Morgunblaðið - 26.05.1990, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
fclk í
fréttum
SANNGIRNI
Röngum söguburði
andmælt
Franska kynbomban unga
Amanda De Cadenet, sem er
einkum fræg þessar vikurnar fyrir
að vera í tygjum við John Taylor,
hinn villta liðsmann Duran Duran,
hefur gengið fram fyrir skjöldu
og krafist þess að vera virt að
verðleikum. Allt sé ósatt sem sagt
sé um framferði hennar, t.d. að
hún sýni barm sinn nakinn fyrir
hveijum sem er og beri sig saman
við aðrar bijóstgóðar konur á borð
við Gitte Nielsen og fleiri
þungavigtarkonur í þeirri deild.
Hún segir að á árum áður (hún
er aðeins 18 ára!) hafi hún hlotið
viðumefnið „villta barnið" því að
þá hafí hún verið býsna
atkvæðamikil í næturiífinu og
vakið meiri athygli en jafnöldrur
hennar og vinkonur og því verið
milli tannanna á fólki. Hún hefði
hagað sér oft og tíðum illa í þá
daga og vildi ekki þvertaka fyrir
að hún kynni að hafa flett sig
klæðum að ofan við einhver
tækifæri. Þar kom hins vegar að
• móður hennar þótti nóg um og
sendi hana á upptökuheimili fyrir
afvegaleidda unglinga. Amanda
segir þetta hafa verið hinn besta
skóla og út hafi hún komið
gerbreytt stúlka. Stóískari og ekki
eins skemmtanasjúk. Og nú dansi
hún eins og hún eigi lífið að leysa
er hún fer út að skemmta sér í
staðinn fyrir að þamba brennivín.
Ánægður hópur heldur af stað heimleiðis.
Þórsmörk.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
En á innfelldu myndinni sést er grillveislu var siegið upp í
SUÐURLAND
ALDARAFMÆLI
Með opið hús
í Borgarnesi
Guðrún Bergþórsdóttir, Borgarnesi,
varð 100 ára miðvikudaginn 16.
maí sl. í því tilefni var hún með opið hús
á Hótel Borgarnesi. Urðu margir til þess
að heiðra þessa öldnu konu og færa
henni blóm og árnaðaróskir.
Guðrún er við góða heilsu og vel ern.
Hún bjó lengi ein í húsi sínu við Egils-
götu en flutti fyrir um tveimur árum á
Dvalarheimilið í Borgamesi.
- TKÞ
Morgunblaðið/1 heodór Kr. Pórðarson
Guðrún Bergþórsdóttir ber aldurinn vel og situr hnarreist
og virðuleg innan um afmælisblómin.
Sænskir unglingar á ferð
Hópur unglinga frá Vannsta-
skolan í Nynashamn í Svíþjóð
dvaldi á dögunum hjá jafnöldrum
sínum á Eyrarbakka. Alls eru í
hópnum 20 unglingar, tveir kennar-
ar og tvö foreldri.
Nynashamn er vinabær Eyrar-
bakka og þetta em fyrstu sam-
skipti skólanna. Hópurinn hefur
farið víða um Suðurland og meðal
annars var farið í Þórsmörk og gist
þar í skála Ferðafélagsins.
Heimsóknin hefur verið hin
ánægjulegasta í alla staði og krakk-
arnir hafa komist að raun um það,
að áhugamál unglinga em þaú
sömu, og hjörtun slá eins, beggja
vegna Atlantshafsins.
- Óskar
Amanda De Cadenet og John Taylor.
Steinakrýl
Fyrir þá sem vilja mála sjaldan
en gera það vel
Þú vandar til verksins, þcgar þú málar húsið
með Steinakrýli frá Málningu hf. Stein-
akrýl veitir steininum ágæta vatns-
vöm og möguleika á að að
„anda“ betur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinakrýls er gulltrygg og
því getur þú einnig notað
n§
það sem grunn undir Kópal-Steintex. Þú
gctur málað með þessari úrvalsmálnipgu við
lágt hitastig, jafnvel í frosti. Hún
þolir vætu eftir um eina
klst., hylur fullkomlega í
tveimur umferðum, veðr-
unarþol er frábært og litaval
gott.
nuihwH)
Næst þegar þú sérð fallega málað hus — kynntu þér þá hvaðan málningin er
Mmálning'f
- það segir sig sjálft -