Morgunblaðið - 22.07.1990, Síða 39
arvið Sæmund Pálsson lögreglumann. Endurtek-
inn þáttur.
3.00 Landið og míðin. Sigurður Pétur Harðarson.
(Endurtekið úrval frá kvöldinu áður.)
4.00 Fréttir:
4.03 Sumaraftann. Umsjón: Bergljót Baldursdóttir,
Freyr Þormóðsson og Ragnheiður Gyða .Jóns
dóttir. (Endurtekinn þáttur)
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Glefsur. Ur dægurmálaútvarpi mánudagsins.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.01 Zikk Zakk. (Endurtekinn þáttur)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Áfram ísland. islenskir tónlistarmenn flytja
dægurlög.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00 Útvarp Norðurland.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9
7.00 í morgunkaffi. Umsjón Steingrímur Ólafsson
og Eirikur Hjálmarsson. Með morgunkaffinu eru
íþróttaefni, -fíeytendamál, kvikmyndagagnrýni,
Heiðar heiisan og hamingjan. Föst viðtöl eru
daglega kl. 7.40 og 8.45.
9.00 Á nýjum degi. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson.
Fréttir af fólki og hlutum. Kl. 9.30 tónlistarget-
raun.
12.00 Á hádegi. Aðalviðtal dagsins. Menn og mál-
efni í .brennidepli. Hádegisspjall þar sem menn
eru teknir á beinið I beinni útsendingu. Umsjón
Steingrímur Ólafsson og Eirikur Hjálmarsson.
13.00 Með bros á vör. Umsjón: Margrét Hrafnsdótt-
ir. 13.30 Fyrirtæki dagsins. 14.00 Brugðið á leik
í dagsins önn. 14.30 rómantiska hornið. 15.00
Rós i hnappagatið, 15.30 Símtal dagsins.
■16.00 í dag i kvöld. Umsjón' Ásgeir Tómasson.
16.05 Veðrið. Fréttir og fróðleikur. 16.15 Saga
dagsins. 17.00 Getraunin. 17.45 Heiðar, heilsan
og hamingjan. Endurtekið 18.00 Úti í garði.
19.00 Við kvöldverðarborðið. Umsjón: Randver
Jensson.
20.00 Á yfirborðinu. Umsjón: Kolbeinn Gislason.
24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar. Umsjón:
Randver Jensson.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 7-8-9. Hallur Magnússon og Kristín Jónsdótt-
ir ásamt Talmálsdeild Bylgjunnar. Fréttir sagðar
á hálftimafresti milli 7 og 9.
9.00 Fréttir.
9.10 Páll Þorsteinsson með dagbókina á sínum
stað. Vinir og vandamenn kl. 9.30. Iþróttafréttir
kl. 11. Umsjón: Valtýr Björn.
11.00 Ólafur Már Björnsson með tónlist og uppá
komur, m.a. Lukkuhjólið.
14.00 Helgi Runar Óskarsson og það nýjasta i tón-
listinni. Iþróttafréttir kl. 15, Valtýr Björn.
17.00 Siðdegisfréttir.
17.15 Reykjavik siðdegis. Sigursteinn Másson með
málefni liðandi stundar i brennidepli.
18.30 Ágúst Héðinsson á mánudagsvakt.
22.00 Haraldur Gislason.
2.00 Freymóður T. Sigurðsson á næturvappinu.
Fréttir á klukkutimafresti kl. 10, 12, 14 og 16.
EFFEMM
FM 95,7
7.30 Til í tuskið. Jón Axel Ólafsson og Gunnlaug-
ur Helgason Fréttir, upplýsingar og fróðleikur.
7.45 Út um gluggan. Farið yfir veðurskeyti.
