Morgunblaðið - 24.06.1990, Síða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ
UTVARP/SJONVARP
SUNNUDAGUR 24. JUNI
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.25 Úr fuglabókinni. (Endurtekinn þáttur frá há-
degi.)
22.30 Stjórnmál að sumri. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson.
23.10 Kvöldstund í dúr og moll með Knúti R. Magn-
ússyni.
24.00 Fréttir
00.10 Samhljómur. Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.
(Endurtekinn frá morgni.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lifsins. Leifur
Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn
með hlustendum. Upplýsingar um umferð kl.
7.30 og litið í blððin kl. 7.55.
8.00 Morgunfréttir, - Morgunútvarpið heldur
. áfram. Heimspressan kl. 8.25.
9.03 Morgunsyrpa. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
11.03 Sólarsumar með Jóhönnu Harðardóttur.
Molar og mannlífsskot í bland við tónlist. —
Þarfaþing kl. 11.30.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir. - Sólarsumar heldur áfram.
14.03 HM-hornið. Fróðleiksmolar frá heimsmeist-
arakeppninni í knattspymu á Ítalíu. Getraun og
fjöldi vinninga.
14.10 Brot úr degi. Eva Ásrún Albertsdóttir.
16.03 Dagskrá. Starfsmenn dægurmálaútvarpsins
og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og
smá mál dagsins.
18.03 Þjóðarsálin — Þjóöfundur í beinni útsend
ingu.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Zikk Zakk. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir og
Sigriður Amardóttir. Nafnið segir allt sem þarf —
þáttur sem þorir.
20.30 Gullskifan.
21.05 Söngur villiandarinnar. Einar Kárason leikur
íslensk dægurlög frá fyrri tíð. (Endurtekinn þáttur
frá liönum vetri.)
22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Einn-
ig útvarpað kl. 3.00 næstu nótt.)
23.10 Fyrirmyndarfólk lítur inn til Rósu Ingólfsdótt-
ur. Að þessu sinni Hafsteinn Hafliðason. (Endur-
tekinn þáttur frá liðnum vetri.)
00.10 i háttinn. Ólafur Þórðarson leikur miðnætur-
lög.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00,
11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Söðlað um. Magnús R. Einarsson kynnir
bandariska sveitatónlist. Meðal annars verða
nýjustu lögin leikin, fréttir sagðar úr sveitinni,
sveitamaður vikunnar kynntur, óskalög leikin og
fleira. (Endurtekinn þáttur frá föstudagskvöldi.)
2.00 Fréttir.
2.05 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobsdóttir spjall-
ar við Ríkarð Örn Pálsson sem velur eftirlætislög-
in sín. Endurtekinn þátturfrá þriðjudegi á Rás 1.
3.00 Landiö og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Endur-
tekinn þáttur frá kvöldinu áður.)
4.00 Fréttir.
4.03 Sumaraftann. Umsjón: Bergljót Baldursdóttir,
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Ævar Kjartans-
son. (Endurtekinn þáttur frá deginum áður á Rás
1.)
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Glefsur. Urdægurmálaútvarpi mánudagsins.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.01 Zikk Zakk. (Endurtekinn þáttur frá liðnu
kvöldi.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Áfram ísland. íslenskir tónlistarmenn flytja
dægurlög.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35—19.00 Útvarp Norðurland.
7.00 7-8-9. Hallur Magnússon og Kristín Jónsdótt-
ir ásamt Talmálsdeild Bylgjunnar. Fréttir sagðar
á hálftimafresti milli 7 og 9.
Pétur Steinn og Gunnlaugur verða með síðasta stjörnuspekiþátt-
inn á Bylgjunni í kvöld. Hér horfa þeir til stjarnanna.
Bylgjan:
Stjömuspekin ífrí
HBHM Síðasti þáttur þeirra
O"! 00 Gunnlaugs Guðmunds-
“ A sonar og Péturs Steins
um stjörnuspeki verður á dagskrá
Bylgjunnar í kvöld. Þættir þessir
hafa verið á dagskránni síðan í
október. Á þeim tíma hefur verið
farið í gegnum öll stjörnumerkin.
„Það er kominn tími til að hvfla
sig aðeins“, sögðu þeir félagar
Gunnlaugur og Pétur. „Við tökum
kannski aftur upp þráðinn í
haust.“ í kvöld verður víða komið
við, kort þekktra íslendinga verða
tekin fyrir og stiklað á stóru í
dýrahringnum.
9.00 Fréttir.
9.10 Ólafur Már Björnsson t mánudagsskapi.
Lukkuhjólið kl. 10.30.
