Morgunblaðið - 12.08.1990, Síða 15

Morgunblaðið - 12.08.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 15 Ertu farinn að vinna að nýju efni nú þegar eða á að taka sér alvöru frí? „Þetta verður alvöru frí. Það er kominn góður tími á að taka lífinu með ró og pæla svolítið í málunum — bæði hvað starfið varðar og einkalífið (hnerrar) ... afsakið ... og svo þarf ég að losna við þetta kvef. Ég hef í raun ekki haft neinn tíma til þess að velta fyrir mér hvort þetta sé endilega sú braut, sem ég vil feta. Annars mun mér örugglega líða böjvanlega við að gera ekki neitt. Ég hugsa að ég muni fást við einhver smáverkefni, lag og lag fyrir kvikmyndir eða eitthvað í þá veru. Ekki neitt, sem er tímafrekt, því ég þarf virkilega á fríi að halda.“ En hvernig er það með öll þessi hljómleikaferðalög og svo framveg- is. Nú kvæntist þú fyrir tveimur árum eða svo ... „Já, hveitibrauðsdagarnir voru einn og hálfur. Ekki svo að skilja að ég sé að kvarta, því við erum saman eins mikið og kostur er. En þegar við erum ekki á sviðinu eða í viðtölum virðist fólk halda að við séum bara heima í rólegheitum. En þetta er stanslaus vinna. Við erum í stúdíóum, gerum myndbönd, för- um í auglýsingaferðalög, áritum plöturnar og svo framvegis, þannig að það gefst aldrei neinn tími.“ Þekkir ísland úr lofti Hvernig líst þér á að leika á ís- landi? Þú hefur ekki komið hingað áður, er það? „Nei, aldrei. En ég hlakka mikið til að koma, því ég hef heyrt mikið af íslenskri gestrisni látið. Ég hef flogið yfir það að minnsta kosti þúsund sinnum svo ég þekki það úr lofti. Satt besta að segja veit ég ekki mikið um landið, en ég ætla að lesa mér til um það áður en ég kem. En seg mér, er sól á lofti all- an sólarhringinn?" Það er bjart allan sólarhringinn, en hún sest í nokkra tíma yfir há- nóttina. „Góðan daginn!" Ég hleraði að þú ætlaðir að renna fyrir lax hérna. Er eitthvað hæft í því? „Það er ekki komið á hreint enn- þá. Það tóku nokkrir vinir mig með sér í veiði fyrir skömmu og mér fannst það frábært. Málið er nefni- lega að þessar fáu tómstundir á tónleikaferðalögum geta verið erf- iðar ef maður er ekki þeim mun meira samkvæmisljón. Það er von- laust að reyna að fara í gönguferð án þess að þurfa að hrista spaðann á aðdáendum og gefa þeim eigin- handaráritanir eða að slappa al- mennt af. En þessir vinir mínir fóru sumsé með mig í veiðitúr og það hreint dásamlegt. Það var bara eins og maður slökkti á umheiminum. Og þetta er nokkru heilsusamlegra en eiturefnaneysla, sem hefur drep- ið alltof marga í þessum bransa." Hvað er mikill mannskapur í kringum tónleikana fyrir utan ykk- ur fimm í bandinu? „Við erum með einn hljómborðs- leikara, sem situr afsíðis og sér um strengjaundirleikinn, og svo er á fimmta tug aðstoðarmanna af öllum stærðum og gerðum." Mér er sagt að tónleikarnir í Bandaríkjunum hafi verið sérlega glæsilegir, en þið getið væntlega ekki verið með allar þær græjur með ykkur. Hversu umfangsmiklir verða tónleikarnir hér? „Satt best að segja veit ég það bara ekki. Ég legg allt slíkt í hend- ur framkvæmdastjóra hljómleika- ferðarinnar, Jimmy Ayres, og hans manna. Ég treysti þeim bara til þess að sjá um þessa dagskrá. Ég veit til dæmis að á tónleikunum hérna í St. Johns Beach í kvöld þurfum við að skera ljósin við nögl, en þó ekkí meira en svo að áheyr- endur eiga ekki að þurfa að ör- vænta. En égget lofað öllum aðdá- endum okkar á Islandi því að við gerum okkar besta til þess að þetta verði alvöru rokktónleikar. Og þeg- ar Snákarnir eiga í hlut er það ekki svo lítið! Aðalatriðið er það að við mætum á svæðið.