8.00 Fréttayfirlit. Gluggað i morgunblöðin.
8.15 Stjörnuspá dagsíns.
REGN
■■■■ Edda Þórarinsdóttir
Ol 30 byijar lestur sumar-
sögunnar Regn eftir
Somerset Maugham á Rás 1
í kvöld. Maugham fæddist árið
1874 og var læknir að mennt,
en þekktastur fyrir skáldsögur
sínar og leikrit. Þekktustu
verk hans eru skáldsagan
Fjötrar og Tunglið og tíeyring-
ur. Af leikritum hans má nefna
Hringirtn og Fyrirvinnuna.
Sagan Regn gerist um regn-
tímann í suðurhöfum. Sagt er
frá Macphail lækni og konu
hans sem verða samferða trú-
boðshjónunum Davison um
Kyrrahafið á leið til eyjarinnar
Apia. A eynni Pagó-Pagó eru
farþegarnir kyrrsettir í hálfan
mánuð vegna mislingafarald-
urs sem þar geisar. Kaupmað-
ur í þorpinu hefur herbergi til
leigu fyrir hjónin. Lítið dregur
til tíðinda þar til bátsmaður
af skipinu biður kaupmanninn
að skjóta skjólshúsi yfir
ungfrú Thompson sem hafði
verið á öðru farrými. Við komu
hennar breytist þessi rólegi,
leiðigjarni biðtími.
MORGUNBLAÐIÐ
UTVARP/SJONVARP d
SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ
39
8.45 Lögbrotið. Lagabúfar leiknir og kynntir.
9.00 Fréttastofan.
9.20 Kvikmyndagetraun.
9.40 Lögbrotið. Nú er komið að því að svara.
9.50 Stjörnuspá. Spáð í stjörnurnar.
10.00 Fréttir. Morgunfréttayfirlit.
10.05 Anna Björk Birgisdóttir. Seinni hálfleikur
morgunútvarps.
10.30 Kaupmaður á horninu. Skemmtiþættir
Gríniðjunnar.
10.45 Óskastundin.
11.00 Leikur dagsins.
11.30 Úrslit.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.15 Komdu í Ijós.
13.00 Sigurður Ragnarsson með á nótunum.
14.00 Fréttir,
14.15 Símað til mömmu.
14.30 Uppákoma dagsins. Hvað gerist?
15.30 Spilun eða bilun.
16.00 Fréttir.
16.05 Hvað stendur til? ivar Guðmundsson.
16.45 Gullmoli dagsins. Rykið dustað af gömlu lagi.
17.00 Afmæliskveðjur. ívar sendir út kveðjur.
17.30 Kaupmaðurinn á horninu. Hlölli í Hlöllabúð
lætur móðan mása.
18.00 Forsíður heimsblaðanna.
18.30 „Kíkt i bíó".
19.00 Kvölddagskrá hefst.
19.00 Breski og bandariski listinn. Valgeir Vilhjálms-
son kynnir.
22.00 Klemens Arnarson.
ÚTVARP RÓT
FM 106,8
9.00 Fjör við fóninn. Bl. morguntónlist. Umsj.:
Kristján.
12.00 Framhaldssagan. Gunnar Helgason les
drengjasöguna Jón miðskipsmaður.
12.30 Tónlist.
13.00MÍUÍ eitt og tvö. Kántri-, blúgrass- og hillbillí-
tónlist. Lárus Óskár velur lög.
14.00 Tónlist.
17.00 Tónlist.
17.30 Fréttir frá Sovét.
18.00 Tónlist.
19.00Skeggrót. Umsj.: Bragi & Þorgeir.
21.00 Heimsljós. Kristileg tónlist umsj.: Ágúst
Magnússon.
22.00 Kiddi i Geisla. Þungarokk m. fróðlegu ivafi.
24.00 Útgeislun. Valið efni frá hljómplötuversl.
Geisla.
STJARNAN
FM 102/104
7.00 Dýragarðurinn. Sigurður Helgi Hlöðversson.
Á bakinu í dýragarðinum. Bjarni Haukur og Sig-
urður Helgi fara með gamanmál, lesa fréttirn-
ar öðruvísi.
10.00 Bjarni Háukur Þórsson og félagar.
12.00 Hörður Arnarsson og áhöfn hans.
15.00 Snorri Sturluson. Slúður og staðreyndir.
18.00 Kristófer Helgason.
21.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir..
