Morgunblaðið - 22.07.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ
7
Ríkisskattstj óri:
Útihátíð Stuð-
manna um
verslunar-
mannahelgi
skattskyld
Um rokktónleika að
ræða, segja Stuðmenn
„Tónleikarnir í Húnaveri munu
fara fram á afgirtu svæði þar sem
engin veitingasala fer fram, hvað
þá annað samkomuhald," segir
Jakob Magnússon úr Stuðmönnum
en embætti ríkisskattstjóra telur
rokktónleika hljómsveitarinnar
um komandi verslunarmannahelgi
vera skattskylda þar sem um úti-
liátíð sé að ræða, með tilheyrandi
veitingasölu og kveðst munu inn-
heimta virðisaukaskatt af henni.
Þessu segjast Stuðmenn ekki una,
þar sem um tónleika sé að ræða
en ekki útihátíð. Hvað framtakss-
amir athaihamenn eða góðbændur
kjósi að aðhafast á nærliggjandi
jarðskikum, bensínsölum eða
pulsuvögnum sé þeim óviðkom-
andi.
Jón Guðmundsson,, forstöðumaður
gjaldadeildar ríkisskattstjóra seg-
ir málið túlkunaratriði á undan-
þáguákvæði laganna um virðisauka-
skatt. Þar komi fram að tónleikahald
sé undanþegið skattinum ef það sé
ekki í tengslum við annað skemmt-
anahald eða veitingastarfsemi. „Úti-
hátíðir eru skattskyldar og þetta mál
snýst um útihátíð Stuðmanna í
Húnaveri. Okkur sýnist að hún sé
skattskyld vegna þess að hún sé í
tengslum við annað skemmtanahald
og veitingastarfsemi.“
Jón segir að ætíð megi búast við
vandræðum vegna undanþága frá
lögum, að einhvers staðar verði kom-
ið að mörkum. „Það sem erfiðast er
að eiga við er að setja mörkin milli
undanþágunnar og skattskyldunn-
ar.“
Jakob Magnússon úr Stuðmönnum
segir fjöldamörg dæmi um að útihát-
íðir og tónleikar með tilheyrandi veit-
ingasölu teljist ekki virðisaukaskatt-
skyld. „Ég vil minna á rokkhátíð
iandsmóts UMFÍ í Mosfellsbæ, á
tvenna rokktónleika Listahátíðar þar
sem var stiginn dans, á skattfrjálst
landsmót hestamann fyrir skemmstu
þar sem bæði fór fram dans og veit-
ingasala og rokktónleika Rokkskóga-
manna í Laugardaishöll í júní. Allir
þessir rokktónleikar voru dæmdir
skattfijálsir eins og vera ber um tón-
leika,“ segir Jakob Magnússon.
„Málið snýst um það hvort hef-
bundnir rokktónleikar alls staðar í
heiminum séu einungis tónleikar ef
fólk situr á stólum og hreyfir sig
ekki, og bragðar hvorki vott né
þurrt. Ef svo er, þýðir það að tón-
leikaferðir erlendra listamanna til
íslands munu leggjast af, áhættusöm
fyrirtæki á borð við að halda um-
fangsmikiar rokkhátíðir éins og
tíðkast í öllum löndum hins siðmennt-
að_a heims munu leggjast af með öllu.
Nuverandi lög um virðisaukaskatt
miða bersýnilega að verndun og við-
haldi íslenskrar menningar. Ætli
menn í raun og veru að gera íslenska
alþýðutónlist að einustu tegund
menningar og lista á landinu, sem
er gert að hiíta skattlagningu, þá er
það um leið alvarlegasta aðför að
íslenskri tungu og menningarlegu
sjálfstæði síðan 1949.
LISTA' OG ÓPERUKLÚBBURINN
VÍGSLUFERÐ MEÐ NÝJUSNIÐI, ÞAR SEM AÐEINS ÞAÐ BESTAER í BOÐI:
TOFRAR ITALIU
2ja vikna listskoðun og lífsnautn
í fegurstu héruðum og borgum Italíu.
Brottför 24. ágúst.
SÍÐUSTUFORVÖÐ AD PANTA
FERÐAMÁTI: Flug til Milano og til baka frá Róm. Akstur um Ítalíu
í glæsilegustu gerð farþegavagna.
GISTING: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum, sérvöldum með
tilliti til staðsetningar og gæða
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: 1. Milano, m.a. La Scala óperan
og síðasta kvöldmáltíð Leonardo da Vinci.
2. Stórfengleg óperusýning með bestu söngvurum heimsins í
Arenunni í Verona, hinni einstæðu miðaldaborg Rómeós og Júlíu.
3. Heillandi fegurð Gardavatns: Sirmione, Bardolino, Garda,
Torbole, Riva og Limone.
4. Listir og líf í Feneyjum, þar sem gist verður á Hótel Splendide
Suisse við Canal Grande og skammt frá Markúsartorgi, til að
upplifa töfra borgarinnar á nóttu sem degi.
5. Hjarta Ítalíu - listaborgin Flórens - þar sem gist er í 3 daga
í hjarta borgarinnar til að sjá með eigin augum snilld renaissans-
ins, mestu listfjársjóði veraldar.
6. Pisa, Siena og Assisi, borgirnar, sem eru sjálfar eins og undur-
fagurt safn, ótrúlegri en orð fá lýst.
7. Borgin eilífa, RÓM, fyrrum miðpunktur heimsins, hefur engu
tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið hefur að ferða-
menn frá öllum heimshornum í 2000 ár.
Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð, sem þú mátt
ekki missa af. Allur viðurgjörningur, matur og vín eins og best
gerist í gósen landi sælkera.
Skipulag og fararstjórn: Ingólfur Guðbrandsson
Okkar mat: Óviðjafnanleg ferð með ákveðinn gæðastimpil, þar
sem lífsnautn og listnautn sameinast í góðum félagsskap.
Alveg einstök kjör
sem ekki verða endurtekin:
Allt ferðalagið ó verði, sem samsvarar
gistingunni einni, aðeins kr. 135 þÚS.
Höf um lækkað verð kynnisf erða.
marimektó
Utsalan hefst á morgun mánudag
V A T N A I) l K ■ C J A V A V ft R l R
LAUGAVEG113 - S. 62 45 25