Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
2T
Góð byrjun í Selá
„Þetta var fínt og það voru
kátir veiðimenn í nepjunni við
Selá er ég hringdi til þeirra í há-
deginu. Þeir höfðu þá fengið 8
laxa, 10 til 14 punda og séð tals-
vert af laxi víða um ána, nema
ekkert fyrir ofan Selárfoss. Best
gaf Fossbrotið, þrjá fiska, en
Sundlaugin gaf tvo. Efri og Neðri
Djúpubotnar gáfu sinn hvorn fisk-
inn og Vaðhylur einn fisk. At-
hygli vakti að einn traustasti stað-
urinn, Fossbreiðan gaf engan
lax,“ sagði Hörður Óskarsson
umsjónarmaður Selár ísamtali við
Morgunblaðið. Það fylgdi sögunni
að áin væri enn nokkuð köld og
rennur laxinn vart upp fossinn
fyrr en hlýnar.
Hofsá lofar einnig góðu.
Húsfreyjan á Vakursstöðum í
Vopnafirði greindi Morgunblaðinu
frá því að 11 laxar hefðu veiðst
í Hofsá á fyrsta veiðidegi og hefðu
þeir laxar verið dregnir vítt og
breitt um ána. “Þeir voru allir
vænir, 11 til 14 pund hver. Menn
sáu talsvert af fiski og því eru
horfur bjartar,“ sagði Hulda á
Vakursstöðum.
Flókan slöpp
Innan við 20 laxar hafa komið
úr Flóku eftir því sem veiðimenn
við ána hafa tjáð Morgunblaðinu.
Laxar sjást hér og þar, ekki mik-
ið magn þó og hann tekur illa.
Athyglisvert er, að Hjálmsfossinn
hefur gefið þrjá 14 punda laxa,
en það þykja miklir boltar og með
stærstu löxum í Flóku. Þeir hafa
yfirleitt verið vænir sem veiðst
hafa og lítið sést af smálaxi sem
jafnan ber uppi veiðina í Flóku.
„Stórlaxasumar" í Laxá í
Þing.
„Það eru komnir rétt um 300
laxar úr Laxá í ðaldal, 220 af
svæðum Laxárfélagsins, 30 af
Nesveiðum, 26 af Núpum og um
20 af Hrauni og það stefnir allt
í stórlaxasumar, því óvenjulega
mikið af þessum laxi er 16 til 21
pund og menn hafa verið að setja
í tröll og missa,“ sagði Orri Vig-
fússon formaður Laxárfélagsins í
samtali við Morgunblaðið. Tveir
laxar á Hrauni voru stærstir til
þessa, 24 og 23 pund dregnir af
Hraunsstíflu, annar á spón en
hinn á flugu.
Risi
Orri Vigfússon tjáði Morgun-
blaðinu einnig, að hann hefði fyrr
um daginn rætt við góðvin sinn í
Bandaríkjunum. Kunningi þessa
vinar var nýkominn úr laxveiðitúr
í Kanada. Þar veiddi hann metlax.
Ekki náði Orri nafni veiðimanns
eða árinna, enda sögumanni mikið
niðri fyrir, en þyngdinni náði
hann, þetta var 72 punda hængur
sem tók fluguna Silver Rat nr.4.
Morgunblaðið/Arnór R.
Ingimundur Guðnason með 9
punda hrygnu sem hann veiddi
í Formanni, ofarlega í Flóku, á
mánudaginn.
Stærsti stangaveiddi laxinn til
þessa var jafn þungur, en veiddist
á beitu í norsku stórfljóti. Þratt
fyrir það, var hinn norski veiði-
maður í margar klukkustundir að
ná laxinum. Flóðatangalaxinn
svokallaði sem talinn er stærsti
lax sem veiðst hefur hérlendis,
kom í netalögn í Hvítá í Borgar-
firði fyrir landi Flóðatanga rétt
fyrir aldamótin. Ýmsar heimildir
segja hann hafa vegið milli 60 og
70 pund. Stærri laxar hafa veiðst
Þröstur Elliðason og Banda-
ríkjamaðurinn Ray Rauens,
sem aldrei hafði veitt lax fyrr,
með stórveiðina úr Ægissíðu-
fossi í Ytri Rangá fyrr í vik-
unni. Laxarnir voru allir 10 til
14 pund utan einn sem var um
5 pund. Allir tóku Rauða Fran-
ces flugu nr.10 og var veiðin
öll tekin á aðeins fjórum
klukkustundum. Allir voru lax-
arnir merktir sem eru stór-
tíðindi og bendir til góðra
heimta úr gönguseiðaslepping-
um sumarið 1988.
