Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 63
63
MORGUNBLAÐIÐ iÞROTTIR LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
Mmm
rouc
■ SJÖ leikmenn fengu gult spjald
í leik Sljörnunnar og KR í fýrra-
kvöld, fjórir hjá KR og Þrír hjá
Stjörnunni. Leikurinn þótti þó hinn
rólegasti og lítið um gróf brot. „Ég
veit ekki hvað gerist í grófu leikjun-
um fyrst að það eru sjö spjöld í
leik sem þessum,“ sagði Ian Ross,
þjálfari KR.
■ INGVI Guðmundsson, fyrsti
formaður Stjörnunnar, var heið-
ursgestur á leiknum sem var fyrsti
heimaleikur liðsins í 1. deild.
■ TVEIR leikmenn stigu fyrstu
spor sín í 1. deild. Ami Kvaran
kom inná hjá Stjörnunni um miðjan
síðari hálfleik og Sigurður Ómars-
son lék síðustu mínúturnar með
KR.
B TVEIR leikmenn gerðu fyrstu
mörk sín fyrir nýtt félag í 1. deild,
Lárus Guðmundsson fyrir Sljörn-
una og Ragnar Margeirsson gerði
tvö mörk fyrir KR.
B RÚMLEGA tólf hundruð áhorf-
endur voru á leik Stjörnunnar og
KR en stór hluti þeirra missti af
fyrstu mínútum leiksins. Þegar leik-
urinn hófst var um 50 metra þre-
föld röð við miðasöluna sem fór
fram í tveimur bílum. Stjörnu-
menn, sem leika í fyrsta sinn í 1.
deild, eru líklega ekki vanir svo
mörgum áhorfendum en verða að
kippa þessu í lag fyrir næsta heima-
leik.
M ANTON Björn Markússon var
í fyrsta sinn í byrjunarliði Fram í
1. deild, en hann hóf leikinn gegn
IA og stóð sig vel. Anton er 19 ára.
B ELÍAS Friðriksson, vamar-
maður IBV, kom inná sem vara-
maður þegar skammt var til leiks-
loka í leik ÍBV og^ Þórs. Hann
meiddist í leik með ÍBV í 2. deild
í júní í fyrra og var þetta fyrsti
leikur hans síðan þá.
B BIRKIR Kristinsson og Bjarni
Sigurðsson, landsliðsmarkverðir,
eru einu markverðimir í 1. deild sem
hafa haldið marki sínu hreinu fyrstu
tvær umferðimar.
B ÍSLENSKA U-21 árs landsliðið
leikur gegn Albaníu í undankeppni
Olympíuleikanna á þriðjudag. Leik-
urinn fer fram á Kópavogsvelli kl.
20.00.
■ ARGENTÍNSKA landsliðinu í
knattspymu hefur ekki gengið vel
* undirbúningsleikjum sínum og í
gær náði liðið aðeins jafntefli, 1:1,
gegn spænska 1. deildarliðinu Va-
lencia. Táningurinn Enrique Cuc-
hart gerði mark Valencia en De
Zotti jafnaði fyrir heimsmeistarana.
B BOBBYRobson, þjálfari enska
landsliðsins í knattspymu, hefur
tilkynnt að hann hætti með liðið
eftir heimsmeistarakeppnina á
Ítalíu. Hann hyggst taka við starfí
þjálfara PSV Eindhoven og er tal-
>ð að hann hækki töluvert í launum
við skiptin.
® BAYERN Miinchen hefur nú
°pnað budduna og er á höttunum
eftir Brian Laudrup hjá Bayer
Lerdingen og Stefan Effenberg
hjá Gladbach. Bayern hefur boðið
8 milljónir marka í Laudrup og er
það hæsta verð fyrir leikmann inn-
an Bundesligunnar og 4 milljónir
marka í Effenberg, sem verið hefur
einn besti leikmaður Gladbach.
B STEFAN Beckenbauer, sonur
Franz „keisara“ er nú í Belgrad í
Júgóslavíu þar sem hann æfír með
Rauðu sljörnunni. Stefan hefur
leikið með 1860 Miinchen í 3. deild
°g þykir mjög liðtækur. Þjálfari
Rauðu stjörnunnar lék áður með
Kaiserslautern og þekkir því vel
tjl í vestur-þýsku knattspyrnunni.
■ BJARNI Guðmundsson gerði
þrjú mörk er Wanne Eickel sigraði
Dusseldorf, 20:19, í úrslitakeppn-
■nni um sæti í úrvalsdeildinni næsta
vetur. Það má því telja víst að
| Wanne Eickel og Dusseldorf muni
=\ leika í 2. deild næsta vetur.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Morgunblaðid/Einar Falur
Antony Karl Gregory og Halldór Halldórsson horfa á eftir knettinum á leið yfir Hauk Bragason og í net KA-manna og fyrsta mark Vals var staðreynd.
Sjaldan launar káHur...
Antony Karl gerði bæði mörk Vals gegn.íyrrgm félögum sínum í KA
ANTONY Karl Gregory reyndist
fyrrum félögum sínum í KA
óþægur Ijár í þúfu í gær. Hann
var hjá Val en gafst upp á bið-
inni eftir tækifæri og fór til KA.
Þar var hann skólaður til í tvö
ár áður en hann sneri aftur á
Hlíðarenda. í gærsýndi hann
svo KA-mönnum hvað hann
lærði í vistinni og borgaði fyrir
sig með þvi að gera bæði mörk
Valsmanna sem sigruðu 2:0.