“ Hvernig dagskrá eruð þið með? „Mér finnst þetta vera nokkuð gott yfirlit yfir sögu Whitesnake, því að við tökum talsvert af gömlu lögunum eins og Here I Go Again, Crying In the Rain, Fool for Your Lovin’, Ain’t No Love in the Heart of the City, sem og efni af Slide It In, 1987 og Slip of the Tounge, sem við höfum verið að kynna fyrir bandaríska markaðnum." Sérðu fram á að taka fleiri göm- ul lög á næstu plötum? „Eg held ekki. Við erum búnir að hálfklára fimm gömul lög í við- bót, en það er ekki víst að við gef- um þau nokkurn tíman út. Mér finnst bara svo gaman að semja með Adrian [Vandenberg]. Við vor- um reyndar að leika okkur með nýtt lag í gær, en hvorugur okkar hefur haft geð í sér til þess að semja nokkuð í hálft ár. Hvernig fólk getur samið lög á tónleikaferðalög- um verður mér ávallt hulinn leynd- ardómur. Hvað um það, við vorum beðnir um semja lag fyrir næstu Clint Eastwood-mynd og sömdum bara nokkuð gott lag, hvort sem við munum taka það upp eða ekki. En okkur finnst mjög þægilegt að vinna með hvor öðrum, því erum mjög góðir vinir og engin egó- vandamál til staðar." Hrakfallabálkar undir þrumuskýi Já, þið semjið mikið saman — sömduð til dæmis nær allt efnið á Slip of the Tounge, en samt sá Steve Vai um allan gítarleik á plöt- unni ... „Jú það er rétt. Við sömdum öll lögin áður en við fórum í stúdíó, en í millitíðinni slasaði Adrian sig þannig að hann gat ekki neitt spil- að, blessaður drengurinn. Hann notaði eitthvert töfratæki til þess að þjálfa fingur- og handvöðvana og var kominn inn á spítala innan tveggja sólarhringa. Það var ljóst að hann gæti ekki leikið á gítarinn í nokkra mánuði, svo að ég spurði hann hvort hann væri mótfallinn því að ég fengi Steve til liðs við okkur. Hann hélt nú ekki, ég hringdi í Steve og hann kom og reddaði málunum." Þið eruð hrakfallabálkar. Þú misstir röddina út af ennisholusýk- ingu fyrir nokkrum árum, svo kem- ur þetta fyrir Adrian. „Já, ég veit ekki hvað er að ger- ast. í þessari hljómleikaferð hef ég snúið mig á ökla, snúið mig á hné, tognað á hægri handlegg og tognað á vinstri úlnlið, Adrian tognaði á ökla og hefur verið slæmur í baki og hinir strákarnir hafa líka lent í hinu og þessu. Það hefur talsvert að segja fyrir líkamann að vera allan daginn um borð í rútu. Það eina, sem maður getur gert, er að stunda líkamsræktina og borða skynsamlega. í ofanálag bætist að hvert sem förum er ný kvef- eða inflúensuveira, sem gerir okkur fyr- irsát. En við verðum að halda.okk- ar striki, sama hvað á gengur.“ En hljómleikaferðin hefur gengið vel að öðru leyti? „Tja, veðrið hefur verið vonlaust. Við byijuðum í Norðausturríkjunum og það var hellirigning fyrsta kvöld- ið og það hefur rignt á okkur síðan." Ekki hefur veðrið verið stanslaus viðbjóður? „Orðið „viðbjóður“ hefur reyndar komið komið æði oft upp í hugann. Við komum til einhverrar borgar og okkur er sagt að sól hafi skinið í heiði í gær og vitaskuld er mígandi í dag. Þegar við erum með útitón- leika er þrumuguðinn heiðursgest- ur. Raunar datt okkur í hug að bjóð- ast til þess að vera aðalnúmerið á FarmAid-tónleikunum [til styrktar bændum] ef það kemurtil þurrka!