Morgunblaðið - 12.08.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.08.1990, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 180. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Magellan kom- inn á rétta braut FÖGNUÐUR braust út í stjórnstöð banda- rísku geimferðastofnunarinnar NASA i Pasadena í Kaliforníu þegar ljóst var að eldflaug um borð í Venusarfarinu Magell- an hefði beint því á réttan sporbaug um Venus. Breska útvarpið BBC skýrði frá því í gær, að NASA teldi að Magellan væri örugglega á rétíri braut. Kveikt var á eldflauginni um borð í farinu kl. 16.41 að íslenskum tíma á föstu- dag (ekki laugardag eins og misritaðist hér í blaðið í gær). Var Magellan þá yfir norðurpól Venusar. Forráðamenn NASA binda miklar vonir við rannsóknir Magell- ans á Venusi og að með þeim takist að styrkja stöðu stofnunarinnar, sem hefur átt undir högg að sækja vegna ýmissa mistaka. Dómur fallinu í máli Barrys MARION Barry, fyrr- verandi borgarstjóri í Washington, höfuð- borg Bandaríkjanna, var á föstudag dæmd- ur í allt að eins árs fangelsi og 100.000 dala sekt fyrir kókaín- notkun og -eign. Hann var sýknaður af ann- arri svipaðri ákæru en í 12 kókaín- og meinsærisákærum gat kviðdómur ekki komið sér saman um úr- skurð. Dómurinn þykir algjör ósigur fyrir ákæruvaldið en starfsmenn þess hafa eytt mörgum árum í að reyna að sanna kókaín- misnotkun á Barry. Deilt um bæna- hald í skólum Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Mor^unblaðsins. SKOLASTJÓRN í Salt Lake City í Utah- ríki hefur verið kærð fyrir að leyfa bæna- hald við skólauppsögn. Byggist kæran á ákvæðum í bandarísku stjórnarskránni um skil milli ríkis og trúarbragða. Mannréttindafélag Bandaríkjanna stendur að þessari kæru. Ríkisstjóri Utah, er talinn í hópi þeirra, sem telja að bænahald í skólum sé hollt fyrir nemendur og kenn- ara. Hann hefur samþykkt að ríkið taki á sig málskostnað vegna kærunnar, þar sem nauðsynlegt sé að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll, hvort bannað sé að stunda bænir opinberlega innan skólaveggjanna. Morgunblaðið/RAX Mannamót í miðbænum Irakar fordæma samþykkt Arababandalagsins; Egyptar og Sýrlendingar senda herlið til Saudi-Arabíu Bagdað, Nikósíu, Washington, Kaíró. Reuter. STJORNVOLD í Irak fordæmdu í gær þá samþykkt aðildarríkja Arababandalags- ins að senda sameiginlegt herlið til Saudi-Arabíu til að verja landið fyrir hugsan- legri árás. Herlið frá Egyptalandi hélt til Saudi-Arabíu og hermt var að Sýrlend- ingar og Marokkóbúar hefðu einnig ákveðið að koma landsmönnum til varnar. I opinberu málgagni stjórnar Saddams Husseins íraksforseta sagði að Saudi-Ar- abar bæru beina ábyrgð réðist herafli Bandaríkjanna eða annarra ríkja á írak. Málgagn írösku ríkisstjómarinnar, a 1- Jumburíya, sagði fund 20 aðildarríkja Arababandalagsins þafa verið „samkundu illmenna11 en á fundinum, sem lauk á föstu- dag, tóku fulltrúar 12 ríkja afstöðu gegn írökum. Málgagnið sagði „samsærismenn- ina“ hafa farið í einu og öllu að vilja „hús- bænda“ þeirra í Bandaríkjunum og fagn- aði því að eining hefði ekki ríkt á fundin- um en Irak, Líbýa og Frelsissamtök Pal- estínu greiddu atkvæði gegn lokaályktun- inni. Því var jafnframt lýst yfir að Saudi- Arabar yrðu gerðir ábyrgir ef ráðist yrði á írak þar sem stjórnvöld þar í landi hefðu tekið við liðsafla erlendra rikja. Saudi- Arabar og stuðningsmenn þeirra yrðu að vera undir það búnir að taka afleiðingum gjörða sinna. Dagblöð í Egyptalandi skýrðu frá því í gær að Sýrlendingar, Egyptar og Mar- okkóbúar hefðu ákveðið að senda herlið til Saudi-Arabiu. Sýrlenskir embættismenn staðfestu þessa frétt í gærmorgun og Hosni Mubarak Egyptalandsforseti sagði herliðið á leið til landsins. Viðbúnaður vestrænna ríkja i nágrenni Persaflóa fer einnig dagvaxandi. í gær var tilkynnt að þijú kanadísk herskip yrðu send inn á fló- ann og hermt var að Spánveijar hefðu ákveðið að leggja fram skip. Þá lýstu stjórnvöld í Noregi og Danmörku sig tilbú- in til að leggja sitt af mörkum. Er talið að dönsk og norsk herskip muni taka að sér aukið eftirlit innan varnarsvæðis Atl- antshafsbandalagsins. David Coverdale 14 WH "mp .. 1 Lj m ÍKE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.