1.00 Björn Þórir Sigurðsson. Næturvakt.
LJóðið mitl
EH Valgerður Benedikts-
30 dóttir hefur að undan-
förnu fengið til sín
ljóðaunnendur í þætti sínum Ljóð-
ið mitt sem er á dagskrá Sjón-
varpsins á mánudagskvöldum. í
kvöld ær það Hólmfríður Karls-
dóttir fyrrum heimsfegurðar-
drottning og fóstra sem velur
uppáhaldsljóðið sitt til flutnings.
Það er Alda Arnardóttir sem ætl-
ar að flytja ljóðið sem Hólmfríður
hefur mest dálæti á.
ÍHÁDEGIS-
TILBOÐ
ALLA DAGA
I dag: Klúbbsamloka oq franskar
kr. 395.-
Djúpsteiktur fiskur, salat (eða sósa)
og franskar
kr. 390.-
Tilboðið gildir trá klukkan 11:30 til 13:30.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
í sviðsljósinu
HVERJA mínútu í starfi hef-‘
ur hún tekið á móti að-
dáun, þrá og öfund og sent frá
sér athygli, hlýju og notaleg-
heit. Að fara úr því, hlýtur að
vera eins og að fara af sviðinu,
úr lófaklappi þúsunda og inn í
lítið dimmt herbei'gi." Þessa at-
hugasemd er að finna í frábærri
bók Dorisar Lessing „The Sum-
mer before the Dark“.
Já, það hlýtur að vera erfitt
fyrir þá sem venjast því að baða
sig í sviðsljósi og aðdáun að
missa niður dampinn. Skelfileg
tilhugsun! í
sumar höf-
um við hér
uppi á sker-
inu fengið
ofurlitla
nasasjón af
því hvemig
frægt fólk
ver sig gegn
slíku óláni,
að lenda ut-
an við at-
hyglina,
tímabundið
eða varan-
lega. Myn-
strið er hið sama. Að tryggja
sig með því að ferðast með eig-
in aðdáendahóp, sem hefur það
hlutverk að samsinna, veija fyr-
ir utanaðkomandi óþægindum
eða andmælum og dekra.
Utan að störum við stórum
augum. Fylgdarliðið snýst í
kring um hina frægu persónu,
dálítið taugatrekkt, óttaslegið
um að henni líki ekki, aðvarar
gestgjafana um að hún sé við-
kvæm fyrir þessu og hinu og
heyrist segja sefandi: já, auðvit-
að, alveg eins og þú vilt! Um
að gera að hafa hana góða, láta
hana finna aðdáun og virðingu.
Sama hvort það er hinn frægi
pólski leikstjóri Kantor, sem
kom á Listahátíð, poppstjarnan
Bob Dylan eða kvenréttindakon-
an Betty Friedan. Leikhópur
Kantors var á nálum þangað til
hann kom og létti við að sjá að
meistarinn var ánægður. Fylgd-
arlið hinna svolítið taugastrekkt
og á verði að ekkert yrði stjörn-
unum þeirra mótdrægt. Fjarska
mannleg viðbrögð, meðvituð eða
ómeðvituð, hjá þeim sem komnir
eru upp á að baða sig í frægð
sviðsljósanna. Víst sama hvers
konar frægð, athygli eða fólk
þetta er: stjórnmálamenn, lista-
fólk, kenningasmiðir, þjóðhöfð-
ingjar o. s.frv. Liklega rétt hjá
þeim glögga rithöfundi Doris
Lessing, sem í ofannefndri til-
vitnun var að fjalla um brosandi
móttökustjóra á ráðstefnum og
flugfreyjur með meiru.
