Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 33
SINDRAy^g^STÁLHF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990 sem nú er látin. Með henni átti hann tvö börn, Adolf og Jóhönnu Sigrúnu, sem lifa föður sinn og búa í föðurleifð sinni á Gjögri. Læt ég nú hugann líða til löngu liðinna ára. Tvö hús voru mér kær- ust að koma í á bernskudögum mínum á Gjögri. Það var til föður míns, Jóns Sveinssonar, og móður- bróður míns, Valdimars Thoraren- sen. í júlímánuði 1946 segir frændi minn við mig: „Þar sem fóstri þinn er á síld og þú hefur ekkert tæki- færi til að komast í kaupstað vertu þá tilbúinn í fyrramálið kl. 9. Ég lendi hjá þér og tek þig með.“ Ekki held ég að mikið hafi verið sofið nóttina þá. Þessi dagur varð mér ógleymanlegur. Þá var líf í Reykjar- firði. Ég held að við höfum báðir fengið talsvert út úr deginum, ég í heimsókn hjá fóstursystrum mínum og frændi hitti vin sinn, Daníel Sigmundsson frá ísafirði, og urðu miklir fagnaðarfundir með þeim. Það var mjög léttstígur piltur sem klöngraðist upp Litlanestang- ann með fullan poka af vínarbrauð- um. Að leiðarlokum er mér kært að geta þess sem aðeins við tveir einir vissum allt frá fyrstu tíð, að mjög kært var með okkur frændum og hafði ég verið háseti hans og hann háseti minn. Kannski bíður mín nýtt pláss á Ströndum fyrir handan móðuna miklu. Ykkur, Adolf og Jóhönnu, votta ég míria dýpstu samúð. Lyftu mér langt í hæð lukkunnar hjól, hátt yfír stund og stað stjörnur og sól, hljómi samt harpan mín: Hærra minn Guð til þín hærra til þín. (Matth. Joch.) Auðunn Ilrafnljörð Jónsson Áskriftarsíminn er 83033 Nemendur Flataskóla taka við viðurkenningum frá Kiwanismönnum. Garðabær: Verðlaun veitt fyrir íslensku KIWANISKLÚBBURINN Set- berg í Garðabæ afhenti nýlega nemendum sem voru að ljúka námi í Flataskóla og Garðaskóla verðlaun fyrir íslenskunám. í Flataskóla fengu 7 nemendur bókaverðlaun og í Garðaskóla 9 nemendur. Þetta er í þriðja sinn sem Kiwanisklúbburinn Setberg veitir verðlaun og á þetta að verða árleg- ur viðburður í framtíðinni. Aðalástæðan fyrir verðlaunaaf- hendingunni er að vekja áhuga nemenda fyrir íslensku máli og kenna þeim að bera vit'ðingu fyrir því. Leiðrétting í Morgunblaðinu á sunnudaginn birtust minningargreinar um Guð- rúnu Ellertsdóttur Ólafsdóttur, Akranesi. Blaðið hefur verið beðið um að árétta að Guðrún var Ólafs- dóttir. Hún var skírð Guðrún Ell- ertsdóttir sem var því skírnarnafn, en föðurnafn Ólafsdóttir eins og kemur fram í greinunum. Almenna mótið í Vatnaskógi Zy.juni - l .juli Listflug veróur $ýnt ó laugardaginn kl. 14.00 JTtiR SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ t KRINGLUNNI Samband íslenskra kristniboðsfélaga Samkomur alla dagana. Barnasamkomur samtímis og barnapössunfyriryngstu börnin Útileikir fyrir alla fjölskylduna á laugardaginn Gistingu verður hægt að fá ísvefnskálum. Næg tjaldstæði. Matur seldur í matskála. Einnig verður sjoppa á staðnum. Bílferðfrá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 18.30 á föstudag og til baka sunnudag. ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.