Morgunblaðið - 22.07.1990, Qupperneq 13
13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ
-Hvaða lax er þér minnisstæðast-
ur?
„Stærsta laxinum sem ég veiddi
man ég vel eftir, hann var 23 pund
og ég fékk hann í Víðidalsá seint
um haust á stað sem heitir Þóru-
dalsbakki rétt fyrir klukkan níu, svo
það var orðið hálfdimmt. Ég hafði
séð þennan stóra lax stökkva og
ég man hvað ég var óskaplega kát-
ur þegar ég fékk hann á því það
var erfitt að komast að honum og
ég þurfti að vaða út á eyri og lét
mig hafa það að blotna upp í bringu
því ég átti engar vöðlur. Svo renndi
ég niður með eyrinni og fann að
það var tekið og sá svo allt í einu
þennan rokna lax stökkva rétt við
hliðina á mér. Ég fór að draga inn.
Það var allt laust, en þá hafði sá
stóri rokið uppeftir og stökk þarna
við hliðina á mér. Eftir að hafa land-
að honum gekk ég niður að bílnum
þar sem konan beið eftir mér og
hún sagði að ég hefði haldið á laxin-
um eins og barni, brosandi út undir
eyru.“
-Svona í lokin, hver er ótrúleg-
asta ólogna veiðisagan sem þú hef-
ur nokkurntíma heyrt?
„Ég held ég verði að segja að
það hafi komið fyrir veiðifélaga
minn fyrir mörgum árum. Hann var
að kasta undir Laxfossi í Grímsá
og setur í lax. Hann var með litla
flugu man ég eftir, og þegar við
lönduðum fiskinum kom í ljós að
það hafði áður slitnað í honum og
stóð stór öngull í kjaftvikinu, flugan
hafði svo krækst í augað á önglin-
um. Síðan kastaði hann aftur og
fékk annan lax á, ég minni á að
þetta er sönn saga, en eitthvað var
skrýtið við þá veiði og loksins þegar
hann landaði honum kom í Ijós að
það hafði kappmellast utan um
sporðinn á fiskinum. Þetta voru
einu laxarnir sem komu á land þann
daginn.“
hátt hefur hlutfall eldislax verið á
Reykjanesi og Reykjavík. Botnsá í
Hvalfirði er þar efst á blaði með
47% eldislax í fyrra, meðan Elliða-
árnar og Leirvogsá höfðu kringum
30%. Úr aflahæstu ánni í fyrra,
Laxá í Kjós og Bugðu, komu rúm
12% eldislax, sem er meira en geng-
ur og gerist annars staðar á
landinu. Þetta veldur mörgum
áhyggjum vegna erfðablöndunar
við náttúrulegan lax sem getur
gert það að verkum að seiðin hætta
að ganga í réttar ár eða gera það
á röngum tíma, og gæti þetta í
versta falli orsakað að ár dæju út.
Sveiflur af þessum völdum má ekki
enn merkja í ám á Islandi, en í
Skandínavíu og Sovétríkjunum hafa
ár orðnar físklausar vegna þessa.
Heimshornaflakkarar
Þegar lax gengur í sjó fer hann
um langa vegu. Það er erfitt að
segja til um hvert hann fer ná-
kvæmlega, en merktir fiskar hafa
fundist bæði við austur- og vestur-
strönd Grænlands og við Færeyjar.
Það virðist vera munur milli ára á
því hvar fiskurinn heldur sig, en
það er erfitt að fylgja laxinum í
óravíddum hafsins. Það er í sjónum
sem laxinn tekur út mesta vöxtinn
og er það dæmi um ótrúlega ratvísi
hans að hann skuli í fyllingu tímans
skila sér í rétta á eftir mörg þúsund
kílómetra ferðalag um Atlantshafið.
Við ísland eru laxveiðar í sjó
bannaðar. Nokkuð hefur verið um
það undanfarið að reynt hafi verið
að fara í kringum reglur af þessu
tagi af hálfu danskra og færeyskra
aðila, og er það að vonum slæmt
fyrir íslenska laxastofninn og þar
með laxveiðiámar. Nokkrir aðilar
hér á landi hafa tekið sig saman
um að kaupa laxveiðikvóta Færey-
inga með það fyrir augum að
stuðla að uppgangi laxastofnsins
hér við land, en enn sem komið er
þó lítil hætta á ferðum fyrir ís-
lenska stofninn. Laxveiðimenn geta
því unað vel við sitt um ókomna tíð
í paradís íslenskra fallvatna.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Við veitum þér:
★ Þitteigiðhársem vexævilangt
★ Ókeypis ráðgjöf og skoðun hjá
okkur eða heima hjá þér
★ Skriflega lífstíðarábyrgð
★ Framkvæmt af færustu læknum
HRINGIÐ (BEST MILLI KL. 19-21)
EÐA SKRIFIÐ TIL:
Skanhár
Holtsbúð 3, 210 Garðabæ,
sími 91-657576
Nafn:.
Sími:.
Heimilisfang:.
Póstnúmer:.
og önnur ævintýri i spennanai
sérferðum Úrvals Útsýnar
í MORÐINGJALEIT AUSTURRÍKI OG
19. - 23. september. UNGVERJALAND
100 ár eru liðin frá því að
spennusagnahöfundurinn Agatha
Christie fæddist. Gestirnir taka
þátt í að leysa morðgátu að
hennar hætti.