Þessi einstaklega næma
skáldsaga á nútímasamfélag var
nýlesin í sumar og dró athygli
að þessu háttalagi. Söguhetjan
er eiginkona læknis, allt um
vefjandi móðir og brosandi hús-
freyja á fallegu heimili. Ýtt út
úr hlutverkinu þegar börnin eru
farin og eiginmaðurinn fjarver-
andi. Þetta er fær kona og lend-
ir — af greiðasemi — sem túlkur
og síðan móttökustjóri á ráð-
stefnum hjá alþjóðastofnuninni
Global Food, þar sem hver
heimsráðstefnan tekur við af
annarri, um tilbúna fæðu í Istan-
búl, um landlæg vandræði á
matvælaflutningum frá þéttbýii
í fátæk stijálbýli o.s.fi-v. í Róm,
Barcelona, Zúrich. Ráðstefnu-
fólkið streymir að, dvelur saman
nokkra daga og móttökufólkið
brosir og leysir allra vanda.
„Hér er hún sem betur fer önn-
um kafin, aðdáanlega önnum
kafin. Þjónustustúlkur, þjónar,
hótelstjórar, bílstjórar, túlkar og
ráðstefnugestir brosa við henni
... hún er manneskjan sem kann
og getur leyst allan vanda og
þarfir þessara erfiðu, gáfuðu,
ofdekruðu, þjónustuvönu barna,
alþjóðlegra stjóra, nýju yfirstétt-
arinnar.“ Nú er einni ráðstefn-
unni að ljúka.
„Kata brosir, brosir, í bjar-
manum af viðurkenningu annars
fólk. Hún geislar sjálf út hjálp-
semi og verrnir. Tilhugsunin um
að brátt muni hún verða ein
eftir, framkallar ýkt viðbrögð.
Hún þekkti þau. Það er ofboð!
Er brosið of breitt? Hún er að
bjóða fram allt sem hún á, eins
og hún hafði verið að gera frá
upphafi ráðstefnunnar, en nú
var það of mikið þegar allir voru
með hugann við að pakka niður
og fara.“ Bjóða fram það sem
hún hefur gert alla ævi á heim-
ili sínu, umhyggju og bros, en
nú er þörfin fyrir það horfin.
Og þar með aðdáunin og ljóm-
inn. Það eru viðbrigði. Hvað
skal gera? Reyna að halda í
það! Auðvitað veija þeir sig sem
náð hafa frægð og fé til að safna
um sig aðdáendum.
í flugi færir Kata þetta yfir
á flugstöðvarfólk. „Þau brosa
og brosa og brosa ... og inni í
flugvélinni eru stúlkur í ná-
kvæmlega sömu stöðu: flug-
freyjurnar, hver og ein þeirra
ölvuð af sinni eigin geislandi
góðvild, sem stöðugt fær hleðslu
af allri þessari athygli ... Þær
senda elskuleg skilaboð um kall-
kerfið. „Okkur þykir vænt um
ykkur, þörfnumst ykkar, komið
aftur, látið ykkur þykja vænt
um okkur.“ Þær ganga fram og
aftur, brosa, brosa, taka við
aðdáun karla og kvenna. Þeirra
hlutverk er að láta dáðst að sér.
Og spennan vex þegar líður á
ferðina ... Maður getur rétt
ímyndað sér að óeirð sé í henni
þegar hún eftir flugið kemur upp
í herbergið sitt, hefur ekki eirð
í sér til að setjst niður, getur
ekki sofið, ekki hætt að brosa,
hefur ekki lyst á mat. Hún er
of upptrekkt til að geta skrúfað
sig niður. Hvernig getur einn
vesalinga maður, ef hún á ein-
hvern, veitt ást í kappi við alla
aðdáunina sem hún er vön að
umvefji hana frá tugum manna
allan daginn? ... Hún hefur verið
sýningarstúlka í 1-6 ár, haft á
sér allra augu allan daginn,
móttakandi aðdáunar hveija
mínútu. Það hlýtur að vera eins
og að stíga út af sviðinu inn í
dimmt herbergi."
Já, það er víst ekki andskota-
laust að missa aðdáun umhverf-
isins þegar manneskjan kemst
einu sinni upp á að baða sig í
athyglinni!