Morgunblaðið - 23.08.1990, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
9
Innilegar þakkir fœri ég öllum, sem glöddu
mig með heimsóknum, skeytum og gjöfum í
tilefni af85 ára afmœli mínu hinn 14. ágústsl.
Lifiö heil.
Halldóra Hansdóttir,
Þrándarholti.
TOYOTA
NOTAÐIR BÍLAR
Athugasemd!
Bílar með staðgreiðsluverði
eru einnig fúanlegir með lánakjörum skv. Iðnatöflu Toyota bílasölunnar.
PEUGEOT 309 XR ’88
Svartur. 5 gíra. 3 dyra. Ekinn 30
þús/km. Verð 680 þús.
TOYOTA COROLLA DX '80
Grár. Sjálfsk. 3 dyra. Ekinn 100 þús/km.
Verð 130 þús.
TOYOTA COROLLA 4 x 4 '89
Tvíl. blár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 39
þús/km. Verð 1.150 þús.
TOYOTA LANDCRUISER STW ’84
Upph. 36“ dekk. Rauður. 5 gíra. 5 dyra.
Ekinn 138 þús/km. Verð 1.500 þús.
FORD BRONCO II XL '84
Tvíl. brúnn. Sjálfsk. 3 dyra. Ekinn 70
þús/milur. Verð 950 þús. staðgr.
WILLYS CJ7 '84
Upph. 38“ dekk. Hvítur. 4 gíra. 3 dyra.
Ekinn 90 þús/km. Verð 950 þús.
44 1 44
44 7 33
TOYOTA
NYBYLAVEGI 6-8, KOPAVOGI
Aldraðir íklóm félagshyggjunnar
Geðleysi alþingismanna vekur æ meiri undrun kjósenda. Þeir láta
framkvæmdavaldið ítrekað vaða yfir sig og ómerkja lög sem þeir
hafa sett. Núverandi ríkisstjórn hefur gengið lengra í þessum efn-
um en nokkur önnur og hefur með framferði sínu reitt til reiði
hógværustu og grandvörustu borgara.
Aðförin
Þeg-ar lögin um stað-
greiðslu skatta voru sett
á sínum tima var ákveð-
ið, og talið iiauðsynlegt,
að fella ýmsa sérskatta
inn í staðgreiðslukerfið.
Staðgreiðsluprósentan
var hækkuð sem því nam.
Einn þessara sérskatta
er gjald í Framkvæmda-
sjóð aldraðra. Hann er
ennþá innheimtur í stað-
greiðslunni, enda talin
brýn þörf á úrlausnum
vistunarmála aldraðs
fólks. Um það er ekki
deilt
í staðgreiðslunni eru
nú innheimtar 230 millj-
ónir króna í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra,
samkvæmt fjárlögum
fyrir árið 1990. Ríkis-
stjórnin, sem kennir sig
við félagshyggju, ákvað
hins vegar að aðeins 197
milþ'ónir króna skyldu
renna til sjóðsins, en mis-
munurinn, 33 miHjónir
króna, í ríkissjóð. Þetta
samþykktu að sjálfsögðu
alþingismenn „félags-
hyggjunnar".
Nefskatturinn
Félagshyggjupostul-
amir létu þessa aðför að
gamla fólkinu ekki nægja
heldur samþykktu þeir
sl. vor, að leggja sér-
stakan nefskatt á skatt-
greiðendur sem inn-
heimtur verði í einu lagi
með staðgreiðslimni. Það
var gert 1. ágúst sl. í
fyrsta sinn.
Samkvæmt áætlun
sljómarherranna á þessi
nefskattur að veita 230
milljónum króna í ár í
Framkvæmdasjóð aldr-
aðra, eða sömu upphæð
og innheimt er í sjállH
staðgreiðsluprósentunni.
En ekki ein einasta
króna af þessu fé fer -til
Framkvæmdasjóðsins.
