Morgunblaðið - 22.07.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ
33
Lára I. Magnús-
dóttir — Minning
Fædd 19. júlí 1894
Dáin 15. júlí 1990
Lára Ingibjörg Magnúsdóttir
fæddist á Sauðárkróki, dóttir þeirra
mætu hjóna Hildar Margrétar Pét-
ursdóttur Eriksen og Magnúsar
Guðmundssonar verslunarmanns
og verkstjóra er þar bjuggu. Lára
ólst upp í foreldrahúsum við mikið
ástríki foreldra sinna, ásamt tveim
bræðrum, Kristjáni C. og Ludvig
C., einnig fóstursystrum, Pálu
Sveinsdóttur og Pálínu Þórðardótt-
ur, en þau eru öll látin nema Pála.
Lára Ingibjörg giftist Guðmundi
Guðna Kristjánssyni frá Meira-
Garði í Dýrafirði 30. okt. 1915 og
hófu þau búskap í Súðavík og
stundaði Guðmundur þar kennslu
um skeið, þaðan fluttust þau til
ísafjarðar þar sem Guðmundur
vann við verkstjórn og síðar í mörg
ár skrifstofustjóri Rafveitu ísafjarð-
ar. Guðmundur var búfræðingur frá
Hvanneyri. Heimili þeirra var róm-
að fyrir gestrisni og höfðingsskap,
var þar oft gestkvæmt. Húsbóndinn
röggsamur í pólitík þar í bæ og
húsmóðirin stjórnsöm á sínu stóra
heimili.
Þeim hjónum varð átta barna
auðið, sjö sona og einnar dóttur.
Fjórir af sonum þeirra eru látnir,
en þeir voru Ólafur fulltrúi, kvænt-
ur Hrefnu Magnúsdóttur, Magnús
eldri, Magnús yngri og Haraldur.
Eftir lifa Kristján Sigurður vélvirki
á Selfossi, kvæntur Guðmundu
Guðmundsdóttur en hún lést 1. jan-
úar sl., Páll Steinar skólastjóri,
búsettur á Seltjamarnesi, kvæntur
Unni Ágústsdóttur kennara, Sigrún
fóstra, gift undirrituðum, býr í
Hafnarfirði, og Lárus Þorvaldur
sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn,
kvæntur Sigurveigu Georgsdóttur
hjúkrunarfræðingi. Alls eru afkom-
endur 61 að tölu. Svo sem að líkum
lætur hefur starfsdagurinn verið
langur og árin mörg að baki, tæp
96. Árið 1966 fluttu þau hjón til
Reykjavíkur, eftir að starfsdegi
Guðmundar lauk og bjuggu þar uns
Guðmundur lést árið 1975. En
skömmu síðar, 1978, flutti Lára á
heimili aldraðra í Lönguhlíð 3, Rvík,
og dvaldist þar við góða alúð og
umhyggju Friðriks Ingþórssonar'og
konu hans, Láru, og eru þeim og
öllu starfsfólki þar fluttar innilegar
þakkir fyrir frábæra umönnun, en
Lára dvaldi þar þar til fyrir rúmum
14 mánuðum er hún varð sakir
veikinda að fara á Vífilsstaðaspítala
þar sem hún lést sl. sunnudag. Vil
ég hér með færa innilegar þakkir
frá mér og konu minni til lækna
og starfsfólks hjúkrunardeildar
Vífilsstaðaspítala fyrir sérlega góða
hjúkrun og elskulegt viðmót við
hina látnu, og alla góðvild við okk-
ur sem að henni stóðum.
Lára var unnandi góðrar tónlistar
og lék gjaman á orgel á samkomum
fyrr á árum og á eigin heimili.
Einn er sá þáttur sem ekki má
gleyma, en það var hinn mikli hann-
yrðaáhugi hennar, og eru til marg-
ir listrænir hlutir eftir hana unnir
af mikilli vandvirkni og smekkvísi.
Ferðalög voru henni mikið yndi.
Minnist ég er við hjónin fómm í
ferð til Norðurlands að Mývatni
árið 1968 með þau Láru og Guð-
mund. Er við ókum yfir Vatnsskarð
og Skagafjörðurinn blasti við okkur
í allri sinni fegurð, man ég að hún
sagði: „Ó, minn yndislegi Skaga-
íjörður með eyjarnar mínar og
Krókinn, hvað ég ann þér heitt.“
Og ég sá þá blika á tár á kinn af
hrifningu.