Þetta voru reyndar fyrstu mörk
hans fyrir Val í 1. deild.
að var svosem hvorki betra né
verra að gera þessi mörk gegn
KA. Það er alltaf gott að skora,
sérstaklega í byijun mótsins og
ánægjulegt að vinna
LogiBergmann meistarana," sagði
Eiðsson Antony. „Við getum
skrífar verið ánægðir með
byijunina og þetta
var mun betri leikur en gegn ÍA í
fyrstu umferðinni," sagði Valsmað-
urinn.
Það voru þó KA-menn sem byij-
uðu betur og Jón Grétar Jónsson
fékk fyrsta færið, eftir skemmtilega
sókn KA, en skot hans fór framhjá.
Valsmönnum óx þó ásmegin er líða
tók á leikinn og fengu mark á 40.
mínútu eftir slæm vamarmistök.
Eftir barning í vítateignum barst
boltinn til Antony sem lyfti honum
laglega yfir Hauk Bragason og í
netið.
Valsmenn fengu svo nokkur góð
færi og strax í upphafí síðari hálf-
leiks átti Steinar Adolfsson skalla
framhjá eftir glæsilegan sprett
Þorgríms Þráinssonar. Baldur
Bragason fékk einnig gott færi en
Haukur varði vel skot hans úr
þröngu færi.
Annað mark Vals kom á 62.
mínútu og var afar einfalt. Steinar
sendi boltann innfyrir flata vöm
KA og Antony náði að hlaupa
Steingrím Birgisson af sér og renna
boltanum í fjær homið, frá vítateig.
Valsmenn voru ekki langt frá því
að bæta við marki en Haukur
Bragason varði vel góð skot frá
Baldri og Steinari undir lokin.
Valsmenn léku vel, einkum í
síðari hálfleik er þeir létu boltann
ganga. Antony Karl hélt varnar-
mönnum KA við efnið og fékk gócjy
hjálp frá Steinari, Baldri og Sigur-
jóni. Þorgrímur sýndi mikla baráttu
í vöminni og átti góða spretti fram
og Einar Páll var sterkur í vöminni.
íslandsmeistaramir þurfa að
bæta sig verulega til að eiga mögu-
leika á titilvörn. Vörn þeirra er flöt
og miðjan þunglamaleg. Bjarni
Jónsson og Ormarr Örlygsson voru
bestu menn liðsins í leiknum í gær
og Kjartan Einarsson átti góða
spretti.
Voru Víkingar fleiri?
„ÉG hafði það á tilfinningunni
að Víkingarnir hefðu verið fleiri
inn á vellinum," sagði ónefndur
áhorfandi á Víkingsvelli eftir
sigur heimaliðsins á FH-ingum
2:0 í annari umferð 1. deildar
í gærkvöldi. Við þetta má bæta
að sigurinn var fyllilega sann-
gjarn í baráttuleik sem skorti
alla knattspyrnulega áferð.
Istuttu máli þá gekk leikurinn
þannig fyrir sig að Víkingamir
komu inná völlinn sem grenjandi
ljón staðráðnir í að gefa piltunum
> Fimleikafélaginu
Þórmundur engan frið til að
Bergsson byggja upp nokkurt
skrífar Spj] FH-ingar létu
slá sig strax útaf
laginu og komust einfaldlega aldrei
í takt við leikinn. Eftir um 15
mínútna leik kom fyrra mark
Víkinga. Boltinn barst inní teig þar
sem hófst harður atgangur. Víking-
ar áttu sennilega ein þijú skot á
markið sem ýmist var bjargað á
línu eða lentu í Þorsteini markverði
áður en Hörður Teódórsson þrum-
aði í höfuð eins FH-ings, í slánna
og inn. Bang! 1:0.
Víkingar sóttu meir það sem lifði
af fyrri hálfleik enda mun frískari
eins og áður er getið. Færin voru
þó af skornum skammti helst að
Atli Einarsson skapaði ursla með
hraða sínum. Hann fékk tvö þokka-
ieg færi en klikkaði í bæði skiptin.
FH-ingar sköpuðu sér aðeins eitt
færi en Guðmundur Valur lét Bald-
vin veija frá sér í þokkalegri stöðu.
Bamingurinn hélt áfram í síðari
hálfleik og virtist ekkert ætla að
draga af Víkingunum. Rétt eftir
miðbik hálfleiksins bættu þeir við
öðru marki. Eftir snyrtilegan skalla
frá Herði renndi Micic boltanum í
netið af stuttu færi. 2:0. Sann-
gjamt. FH-ingar gerðu nokkra hríð
að marki Víkinga undir lokin en
samt var það Atli Einarsson sem
átti eina verulega færið sem að
hvað. Hann komst einn í gegn en
lét Þorstein veija frá sér.
Hjá Víkingunum voru allir leik-
menn samtaka í að beijast til
síðasta blóðdropa. Þeir spiluðu fast
- stundum nánast gróft - komu við-
kvæmu FH-liðinu í opna skjöldu og
uppskáru eftir því. Vörnin var sterk
með Zilnik og Helga Björgvinsson
sem bestu menn. Helgi kemur
greinilega úr herbúðum Fram því
hann spilaði „a la Jón Sveinsson“.
Á miðjunni vom Aðalsteinn og Atli
sívinnandi en frammi ógnuðu Micic
og Atli allann leikinn.
Um FH-liðið er bara eitt að
segja. Það va.r dapurt. Sömu sögu
er að segja af dómara leiksins,
Sæmundi Víglundssyni, hann var
dapur.
Morgunblaðið/Bjarni 4
Goran Micic gerði síðara mark
Víkings.