Morgunblaðið - 12.08.1990, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990
ATVINNUA UGL YSINGAR
Þjónusta
á rafeindavogum
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að
ráða rafeindavirkja eða rafvirkja í þjónustu-
deild okkar í Reykjavík.
Póls-tækni hefur í 12 ár framleitt tölvuvogir
og hugbúnað fyrir fiskvinnslu og annan iðnað
innanlands og erlendis.
Umsóknir sendist okkur fyrir 20. ágúst
merktar:
Póls-tækni hf., b.t. Hilmars Sigurgíslasonar,
þjónustustjóra, Síðumúla 37,108 Reykjavík.
Sindragötu 10, ísafirði,
Síðumúla 37, Reykjavík.
VEITINGAHÚS
ÁRBERG
ÁRMÚLI21 108 REYKJAVÍK
Veitingahúsið
Árberg, Armúla 21
óskar eftir að ráða matreiðslumann til starfa
í haust.
Skrifleg umsókn og meðmæli leggist inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 18. ágúst merkt:
„Á - 9450“.
Sölustjóri
Heildverslun með barnavörur óskar eftir að
ráða sölustjóra til að sjá um sölu og innkaup.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt
og hafa trausta og góða framkomu.
Góðrar enskukunnáttu er krafist.
Reyklaus vinnustaður.
Eiginhandarumsóknir, með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 21. ágúst, merktar:
„N - 13660“.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Framreiðslumenn
Óskum eftir framreiðslumönnum frá og með
1. september.
Upplýsingar gefur veislustjóri á staðnum
næstu daga milli kl. 12.00 og 17.00.
Sigtúni 38, Reykjavík.
Sölufólk
Áhugasamt og vandvirkt sölufólk óskast itl
starfa fyrir bókina íslensk fyrirtæki frá 20.08
til 31.10. 1990.
Upplýsingar um starfið veitir Hanna Eyvinds-
dóttir dagana 14., 15. og 16. ágúst í síma
82300.
fflFRÓDI
|_™»J BÓKA & BLAOAÚTGÁFA
Aðalskrifstofur: Ármúla 18, 108 Reykjavík,
sími 82300.
Sambýli
Deildarþroskaþjálfar óskast á sambýlið á
Vesturbrún 17 frá 1. september. Um er að
ræða dag og/eða kvöldvaktir eftir samkomu-
lagi. Aðrir með uppeldismenntun koma til
greina.
Upplýsingar gefur Sóley í símum 39005 og
10432.
Bakarí
Tvær aðstoðarmanneskjur óskast í pökkun
og fleira.
Upplýsingar gefur verkstjóri á staðnum.
Grensásbakarí hf.,
Lyngási 11,
Garðabæ.
Kennarar
Kennara vantar að Ketilsstaðaskóla í Mýr-
dal. Spennandi starf fyrir þá, sem vilja nýta
sér sérstöðu kennslu í dreifþýli.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra, Kolbrúnu
Hjörleifsdóttur, í símum 98-71286 og 91-
656252 og hjá skólanefndarformanni, Guð-
mundi Elíassyni, í síma 98-71230.
MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
PÓSTHÓLF 97 — 400 ÍSAFIRÐI
auglýsir eftir hússtjórnarkennara. Um er að
ræða nýja stöðu við skólann vegna samein-
ingar Húsmæðraskólans Óskar og Mennta-
skólans á ísafirði.
Auk kennslu felst starfið í skipulagningu og
eftirliti með kennslu í heimilisfræðigreinum
og uppbyggingu á einnar og tveggja anna
hússtjórnarbrautum.
Áskilið er að kennsluskylda verði fyrst um
sinn uppfyllt með kennslu í heimilisfræðum
við grunnskóla.
Umsóknum skal skila til Menntaskólans á
ísafirði.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst nk. og verð-
ur umsækjandi að geta hafið störf um mán-
aðamótin ágúst/september.