“ En svo við snúum okkur aftur að dagskránni; takið þið eitthvað af gömlu Deep Purp/e-lögunum, eins og Mistreated? Nei. Ég var að velta Mistreated fýrir mér, en það er bara ekki tími til þess að æfa það. Það eru allir of þreyttir til þess að fara, að snúa sér að nýju efni. Við fáum smátíma til æfínga í Portúgal, en við þurfum að nota hann til þess að æfa White- snake-lög, sem við þurfum að dusta rykið af. Síðan held ég að það sé ekkert sniðugt gagnvart strákunum í bandinu. Ef ég vildi taka gömlu lögin væri nær að halda endurvakn- ingartónleika með gömlu White- snake.“ Hvað er annars að frétta af for- ingjunum, sem voru með þér í Whitesnake í gamla daga? „Neil Murray og Cozy Powell eru að ég held með Black Sabbath, Bernie Marsden fæst við lagasmíðar og ég hef bara ekki hugmynd um hvað Mickey Moody er að gera. Ég held ég hafi síðast talað við hann snemma í fyrra.“ Nú var Ian Gillan að hætta í Deep Purple öðru sinni ... „Það halda margir að ég hugsi mikið um Purple af því að ég var einu sinni með bandinu, en ég pæli voða lítið í því. Ég veit að Joe Lynn Turner er farinn að syngja með þeim, þannig að ég ímynda mér að þetta sé líkara Rainbow. Sem var líklegast það, sem Ritchie [Black- more gítarleikara] ætlaðist fyrir hvort eð var ... En ég sakna Jon Lord [orgelleik- ara] mjög mikið. Sem vinar, hann er afbragð annarra tnanna." Ég hef heyrt þá gagnrýni á Bret- landi að Whitesnake hafi gengið iðnaðarrokkinu á hönd, séu of amer- ískir og svo framvegis. Finnst þér hún réttmæt? „Hreint ekki. Og ég held að þessi gagnrýni komi aðallega frá atvinnu- gagnrýnendum, sem ekki mega neitt amerískt sjá, en ekki aðdáend- um okkar. Hafi einhver orðið fyrir vonbrigðum get ég ekki sagt annað en ,afsakið‘, en ég breytti náttúru- legá ekki um stíl gegn samvisku minni. Annars finnst mér þessi gagnrýni út í bláinn, því White- snake sótti frá upphafi fyrirmyndir sínar til ameríska blússins. Við stilltum bara gítarana hærra. Það sem er til í þessu er það, að White- snake stenst núna samkeppni á Ameríkumarkaði." Gamla efnið hefur þá verið of slappt til þess að eiga möguleika vestra? Ég veit ekki... í hvert skipti, sem ég gaf út plötu, sögðu allir við mig: „Þessi plata er sniðin fyrir Ameríku," en fyrrverandi umboðs- maður minn gerði hvern samning- inn öðrum ömurlegri við bandarísk dreifingarfyrirtæki, þannig að áður en yfir lauk vorum við á blaði hjá fjórum fyrirtækjum og seldum aldr- ei neitt, sem heitið gat. Og í raun töldum við aldrei möguleika á að við næðum árangri þar, létum vera að spila þar og svo framvegis. En hvað sem því líður, þá held ég að allt hafi sínar ástæður. Þegar ég fór að vinna aftur eftir veikindin árið 1987, þurfti ég að vinna upp glötuð ár. Og ég efast um að ég hefði náð þeim árangri, sem raun ber vitni, án þessara piíta, sem ég hef verið að vinna með. Hins vegar er hitt athuglisvert að eftir að við höndluðum frægðina hér vestra hafa gömlu Whitesnake-plöturnar selst prýðilega. En það er engin trygging til fýr- ir