Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 29. JUNI.1990 4í£ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu .. . w ^ n t ** J fe Í Veiðitaska tapaðist Ljósbrún veiðitaska tapaðist við Þingvallavatn föstudaginn 22. júní. í töskunni voru m.a. tvö veiðihjól og þtjú flugubox. Finnandi vinsamlega hringi í síma 672312. Kettlingnr Kettlingur fæst gefíns á gott heimili. Upplýsingar í síma 37054. Kettlingur Átta vikna kettlingur fæst gefíns. Þeir sem hafa áhuga hringi í síma 45744. BMX í óskilum Ilvítt drengjahjól er í óskil- um. Hjólið er af gerðinni BMX og getur eigandi vitjað þess í síma 16315. Þrír kettlingar Þrír kettlingar fást gefíns. Upplýsingar í síma 10976. Vill komast í samband Einn á kaldri braut hringdi: „Eg heyrði í útvarpinu að verið væri að fara af stað með málaferli í sambandi við verð- bréfafyrirtækið Ávöxtun. Hóp- ur fólks sem fór illa út úr við- skiptunum við Ávöxtun hefur tekið sig saman og langar mig til að komast í samband við þennan hóp. Ef hægt væri að fá uppgefið pósthólf eða síma- númer.“ Fólk gleymir alltof fljótt mmnisverðum tíðindum Til Velvakanda. Nú þegar kúgunarijötrar marx-, lenín-, stalínismans eru fallnir af Austur-Evrópu og allur sannleikur- inn er kominn í Ijós þá er fróðlegt að fylgjast með stalínistunum hér á landi þar sem þeir eru að reyna að klóra í bakkann og afsaka það sem er óafsakanlegt. Það var sagt frá því í útvarpinu að hefði Lenín lifað lengur þá hefði margt farið öðruvísi. Þetta er hrein sögufölsun því Lenín fyrirskipaði að öll mót- spyma skyldi barin niður af fullri hörku svo Stalín gerði ekki neitt sem ekki var eftir kokkabók marx- ismans. Svo lengi sem kommúnist- arnir halda í þetta svo geðslega hálmstrá þá berjast þeir eins og þeir geta á móti lýðræði og mann- réttindum. Nú er hafínn þáttur í útvarpinu sem rifjar upp atburði sem á sínum tíma voru sögulegir og er það gott. Því fólkið gleymir alltof fljótt minn- isverðum tíðindum. Til þess að þátt- urinn skili sér sem best þá á að flytja hann á kvöldin þegar flestir eru hættir vinnu. Gaman var að hlusta á þáttinn um SÍA-skýrslurn- ar frægu. Einn skýrslugerðarmann- anna bar hönd fyrir höfuð sér og þáttagerðarmaðurinn var sammála um það að Morgunblaðið hefði á sínum tíma blásið þetta allt svo mikið upp af því að þetta gerðist í kalda stríðinu. Þetta er skrítin skoð- un. Morgunblaðið átti alls ekki að vera að hneykslast á kúguninni og óstjórninni í Austur-Þýskalandi, sennilega af því að það var ekki í frásögur færandi. SIA-skýrslurnar eru merkilegastar fyrir það að þess- ir menn sem sömdu þær og sendu Þjóðveijum þær voru ætlaðar til að draga úr verstu aðgerðum valdhaf- anna. Þeir trúðu á kommúnismann og börðust fyrir hann en samt vildu þeir að bætt yrði úr verstu göllunum í framkvæmdunum. Þeir höfðu sem sagt enga samúð með Austur-Þjóð- verjum og draumur þessara manna var að ísland yrði eitt af Varsjár- bandalagsríkjunum. Það er því skilj- anleg barátta þeirra gegn NATO. NATO gat með hjálp þeirra sem ýmist létu lífið eða þoldu margskon- ar kárínur í baráttunni gegn kúgun- inni. Þetta tókst án þess að gripið yrði til vopna. Húsmóðir Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al elnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, íyrirspurnir og frásagnir, auk pistia og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfii, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfúndur óski nafh- leyndar. Ekki verða birt nafhlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafngreint fólk. