Morgunblaðið - 12.08.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990
35
TONLIST
„Landslagið furðulegt
- rétt eins og tónlistin“
Litríkur smáhópur Þjóðvcrja
hefur verið að störfum hér á
landi síðustu daga. Reyndar var
áætluð brottför þeirra héðan í
dag, sunnudag. Þetta voru tveir
myndbandaframleiðendur og
tveir liðsmenn þýskrar popp-
hljómsveitar sem heitir þvi frum-
lega og langa nafni „Billy Mof-
fats Playboy Club“. Það sem þeir
höfðu fyrir stafni hérlendis var
að gera myndband af einu af
nýjustu lögum BMPC
landslag til að nota sem innskot í
myndbandið. Nefndu þeir að þeir
hefðu til dæmis fest Gullfoss, Geysi
og Strokk á filmu. Lofuðu þeir
mjög landslag hér á landi og sögðu
það mikilsvert að á myndbandi
BMPC væri landslag sem enginn
Þjóðveiji gæti getið sér til um hvar
væri að finna. „Nógu furðulegt og
jafn framt seiðandi, rétt eins og
tónlistin sem um ræðir,“ sagði
Hofmann.
Morgunblaðið/Sverrir
Þýsku gestirnir, sitjandi eru f.v.: Christoph, öðru nafni Joe Mirage, Moffet, og Uno, öðru nafni Billy
Moffet. Standandi f.v.: Joachim Hofmann og Ali Eidelsad.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
þá félaga í vikunni sátu þeir
í stúdíói og biðu þess að það glaðn-
aði til. „Við erum að bíða eftir
sólinni og þá ætlum við bæði að
renna okkur eitthvað austur fyrir
Ú'all og einnig austur á firði,“ sagði
Joachim Hofmann yfirtökumaður,
en hjálparkokkur hans, Ali Eid-
elsad, kinkaði kolli og sagði að ef
solin gægðist ekki fram yrðu þeir
að taka myndbandið allt upp í
Laugardalslauginrii, þar hefðu þeir
nánast búið meðan að biðin langa
eftir sólskini hefði staðið yfir.
Að gera myndband á íslandi var
hugmynd Hofmanns, en Christoph,
annar liðsmanna BMPC, sagði að
hugmyndin hefði strax fallið þeim
félögum vel í geð, landslag á Is-
landi væri hrjúft, en tónlist þeirra
blíð og þannig myndu skapast and-
stæður á myndbandinu sem yrðu
tónlist þeirra félaga tvímælalaust
til framdráttar. Hofmann bætti því
við, að lag þeirra félaga væri eitt
þriggja sem þeir Eidelsad væru að
vinna að, annað væri unnið á It-
alíu og það þriðja í New York.
„Við sendum þau öll þijú fullbúin
frá okkur 1. október og sendum
þá sjónvarpinu eintak þannig að
Islendingar geta sjálfir heyrt og
dæmt um hvernig okkur tókst upp
hér á landi.“
Þeir Eidelsad og Hofmann tóku
sig nú saman og kváðu fullmikið
sagt að þeir hefðu ekki vikið úr
sundlaugunum, þvert á móti hefðu
þeir farið víða og myndað íslenskt
eðaheílar
samstæour
\
Niðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillanlegar stærðir.
Hentar nánast
allsstaðar.'
Ávalltfyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga
UMBODS OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA W SÍMI 6724 44