velgengninni. Það eina sem ég get gert er að fara inn í hljóðver með þann ásetning að gera bestu plötu, sem ég get gert. Ég er til dæmis í skýjunum yfir Siip of the Tounge. Ég heyri út undan mér að fólki finnst kannski fullmikill og flókinn gítarleikur á plötunni, en mér finnst hún alls ekki verri fyrir vikið. Ef þetta yrði síðasta White- snake-platan, held ég að ég gæti vel við hana unað sem lokaplötu." En hvað um Steve Vai? Hefur hann spilað eitthvað á plötunni, sem Dave Lee Roth er með í smíðum? „Ég held ekki. Steve er upptekinn við að koma sólóplötu sinni, Passion and Warfare, á framfæri.“ Er eitthvað af henni leikið á tón- leikunum? „Ójá. Hann tekur For the Love of God inn í sólókafla hans á tón- leikunum, sem er vægast sagt rosa- SAGA SNÁKANNA David Coverdale hafði sungið með blús-jjg þjóðlagahljóm- sveitum þegar hann var ráð- inn til Deep Purple síðla árs 1973 til þess að fýlla skarð það, er Ian Gillan skildi eftir sig. Þargat Coverdale sér gott orð, en hann söng inn á þijár plötur með sveit- inni áður en hún lognaðist út af. Skömmu síðargaf Coverdale út sólóplötuna Whitesnake, en þar gætti bandarískra blúsáhrifa tölu- vert. Seinna stofnaði hann hljóm- sveitina með sama nafni, en hún sló ekki í gegn fyrr en tveir gaml- ir félagar úr Deep Purple, þeir Jon Lord orgelleikari og Ian Paice trumbuleikari, höfðu bæst í hóp- inn. Plötur á borð við Ready ’n’ Willing og Come an’ Get It komu út á þessum tíma og naut sveitin talsverðra vinsælda bæði hér á landi og á Bretlandi fyrir vikið. Þótti til dæmis merkilegt að lagið Fool for Your Lovin’ komst inn á lista 20 vinsælustu laga á Bret- landi, en þar hafði þungarokk ekki heyrst eða sést um árabil. Seinna hallaði undan fæti, hljóm- sveitarmeðlimir hættu einn af öðrum og á tímabili var hljóm- sveitin aðeins tríó með fjórða mann á mála. Þegar nýr gítarleik- ari, John Sykes, gekk til liðs við við Coverdale tók hljómsveitin miklum breylingum, tónlistin varð mun rokkaðri en fyrr, en þótti samt líklegri til vinsælda. Um svipað leyti dúndi ógæl'an yfir, því Coverdale fékk heiftarlega ennisholussýkingu, svo hann þurfti að gangast. undir uppskurði og var meira og minna frá í rúm tvö ár. Sykes beið á meðan og samdi lög af miklum móð og þeg- ar Coverdale hafði jafnað sig varð platan 1987 til. Ekki er að orð- lengjaþað, að hún sló rækilega í gegn, en þegar þar var komið við sögu vildi Sykes ekki fara í hljóm- leikaferð. Þurfti Coverdale því að ráða til sín hljóðfæraleikara eina ferðina enn, en Sykes hætti (síðan hefur hann stofnað sveitina Blue Murder, sem gaf út prýðilega skífu með sama nafni). Coverdale fékk til sín hollenska gítarleikar- ann Adrian Vandenberg, Vivian Campell fyrrverandi gítarleikara í Dio, bassaleikarann Rudy Sarzo úr Quiet, Riot (lék einnig með Ozzy Osbourne) og trumbuleikar- ann , sem leikið hefur með fleiri sveitum en hér er rúrn að telja upp. Vivian Campell heltist síðar úr lestinni, en gítarsnillingurinn Steve Vai, sem verið hefur for- ingjum á borð við Frank Zappa, John Lydon og David Lee Roth til fulltingis, steig á stokk í hans stað. Þannig skipuð leikur Whit- esnake hér. legt gítarsóló. Svo tökum við líka The Audience is Listening. Þetta er frábært efni... ekki bara tónlist- arlega heldur líka hvað sviðfram- komuna varðar.