Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 40
MILLILANDAFLUG
Opnum kl. 8:00 alla daga
FLUGLEIDIR JSSr
ttrgunfrliiftife
FORGANGSPOSTUR
UPPL YSINGASIMI 63 71 90
MORGUNBLADH), AÐALSTRÆTl 6,101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTIIÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 22. JULI
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Skattrannsóknarstj óri:
Rannsókn á 55 millj.
króna skattsvikum
Neðanjarðarhagkerfið veltir 20 milljörðum í ár
RANNSÓKN á 55 tnilljón króna skattsvikamáli er nú lokið hjá emb-
ætti skattrannsóknarstjóra. Um er að ræða stærsta skattsvikamál sem
upp hefur komið hérlendis undanfarin 3 ár. Stærsta skattsvikamálið í
fyrra hljóðaði upp á 30 milljónir króna og árið 1988 nam það 42 millj-
ónum króna. Reikna má með að málið sem kom upp í ár verði sent
rannsóknarlögreglunni til meðferðar á næstunni. Ekki fékkst upp gef-
ið hvaða aðili ætti hlut að máli.
Aætlað er að á
þessu ári muni
veltan í neðanjarðar-
hagkerfinu hérlendis
. nema um 20 milljörð-
'f^grum króna. Af þessari
upphæð er skattatap ríkissjóðs var-
lega áætlað um 4 milljarðar króna.
I skýrslu sem nefnd á vegum fjár-
málaráðherra vann árið 1985 og birt
var á Alþingi í apríl 1986 kom fram
að áætlað umfang neðanjarðarhag-
kerfisins hérlendis væri 6% af lands-
framleiðslu. Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að
Út á gúmmí-
bát - inn
á rækjubát
Siglufirði.
SÆRÚN EA kom inn til Siglu-
flarðar í fyrradag með 3-4 tonn
af fyrirtaks rækju og tvo ölvaða
menn sem farið höfðu út á fjörðinn
á gúmmíbát.
Ahöfnin á Særúnu hafði séð
gúmmíbátinn á floti, kannað
málið og séð að ekki var þar allt
með felldu. Mennirnir voru því tekn-
ir um borð og færðir til hafnar á
-Siglufirði ásamt aflanum. Þeim varð
ekki meint af volkinu.
Matthías
Bíivelta í
Vaglaskógi
BILL valt á veginum við Vagla-
skóg í fyrrinótt og skemmdist
talsvert.
Farþegi var fluttur á sjúkrahús
með meiðsli, sem ekki voru talin
alvarleg. Ökumaðurinn er grunaður
um ölvun.
engar þær breytingar hafi orðið í
þjóðfélaginu frá 1985 sem breyti
þeim forsendum sem þessi nefnd
gekk út frá. Vel megi notast við
vinnu hennar tii að meta umfang
neðanjarðarhagkerfisins í dag.
í fyrrgreindri skýrslu voru lagðar
til margar tillögur til úrbóta hvað
varðar eflingu skattaeftirlits. Engin
af þessum tillögum hefur komist til
framkvæmda enn og virðast stjórn-
völd ekki hafa mikinn áhuga á að
beijast gegn skattsvikum hérlendis.
Þannig má nefna sem dæmi að stöðu-
gildum hjá skattrannsóknarstjóra
hefur ekki fjölgað frá árinu 1984
þrátt fyrir að framteijendum hafi
fjölgað um 13.000 frá því ári.
Guðmundur Guðbjarnasson, skatt-
rannsóknarstjóri, segir að eftirlit á
vegum embættis hans með stað-
greiðslu og nú virðisaukaskatti hafi
komið niður á þeim þætti starfsem-
innar sem mannafla er mest þörf,
það er rannsóknum. „Rannsóknir
hafa setið á- hakanum hjá okkur,“
segir Guðmundur. „Með þeim mann-
skap sem við höfum er okkur ékki
kleift að stunda bæði eftirlit og rann-
sóknir svo vel sé.“
Sjá grein á bls. 16.
Farsímakerf-
ið fiillnýtt
eftir 5 - 6 ár
GERT er ráð fyrir að farsíma-
kerfið hér á landi verði fúllnýtt
eftir u.þ.b. 5 - 6 ár. Kerfið er á
450 mejgariðuin og hefúr 180
rásir. I nokkrum borgum á
Norðurlöndum hefur verið tekið
í notkun nýtt farsímakerfi jafh-
hliða þeim sem eru eins og hér
er notað. Albert Óskarsson
verkstjóri hjá Pósti og síma seg-
ir að slík kerfi búi yfir svipuðum
möguleikum. Munurinn liggi í
því að nýja kerfið er á 900 mega-
riðum og hefur 500 rásir.
0
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumar við Seljavallalaug
Tíkin Jósefína, sem er af St. Bernharðskyni, naut lífsins við Seljavalla-
laug undir Eyjafjöllum á dögunum. Margir sjá slíka hunda fyrir sér
að beijast áfram í snjósköflum, villtum ferðalöngum til bjargar, með
litla koníakstunnu um hálsinn. Jósefína kunni hins vegar greinilega
vel við sig við sundlaugina í góða veðrinu.
