Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAI 1990
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu .. .
Nýtum pappírinn
Borgari hringdi:
„Nú er verið að afhenda nýju
símaskránna. Mér finnst að fólk
ætti ekki að fá nýju síma-
skránna nema það afhendi þá
gömlu. Pappírinn mætti svo end-
urvinna og gæti eitthvert líknar-
félag fengið hagnaðinn. Mér
skilst að það fari um 200 tonn
af pappír í símaskránna á hveiju
ári.“
Góðir þættir
Kona hringdi:
„Ég vil þakka Gísla Rúnari
og Eddu fyrir frábæra þætti á
Eff Emm sem heita Kaupmaður-
inn á horninu. Þetta eru mjög
góðir þættir og vona ég að þau
haldi áfram með þá.“
Ljótar sögur
Lesandi hringdi:
„Það hefur borið á því í kosn-
ingabaráttunni núna að komið
er á kreik ljótum sögum um þá
sem skipa flokkslistana og fjöl-
skyldur þeirra eru jafnvel einnig
teknar fyrir. Þessi söguburður
er ómerkileg iðja og þykir mér
ósmekklegt af fólki að taka þátt
í svona söguburði.“
Kirkju í Garðabæ
Sigurður Jónsson hringdi:
„Ég vil gera það að kosninga-
máli að reist verði glæsileg
kirkja á góðum stað í Garðabæ
sem fyrst. Einnig mætti gera
það að kosningamáli að fækkað
verði umferðartálmum hér í
bænum en þeir eru allt of marg-
ir.“
Kettlingar
Þrír átta vikna kassavandir
kettlingar fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 16514.
Streita
Ellilífeyrisþegi hringdi:
„Hvemig ætlar Nýr vettvang-
ur að lækna streituna hjá þeim
sem reka fyrirtæki sem beijast
í bökkum?
Ráðstöfim
til óþurftar
Til Velvakanda.
Aldraðir Kópavogsbúar fengu
orðsendingu frá bæjarráði Kópa-
vogs í janúar sl. Þar var þeim til-
kynnt að einstaklingar, sem ættu
þak yfir höfuðið og höfðu að und-
anförnu fengið niðurfellingu á
fasteignagjöldum, að hluta eða
fullu, hefðu nú ekki lengur sömu
fríðindi, þ.e. að nú yrði niðurfell-
ingin miðuð við lægri tekjumörk
en áður var. Þetta þýddi að marg-
ir ellilaunamenn, sem áður höfðu
fengið 70% niðurfellingu fengu nú
aðeins 30% og aðrir sem höfðu
verið með 100% niðurfellingu
fengu nú aðeins 70%. Þessi ráð-
stöfun kemur sér illa þar sem elli-
laun rýrna í gildi með hveiju ári
sem líður. Það vita þeir best, sem
úr þeim þurfa að spila.
Kópavogsbær hefur verið talinn
í fararbroddi hvað snertir félags-
mál og aðbúð að öldruðum. Hér
skýtur því dálítið skökku við, og
kom þetta mörgum á óvart. Meg-
um við búast við fleiri slíkum ráð-
stöfunum?
Aldraður Kópavogsbúi
Hef opnað lækningastofu
á Háteigsvegi 1, Reykjavík.
Tímapantanir í símum 622121 og 10380.
Halldór Baldursson, dr. med.
Sérgrein: Bæklunarlækningar.
Innilega þakka ég öllum vinum mínum og
vandamönnum.sem glöddu mig á sjötugs af-
mœli mínu 17. maí með gjöfum, heimsóknum,'
árnaðaróskum og geröu mér daginn ógleym-
anlegan.
Guð blessi ykkur öll.
María Gunnarsdóttir,
Ásgarði 75.
Cfþú átt
happdrættisnúmer
---3-
■
i aukaleiknum
og greiddir gírósedilinn fyrir miðnætti miðvikudoginn 23. mai máttu
sækja aukavinninginn, MHsubishi Colt 1300 GL, þegar þér hentar.
Þú hefur líka hlotið samskonar bifreið í vinning ef þú átt
happdrættisnúmer 1715529 - og greiddir gíróseðilinn fyrir
miðnæfti 2. maí; ef þú átt happdrættisnúmer 1651597
- og greiddir gíróseðilinn fyrir miðnætti 9. maí, eða ef þú
átt happdrættisnúmer 1637260 - og greiddir gíróseðilinn
fyrir miðnætti 16. maí.
Misstu ekki af Aukaleiknum! Mundu að greiða gíróseðilinn sem
fyrst til að eiga kost á aukavinningi í hverri viku!
Næst verður dregið um aukavinning
miðvikudaginn 30. maí.
Ástandið í Austur-Evrópu
Til Velvakanda.
Ég hef í mörg ár haldið því fram
að ríkisfjölmiðlarnir hafi látið sitja
á hakanum, að fræða fólk um
ástandið í Austur-Evrópu. Nú ný-
lega fékk ég sönnun fyrir þessu.
Þar sagði sá sem talað var við að
sannleikurinn um ástandið í
Austur-Evrópu hefði komið eins
og reiðarslag yfir hugsjónamenn,
eins og hann orðaði það því þegar
loksins lokinu af stjórnarfari
kommúnismans var lyft af, þá kom
í ljós ormagryfja og má það til
sanns vegar færa. Að búa við
ómennsk lífskjör má líkja við orma-
gryfju. ,
Ekki lét viðmælandinn 1 ljos
nokkra skoðun á breytingunni sem
orðin er í Austur-Evrópu en bætti
við að „hugsjónamennirnir“ hefðu
miklar áhyggjur af því að fólkið í
Austur-Evrópu vildi markaðs-
hyggju. Hvað á fólk sem hefur
ekki mátt um fijálst höfuð stijúka
í áratugi og liðið hefur skort líka
að hugsa? Vonast það ekki til að
frelsið sé það besta?
Líka heyrði ég í útvarpinu að
hneykslast var á því hvað almenn-
ingur væri fáfróður um Austurlönd
fjær. Eru ekki gömlu menningar-
þjóðir Evrópu nær okkur? Þar urðu
umbrotatímar á dögum
Klirústsjovs og þáverandi valdha-
far á Vesturlöndum bundu miklar
vonir við fall Stalíns. En hveijar
urðu breytingarnar? Ríkisútvarpið
getur bætt úr fráfræði þjóðarinnar
varðandi Austur-Evrópu með því
að láta lesa í útvarpið Valdið og
þjóðin eftir Arnór Hannibalsson,
sem út kom hjá Helgafelli 1964.
Þar er greint svo frá hlutunum að
allt stendur sem stafur á bók og
ekki er hægt að rengja neitt hans
orð. Ég lofa því að enginn verður
ósnortinn af þeim fróðleik ogjafn-
vel „hugsjónamenn“ líka.
Húsmóðir
¥ erslunarrekstur
Óskað er eftir tilboðum í kaup á verslunarrekstri, ásamt
innréttingum og tækjum, á Furugrund 3, þar sem rekin var
verslun Grundarkjörs hf. Á sama stað er til sölu lager úr
versluninni, sem seldur verður úr þrotabúi Grundarkjörs hf.
í vsamráði við skiptarétt Kópavogs.
Húsnæði verslunarinnar er jafnframt til sölu eða ieigu til
langs tíma.
Tilboð sendist til undirritaðra fyrir kl. 16.00 mánudaginn
28. maí 1990. *
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Lögmenn við Austurvöil,
Pósthússtræti 13,
pósthólf 476,
121 Reykjavík.