“ En nú ert þú á leiðinni í frí. Ein- hver hugmynd um hversu lengi? „Nei. Það fer bara eftir því hvern- ig maður verður á sálinni. Sem stendur vil ég ekki ráðgera neitt. Vera í fríi. Ég ætla bara að setja símsvarann í gang og skilaboðin á henni verða: „Farinn í lax“. Ég vil geta verið með konunni minni. Við erum að hugsa um að stofna fjölskyldu og svo framvegis." Frægðin tekin frillutaki Þú byriaðir með Deep Purple, hvað ... 1974? „73.“ Jájá, þannig að það eru ... „Þá meina ég 1873. Þannig að ég er búinn að vera í bransanum í 117 ár.“ Já. Nú hefur þetta gengið upp og ofan þessi 117 ár eins og geng- ur, en síðastliðin 5 ár eða svo hefur þungarokk notið meiri vinsælda en nokkru sinni fyrr. Finnst þér þú hafa valdið einhveiju þar um, eða hefur þú bara notið heppilegra kringumstæðna? „Tja, ef maður gerir frægðina að hjákonu sinni, verður maður líka að sætta sig við duttlunga hennar. Ég held að Whitesnake hafi rutt úr vegi hindrunum fyrir hljómsveit- ir eins og Guns ’n’ Roses og Ae- rosmith þegar þeir fóru af stað á nýjan leik. Við nutum hins vegar þess að Bon Jovi höfðu greitt götu okkar og annarra þungarokkssveita inn á öldur ljósvakans. 1986 sló Europe í gegn í Evrópu með Final Countdown. Fram að því var ein- faldlega ekkert rokk i útvarpi í Evrópu. En þetta hefur dalað.nú þegar. Önnur hver rokkútvarpsstöð í Bandaríkjunum er farin að leika danstónlist. Ég öfunda engan af því að fara í tónleikaferð núna. Þetta er algjört blóðbað. En ég hugsa að þetta lagist eftir eitt eða tvö ár.“ En takmarkar útvarpið þig ekki? Lög í útvarpi mega helst ekki vera meira en þriggja mínútna löng og svo framvegis. „Ég held að það sé eiginlega breskt vandamál. Still of the Night sló í gegn þó að það væri sjö mínútna langt.“ Já, en það var alger undantekn- ing, ekki satt? Auk þess sem að í miðju laginu kom afskaplega róleg- ui' kafli. „Jú, það má kannski segja það. En það er ekki hægt að vera sífellt að reyna gera einhveijum óskil- greindum aðilum til hæfis. Þá er maður farinn að svíkja sjálfan sig. Og það er ekki alltaf hægt að feta hinn gullna meðalveg. I þessu til- viki tókum við kannski áhættu, en það kom í ljós að áheyrendur voru tilbúnir til þess að hlusta á sjö mínútna Iög. Vogun vinnur, vogun tapar, en vogi maður sér aldrei neitt er maður dauðadæmdur. Heyrðu, það er verið að æpa á mig að ég eigi að vera kominn inn í hljómleikahöll til þess að reyna hljóðkerfið, þannig að ég þarf að þjóta. Var það eitthvað fleira, kunn- ingi?“ Ja, ekki nema þú viljir spyija mig einnar spurningar. „Já, hvað á ég að fá mér að borða á Islandi? Hverju státið þið helst af?“ Þú vilt örugglega fá þér glænýjan fisk. „Já, auðvitað. Hvernig læt ég? Þið eruð með besta fisk í heimi. Hvernig er hann borinn fram?“ Á veitingastöðum er franska eld- húsið í hávegum haft, en mér finnst alltaf best að fá nýsoðna ýsu með kartöflum og smjöri hjá mömmu minni ... „Hljómar dásamlega! Skilaðu kveðju til allra íslenskra White- s/ia/ce-aðdáenda. Ég hlakka mikið til að koma og hinir strákarnir sömuleiðis. Við ætlum að leyfa ís- lendingum að heyra alvöru rokk og ekkert hálfkák. Maður kann þetta eftir 117 ár í faginu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.