Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26: MAÍ 1990
Frá Sumarbridskeppninni sl. fímmtudag.
Sveskjur með koníaksbragði.
Sveskjur
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Á okkar tímum teljast sveskj-
ur vart til „lúxus“-matar, frek-
ar en aðrir ávextir, þó ætla
mætti að svo sé af verðlaginu.
Engan hef ég þó heyrt segja
að sveskjur séu ekki keyptar
til heimilisnota vegna verðsins.
Það er þó ekki ýkja langt síðan
að miðaldra kona, alin upp i
kaupstað úti á landi, minntist
þess hve spara þurfti í mat á
heimilinu. Þá fékk hvert barn-
anna tvær sveskjur út í sætsúp-
una en móðir þeirra setti enga
á sinn disk. Sannarlega breyttir
tímar. Sveskjur eru stórgóðar
með ýmsum mat og óspart not-
aðar á heimili þeirra er þetta
ritar. Þær eru góðar með
lamba- og svínakjöti, á morgun-
verðarborðið út í súrmjólk eða
kornmat, í ávaxtasalöt og eftir-
rétti.
Sveskjur með koníaksbragði
250 g steinlausar sveskjur
2 dl vatn
85 g púðursykur
1 kanilstöng
3 msk. koníak
Sveskjurnar settar í pott með
vatni, sykri, kanilstöng og suðan
látin koma upp. Sveskjumar að-
eins látnar mýkjast, þær kældar
og kanilstöngin tekin úr, koníaki
hrært saman við og skipt niður á
fjórar skálar. Þeyttur ijómi borinn
með og möndluflögum stráð yfír.
Ætlað fyrir 4.
Sveskju-“kompott“
250 g steinlausar sveskjur
2 dl vatn
'Adl brytjaðar möndlur
vanillusósa
rifið súkkulaði
þeyttur ijómi
Suðan látin koma upp á sveskj-
unum, þær kældar og settar í fjór-
ar skálar, möndlunum stráð yfir.
Vanillusósunni hellt yfir og
skreytt með þeyttum ijóma. Til-
búið vanillusósuduft er fáanlegt í
verslunum en lítið mál að búa
hana til heima. Ætlað fyrir 4.
Sveskju-„souffle“
150 g sveskjur
vatn
5-7 msk. sykur (eða eftir smekk)
3-5 eggjahvítur
Sveskjurnar soðnar, steinamir
teknir út, þær hakkaðar eða brytj-
aðar mjög smátt, sykrinum hrært
saman við, magn eftir smekk.
Eggjahvíturnar stífþeyttar og
síðan blandað varlega saman við
sveskjumar. Síðan er þetta sett í
smurða skál og bakað í ofni við
mjög vægan straum í 20-25 mín.
Ætlað fyrir 4.
Amerískur sveskju-ábætir
1 bolli soðnar sveskjur, stein-
lausar
'Abolli sykur
1 bolli sveskjusoð
2 eggjahvítur
safi og börkur af einni sítrónu
1 msk. matarlímsduft
'Abolli kalt vatn
Matarlímsduftið hrært út í vatn
og látið standa í 5 mín. Soðnar
sveskjurnar settar í litla hrærivél-
arskál og hrært þar til þær eru
komnar í mauk.
í lítinn skaftpott er settur
safínn eða soðið af sveskjunum,
1 bolli af safa á móti 'Abólla af
sykri, látið sjóða og matarlíms-
blanda sett saman við, hitað var-
lega með.
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar,
vökvinn í pottinum settur varlega
saman við ásamt sítrónusafa og
berki, og hrært með. Að síðustu
er sveskjunum hrært varlega sam-
an við og kælt vel áður en borið
er fram. Þeyttur rjómi eða þunn
vanillusósa höfð með. Ætlað fyrir
6 manns.
__________Brids____________
Amór Ragnarsson
Sumarbrids í Reykjavík
Sumarbrids var framhaldið sl.
fimmtudag. 26 pör mættu til leiks og
var spilað í 2 riðlum. Úrslit urðu (efstu
pör):
A-riðill:
ÞórðurBjömsson-Þrösturlngimarsson 270
ErlingurAmarson-SigfúsÞóröarson 249
Guðlaug Jónsdóttir - Aðalsteinn Jörgensen 235
AmórRagnarsson-JensJensson 234
Alfreð Kristjánsson - Láms Hermannsson 221
Meðalskor var 210.