11.00 í mat með Palla. Hádegismagasín með Páli
Þorsteinssyni. Spjall við hlustendur í bland við
tónlist. Hádegisfréttir kl. 12.00. HM — í hádeg-
inu. Valtýr Bjöm tekur púlsinn á heimsmeistar-
mótinu á Ítalíu kl. 12.30.
13.00 Valdis Gunnarsdóttir. Hlustendur teknir tali
og spiluð óskalög. Afmæliskveðjur.
15.00 Agúst Héðinsson. íþróttafréttir kl. 15, Valtýr
Bjöm.
17.00 Siðdegisfréttir.
17.15 Reykjavík siðdegis. Sigursteinn Másson með
málefni líðandi stundar í brennidepli.
18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson á mánudagsvakt-
inni með góða blöndu af gamalli og nýrri tónlist
í bland við óskalögin.
21.00 Stjömuspeki. Gunnlaugur Guðmundsson og
Pétur Steinn Guðmundsson taka fyrir merki
mánaðarins. Bréfum hlustenda svarað.
23.00 Haraldur Gíslason. Rólegu óskalögin á sínum
stað.
2.00 Freymóður T. Sigurðsson á næturvappinu.
Fréttir á klukkutímafresti kl. 10, 12, 14 og 16.
FMTflOfl
AÐALSTÖÐIN
7.00 Á nýjum degi. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson.
7.30 Morgunandakt - Séra Cecil Haraldsson.
7.45 Morgunteygjur — Ágústa Johnson. 8.00
Heilsan og hamingjan - Heiðar Jónsson. 8.30
Gestur dagsins fer yfir fréttir i blöðum. 9.00
Tónlistargetraun með verðlaunum.
10.00 Kominn tími til. Umsjón Steingrimur Ólafsson
og Eirikur Hjálmarsson.
12.00 Viðtal dagsins ásamt fréttum. Getraunir og
speki.
13.00 Með bros á vör. Umsjón Margrét Hrafnsdótt-
ir. 13.30 Fyrirtæki dagsins. 14.00 Brugðið á leik
I dagsins önn. 14.30 rómantíska homið. 15.00
Rós í hnappagátið. 15.30 Simtal dagsins.
16.00 í dag i kvöld. Umsjón Ásgeir Tómasson.
16.05 Veðrið. Fréttir og fróðleikur. 16.15 Saga
dagsins. 17.00 Getraunin. 18.00 Úti i garði.
Það gerist ýmislcgt í stól hárgreiðslukonunnar.
Sjónvarpið:
Stutft og hrokkið
■■■■ Sjónvarpið sýnir í kvöld
OO 50 bresku stuttmyndina
£*£* — Stutt o
Stutt og hrokkið (The
3hort and Curlies) eftir Mikes
jeigh. Aðalpersónan er Joy sem
iitur í stól hjá hárgreiðslukonu.
Þar markast helstu kaflaskil-til-
ærunnar af mismunandi hár-
greiðslu; klipping, litun, þvottur
og permanent. Helsta tilbreyting-
in er að láta sig dreyma um ridd-
arann hugumstóra sem birtist ein-
hvern daginn. Joy starfar í lyfja-
búð og er það lán í óláni því hún
er sífellt að uppgötva nýja kvilla
sem vega að heilsu hennar.
19.00 Við kvöldverðarborðið. Umsjón Randver
Jensson.
20.00 Á yfirborðinu. Umsjón Kolbeinn Gislason.
24.00 Næturtónar Aðalstóðvarinnar. Umsjón Rand-
ver Jensson.
FM 102 a. 104
7.00 Dýragarðurinn. Sigurður Helgi Hlöðversson.
9.00 Á bakinu í Dýragarðinum. Bjarni Haukur og
Sigurður Helgi fara með gamanmál, lesa fréttirn-
aröðruvísi, ræða við hlustendurog leika tónlist.
10.00 Bjarni Haukur Þórsson og félagar.
12.00 Hörður Arnarsson og áhöfn hans.
15.00 Snorri Sturluson. Slúður og staðreyridir.
18.00 Kristófer Helgason.
21.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir. Stjömutónlist, óska-
lög.
1.00 Björn Þórir Sigurðsson á næturröltinu.
FM#957
7.30 Til i tuskið. Jón Axel Ólafsson. Fréttir, upplýs-
ingar og fróðleikur.
7.55 B.M.E.B.A.L. Vinnústaðaleikur.
8.00 Fréttafyrirsagnir og veður.
8.15 Stjörnuspá dagsins.
8.25 Lögbrotið.
8.30 Fréttayfirlit frá fréttastöfu FM.
8.45 Hvað segja stjörnumar. Spádeild FM skoðar
spilin.
