Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990 Glæsilegnr lokapunktur © ________Tónlist__________ Árni Matthíasson ÞAÐ YAR listahátíðarauki nýafstaðinnar Listahátíðar er vakti hvað mesta athygli og deilur; tónleikar Bobs Dylans í Laugardalshöll voru loka- punkturinn á fyrirtaks Lista- hátíð. Bob Dylan hefur orðið vinsæll á öðrum forsendum en flestar þær poppstjörnur sem hingað hafa komið siðustu ár, fólk metur hann ekki eftir grípandi Iögum, heldur inni- haldi laganna (oft ímynduðu ef marka má orð Dylans í við- tölum), og hann verður því nánari því en einhver poppari sem er ekkert nema smellnar laglínur. Bubbi Morthens hitaði upp fyrir Dylan og gerði það af- bragðsvel. Sérlega skemmtileg voru nýju lögin; ballaðan um Gula flamingóinn og lagið um Einar Benediktsson í Herdís- arvík, en einnig var einkar skemmtileg útsetning á Lead- bellyblúsnum Bourgoise Blues. Vonandi er svo að sem flestir taki áskorun hans og skrifi bæj- arstjóranum á ísafirði vegna of- sókna á grænlenskum sjómönn- um þar í bæ. Bubbi vakti mikla hrifningu og áheyrendur sýndu góða tilburði í þá átt að klappa hann upp. Bob Dylan kom á svið stund- víslega kl. 22.00 með framúr- skarandi sveit sinni og renndi sér strax í Subterranean Homesick Blues frá 1965. Ekki var það vel flutt og ekki heldur næsta lag, Ballad of a Thin Man. Rifjuðust þá upp ömurlega leiðinlegir tón- leikar sem ég sá með Dylan í Lundúnum fyrir nokkrum árum. Greinilegt var að hann var óör- Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Bob Dylan á sviði Laugardalshallar. Til vinstri framúrskarandi gítarleikari hans, G.E. Smith, sem lagði mikið á sig til að þóknast áheyrendum. uggur (ef til vill móður eftir hjól- reiðatúrinn niðrí Höll) og hann tautaði textana í hljóðnemann eins og þetta væru samhengis- laus orð' sem skiptu hann og áheyrendur engu máli. í þriðja lagi tónleikanna, Memphis Blues Again, af Blonde on Blonde, virt- ist þó sem hann væri að ná sér á strik og annað lag af þeirri plötu, Just Like a Woman, var ágætlega flutt. Líklega hefur ráðið einhveiju hve viðtökur áheyrenda voru góðar, því greini- legt var að flestir höfðu komið til að heyra gömlu lögin. Masters of War kom næst og svo framúr- skarandi útgáfa á You Gotta Serve Somebody. Virtist þá sem Dylan væri að syngja texta sem skipti hann einhveiju máli og það skilaði sér vel til áheyrenda. Hér urðu kaflaskipti á tónleik- unum, því rafhljóðfærin voru lögð Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir til hliðar og teknir fram kassagít- arar og kontrabassi. Fyrsta óraf- magnaða lagið, It’s Allright, Ma (I’m Only Bleeding) vakti geysi- hrifningu, en það kynnti Dylan með þeim orðum að margir teldu þetta lag vera um móður sína, en svo væri ekki. Þau orð, sem voru þau fyrstu sem beint var til áheyrenda, bentu til að Dylan hafi kunnað vel við viðtökurnar. Þvínæst kom hver perlan af ann- arri; It’s All Over Now, Baby Blue, Girl From the North Co- untry, A Hard Rain’s Gonna Fall og Don’t Think Twice. Ekki er gott að segja hve oft Dylan hefur sungið þessi lög, sem flest eru komin yfír annan tug í aldri. Hann var þess þó megnugur að sýna áheyrendum nýjar hliðar á lögum og textum með breyttum sönglínum og skemmtilegum út- setningum. Þá var skipt aftur yfír í raf- magnið og nú voru leikin lög af síðustu plötu Dylans, Everything is Broken og Living in a Political World í fyrirtaks rokkkeyrslu. Áhorfendur æptu og öskruðu á viðeigandi stöðum, en um þver- bak keyrði þegar Dylan og félag- ar fluttu langa og sérdeilis skemmtilega útgáfu af All Along the Watchtower með miklum lát- um. Þá kom Shooting Star, fram- úrskarandi I Shall be Released og lokalag tónleikanna var Like a Rolling Stone. Áheyrendur vildu þó meira og fengu, því eft- ir uppklapp og -stapp komu Dyl- an og félagar aftur á svið og lék órafmagnað Blowin’ in the Wind og vísast fengu margir þá gæsa- húð. Lokalagið var svo með mik- illi keyrslu, Highway 61 Revis- isted. Ekki var nokkur leið að fá Dylan aftur á svið, enda hefur hann það fyrir reglu að láta ekki klappa sig oftar en einu sinni upp. Áheyrendur hefðu þó gjam- an viljað meira og líklega hefði þurft nokkurra tíma tónleika til að gera lagasafni hans sæmileg skil. Fyrirtaks lok á Listahátíð í Reykjavík 1990 og hafí allir að- standendur þökk fyrir. Serra - áfangar © ■ Myndllst EiríkurÞorláksson Fáir hefðu orðið til að spá því fyrir nokkrum árum að Viðey ætti eftir að hýsa varanlegasta Iistaverkið, sem fram kæmi á Listahátíð árið 1990. En sú hefur orðið raunin; rýmisverkið „Áfang- ar“ eftir bandaríska Iistamanninn Richard Serra hefur risið á vestu- reynni, og mun verða óijúfanlegur hluti hennar um ókomna framtíð. Richard Serra er heimsþekktur listamaður, sem fylgir sannfær- ingu sinni í framkvæmd. Hann skapar hin voldugu verk sín í sam- ræmi við það lými, sem þau eiga að tilheyra, og þar skapa þau oft og tíðum mjög spennt samband, vegna þess hversu laus þau virð- ast úr tengslum við umhverfi sitt, þrátt fyrir allt. Verk Serra breyta umhverfinu, ögra skynjun manna á því, en hverfa ekki inn í rýmið; því er hvert verk sérstakt og verð- ur ekki endurtekið annars staðar. Þessi staðreynd hefur mikla þýðingu fyrir allar hugmyndir um verðgildi verkanna. Hver svo sem upphaflegur kostnaður og mat á verðmæti þeirra kann að vera, þá er þýðingarlaust að tala um end- ursölu þeirra, þar sem verkin myndu missa alla skírskotun sína til rýmisins, væru þau flutt. Á óformlegum fundi með íslenskum listamönnum lagði Serra m.a. áherslu á að því væru verk sín í raun verðlaus, þar sem ekki væri hægt að selja þau aftur, og taldi það sína aðferð til að forða list- sköpun sinni frá duttlungum markaðarins. Þannig er háttað með verkið í Viðey; það er nú þegar orðið hluti af eyjunni, og yrði einskis virði ef það yrði flutt. Um leið er eyjan breytt og verður aldrei söm eftir. í þessu tilviki eykur breytingin gildi umhverfísins, og er jákvæð viðbót, þar sem verkið fellur mjög vel að staðháttum; það er eins og stólparnir hafi alltaf verið þarna. Þó að Serra hafi mest unnið með þykkum stálplötum í gegnum tíðina (enda vann hann um tíma í skipasmíðastöð), hefur hann áð- ur unnið með stein, og hér hentar stuðlabergið sérstaklega vel. Verkið „Áfangar“ (nafnið mun komið frá formanni stjórnar Lista- hátíðar, Valgarði Egilssyni, og greip listamaðurinn það á lofti) samanstendur af níu hliðum úr stuðlabergssúlum, sem girða vestureyna. Þessi níu hlið, sem eru misbreið, mynda sjónlínur milli sín, tengja þannig rými eyjar- innar og leiða skoðandann áfram, áfanga fyrir áfanga. Að vísu rofn- ar sjónlína milli hliðanna á nokkr- um stöðum (t.d. milli hliða nr. 3 og 4, og 4 og 5) þannig að verk- ið myndar ekki lokaða girðingu um eyjuna, heldur fijáls tengsl, sem draga athyglina að ákveðnum þáttum umhverfisins. Því má skil- greina þau sem hlið að sjóndeild- arhringnum, ef skilgreining á umhverfislist er einhvers virði. Þær sjónlínur sem hliðin marka eru varla tilviljanakenndar, og því gaman að sjá hvernig þær liggja. Mosfell er afmarkað af einu hliði, Laugarnes af öðru, Engey, Snæ- fellsjökull, Þjóðleikhúsið og Esjan af enn öðrum. Eru skilaboð fólgin í þessu? Listamaðurinn afneitar öllu sem heitir táknrænt, trúarlegt eða tilfínningalegt gildi fyrir verkið. í hans huga er hér einungis um samspil forms og rýmis að ræða. Hann um það — en um leið gefur hann öllum frelsi til að njóta verksins á persónulegan hátt. Það er því undir hveijum einstaklingi komið að upplifa „Áfanga“; ef menn finna í verkinu gildi sem listamaðurinn ákvað ekki, getur það einungis vaxið í huga viðkom- andi. Það er ekki auðvelt að skoða verkið í Viðey. íbúarnir eru væg- Richard Serra: Áfangar, 1990. ast sagt óvinveittir, árásargjarnir og hávaðasamir — enda hætta á að gestir fótumtroði afkvæmi þeirra. Það er yfír móa, karga- þýfí og mýrar að fara, og enginn stígur til að létta ferðina. Það stendur þó til bóta innan tíðar og er komið á framkvæmdaáætlun, að sögn staðarhaldara. Einnig verða hliðin bráðlega merkt á smekkvísan hátt. En það er sérstök reynsla að fara um vestureyna, frá einu hliði til hins næsta. Þá fær skoðandinn sérstaka tilfinningu fyrir verkinu, og þeirri staðreynd, að gerð þess verður í raun aldrei Iokið; fuglad- rit mun fljótlega gefa stólpunum hvíta kolla, og almenn veðrun mun einnig staðfesta að „Áfang- ar“ verða með tíð og tíma óijúfan- legur hluti af landslagi og ímynd Viðeyjar. Richard Serra hefur því veitt Islendingum varanlegt fram- lag til listanna, en ekki aðeins stundlega ánægju í tilefni Lista- hátíðar þessa árs. Hafi hann þökk fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.