Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
189. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 23. AGUST 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
500 fallnir í Suður-Afríku:
Tutu vill friðar-
gæslulið frá SÞ
Jóhannesarborg, Soweto, Vosloorus. Reuter.
SVARTIR óeirðaseggir í útborgum Jóhannesarborgar fleygðu bensín-
sprengjum og múrsteinum að lögreglumönnum í gær og stríðandi
hópar beittu skotvopnum og hnífum i innbyrðis átökum, auk þess sem
fólk var brennt til bana. Alls hafa nú rúmlega 500 manns fallið í átök-
um zúlúmanna og xhosa, stærstu ættbálka blökkumanna í Suður-
Afríku, undanfarna tíu daga. Desmond Tutu, erkibiskup og friðarverð-
launahafí, leggur til að sent verði alþjóðlegt friðargæslulið til að
skakka ieikinn.
„Það sem við þurfum núna er eins
konar UNTAG,“ sagði Tutu og vísaði
þar til gæslusveita sem Sameinuðu
þjóðirnar létu annast yfirstjórn og
framkvæmd fyrstu fijálsu kosning-
anna í Namibíu er voru haldnar sl.
vor. Biskupinn bað fólk að sýna
þolinmæði og forðast ofbeldi. Æ
fleiri hvetja til þess að xhosamaður-
inn og blökkumannaleiðtoginn Nel-
son Mandela ræði við helsta tals-
mann zúlúmanna, Mangosuthu But-
Svíþjóð:
Barneignir
færast í vöxt
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
NOKKUR aukning barneigna
hefur orðið í Svíþjóð og eru
fæðingar á fyrstu sex mánuð-
um ársins fleiri en nokkru
sinni á því tímabili undanfarin
22 ár. Fæddust 64.700 börn
til júníloka eða 4.800 fleiri en
á sama tíma í fyrra.
Astæðurnar fyrir fjölgun
barneigna eru nokkrar. í fyrsta
lagi er það nú hagkvæmt sökum
opinberrar aðstoðar að eignast
annað barn áður en fyrsta barn
verður hálfs þriðja árs. Þá varð
mikil fjölgun barneigna í Svíþjóð
á stríðsárunum. Tuttugu árum
seinna fæddust börn þeirra og
nú eru barnabörn stríðsárabarn-
anna að fæðast.
Alls jókst íbúatala Svíþjóðar
um 38.500 manns fyrstu sex
mánuði ársins og 1. júlí sl. voru
íbúar landsins því 8.565.000.
Fjölgaði íbúum allra lénanna 24
sem er einsdæmi. Á sama tíma
fækkaði innflytjendum um
1.600 miðað við sama tíma í
fyrra en þeir voru 33.400 á fyrri
helmingi ársins.
helezi, um frið milli deiluaðila. Tutu
sagði að slíkar viðræður yrðu að
vera mjög vel undirbúnar, ella gætu
þær orðið verri en engar. F.W. de
Klerk forseti hefur hvatt leiðtogana
til viðræðna en Mandela vísar hug-
myndinni á bug. Viðræður Buthelez-
is og eins af leiðtogum xhosa á
þriðjudag urðu til einskis.
Átök zúlúmanna og xhosa eru nú
einkum í úthverfum Jóhannesar-
borgar. Fjöldi verkamanna af zúlú-
ættum starfar þar skamma hríð á
ári hveiju, en þeir mega ekki taka
sér fasta bólfestu utan eigin heima-
landa. Gistihús þeirra eru nú eins
og umsetin virki og illa útleikin lík
ungra manna sjást víða í göturykinu.
Reuter
Nokkur þúsund útlægir Kúvætar söfnuðust saman í Abu Dhabi í
Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Þeir báru mynd af Sadd-
am Hussein íraksforseta. Hafði snöru verið brugðið um háls forset-
ans og hakakrossinn huldi andlit hans.
Austur-Þýskaland:
Barningtirvið
að ákveða dag
sameiningar
Austur-Berlín. Reuter.
EFNT var til skyndifundar í
austur-þýska þinginu í gærkvöldi
til að reyna að ná samkomulagi
um dagsetningu sameiningar
þýsku ríkjanna.
Samkomulag sem náðst hafði á
þriðjudag milli helstu flokksleiðtoga
landsins um 14. október sem sam-
einingardaginn fór út um þúfur
þegar þingflokkur jafnaðarmanna
hafnaði því. Jafnaðarmenn segjast
vilja sameiningu 15. september í
síðasta lagi.
í gær lagði Helmut Kohl, kansl-
ari Vestur-Þýskalands, til að sam-
einingin yrði fyrstu dagana í októ-
ber og sögðust talsmenn stjórnar
hans vonast til að samkomulag
næðist um þá málamiðlun.
Lothar de Maiziere, forsætisráð-
herra Austur-Þýskalands, sagði í
gær að þingmenn yrðu að leggjast
á eitt að ná samkomulagi um sam-
einingu. Jafnvel var búist við
ákvörðun nú i nótt. Meðal annars
lá fyrir tillaga frá Þýska sósíalsam-
bandinu um tafarlausa sameiningu.
