Morgunblaðið - 26.05.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
29
Vestmannaeyjar:
500 manns í grillveislu
sj álfstæðismanna
Vestmannaeyjum.
MIKIÐ LÍF hefiir verið í kosn-
ingaundirbúning-i hjá sjálf-
stæðismönnum í Eyjum. Sæl-
kerakvöld var haldið á miðvik-
dagskvöld og á fimmtudag var
slegið upp mikilli grillveislu á
planinu framan við Asgarð,
félagsheimili sjálfstæðisfélag-
anna.
Sjálfstæðismenn hafa undir-
búið kosningarnar síðustu vikur.
Kaffifundir hafa verið á hverjum
morgni þar sem fjöldi fólks hefur
hist og drukkið saman morgun-
kaffi. A miðvikudagskvöld var
slegið upp sælkerakvöldi þar sem
30 konur sáu um matseldina. Á
annað hundrað manns mættu til
veislunnar og var sungið og trall-
að fram eftir nóttu að Eyjasið.
Á fimmtudag var slegið upp grill-
veislu á planinu framan við Ás-
garð, félagsheimili sjálfstæðisfé-
laganna. Þar grilluðu frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins pyls-
ur sem gestum var boðið upp á.
Um 500 manns komu til grill-
veislunnar og ríkti sannkölluð
karnivalstemmning í góðviðrinu
sem lék við veislugesti.
Sigurgeir tók meðfylgjandi
myndir í grillveislunni sem Sjálf-
stæðisflokkurinn bauð til.
Grímur
BMW 3-SERÍAN
BÍLAR MEÐ SÉRSTÖÐU
Öryggi, þægindi, afl og styrkur ásamt útlisfegurð sem
gleður jafnvel hið vandfýsnasta auga: öll þessi atriði sam-
| tvinnuð í eina glæsilega heild veita BMW 3-bílunum sér-
i stöðu. Þegar þú velur einn þeirra sem farskjóta þinn
markar þú eigin sérstöðu.
Hátækni og sú athygli, sem hvert ein-
astasmáatriði í hönnun sérhversbílsfær,
skýra frá bært gengi og sívaxandi vin-
sældir BMW um heim allan.
Innan 3-seríunnar hefur hver bíll líka sína eigin sér-
stöðu. BMW 316i, og 318i eru búnir 4ra strokka vélum, ná-
skyldum hinni voldugu og háþróuðu 12 strokka vél sem
knýr BMW 750il_. í 318is er hin nýja 136 hestafla, 16 ventla
vél sem byggð er á 20 ára reynslu í fjölventlatækni. Ef sér-
krafa þín er um ómælt afl og afburðasnerpu þá er BMW
318is bíllinn fyrir þig.
í BMW 320i og 325i eru 6 strokka vélar, rómaðar fyrir
kraft og þýðan gang og í BMW 325iX bætist við sítengt al-
Af englum og keltum
drif. Ef sérkrafa þín er um það besta og ekkert minna, þá
eru þetta bílar fyrir þig.
í BMW 324d og 324td eru dísilvélar, hljóðlátar og slag-
Sýning í Bogasal Þjóðminjasaftis íslands
SÝNINGIN „Afcnglum og kelt-
um — English and Celtic Arte-
facts and Influence" — verður
opnuð laugardaginn 26. maí í
Bogasal Þjóðminjasafhsins. Þar
verða, eins og nafiiið gefúr til
kynna, sýndir enskir og keltn-
eskir munir úr eigu safhsins.
Eru þeir frá ýmsum timum, þeir
elstu frá 8.-10. öld.
Meðal sýningargripa eru enskar
altaristöflur úr alabastri frá 15.
öld, hinar mestu gersemar. Þá
verða til sýnis varðveittir hlutar
af gullsaumuðum skrúða frá Hól-
um í Hjaltadal frá dögum Guð-
mundar góða; höklar þrír talsins
frá Skálholti, Odda og Njarðvík.
Einnig eru á sýningunni tvö
íslensk útsaumsverk frá 17. öld,
sem bera ensk einkenni. Vatnslita-
myndir^ úr leiðöngrum Englend-
inga á íslandi fyrr á öldum, silfur-
munir og fleiri góðir gripir.
Prentuð hefur verið sýningar-
Morgunblaðið/RAX
Unnið að undirbúningi sýningarinnar á Þjóðminjasafninu.
skrá þar sem gestir geta fræðst
um sýningargripina.
Sýningin stendur til september-
loka og er opin eins og aðalsalir
Þjóðminjasafnsins kl. 11-16 alla
daga vikunnar nema mánudaga.
(Fréttatilkynning frá
Þjóðminjasafhi lslands)
mjúkar, sparneytnar og langlífar. Ef þú hefur akstur að at-
vinnu eða ert einfaldlega einn þeirra sem eru inni í leyndar-
dómum dísilvélanna, þá eru þetta bílar fyrir þig.
Allar þessar vélarstærðir fyrir ofan 316i fást einnig í
skutbíl sem flytur þig, farþega þína og farangur með fyllstu
þægindum án þess að nokkru sé fórnað.
Veldu þér bíl úr BMW 3-seríunni sem
hæfir þér og þörfum þínum í fyllsta trausti
þess að BMW uppfyllir allar kröfur þínar um
öryggi, þægindi, afloglýtalausan frágang.
Reynsluakstur færir þig í allan sann-
leika um það sem þig grunar nú þegar:
BMW er engum líkur.
Bílaumboðið hf
KRÓKHÁLSI 1. REYKJAVlK, SlMI 686633