1 nótt í London og 3 í Manor
House. Upplifið "Morðgátu" í
Manor House hjá Magnúsi.
19. ágúst - 2 vikur.
Ógleymanleg ferð um fegurstu
staði Austurríkis, sléttur
Ungverjalands og til hinnar
töfrandi borgar Búdapest.
Fararstjóri Árni G. Stefánsson.
TYRKLAND
Þórarinu Sigþórsson að veiðum í
Laxá í Kjós.
„Ekki lengur. Á árum áður var
þetta næstum því útgerð og meira
að segja upp úr því að hafa. Lágt
verð á laxi og hærra verð á leyfun-
um valda því að þetta er ekki hægt
lengur. Það sem hefur fleytt mér
áfram er að mér hefur mikið verið
boðið í veiði.“
-Hvetjar eru þínar uppáhalds ár
og hverjum mælirðu heist með fyr-
ir byrjendur?
„Laxá í Kjós er mjög fjöibreytt
og skemmtileg á með mikið af
fiski. Kjarrá er skemmtileg sökum
þess að maður sér sjaldnast næsta
veiðimann og ósnortin náttúr-
an er heillandL Miðfjarðarárn-
ar og Laxá í Ásum eru líka í
uppáhaldi, en þó held ég að
mér þyki skemmtilegast að
veiða í Æðarfos'sunum í Laxá
í Aðaldal. Þar er vatnsmikið
og alltaf von á stórum laxi
þó ekki sé honum mokað upp.
Fyrir byijendur í sportinu er
auðvitað skemmtilegast að
reyna sig í bestu og dýrustu
ánum. Það er erfiðara og brýt-
ur frekar niður áhugann að
spreyta sig í veiðileysu, og
þessar ár sem ég nefndi hér
áðan eru stórkostlegar fyrir
byijendur ef þeir geta komist
í þær. Laxá í Kjós er til dæm-
is mjög auðveld og er hægt
að aka meðfram henni allri -
er hún yfirleitt fulL af
fiski þó það hafi brugðist
nokkuð hingað til í sumar.
Fyrir þá sem vilja leggja
minna undir má benda á Laxá
í Aðaldal sem alltaf hefur ver-
ið frekar ódýr, og svo auðvitað
Rangá. Þetta er á sem skyndi-
lega fór eitthvað að veiðast í
og gefur mikið af 10-12 punda
fiski.“
-Hefurðu veiðisögu á tak-
teinum?
„Fyrst ég er hér allur lurk-
um laminn minnist ég þess að það
henti mig í Miðfjarðará fyrir mörg-
um árum að ég hrasaði og sleit lið-
bönd í fæti, svo ég gat ekki mikið
hreyft mig eftir það. Þetta gerðist
um miðjan veiðitúrinn, og sem
sönnun þess hve veiðigleðin er ríkj-
andi eyddi ég þeim tíma sem eftir
var veiðandi af vélarhlíf jeppans
sem ók mér milli veiðistaða. í þess-
ari ferð veiddum við óskaplega rnik-
ið - fengum 64 laxa á þremur dög-
um, sem þá var það mesta sem
fengist hafði á eina stöng í Mið-
fjarðará."
PARÍS
5.-12. september.
París í lok sumars.
Kaffihús, söfn, verslanir,
veitingahús og fleira og fleira.
íslenskur fararstjóri.
VÍNUPPSKERUFERÐ
7.-14. október.
Skáll! Prost!! Zum Whol!! Vín
og grín við Mósel og Rín.
Fararstjóri Friðrik G.
Friðriksson.
Ferðalýsing á skrifstofu.
HELGARFERÐIR -
London • Glasgow
Kaupmannahöfn • París
Amsterdam • Hamborg
Luxemborg • New York
Verðskrá kemur út í næstu viku og
á eflaust eftir að koma á óvart.
25. september - 18 dagar.
Einstakt tækifæri til að kynnast
þessu framandi landi, borgunum
Istanbul og Ankara, sveitum þess
og sólarströndum.
Fararstjóri Ása María
Valdimarsdóttir.
SKÚTUSIGLING í
KARABÍSKA HAFINU
17. september -1. október.
Meiriháttar ævintýri.
Flogið frá New York til St. Luciu.
Komið og fáið nánari ferðalýsingu.
THAILAND
21. október - 8. nóvember.
Jóhannes Reykdal er nú þegar
orðinn landsþekktur fyrir sína
frábæru fararstjórn í þessari árvissu
ferð. Ferðalýsing á skrifstofu.
Leitið frekari upplýsinga á skrifstofum okkar í Álfabakka 16, sími 603060,
Pósthússtræti 13, sími 26900, og hjá umboðsmönnum um land allt.
í
'&CVETRARSÓL
' I
óteljandi möguleikar:
Kýpur • Kanarí • Costa delsol
Florida •Mauritius
Thailandog f/eira og fíeira.
Verðlistar liggja fyrir innan skamms.
4 4
FfROASKRfSlOfAN
URVAL-UTSYN
Alfabakka 16 Sími 60 30 60
Posthússtræti 13. Simi 2 69 00
scga
SUtXJRGÖtú 7 - SÍMI624040
v/SA
FARKQRTIIfíf
COTT FÚLK/SÍA.