í net, snemma á öldinni veiddust
90 og 103 punda laxar á leiru-
svæðum írskra laxveiðiáa. En allt
um það, þá eru svona risar sjald-
séðir.
Gyða Þ. Halldórs- Hlíf Sigurjónsdótt-
dóttir píanóleikari ir fiðluleikari
Hlíf o g Gyða í
Sigurjónssafhi
SÖNGLÖG fyrir fiðiu og píanó
er yfirskrift tónleikanna í Sigur-
jónssafni þriðjudaginn 3. júlí en
þá leika Hlíf Sigurjónsdóttir ogfe
Gyða Þ. Halldórsdóttir lög fyrir”
fiðlu og píanó.
Á efnisskránni eru nöfn svo sem
Boceherini, Kreisler, Beethoven,
Schubert, Paganini, Messenet og
Elgar.
Eins og venjan er hefjast tónleik-
arnir kl. 20.30 og standa í klukku-
stund. Kaffistofa safnsins verður
opin að tónleikunum loknum.
íslandsmót í
svifdrekaflugK
ÍSLANDSMÓT í svifdrekaflugi
verður haldið dagana 30. júní til
8. júlí. Mótsstaður er Búrfell en
gist verður í Ásaskóla sem er
fyrir ofan Árnes.
Flugfundur verður haldinn í Ár-
nesi laugardaginn 30.júníkl. 10.00.
Keppt verður í 7 daga og er föstu-
dagurinn 6. júlí síðasti keppnisdag-
ur. Ef ekki nást 5 gildir flugdagar
á þessum tíma þá eru 7. og 8. júþ.\
til vara.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
28. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta
verð verð
Þorskur 102,00 72,00
Smáþorskur 67,00 67,00
Ýsa 120,00 74,00
Karfi 36,00 34,50
Ufsi 48,00 29,00
Smáufsi 29,00 29,00
Steinbítur 60,00 45,00
Langa 58,00 58,00
Lúða 275,00 160,00
Koli 50,00 35,00
Skötuselur 150,00 150,00
Gellur Samtals 310,00 310,00
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskursl. 100,00 73,00
Ýsa sl. 100,00 77,00
Karfi 34,00 32,00
Ufsi 46,00 43,00
Steinbítur 65,00 62,00
Langa 59,00 48,00
Lúða 330,00 250,00
Grálúða 60,00 60,00
Skarkoli 90,00 55,00
Keila 30,00 30,00
Rauðmagi 35,00 20,00
Grásleppa 15,00 12,00
Undirmál 25,00 23,00
Blandað Samtals 10,00 10,00
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 114,00 50,00
Ýsa 90,00 60,00
Karfi 33,00 10,00'
Ufsi 44,00 15,00
Steinbítur 55,00 15,00
Hlýri 15,00 15,00
Langa 46,00 36,00
Lúða 255,00 100,00
Grálúða 50,00 50,00
Skarkoli 50,00 45,00
Sólkoli 50,00 40,00
Keila 36,00 10,00
Skata 121,00 60,00
Skötuselur 350,00 97,00
Lýsa 10,00 10,00
Blandað 10,00 10,00
Undirmál Samtals 20,00 20,00
Meðal- Magn Heildar-
verð (lestir) verð (kr.)