George Bush kallar út
varalið Bandaríkj ahers
Irakar segja að tvær óvinaflugvélar rjúíl lofthelgi sína — Jórdanir stöðva
flóttamannastrauminn frá írak — írakar sagðir beina eldflaugum að ísrael
Nikósíu. Reuter. The Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
fyrirskipaði herkvaðningu vara-
liða í Bandaríkjaher í gær. í
fyrstu er þar um 40.000 hermenn
að ræða sem verða til taks til að
bætast í hóp 110.000 bandarískrá
hermanna sem eru komnir til
Saudi-Arabíu eða eru á leið þang-
að. Iraska sjónvarpið skýrði frá
því í gærkvöldi að tvær óvinaflug-
vélar hefðu rofið lofthelgi lands-
ins. Jórdönsk yfírvöld tilkynntu í
gær að þau hefðu lokað landa-
mærunum að írak vegna þess þau
réðu ekki lengur við flóttamanna-
strauminn. Aharon Levran, hátt-
settur yfírmaður í ísraelsher, full-
yrti í gær að írakar beindu nú
eldflaugum sínum að ísrael. Af-
drif 13.000 Vesturlandabúa í írak
eru enn mjög á reiki. írakar báru
í gær til baka fréttir um að þeir
ætluðu að hleypa borgurum sjö
Evrópubandalagsríkja úr landi en
buðu jafnframt japönskum og
frönskum borgurum að yfirgefa
landið.
Herir Bandaríkjamanna, Frakka
og Breta streyma nú til Persaflóa-
svæðisins. Á hveijum degi koma um
Trabant til
Ungveijalands
Austur-þýskur verkamaður
sést hér stíga inn í Trabant-
bifreið fyrir utan stærstu
bílaverksmiðju landsins í
Zwickau. Erfitt er orðið að
finna kaupendur að Trabant
í Austur-Þýskalandi eftir
myntbandalag þýsku
ríkjanna en eftirspurn er enn-
þá næg í Ungverjalandi og
hafa 25.000 bílar nú verið
seldir þangað á einu bretti.
'Br-S":x®SŒeri!í I
það bil fimmtíu bandarískar her-
flutningaflugvélar frá herstöðvum í
Vestur-Þýskalandi til Saudi-Arabíu
með hermenn, vopn og birgðir. Eru
þetta mestu flutningar sem banda-
ríski herinn hefur staðið fyrir frá
Vestur-Þýskalandi síðan loftbrúin til
Berlínar var mynduð árið 1961.
Varalið Bandaríkjaliers hefur ekki
verið kallað út síðan í Víetnamstríð-
inu. Bush hefur heimild til að kalla
út allt að 200.000 varaliða en talið
er að í fyrstu verði þeir 40.000.
Hussein Jórdaníukonungur boðaði
í gær nýja tilraun til að finna frið-
samlega lausn á deilunni í Miðaust-
urlöndum. Hann fer til íraks og
fleiri arabaríkja næstu daga.
Litlar fréttir berast af ástandinu
í Kúvæt. Innrásarher íraka tók í gær
af lífi níu manns sem sakaðir voru
um þjófnað í höfuðborg landsins.
Þar á meðal voru írakar, Egyptar,
Sýrlendingar og Kúvætar.
Mark Eyskens, utanríkisráðherra
Belgíu, sagði í gær að írakar kynnu
að hafa verið að blekkja sjö EB-ríki
þegar þeir lofuðu að hleypa borgur-
um þeirra úr landi. Tilgangurinn
kynni að vera sá að fá útlendingana
til að safnast saman svo írakar
þyrftu ekki að leita þá uppi. Um 200
Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn
í Irak og Kúvæt hafa verið fluttir á
hernaðariega mikilvæga staði til
þess að fæla andstæðingana frá ár-
ás.
Stöðugir fundir hafa verið undan-
farna daga í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna til þess að ræða tillögu
Bandaríkjamanna um að ríkjum sem
hafa sent flota til Persaflóa verði
heimilað _ að framfylgja viðskipta-
banni á írak með hervaldi. Banda-
ríkjamenn leggjast hins vegar gegn
hugmyndum um að Sameinuðu þjóð-
irnar _ stjórni hernaðaraðgerðum
gegn írak.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 24.
Olíufatíð kom-
ið yfír 30 dali
Ncw York, London. Reutcr.
OLÍUVERÐ tók stökk upp á við
í gær er Saudi-Arabar lýstu því
yfir að landið þyrfti á miklu elds-
neyti að halda fyrir fjölþjóðlega
heraflann í landinu; þess vegna
yrði ekki liægt að auka útflutning.
Verð á olíufati (159 1) hækkaði
um 2,51 dal í Bandaríkjunum í gær
og er nú komið upp í 31,22 dali sem
er hæsta verð í fimm ár. I London
seldist fatið á rúmlega 30 dali við
lokun.
Verðbréf héldu áfram að falla í
Wall Street-kauphöllinni í gær. Dow
Jones-verðbréfavísitalan féll um
43,81 stig eða 1,68%.