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hfut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Leitar að íslenskum ættingjum Velvakanda hefur borist bréf frá kanadískri konu, Deborah Staðfeld, sem kemur til íslands 6. ágúst nk. Hún hefur mikinn áhuga á að fá upplýsingar um og komast í sam- band við ættingja sína sem eru búsettir hér á landi. Langafí Deboruh hét Guðmundur Guðmundsson (f. 1823, d. 1905. Foreldrar: Guðmundur Erlendsson og Jóhanna Jónsdóttir) og kona hans Guðrún Jónsdóttir (f. 1828, d. 1890. Foreldrar: Jón Jónsson og Sesselja Guðmundsdóttir). Þau bjuggu í Stangarholti í Borgarfírði. Einn af sonum Guðmundar og Guð- rúnar hét Jóhann (f. 1859, d. 1948) og var kvæntur Ólínu Jónsdóttur (f. 1867, d. 1934). Þau bjuggu í Stangarholti en fluttu til Kanada árið 1900 með fjögur börn sín. Jó- hann og Ólína voru því afí og amma Deboruh. Önnur börn þejrra Guð- mundar og Guðrúnar voru Jón, Jó- hanna, GuðmundurogGuðmundur. Jóhann og Ólína sem tóku upp eftirnafnið Staðfeld eignuðust níu börn; Guðrúnu, Hallgrím, Valgeir, Einar, Eið, Guðjón, Jóhann Hjört, Kjartan og Guðlaug. Einn af sonun- um, Eiður, eignaðist ellefu börn og er Deborah eitt þeirra. Þeir sem geta rakið ættir sínar til Guðmundar og Guðrúnar geta skrifað til: Deborah Staðfeld, Box 511, Ashcroft, B.C. Canada, VOK ÍAO. Víkverji skrifar Víkvetja varð það á fyrir skömmu að stækka Barða- ströndina margfalt til austurs. Eftir ábendingu staðkunnugs fólks leið- rétti hann það síðastliðinn þriðju- dag. Á eftir leiðréttingunni voru birtar upplýsingar úr bókinni Landið þitt ísland um fjallið Barða og mátti skilja af samhenginu að Víkverji væri enn búinn að stækka Barðaströndina, í þetta skiptið til norðurs. Fjallið Barðinn sem þarna var lýst stendur við sunnanverðan Önundarfjörð og er í Vestur-ísa- fjarðarsýslu. Víkveija varð því enn á í messunni því hann ætlaði að miðla fróðleik um Barð í Látra- bjargi. í kafia um Látrabjarg í bók- inni Landið þitt segir m.a.: „Fyrir árþúsundum hefur bjargið náð lengra fram en náttúruöflin naga smám saman af því. KÍappir og bergfleygar úr harðara efni, sem miður vinnst á, standa víða eftir úti í sjó, eða mynda bríkur sem ganga fram úr bjarginu. Ein þeirra og sú stærsta er svonefnt Barð sem er um 80 m hátt og gengur um 60 m fram. Það er breiðast að ofan 2 m en mjóst 2 sm.“ Víkveiji taldi að ströndin og sýslan drægi nafn sitt af Barði í Látrabjargi, og hafði þann „vísdóm" úr sjónvarpsþætti sem hann hafði séð. Til að losna við fleiri leiðréttingar leitaði Víkveiji til fróðra manna til að fá upplýsing- ar um hvaðan nafnið væri komið. Með aðstoð Sveins J. Þórðarsonar fréttaritara Morgunblaðsins í Innri-Múla á Barðaströnd fengust þær upplýsingar hjá Gunnari Guð- mundssyni á Skjaldvararfossi að þrátt fyrir mikla leit hefðu ekki fundist neinar heimildir um þessa nafngift. En fráleitt væri nafn strandar og sýslu dregið af Barði í Látrabjargi, það væri frekar öfugt. Gunnar sagði að mönnum dytti helst í hug að landnámsmennirnir sem sigldu inn Breiðafjörð hefðu nefnt svæðið eftir hnúkunum sem við þeim blöstu en þá munu þeir hafa kallað börð. Með þessari leið- réttingu vonar Víkverji að fram- haldssögunni um Barðaströndin sé lokið. Nokkrir höfðu samband við blaðið vegna misskilnings Víkveija. Einn þeirra sagði umræðuna góða, hún gæti orðið til að leiðrétta ein- hvern hluta þeirra mörgu íslend- inga sem töluðu um alla Barða- strandarsýslu sem Barðaströnd, þar með talinn Patreksfjörð og svæði enn norðar á Vestfjörðum. mrnrn / „ /JP hverju sagS/réu ek/ci aé þú i/flolir ekkisósu?" að velja réttu leiðina. TM Reg. U.S. Pet OH.—all rights reMtved * 1990 Los Angeles Times Syndicete Með morgunkaffinu 656 ^ Það er kviknað í tjaldinu þínu fótraki úlfur ... Ég á frí í dag í vinnunni og ekkert liggur á ... HÖGNI HREKKVlSI „ þAD etzu TV/Cf? /yiys her immi. "

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.