B-riðiU:
ÓlafurLámsson-SteingrimurG.Pétursson 140
CecilHaraldsson-MuratSerdar 127
DaðiBjömsson-GuðjónBragason 125
MapúsAspelund-SteingrimurJónasson 120
Meðlskor var 108.
Spilað verður alla þriðjudaga og
fimmtudaga í Sumarbrids í sumar.
Húsið opnar kl. 17. Sérstök athygli er
vakin á því, að áhugasömustu spilurun-
um verður boðið að taka þátt í brids-
námskeiði í haust, þeir er oftast mæta
til leiks. Spilarar sem hafna oftast í
4. sæti í riðli í hveijum mánuði fá bóka-
verðlaun og sigurpörin í hveijum riðli
fá frítt í næsta skipti sem það par
mætir.
Allt spilaáhugafólk er velkomið að
mæta í Sigtún 9 (hús Bridssambands-
ins)
Bridsfélag Breiðholts
Þriðjudaginn 22. maí var firma-
keppni félagsins á dagskrá. Spilaður
var einmenningur í tveimur riðlum.
Úrslit firmakeppninnar:
Litaver
Stjömusalat
Neonþjónustan
Nýja sendibílastöðin
Veitingahúsið Ártún
Kjötborg
Úrslit einmenningsins:
Guðjón Jónsson 121
Bergur Ingimundarson 115
María Ásmundsdóttir 109
Guðjón Siguijónsson 109
Baldur Bjartmarsson 106
Síðasta spilakvöld starfsársins verð-
ur næsta þriðjudag. Spilað verður
tvímenningur og veitt verðlaun fyrir tvö
efstu sætin. Þá fer fram verðlaunaaf-
hending fyrir aðalkeppnir vetrarins frá
áramótum. Verðlaunahafar sérstaklega
minntir á að mæta, og einnig þeir sem
eiga ósótt verðlaun frá haustdögum.
Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Fyrir nokkru lauk fímm kvölda baro-
metertvímenningi með þátttöku 32
para.
Lokastaðan:
Jón Ólafsson —
Ólafur Ingvarsson Gísli Tryggvason — 371
Tryggvi Gíslason Snorri Guðmundsson — 267
Friðjón Guðmundsson Gunnar Birgisson — 263
JóngeirHlynason Guðlaugur Nielsen — 240
Birgir Sigurðsson Magnús Sverrisson — 231
Guðlaugur Sveinsson 174
PÍANÓBAR UPPI: DISKÓTEK NIÐRI:
EINARLOGI JÚLLIHEIÐA R
Maturtil /-0)1
kl. 22.00 x£M Opið til
kl. 03.00
JÁ: DUUS HÚS ER ÖÐRUVÍSI
Nillabar
Jón forseti og félagar halda uppi stuði
Fylgist með kosningunum hjá okkur.
Sjónvarp í hverju horni.
Opið frá kl. 18.00.
Danshljómsveitin
UPPLYFTING
spila fyrir dansi.
Hafnfirðingar! Höldum upp á sigurinn
í firðinum. Gleðjumst eða grátum.
Snyrtilegur klæðnaður.
SÍMAR: 23333 - 29099
BRAUTARHOLTI 20
Dansinn dunarfrá kl. 22-3
Omdúettiiiii ásamt
Öm miálrns á 3. hæú
Þar sem fjörið er mest skemmtir fólkið sér best
Simbi, Biggi og skrautlegir
félagar sýna föt frá
Kosnmgaclans ö
leiknr
I Ártnni
íkvöld frá kl. 22.00 - 03.00
Hljómsveitin NÝJA-BANDIÐ
leikur nýju og gömlu dansana
Söngkona Kristbjörg Löve
Vinsamlegast ath. að sjónvarp verður á staðnum
svo allir geti fylgst með
Dansstuðið er íÁrtúni
vemNOAHUS
Vagnhöfða 11, Reykjavík, sími 685090.
&
Danshljómsveitin
okkar
ásamt
Dorvaldi
Halldórssyni
í kvöld,
laugardagskvöld.