Frekari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
Menntaskólans í síma 94-3599 eða hjá skóla-
meistara í síma 94-4017 (heima).
Skólameistari.
wK RÍKISSPÍTALAR
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við
barna- og unglingageðdeild til frambúðar
Um er að ræða vaktavinnu, starfshlutfall er
samkomulagsatriði.
Þroskaþjálfi
Þroskaþjálfi óskast til starfa frá 1. septem-
ber nk. við barna- og unglingageðdeild. Um
er að ræða fullt starf, dag- og kvöldvaktir.
Fóstra
Fóstra óskast til starfa nú þegar við barna-
og unglingageðdeild. Um er að ræða fullt
starf, dag- og kvöldvaktir.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir
Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í síma 602500.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á mót-
tökudeildir geðdeilda Landspítalans, d-12
og d-32C. Um er að ræða vaktavinnu, til
greina kemur að ráða í hlutastöður. Ráðning-
artími er samkomulagsatriði.
Nánari ypplýsingar veitir Margrét Sæmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
602600 og 602652.
Reykjavík 12. ágúst 1990.
Samvinnuferöir - Landsýn
Reykjavík: Austurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferðir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu við Hagatorg, s. 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588, telex 2195.
Gjaldkeri
Samvinnuferðir-Landsýn hf. óska eftir að
ráða reyndan gjaldkera til starfa í hópferða-
deild skrifstofunnar.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf sendist skrif-
stofunni, Austurstræti 12, merktar: „Gjald-
keri“, fyrir miðvikudaginn 15. ágúst.
Framleiðslustjóri
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs hf. auglýsir hér
með eftir framleiðslustjóra við gerð timburein-
ingahúsa og aðra framleiðslu fyrirtækisins.
Framleiðslustjóra er ætlað að hafa fulla yfir-
umsjón með öllu því er lýtur að framleiðslu
og framkvæmdum á vegum fyrirtækisins og
krefst starfið menntunar og reynslu á sviði
húsasmíða auk þess sem tæknimenntun er
æskileg (byggingatæknifræði eða sambæri-
leg menntun).
Umsóknir skal tilkynna Sigurjóni Bjarnasyni
í síma 97-11450 og veitir hann jafnframt all-
ar nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 21. ágúst nk.
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs hf.,
Kauptúni 1, Fellabæ,
701 Egilsstöðum.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Lausar stöður
Óskum að ráða til starfa nú þegar eða eftir
nánara samkomulagi:
Hjúkrunardeildarstjóra
á 30 rúma blandaða legudeild.
Aðstoðardeildarstjóra
á 30 rúma blandaða legudeild.
Hjúkrunarfræðinga
á 30 rúma blandaða legudeild.
Svæfingarhjúkrunafræðing
í 60% starf við svæfingar og umsjón
neyðar- og endurlífgunarbúnaðar spítalans.
Viðkomandi getur gegnt 40% stöðu hjúkr-
unarfræðings á legudeild að auki. Bakvaktir.
Deildarljósmóðir
Staðan er laus frá 1. janúar 1990 og er veitt
til eins árs. Gott vinnufyrirkomulag á
vinnutíma. Bakvaktir.
Meinatæknir
í 100% starf.
Sjúkraþjálfara
í 100 % starf á vel búna endurhæfingadeild.
Skrifstofumann
Góð bókhalds- og tölvukunnátta nauðsynleg.
FSÍ er nýtt og vel búið sjúkrahús með mjög
góðri starfsaðstöðu og góðum heimilislegum
starfsanda.
ísafjörður er miðstöð menningar- og skóla-
staríssemi á Vestfjörðum. Útivistarmöguleikar
eru þar margvíslegir í stórbrotinni náttúru.
Örstutt í frábært skíðaland.
Hafið samband við framkvæmdastjóra eða
hjúkrunarforstjóra í síma 94-4500 og aflið
ykkur frekari upplýsinga.
Það gæti borgað sig!