Það fer í heilu lagi í
óráðssíuhít fjárinálaráð-
herrans Ólafs Ragnars
Grimssonar, formanns
Alþýðubandalagsins,
flokks sósialisma og
verkalýðshreyfíngar. Að
sjálfsögðu ber. Ólafur
Ragnar ekki einn
ábyrgðina. Hann er
dyggilega studdur af
öðrum ráðherrum „fé-
lagshyggju og réttlætis",
svo og öllum þingmönn-
um Framsóknarflokks,
Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags, Borgara-
flokks og Stefáni Val-
geirssynL
Þetta skulu kjósendur
muna, ekki sizt aldraðir,
þegar vinstraliðið blæs
sig út fyrir næstu kosn-
ingar af umhyggju fyrir
öldmðum.
Misboðið
í Morgunblaðinu í gær
birtist grein eftir Friðrik
Einarsson, fyrrverandi
yfirlækni Borgarspítal-
ans, sem hann nefnir
„Stolið úr eigin hendi“.
Friðrik hefúr haft mikil
afskipti af málefnum
aldraðra og veit glöggt
hvar skórinn kreppir.
Augljóst er af grein Frið-
riks að honum er alvar-
lega misboðið af fram-
ferði „ félagshyggju-
stjómarinnar".
I upphafí greinar
sinnar (jallar hann um
ummæli heilbrigðisráð-
herra, Guðmundar
Bjamasonar, i sjónvarpi
um vanda lasburða, aldr-
aðs fólks, sem visað hef-
ur verið á brott úr
sjúkrahúsunum vegna
spamaðar.
Vélaðum
Þá segir Friðrik í
grein sinni: „Ég saknaði
þess sárlega, að ráð-
herrann skyldi ekki ræða
og skýra þá staðreynd,
að Alþingi hefir sam-
þykkt og innheimt fram-
lag til Framkvæmdasjóðs
aldraðra að upphæð 460
m.kr., en stjómarliðið
samþykkti aðeins að 197
m.kr. rynnu til Fram-
kvæmdasjóðsins, en
ríkisstjóminni heimilað
að ráðstafa afganginum
(263 m.kr.) til annars."
„Mér finnst að þessu
fé hafi verið stolið frá
Framkvæmdasjóði aldr-
aðra. Þarna er ekki við
heilbrigðisráðherra ein-
an að sakast, né utan-
þingsmannhm sem fer
með fjármál. Hér hafa
fleiri vélað um, þar sem
stjómarliðið — bæði kos-
ið og keypt — hefir lagt
blessun sina á athæfið,
en jafn siðlaust samt.
NÚ em þeir sem
byggja þjónustuíbúðir
fyrir aldraða að taka
bankalán til framkvæmd-
anna með 17,5% vöxtum,
sem reynist mörgum erf-
itt að standa skil á, en
ríkisstjórairi og hækjulið
hennar sleikir út um á
illa fengnu fé Fram-
kvæmdasjóðsins."
Þú getur eignast
2,5 milljónir
ef þú leggur 8.000 krónur fyrir mónaóarlega í 15 ór*
Nú getur þú lagt reglulega til hliðar ákveðna upphæð til kaupa á Eininga-
bréfum og safnað þannig smám saman þínum eigin varasjóði.
• UPPHÆÐINNBORGUNAR
RÆÐUR ÞÚ SJÁLF(UR).
• SJÓÐURINN ER ÆTÍÐ ÓSKIPT
EIGN ÞÍN EÐA AFKOMENDA
ÞINNA.
Allar nánari upplýsingar gefa ráðgjafar
okkar í síma 689080.
*M.v. 7% vexti umfram verðbólgu neestu 20 árin.
• HÆGT ER AÐ GREIÐA MEÐ
GREIÐSLUKORTIEÐA GÍRÓ-
SEÐLI.
• YFIRLIT YFIR HEILDARINN-
EIGN SENT ÁRSFJÓRÐUNGS-
LEGA.
Sölugengí verðbréfa 23. ágúst ’90:
EININGABRÉF 1........................5.053
EININGABRÉF 2........................2.750
EININGABRÉF 3........................3.328
SKAMMTÍMABRÉF........................1.706
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki,
Kringlunni 5, 103 Reykjavík,
sími 91-689080