85,02 41,174 3.500.799
67,00 0,416 27.872
86,94 36,322 3.158.012
34,88 7,538 262.903
45,12 6,089 274.764
29,00 0,287 8.323
55,82 0,313 17.468
58,00 0,293 16.994
206,99 0,178 36.740
45,73 0,506 23.140
150,00 0,126 18.900
310,00 0,039 12.090
78,96 93,313 7.367.623
82,85 33,829 2.802.852
84,06 24,478 2.057.588
33,00 19,323 637.659
45,12 7,802 351.990
62,67 2,533 158.745
50,68 0,287 14.546
308,84 0,129 39.840
60,00 0,160 9.600
83,61 0,148 12.375
30,00 0,828 24.840
26,07 0,117 3.050
12,74 0,364 4.638
24,50 0,255 6.247
10,00 0,019 190
67,84 90,271 6.124.158
78,60 23,227 1.825.674
84,89 3,585 304.335
28,41 11,955 339.696
41,30 6,718 277.479
40,54 0,534 21.648
15,00 2,610 39.150
41,77 0,350 14.620
125,94 0,229 28.840
50,00 1,947 97.350
49,51 0,665' 32.925
45,74 0,162 7.410
33,81 3,912 132.270
65,23 0,105 6.849
315,69 0,118 37.252
10,00 0,011 110
10,00 0,062 620
20,00 0,016 320
56,34 56,206 3.166.548
Stóra-Laxá
í Hreppum:
Bærileg-
veiði
Syðra-Langholti.
VEIÐI hófst í Stóru-Laxá 20. júní
og hefur veiðst bærilega á öllum
svæðunum, en að sögn veiði-
manna er lax kominn um alla á,
stór og fallegur fiskur.
Þijú ágæt veiðihús eru við ána,
við Skarð, Hlíf og Laxárdal. Hita-
veita er í tveimur þeirra fyrsttöldu
og þar eru heitir pottar fyrir utan
húsin sem veiðimenn kunna vel að
meta eftir erfiða veiðidaga. Hita-
veita verður lögð frá Flúðum upp
á Laxárdal og Skáldabúðum í Gnúp-
veijahreppi í sumar og kemur þá
Skokkari
áreitti konu
LÖGREGLAN leitar nú skokkara
sem í fyrradag réðst allan að
konu á Freyjugötu og áreitti
hana kynferðislega.
Maðurinn, sem talinn er á
þrítugsaldri hljóp aftan að konunni,
greip milli fóta henni og hélt henni
fastri um stund. Síðan hljóp hann
inn í húsgarð og á brott.
Konan var miður sín eftir atvikið
og kvaddi til lögreglu. Leit að
manninum, sem er með dökkt,
fremur sítt hár og var klæddur í
svartan bol og gráar íþróttabuxur,
hafði ekki borið árangur í gær.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hilmar Jóhannesson í Syðra-Langholti, formaður Veiðifélags Stóru-
Laxár, ásamt Steinari Pálssyni í Hlíð, fyrrverandi formanni félags-
ins, á veröndinni við veiðihúsið í Hlíð.
einnig heitt vatn á bæina Skyggni,
Hruna og Þverspyrnu í Hruna-
mannahreppi. Þessi hitaveita er um
8-9 km á lengd, mikil framkvæmd.
Að sögn Friðriks Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Stangveiðifé-
lags Reykjavíkur, hefur sala veiði-
leyfa í Stóru-Laxá gengið vel en
eitthvað er þó óselt ennþá.
- Sig.Sigm.
Mary Stuart Masterson og Kevin Dillon í hlutverkum sínum í kvik-
myndinni „Fjölskyldumálum“ sem sýnd er í Stjörnubíói.
Kvikmyndin „Fjölskyldumál“
frumsýnd í Stjörnubíói *
STJÖRNUBÍO hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina „Fjölskyldu-
mál“ (Imincdiate Family) með
Glenn Close, James Woods, Mary
Stuart Masterson og Kevin Dillon
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Jouathan Kaplan.
Myndin segir frá velmenntuðum
miðaldra hjónum í góðum efnum sem
þrá það heitast að eignast barn. Þau
sækja um að ættleiða barn og kynn-
ast þá hinni 17 ára gömlu Lucy og
Sam kærasta hennar sem geta átt
börn en kæra sig ekki um þau. Fjöl-
skyldumál er gamanmynd með alvar-
legu ívafi,“ segir í frétt frá kvi4r
myndahúsinu.