Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990 34 Ari Ingólfsson, eðtís- fræðuigur - Minning Fæddur 24. júní 1956 Dáinn 19. júní 1990 Ari Ingólfsson fæddist á Jóns- messu, 24. júní 1956, og dó 19. júní sl., örfáum dögum fyrir 34. afmælisdag sinn. Hann var sonur Guðrúnar Snæbjörnsdóttur og Ing- ólfs Árnasonar. Samvistir foreldra hans urðu stuttar og ólst hann upp fyrstu árin á Lindargötunni með móður sinni og ömmu og afa, Kristínu Jónsdóttur og Snæbirni Þorlákssyni. Samverustundir okkar voru margar þegar við vorum börn en urðu stijálli er á leið. Við andlátsfregn koma ýmsar minningar fram í hugann. Ég minn- ist hans sem tveggja ára hnokka sumarið sem ég háði frumraun mína sem barnapía. Hann var sérlega fallegt barn með stór blá augu og eplakinnar. Í blárri útpijónaðri peysu, með pijónaða alpahúfu með dúsk og í hvítum gammósíum var hann ómótstæðilegur. Það var erf- itt að veijast brosi þegar hann ávarpaði sjálfan sig hátíðlega eftir að hafa farið niður að Tjörn að gefa fuglunum brauð: „Var gaman, Ari?“ Og svo: „Ah, kassisopa, gott.“ Móðir Ara giftist Emil Richter pg þá eignaðist Ari fjögur hálf- systkini, þau Guðrúnu Perlu, Þor- stein, Kristin og Val. Guðrún og Emil slitu samvistir. Ara gekk 'alltaf mjög vel í námi og varð snemma sjálfbjarga. Eftir að hann lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík ákvað hann að fara í nám erlendis. Fyrir valinu varð háskólinn í St. Andrews í Skotlandi þar sem Ari ákvað að nema eðlisfræði. Fyrir tilviljun fór- um við systrabörnin frá íslandi með sömu flugvélinni í októberbyijun árið 1977, bæði á leið til Bretlands- eyja í nám, Ari til St. Andrews og ég til Reading. Flugvélin millilenti í Glasgow og þar fór Ari af. Þenn- an vetur fékk ég allnokkur póstkort frá honum þar sem hann lét vel af Skotum. Það var létt yfír þessum póstkortum og greinilegt að honum líkaði vel stúdentalíf hjá heilögum Andrési og hafði fundið góða leið til að skipta tíma sínum á milli náms og leiks. Eftir að hann lauk námi fór hann að vinna hjá Vatnsveitu Reykjavík- ur og fljótlega hjá fyrirtækinu Vatnaskil. Frá sama tíma leigði hann sér íbúð við Laugaveginn. Um tíma tengdust verkefni hans hraun- hitaveitunni í Vestmannaeyjum og þá lágu leiðir okkar saman enn á ný. Hann kom alioft í heimsókn, þá orðinn myndarlegur maður, há- vaxinn og grannleitur, rólegur og yfírvegaður. Hraunhitaveitan þótti merkilegt fyrirbæri og sumum flók- ið, en Ari hafði lag á að skýra hana á einfaldan og aðgengilegan hátt eins og þetta væri í rauninni sára- einfalt. Nú í vor sá ég Ara í síðasta sinn. Aftur höfðum við af tilviljun lent í sömu flugvél. Við vorum á sömu leið og haustið 1977, þ.e. til Glas- gow og London. Ari var á leið til Cambridge til að kenna á nám- skeiði, en það var liður í samstarfs- verkefni sem fyrirtækið átti hlut að. Að þessu sinni var lítið svigrúm til að ræða saman og það varð ekki annað eftir þessa ferð heldur. Þegar andlátsfregn berst fyllist maður söknuði yfír að hafa ekki skapað slíkar stundir. Ég kveð Ara með trega og bið þess nú að Lilla, Perla, Steini, Krist- inn og Valur öðlist styrk og æðru- leysi á erfíðri stundu. Það er okkur huggun að eiga góða minningu um Ara. Gerður Guðmundsdóttir Ari