9.00 Fréttastofan.
9.10 Erlent slúður.
9.30 Kvikmyndagetraun.
9.45 Er hamingjan þér hliðholl?
10.00 Morgunskot.
10.05 Furðursaga dagsins.
10.25 Hljómplata dagsins.
10.30 Kaupmaður á horninu. Skemmtiþættir
Griniðjunnar.
10.40 Textabrot. Áskrifendur FM eiga kost á því
að svara spurningu um íslenska dægurlagatexta.
Anna Björk Birgisdóttir. Seinni hálfleikur.
11.30 Gjafahornið. Hlustendur eiga kost á vinning-
um frá FM:
11.45 Litið yfir farinn veg.
12.00 Fréttafyrirsagnir á hádegi.
12.30 Hæfileikakeppni í beinni útsendingu. Anna
Björk.
14.00 Nýjar fréttir.
14.03 Sigurður Ragnarsson.
15.00 Sogur af fræga fólkinu hér heima og er-
lendis.
15.30 Spilun eða bilun.
16.00 Fréttir.
17.00 Hvað stendur til? ívar Guðmundsson.
17.15 Skemmtiþættir Gríniðjunnar (endurtekið).
17.30 Pizzuleikurinn. Hlustendur eiga þess kost
að vinna sér inn pizzu.
17.50 Gullmolinn. Leikið gamalt lag sem sjaldan
hefur heyrst áður.
18.00 Forsiður helmsblaðanna.
18.03 Kvölddagskrá. ivar Guðmundsson frh.
19.15 Nýtt undir nálinni. Frumflutningur i útvarpi á
nýrri tónlist.
20.00 Breski og bandaríski listinn. Valgeir Vilhjálms-
son kynnir.
23.00 Klemens Arnarson. Pepsí-kippan er á sinum
stað kl. 23.30.
106,8
7.00 Árla morguns.
9.00 Rótartónar.
10.00 Fjör við fóninn.
12.00 Framhaldssagan.
12.30 Blaðamatur.
14.00 Þreifingar.
15.00 Tilraun.
17.00 i sambandi.
19.00 Skeggrót.
21.00 Heimsljós.
22.00 Við við viðtækin.
24.00 „The Hitch-Hiker's Guide to The Galaxy”.
1.00 Útgeislun.
5.00 Reykjavik Árdegis.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Trunt, trunt og
tröllin í flöllunum
til 1992. Þá
hvernig mál
Hvað varð annars um fjöregg-
ið okkar? Óveidda fiskinn í
sjónum? Áður en það hvarf úr
fréttum snerust allir hausar og
fyldu því til og frá eins og tenn-
iskúlu, þegar það flaug úr einum
tröllahöndum í aðrar. Engin leið
að geta sér til um í hverra hönd-
um það mundi hafna eða glopr-
ast bara niður á leiðinni. Er það
kannski enn á lofti milli risanna?
í þjóðsögunni köstuðu tröllkon-
urnar, systurnar sem bjuggu sín
í hvoru fjallinu, fjöregginu á
milli sín þar til þær misstu það.
Og þá var sagan öll. Ætli sagan
sé öll, búið að
hremma fjöregg
íslendinga, alian
fiskafla fram-
tíðarinnar? Hon-
um ráðstafað
meðan þjóðin
var önnum kafin
á listahátíð eða
við vorverkin.
Hvað veit ég?
Áður en ég
missti þráðinn
var eitthvað ver-
ið að tala um
leikhlé, að fresta
leiknum með
fjöreggið fram
mætti athuga
stæðu.
Svakalega var þetta spenn-
andi leikur með fjöreggið í vetur
og vor, enda mikið í húfi. Það
gerir glannalega leiki alltaf svo
spennandi. Flestir virtust líka
sammála um að allir íslendingar
eigi saman fiskinn á miðunum.
Engin spurning! Ekki heldur að
hann sé fjöregg íslendinga um
alla framtíð. Svo var allt í einu
farið að kasta því á milli. Spurn-
ingin bara hvaða hendur skyldu
hremma, ákveðin skip og erfingj-
ar útgerða þeirra í marga ættliði
eða ákveðnir staðir á landinu og
framtíðaríbúar þeirra. Hver
hvatti sitt lið að hreppa hnossið
og alvaldir dómarar gerðu vart
ráð fyrir öðru en það lenti á
öðrum hvorum staðnum. Heldur
skyldi það niður gloprast en vera
í höndum eigendanna, allra ís-
lendinga.
í þjóðsögunum, sem sprottnar
eru af ísienskum reynsluheimi,
er ekki auðvelt að losna úr trölla-
höndum, eftir að taki er náð.
