og taka verði upp viðræður um nýja samninga. Gísli Halldórsson hjá Teiknistofunni hf„ sem vann teikn- inguna umdeildu, vísar kæruefn- inu á bug og segir þetta ekki óeðli- legra en þegar arkitektar hafa verið að tjá sig um Þjóðleikhúsið að undanförnu. „Kæran er vegna þess að mynd sem við höfum ekki teiknað var birt þar sem hlutunum hefur verið hagr- ætt til þess að láta líta svo út að menn sjái ekki inn á völlinn," segir Valdimar Harðarson. „Myndin er ekki teiknuð eftir okk- ur,“ segir hann, „hún er fölsuð. Þar er verið að reyna að fara ofan í ómálsettar tekningar og teiknað upp úr þeim, sem er gjörsamlega óleyfi- legt. Bekkjum er hliðrað til, þannig að sjónlínan verður vitlaus, þetta er sem sagt falsað." Hann segir málið ekki snúast um pólitík, heldur sé um að ræða hreinan atvinnuróg. „Af honum verðum við að þvo okkur. Það gerum við með því að leggja málið fyrir stjóm Arki- tektafélagsins og beinum spjótum okkar fyrst og fremst að þeim mönn- um sem hafa unnið þetta. Stjórn- málamaður sem lætur vinna svona verður að reiða sig á að verkið sé ekki falsað. Upplýsingarnar sem Gunnar fékk eru rangar, af því að teikningin er fölsuð." Valdimar segir þetta vera alvar- legt mál, „vegna þess að þetta er atvinnurógur á hæsta stigi.“ Gunnar Birgisson segir sjálfstæð- ismenn í Kópavogi fagna kærunni. „Við erum mjög ánægðir með að þeir kæri, því að þá kemur sannleik- urinn í Ijós,“ segir hann. „Höfuðmál- ið er að samið var við ríkið um fasta upphæð, 300 milljónir, til byggingar- innar. Þá lá nánast engin hönnun fyrir, einhvers konar lausleg for- hönnun. Síðan þarf lágmark 400 milljónir til viðbótar frá ríkinu til að Kópavogur sleppi út úr þessu og með þessum hönnunargöllum bætast við 100 til 200 milljónir til viðbótar því. Við teljum því forsendur samningsins vera brostnar og að þurfi að ganga aftur til samninga við ríkið.“ „Ég vísa ákærunni algjörlega á bug,“ segir Gísli Halldórsson. „Auð- vitað má maður gefa hlutlaust yfirlit fyrir hvem sem kemur hingað á teiknistofuna með teikningar. Það er alveg hreint eins og arkitektar hafa verið að gefa yfirlýsingar um Þjóðleikhúsið að undanfömu í stómm stíl. Það er ekki nema sjálfsagt. Þar að auki höfum við undanfarin tvö ár verið að aðstoða Handknattleiks- sambandið við að undirbúa þessa byggingu, þannig að við þekkjum það manna best hvaða kröfur em gerðar um svöna hús.“ Gísli segir það vera alrangt hjá Valdimar að um fölsun sé að ræða. „Þetta er bara stækkað upp eftir hans teikningum og við erum einung- is að gefa hlutlausar upplýsingar um hve mörgum sé hægt að koma inn í svona hús samkvæmt brunareglu- gerðum og öðmm samþykktum. Það þarf einfaldlega að stækka húsið,“ segir Gísli. Hann segir bæði þurfa að hækka það og stækka gmnnflöt- inn til að það rúmi sjö þúsund áhorf- endur. Gísli segir hina umdeildu teikningu ekki hafa verið kynnta sem teikningu Valdimars. „Þetta er bara faglegt mál sem maður reiknar út, senti- metra fyrir sentimetra, og þá sér maður alveg hve margir komast í húsið. Að okkar dómi er þetta hús, eins og það er hugsað núna, aðeins fyrir um sex þúsund manns, með þessari þröngu aðstöðu þegar ekki er gert ráð fyrir góðum sætum fyrir boðsgesti, sem verða sennilega 400 til 500, eða blaðamönnum sem geta orðið ansi margir.“ Morgunblaðið/KGA Heimdallur: Púsluspili dreift í hús í borginni HEIMDALLUR, félag ungra sjálfetæðismanna í Reykjavík, hefur síðustu daga staðið fyrir dreifingu á púsluspili í öll hús í borg- inni. I því eru tólf kubbar; sex rauðir og sex bláir. Bláu kubbarnir mynda saman listabókstaf Sjálfstæðis- flokksins, D, en ekki er hægt að raða saman rauðu kubb- unum, sem eru með listabók- stöfum annarra flokka. Með púsluspilinu fylgja skilaboð frá ungum sjálfstæð- ismönnum til Reykvíkinga, þar sem segir, að í borgarstjómar- kosningunum í dag, 26. maí, standi val kjósenda milli sam- hents meirihluta sjálfstæðis- manna og sundraðrar fylking- ar vinstri manna. Undanfarin átta ár hafí sjálfstæðismenn undir forystu Davíðs Oddsson- ar borgarstjóra stjórnað höfuð- borginni og hafí þeir stuðlað að öflugri uppbyggingu og stórhuga framkvæmdum á öll- um sviðum, samfara traustri fjármálastjóm. Borgarsij órnarkosningar: Miimispunktar til stuðn- ingsmanna D-listans HÉR fara nokkrir minnispunktar til stuðningsmanna D-listans við kosningar til borgarsljórnar Reykjavíkur í dag. Allar almennar upplýsingar um kosningamar er unnt að fá í síma 82900 og í þeim síma eru skráðir niður sjálfboðaliðar til aðstoðar við kosningamar. Utankjörstaðarskrifstofa Sjálf- stæðisflokksins er i Valhöll, Háa- leitisbraut 1, 3. hæð; símar: 679053, 679054, 679056, 679032 og 679036. Sjálfstæðisflokkurinn býður upp á keyrslu á kjörstað. Kjósend- pr í Nes- og Melahverfí, Vestur- og Miðbæ og Austurbæ, Norður- mýri, geta hringt í síma 626495 og 626496 á kosningamiðstöðinni Austurstræti 10A. Kjósendurí Hlíða-, Holta-, Háa- leitis-, Laugarnes-, Langholts-, Voga-, Heima-, Smáíbúða-, Bú- staða- og Fossvogshverfi, sem óska aksturs, geta hringt í síma 20720 í húsnæði Ísams-Land- leiða. íbúar í Bakka-, Stekkja-, Fella-, Hóla-, Skóga-, Selja-, Ár- bæjar-, Selás- og Grafavogshverfi geta hringt í síma 670341 og 670367 í kosningamiðstöðinni Þönglabakka 6, 2. hæð, óski þeir aksturs á kjördag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.