Morgunblaðið - 12.08.1990, Page 14

Morgunblaðið - 12.08.1990, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 EKKERT HALFKAK Eftir Andrés Mognússon. Eins og landslýð ætti að vera kunnugt sækja þ ungarokkssveitirnar Whitesnake og Quireboys ísland heim í byrjun sept- ember. Sveitirnar munu halda hér tvenna tónleika og miðað við miðasölu nú þegar virðist áhugi inn- fæddra mikill. David Cov- erdale, söngvari og for- sprakki Whitesnake, á meira en 17 ára feril að baki og miðað við vel- gengnina nú má ætla að hann eigi mörg ár eftir. Coverdale komst fyrst í sviðsijósið árið 1973 þeg- ar hann gekk til liðs við frumþungarokkssveitina Deep Purple og tók við stöðu söngvarans Ian Gill- an (þess er söng hlutverk frelsarans í Jesus Christ Superstar). Ferillinn hef- ur gengið upp og ofan eins og verða vill í þess- ari atvinnugrein — alvar- leg veikindi drógu hann nærri til dauða og gerðu hann raddlausan í rúmt ár — en hverju sem á hefur gengið hefur Cov- erdale aldrei glatað tryggum aðdáendahópi. Stjarna hans hefur þó að líkindum aldrei risið hærra en nú, eins og sjá má á því einvalaliði, sem hann hefur sankað að sér í Whitesnake. Morgun- blaðið átti viðtal við Cov- erdale og forvitnaðist fyrst um hvað það sé, sem haldi mönnum við efnið í sautján ár... etta er náttúrulega hryllileg klisja, en það er þetta ógn- vekjandi náttúruafl Rokkið, sem rekur mann áfram. Auð- vitað eru óteljandi þættir aðrir, sem eiga sinn hlut að máli, en ef það er eitthvað eitt, þá er það rokkið. Þá á ég ekki við alla þá hluti, sem einatt eru tengdir rokkinu, æsilegan lifnað, ferðalög, sífelld veisluhöld og svo framvegis, heldur þá ánægju og spennu, sem er því samhliða að standa á sviðinu frammi fyrir nýjum áheyrendaskara, hella sér út í rokk- ið og fínna hvernig fjöldinn hrífst með. Þá veistu að þú ert að gera góða hluti.“ Þú verður ekki feiminn við það að standa í sviðsljósinu með ekkert nema hljóðnemasúluna á milli þín og áhorfenda? „Satt best að segja var ég beinlín- is lamaður af sviðshræðslu þegar ég var að byija í þessum bransa. Þá var ég öldungis óþekktur strák- ur frá Norður-Englandi, nýbyijaður með hljómsveit, sem hafði getið sér heimsfrægð með öðrum söngvara og þurfti að sanna mig fyrir tugþús- undum aðdáenda, sem voru hreint ekki allir ánægðir með mannabreyt- ingarnar. Það skrýtna var, að ég brást við þessu með því að hlaupa fram á sviðið og kalla til áheyr- enda, hafði mig mikið í frammi og var eins og vélbyssukjaftur milli laga. Og þetta virkaði. Menn höfðu beinlínis orð á sviðsöryggi þessa unga pilts frá Jórvíkurskíri!" Og núna? „Skjálftinn er farinn, en ég verð alltaf taugaóstyrkur hálftíma fyrir tónleika. Um leið og við hlaupum inn á sviðið rýkur sú taugaveiklun hins vegar út í veður og vind. Þrátt fyrir allt þá erum við atvinnumenn." Hvernig hefur hljómleikaferðin gengið fram að þessu? „Hún hefur gengið stórvel fram að þessu. Við erum í þann veginn að taka okkur stutt hlé til þess að safna kröftum fyrir nokkra tónleika í Evrópu og þessa tvenna tónleika á íslandi og síðan höldum við til Japans." Á leið í frí eftir (j ögurra ára keyrslu Og hvað svo? „Ætli við tökum okkur ekki langt frí þá. Menn eru orðnir lerkaðir og þurfa á hvíldinni að halda — sér- staklega ég. Ég hef í raun ekki fengið neitt frí í meira en fjögur ár og mér fínnst tími til kominn að maður fái að njóta ávaxtanna.“ David Coverdale, söngvari Whitesnake í viötali við Morgunblaöið •'MÁ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.