Hvemig ætli fari í þessari
líkingu, ef fjöreggið lendir á öðr-
um hvorum staðnum? T.d. hjá
ákveðnum byggðum eða frysti-
húsum með ráðstöfunarrétt til
komandi kynslóða? Þá verður að
gera ráð fyrir því að byggð i
landinu stöðvist hér og nú, verði
steinrunnin, ekki satt? Lítum um
öxl. Kemur ekki í ljós að íslend-
ingar hafa löngum verið á hreyf-
ingu og stöðnunartímar dapur-
legir. Tökum sem dæmi eitthvert
byggðarlag, t.d. Breiðdalinn og
Breiðdalsvík, því þar er tiltölu-
lega ný byggðahreyfing á íslandi
og tiltækar tölur. Á árinu 1940
bjuggu þar 307 manneskjur á
51 heimili. Fjögur hús voru á
Breiðdalsvík, þar sem bjuggu
fjórar fjölskyldur. Tíu árum síðar
voru íbúar Breiðdals 257 og
fækkaði enn til 1949, er. þá er
byijað að fjölga í þorpinu Breið-
dalsvík. 1960 eru húsin þar orð-
in 17 og íbúarnir 93, eða þriðj-
ungurinn af íbúum sóknarinnar.
Og úr því vex fiskibærinn stöð-
ugt og hratt eftir að sildarævin-
týrið fyrir Austurlandi hófst,
með örri uppbyggingu í þjónustu.
T.d. byggður heimavistarskóli á
Staðarborg í sveitinni meðan
ekki allir trúðu á öran vöxt
Breiðdalsvíkur, og svo skólahús
í þéttbyggðinni, síðast þegar ég
kom þar fyrir fáum árum geng-
um við í kring um nýbyggingu
eins glæsilegasta skólahúss sem
ég hefi séð á landinu. Þannig
byggðist allt hratt upp í hinn
myndarlegasta bæ. Þá vaknar
spurningin: Á að frysta einmitt
þarna þessa byggð og allar hin-
ar, sem byggst hafa svona I
rykkjum á Islandi. Segja sem
svo, það verður að tryggja að
þama og á hinum staðnum verði
nákvæmlega svona byggð,
hvorki meiri né minni, hvernig
sem allt veltist? Og er víst að
akkúrat þetta margt fólk vilji
láta binda sig við nákvæmlega
þennan stað um alla framtíð?
Til dærnis þegar frystingin á
matvælum, sem er með bættum
samgöngum á útleið í heiminum
sem geymsluaðferð, er fyrir bí,
hvort sem sú þróun tekur lengri
eða skemmri tíma. Allir sem
borgað geta vilja ófrosin mat-
væli ef kostur er. Ferskur fiskur
nú þegar stundum orðinn verð-
meiri en unninn og langfrystur
með ærnum tilkostnaði. Hvar á
að stöðva mekanismann í henni
veröld? Og á íslandi?
En ef fjöreggið, fiskurinn okk-
ar allra, lendir í hinum höndun-
um, hjá núverandi eigendum
skipa og verkunarstöðva, væri
fróðlegt að sjá hvernig á að
skipta arfinum aftur yfir til ann-
arra arflausra íslendinga? Hópur
arflausra í landinu fer hratt
stækkandi, vegna fyrri steinruna
við „status quo“, burt séð frá
aðstæðum. Óþarfi að bæta þar
á hópi íslendinga sem heldur
ekki erfir fiskinn á miðunum.
Fiskurinn er eign íslendinga,
skjóta menn inn í um leið og
þeir ráðstafa honum til fram-
tíðar. Skrifaðu flugvöll, sagði.
þingmaðurinn til að róa kjósend-
ur. Er ekki öll okkar löggjöf full
af svona úpphrópunum, sem ekk-
ert stendur á bak við? Af þvi
þjóðfélagið var stöðvað og stein-
runnið einhvern tíma. Stjórnar-
skráin okkar gerir ráð fyrir því
að allir menn í landinu séu jafn-
ir, hafi kosningarétt. Tekur
nokkur mark á því? Þegar fólk
kýs að flytja úr einum stað
annan, eins og það gerir nú,
missir það stóran hluta atkvæð-
isréttar. Ætli meinið sé ekkL
þar. Ef við fengjumst í alvöru
til þess að vera ein þjóð íslend-
inga með sama frumburðarrétt,
mundi líklega engum detta í hug
önnur grunnhugsun en að við
og afkomendur okkar eigum öll
fiskinn og eigum að nýta hann
sameiginlega.
Eða hvað? Trunt, trunt
tröllin í fjöllunum!