Ingólfsson er jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag. Við fráfall Ara missum við góðan vin og starfsfé- laga. Ari var frábær námsmaður sem sýndi sig í námi hans við Mennta- skólann í Reykjavík, þaðan sem hann lauk stúdentsprófí 1977 og síðan þegar hann lauk prófi í eðlis- fræði frá St. Andrews-háskóla í Skotlandi fjórum árum síðar. Kynni okkar af Ara hófust í júní 1981, þegar hann hóf störf fyrir Vatnsbólanefnd Vatnsveitu Reykjavíkur, þar sem annar okkar átti sæti. Öll störf hans fyrir nefnd- ina einkenndust af dugnaði og sam- viskusemi sem út á við birtust í ítar- legum skýrslum sem nefndin sendi frá sér. Fjórum árum síðar hóf Ari störf á Verkfræðistofunni Vatnaskilum og starfaði þar þar til yfír lauk. Öll störf sín leysti hann með stakri prýði og kom sífellt betur í ljós hvílíkum gáfum og hæfileikum Ári var prýddur. Unun fannst okkur stundum að fylgjast með hve.rnig t Sonur minn, JÓHANN ÓLAFUR JÓHANNSSON, lést af slysförum 22. júní. Jarðarförin fer fram frá Hvammstanga-- kirkju laugardaginn 30. júní kl. 14.00. F.h. aðstandenda, Jóna Annasdóttir. '• v + Faðir minn, tengdafaðir og afi, JAKOB DANÍELSSON vélstjóri, lést í Landakotsspítala 23. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigurþór Jakobsson, Sigríður L. Þórarinsdóttir og barnabörn. t Bróðir okkar og frændi, ÍVAR HENRÝ EINARSSON, Jórufelli 10, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 13. júní sl. Útför hans hefur farið fram. Þeim.-sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á líknar- stofnanir. Alfreð H. Einarsson, Polly Anna Einarsson, Karl Einarsson, Svanhvít Einarsson, Einar E. Einarsson, Álfhildur Kristín Fungo. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EIRÍKA GUÐRÚN BJARNADÓTTIR frá Klöpp, Grindavík, Furugerðil, Reykjavík, sem lést á heimili sínu 24. júní, verður jarðsungin frá Grindavíkur- kirkju laugardaginn 30. júní kl. 11.00 f.h. Sigriður Marelsdóttir, Sigurður Steindórsson, Ásdís Marelsdóttir, Svala Marelsdóttir, Marin G. Marelsdóttir, Guðjón Ólafsson, Jónína Sigurðardóttir, Ólafur Þ. Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Minningarathöfn um elskuiegan son okkar og bróður, REYNI FREY ÓLAFSSON, Mánagötu 27, Grindavík, sem féll fyrir borð af m/b Hafliða GK 140 26. apríl sl., fer fram í Grindavíkurkirkju laugardaginn 30. júní kl. 15.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á björgunarsveitina Þor- björn, Grindavík. Ólafur Guðbjartsson, Anna Kjartansdóttir, Heiðbjört Ólafsdóttir, Páll Ólafsson, Ómar Davið Ólafsson. t Bróðir okkar, KAREL VALTÝSSON, frá Seli í Austur-Landeyjum, Ljósheimum 11, verður jarðsunginn frá Voðmúlastaðakirkju laugardaginn 30. júní kl. 14.00. Þórhildur Valtýsdóttir, Þuríður Valtýsdóttir, Helga Valtýsdóttir. t Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR, Miðtúni 8, Reykjavík, sem lést 25. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 2. júll kl. 10.30. Eðvald Hinriksson, Jóhannes Eðvaldsson, Atli Eðvaldsson, Steinunn Guðnadóttir, Anna Eðvaldsdóttir, Gísli Guðmundsson, Bjarni Jónsson, Alda Sigurðardóttir og barnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS SIGURÞÓRS ÓLAFSSONAR frá Hellishólum, til heimilis á Birkivöllum 20, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Lovfsa Ingvarsdóttir. hann beitti fræðilegri þekkingu sinni á stærðfræði, eðlisfræði og tölvufræði til lausnar hagnýtra vandamála. Tölvur voru aðaláhuga- mál Ara og sinnti hann því bæði í vinnu og frístundum, en þrátt fyrir að tölvan ætti hug hans allan gleymdist knattspyrnan ekki og nú var runnin upp stund knattspyrnu- áhugamannsins þegar heimsmeist- arakeppnin í knattspyrnu hófst á Ítalíu. Ári hlakkaði mikið til að taka sér frí með bróður sínum og fylgj- ast með lokakafla keppninnar. Undanfarin tvö ár tók Ari þátt í því með okkur að þróa verkfræði- forrit til útflutnings. Þáttur Ara í því verkefni var stór og mun halda nafni hans á lofti um langa framtíð. Hæfíleikar Ara og eðliskostir voru slíkir að vandfyllt verður í hans skarð, en minningin um góðan dreng veitir okkur styrk. Við send- um fjölskyldu hans samúðarkveðjur okkar og biðjum góðan Guð að veita honum frið og kærleika. Snorri Páll Kjaran, Sigurður Lárus Hólm. Sumar fregnir koma sem reiðar- slag og maður vonar í lengstu lög að þær reynist ekki sannar. Ég kynntist Ara fyrir rúmum tíu árum, þegar hann sem stúdent falaðist eftir sumarvinnu á Raunvísinda- stofnun. Hann hafði stundað nám í eðlisfræði í Skotlandi, en vildi nú kynnast íslenskum viðfangsefnum. I fyrstu vann hann við ýmsa reikn- inga og einföld líkön sem lýstu streymi grunnvatns og hræringu í jarðhitakerfum, en stærsta við- fangsefnið snerist um tilraunir okk- ar til að framleiða gufu með vökvun á bráðnu hrauni í Heimaey og leið- ir til að virkja hana á hagkvæman hátt til húshitunar. Mér varð fljótt ljóst að Ari var óvenju fljótur að átta sig á erfiðum verkefnum og hafði gott vald á fræðunum, jafnt stærðfræði sem íslensku máli. Þeg- ar hann kom heim frá námi vorið 1981, var honum boðið að gerast starfsmaður Vatnsbólanefndar Vatnsveitu Reykjavíkur, en þar þurfti starfsmann til að standa fyr- ir ýmsum mælingum á rennsli til vatnsbólanna og nýta öll fáanleg gögn til að kvarða reiknilíkön, sem lýstu grunnvatnsstreyminu og nota mátti til þess að segja fyrir um breytingar vegna veðurfars eða aukinnar notkunar. Ari gekk að þessu verki sem víkingur og leysti hveija þraut sem upp kom af hug- kvæmni og samviskusemi. Árangri er lýst í skýrslum nefndarinnar sem Ari skrifaði að miklu leyti. Auk lip- urðar og dugnaðs í starfí kom nú einnig fram óvenjuleg hæfni Ara að glíma við tölvur og forritun þeirra til að leysa flóknustu reikn- inga um grunnvatn. Þessi fæmi hans varð til þess að eftir honum var sóst til starfa hjá Verkfræði- stofunni Vatnaskil, sem sérhæfði sig á þessu sviði reikninga. Ari fluttist því til starfa þar jafnhliða starfí sínu fyrir Vatnsbólanefnd. Þar náði hann enn sterkari tökum á forritun grunnvatnsreikninga og lauk verkefnum sem athygli vöktu á alþjóðavettvangi. Ari hafði mikla ánægju og metn- að í starfi og var þar hvers manns hugljúfí. Um einkahagi var hann hins vegar dulur og hleypti engum nærri. Kunningjar í starfí vissu því ekki gerla hvernig honum leið innan brynju hinnar daglegu vinnu. Öllum þykir að honum mikill skaði. Sveinbjörn Björnsson Sérfræóingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 19090

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.