Mér er í fersku minni er ég kom
fyrst á heimili þeirra hjóna, hve
innilega mér var tekið og allt gert
til að gera mér dvölina sem ánægju-
legasta, fyrir það og allt annað vil
ég þakka nú á þessari stundu. Börn
okkar Sigrúnar og fjölskyidur
þeirra þakka liðna tíð.
Að lokum kveðja dóttir og
tengdasonur elskulega móður og
tengdamóður með hjartans þökk
fyrir allt sem hún var okkur. Guð
varðveiti hana um alla eilífð.
Hallgrímur Árnason
Minning:
Jóhann Ol. Jóhanns
son - Kveðjuorð
Fæddur 8. júní 1962
Dáinn 22. júní 1990
Mikið brá mér þegar komið var
til mín morguninn 25. júríi og mér
sagt að Jói Ólafur væri dáinn. Mér
fannst ég verða tóm að innan, hann
var besti vinur minn og hann gat
ekki verið farinn og frá þessum
degi hefur hann ekki vikið úr huga
mér. Ég kynntist Jóa sumarið 1983
á Hvammstanga þar sem ég bjó
þá. Við urðum fljótt góðir vinir og
áttum það sameiginlegt að músík
heillaði okkur bæði, ég átti kassa-
gítar sem ég kunni ekki að spila á
svo Jói fór að kenna mér og fljót-
lega vorum við farin að spila mörg
lög saman, hann átti tólf strengja
kassagítar og það var frábært að
horfa á hann spila.
Jói var vinur sem hægt var að
treysta, ég gat alltaf talað við hann
Blómastofa
Friöfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,• einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
um allt og hann sat þolinmóður og
hlustaði. Ég flutti svo til Skaga-
strandar og Jói fór suður að vinna
en við héldum áfram að vera vinir
í gegnum síma og bréf. Svo hitt-
umst við oft þegar hann kom norð-
ur og alltaf þegar ég fór suður tók
ég gítarinn með og við spiluðum
saman. Mér finnst sárt að vera
búin að missa hann því betri vin
hef ég aldrei átt og ég veit að þeir
sem þekktu hann eru mér sammála
því hann átti mjög marga vini og
var öllum góður. Eflaust hefur Guð
ætlað honum annað hlutverk hjá
sér fýrst hann tók hann frá okkur
en ég vona og vil trúa að hann sé
samt alltaf hjá okkur. Ég þakka
fyrir að hafa fengið að taka þátt í
lífi hans því ég á margar mjög
góðar minningar um Jóa og ég mun
aldrei gleyma honum og móður
hans og systkinum sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Drífa Kristjánsdóttir,
Skagaströnd
+
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför
eiginkonu minnar og systur,
HELLA IMETTKE JÓNSSON,
Laugateigi 5.
Bjarni Jónsson,
Julius Nettke.
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför
MAGNEU D. ÞÓRÐARDÓTTUR,
Lynghaga 26,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir til Guðmundar Sigurðssonar, heilsugæslulæknis,
og starfsliðs á deild 11 B, Landspítala.
Fyrir hönd vandamanna,
Ágústa Jóhannsdóttir,
Svana Guðrún Jóhannsdóttir Hodgson,
Ólafur J. Ólafsson.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar.tengdamóður og systur,
INGUNNAR GUÐVARÐARDÓTTUR,
Vallarbraut 11,
Akranesi.
Grjetar Kristinsson, Sigrún Sigmundsdóttir,
Sigurður Smári Kristinsson, Kristín Guðvarðardóttir,
Pálfna Guðvarðardóttir.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
AGNARS J. SIGURÐSSONAR
vélstjóra,
Lindarbraut 10,
Seltjarnarnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Unnur Sigurðardóttir,
Sigurður I. Tómasson, Hjördís Haraldsdóttir,
Bjarnína Agnarsdóttir, Jón Magnússon,
Óðinn Agnarsson, Helga Bragadóttir,
Ragnar Agnarsson
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför bróður okkar,
SIGURÐAR RÖGNVALDS HALLDÓRSSONAR
frá Hraungerði
í Álftaveri, Q
Stigahlíð 8.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Borgarspítalans fyrir
góða umönnun í veikindum hans.
Sigmundur Halldórsson,
Hallgrímur Halldórsson,
Guðbjörg Stella Halldórsdóttir,
Sigríður Halldórsdóttir,
Rannveig Halldórsdóttir.
ajungilak.
SÆNGUR 0GK0DDAR
í miklu úrvali
Umboðsmenn um land allt
HEIMILISKAUP H F
• HEIMILISTÆKJADEILD FÁLKANS •
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670.