Af 180 rásum
farsímakerfis-
ins eru 120 í notkun
á Reykjavíkursvæð-
inu og 16 á Akur-
eyrarsvæðinu.
Sífellt er verið að bæta kerfið að
sögn Alberts. Ef hörgull verður á
rásum er t.d. hægt að minnka aflið
á stöðvunum tveimur á Reykjavík-
ursvæðinu, í Öskjuhlíð og á Rjúpna-
hæð, og dreifa rásunum á fleiri
stöðvar svo að rásirnar nýtist betur.
„Þetta 900 megariða kerfi verður
væntanlega ekki tekið í notkun hér
á landi. Búist er við að árið 1992
verði tekið í notkun nýtt stafrænt
kerfi erlendis. Því fylgja allt önnur
tæki og nýjar móðurstöðvar og þar
sem þetta verður framtíðarkerfi
fyrir farsíma er líklegt að allsheijar
endurnýjun muni eiga sér stað hér
á landi þegar það verður komið í
gagnið," sagði Albert.
Sum vestfirsk frystihús lokuð þrátt fyrir mokveiði:
Vinnum eins og’ þrek leyfir
- segir Jón Kristmannsson verkstjóri hjá Ishúsfélagi Isfirðinga
„ÞÓTT við eigum mikinn kvóta getum við ekki keyrt svona áfram í
næstu viku,“ segir Asgeir Guðbjartsson skipsfjóri á Guðbjörginni frá
Isafirði. Jón Kristmannsson verksfjóri hjá Ishúsfélaginu segir að unn-
ið verði eins og þrekið leyfi úr aflanum. Annars taka frystihúsamenn
á Vestfjörðuni því yfirleitt rólega þessa dagana þrátt fyrir mokveiði
af þorski, vinnsla er víðast í venjulegum takti og veiðin haggar ekki
sumarlokunum. Dæmi eru að vísu um helgarvinnu og að byrjað sé fyrr
á morgnana.
Þetta er auðvitað sýnd veiði en
ekki gefin þegar ekki má veiða
fiskinn. Mjög margir eru að treina
sér kvótann," segir Baldur Jónsson
forstjóri Fiskiðjunnar Freyju á Suð-
ureyri. Togarinn þar er í klössun og
fimm vikna sumarleyfi hófust í júlí-
byijun. Á Hnífsdal verður unnið út
næstu viku en síðan gert tveggja
vikna hlé. Norðurtanginn á ísafirði
hefur verið lokaður í viku og sumar-
leyfi standa í hálfan mánuð enn. I
Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar verður
lokað fyrri hluta ágústmánaðar.
Guðbjörgin kom til ísafjarðar í
fyrrakvöld eftir fjögurra sólarhringa
túr með 330 tonn af jiorski. Þorri
aflans verður unninn í Ishúsfélaginu
49 ára
fréttamynd
Þessi einstaka 49 ára gamla frétta-
mynd er af þýska kafbátnum U
570. Myndin var tekin af Skúla
Þorvaldssyni, útgerðarmanni í Þor-
lákshöfn, 30. júní 1941 og hefur
aldrei birst áður. Hún sýnir U 570
í fjörunni fyrir innan Þorlákshöfn,
en Bretar drófu kafbátinn þangað
eftir töku hans á Selvogsgrunni.
Kanadískur flugmaður á Hudson
flugvél fann bátinn á siglingu, eftir
aðeins nokkurra mínútna flug frá
Kaldaðarnesi, í sinni fyrstu flugferð
á íslandi.
Sjá nánar á bls. 10-11 c
í næstu viku en um 70 tonn fara
utan í gámum. Jón Kristmannsson
verkstjóri segir yfirdrifið nóg að
gera í vinnslunni. „Við byijum
klukkan sjö á mánudagsmorgunn á
fiskinum úr Guðbjörginni og verðum
líklega út vikuna. Þetta er rnikið
unnið á hraðvirkari hátt en venju-
lega, í stórar pakkningar og minna
skorið fyrir Frakkland og Bretland.
Við getum verið ánægðir, vinnum
eins og þrekið leyfir en ætlum þó
að taka frí um verslunarmannahelg-
ina.“
Einar Oddur Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Hjálms á FÍateyri seg-
ir mikið hafa verið að gera þar að
undanförnu. „Við ætlum að taka frí
um helgina og landa á mánudaginn.
Fólkið hefur unnið síðustu helgar
og það er erfitt að hámarka vinnslu-
virði fisksins þegar svona mikið
magn berst.“
Einar K. Guðfinnsson í Bolung-
arvík segir að hæfilega mikið hafi
verið að gera hjá íshúsfélaginu að
undanförnu. „Við viljum fara okkur
hægt núna til að eiga kvóta upp á
haustið, þannig að við getum haldið
uppi fullri vinnu hér út árið.“ segir
Einar K. Guðfinnsson.
Alda Gylfadóttir, verkstjóri hjá
Fáfni hf. á Þingeyri, segir að nú
gangi vinna í frystihúsinu fyrir sig
eins og venjulega en búist sé við að
hún taki kipp í næstu viku. Þá verði
byijað fyrr á morgnana og unnið
verði næsta laugardag.