Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
Úr dagbók starfs-
manns BHMR
eftir Birgi Björn
Sigurjónsson
Inngangur
Fjármálaráðherra undirritaði
kjarasamning við flest félög innan
BHMR 18. og 19. maí 1989. Þenn-
an samning nefndi hann „tíma-
mótasamning" með skírskotun til
þess að hann var til fimm ára og
fól í sér vísindalega endurskoðun á
launakerfi og leiðréttingu á kjörum
félagsmanna BHMR til samræmis
við kjör háskólamanna á almennum
markaði. Þetta var samningur um
langt samstarf aðila. Allt frá undir-
ritun til 12. júní sl. neitaði Ijármála-
ráðherra og samninganefnd ríkis-
ins að ræða endurskoðun launa-
kerfísins við samninganefnd
BHMR.
Fyrsti áfangi endurskoðaðs
launakerfis og leiðréttingar launa
til samræmis við kjör háskóla-
manna á almennum markaði átti
að koma til framkvæmda 1. júlí sl.
Ef þá yrði ekki lokið kjarasaman-
burði til að meta tilefni til launaleið-
réttingar áttu laun félagsmanna
að hækka um a.m.k. 4,5%. Þetta
var eins konar „refsiákvæði“ eða
uppígreiðsla í væntanlega hækkun.
Þessi sumarannáll segir frá til-
raunum ríkisstjórnarinnar að
þvinga forystu BHMR til að semja
af félagsmönnum samning um leið-
réttingu launa.
Rifjum svo upp
atburði sumarsins:
Hinn 12. júní 1990 boðaði starf-
andi forsætisráðherra stjórn
BHMR á sinn fund í Stjórnarráð-
inu. Erindið var að ræða „fram-
kvæmd kjarasamnings BHMR“. A
fundinum las ráðherrann upp bréf
ríkisstjórnarinnar þess efnis að hún
ætlaði sér ekki að framkvæma
kjarasamning BHMR hvað varðaði
endurskoðun launakerfis og 1.
áfanga launabreytingar m.a. vegna
kröfu „aðila vinnumarkaðarins“.
Fjármálaráðherra lýsti því glað-
beittur yfir að það fælist í samning-
um sjálfum að framkvæma hann
ekki að þessu leyti.
Fulltrúar BHMR lýstu því yfir
að þeir teldu ríkisvaldinu skylt að
standa við samninginn og inntu
eftir hvort ríkisstjórnin hyggðist
setja lög. „Það er óþarfi," sagði
starfandi forsætisráðherra og frjár-
málaráðherra lýsti andstöðu sinni
við bráðabirgðalagasetningu. Full-
trúar BHMR bentu á að þessi fund-
ur væri sá fyrsti með fjármálaráð-
herra um efni samningsins frá 18.
maí 1989 og að engar viðræður
hefðu fengist um endurskoðun
launakerfis. Iðnaðarráðherra ein-
um virtist brugðið.
Hinn 18. júní var forsætisráð-
herra sent bréf stjórnar BHMR þar
sem viðhorfum BHMR til undan-
bragða ríkisstjórnarinnar frá 12.
júní var lýst. Þar gaf BHMR ótví-
ræða yfirlýsingu um málssókn ef
með þyrfti.
Viku síðar, 25. júní, boðaði for-
sætisráðherra til fundar í Stjórnar-
ráðinu og virtist honum og iðnaðar-
ráðherra hugleikið að leysa deiluna.
Var rætt við þá um endurskoðun
launakerfis og starf nefnda sam-
kvæmt samningnum. Virtust þeir
fremur gáttaðir á að ekki höfðu
fengist viðræður við fjármálaráð-
herra um þessi mál frá maí 1989.
Síðan var rætt við ráðherrana
um leiðir til að koma leiðréttingu
fyrir hjá BHMR-mönnum án þess
að það ylli röskun á launakerfinu
í landinu. Fulltrúar BHMR óskuðu
eftir sérstakri sameiginlegri skoðun
á þessu. Fjármálaráðherra dró í efa
að unnt væri að framkvæma leið-
réttingar handa BHMR. Fulltrúar
BHMR bentu á leiðréttingar fjár-
málaráðherra til stórra nafn-
greindra hópa utan BHMR. For-
sætisráðherra virtist kom á óvart
að slíkar leiðréttingar hafi verið
framkvæmdar. Ákveðið var að hitt-
ast aftur.
Fulltrúar BHMR spurðu ítrekað
hvenær unnt yrði að leiðrétta laun
BHMR-manna og hvort unnt yrði
að ábyrgjast slíka framkvæmd
síðar ef fallist yrði á frestun. Við
þessari spurningu kom ekkert svar
frá ráðherrum, hvorki á þessum
fundi né síðar.
Fundur haldinn í Stjórnarráðinu
27. júní. Á fundinum gerði iðnaðar-
ráðherra tillögu um sérstaka launa-
kerfisnefnd. Fjármálaráðherra
skopaðist að áhuga iðnaðarráð-
herra. Tillagan eiginlega gufaði
upp á fundinum þrátt fyrir áhuga
BHMR á henni.
Forsætisráðherra kvað leitt að
ekki væri unnt að framkvæma 4,5%
hækkunina og staðfesti ásetning
ríkisstjórnarinnar frá 12. júní.
Hann var einnig leiður yfir því að
BHMR ætlaði með það mál fýrir
Félagsdóm. Forsætisráðherra ósk-
aði eftir áframhaldandi viðræðum.
I lok fundarins vatt umhverfis-
málaráðherra sér að fulltrúum
BHMR og minnti á að Borgara-
flokkurinn bæri ekki ábyrgð á
samningnum. Hann virtist trúverð-
ugur.
Enn var fufldur með ráðherrum
í Stjórnarráðinu 28. júní. Á þessum
fundi virtist endanlega renna upp
fyrir ráðherrum að BHMR gæfi
ekki eftir kjarasamning félags-
manna þrátt fyrir þá pressu sem
fundir með ráðherrum áttu að gefa.
Ríkisstjórnin virtist læst í klóm
Ásmundar og Einars Odds og hafði
ekki samningsumboð til að bjóða
BHMR neitt annað en bótalausa
riftun kjarasamnings. Niðurstaðan
var sú að menn myndu ræðast við
ef eitthvað nýtt kæmi upp í stöð-
unni.
Föstudaginn 29. júní barst
BHMR fyrirspurn frá ILO um efni
bréfs ríkisstjórnarinnar frá 12. júní.
Sama dag boðuðu fulltrúar fjár-
málaráðherra i kjarasamanburðar-
nefnd til fundar í fjármálaráðuneyt-
inu og skilúðu því sem þeir nefndu
lokaálit. Stuttu síðar gerðist það
sama í ábyrgðarmatsnefnd. Þetta
líktist „pIotti“ úrfjármálaráðuneyt-
inu. í báðum textum kom fram að
nefndirnar hefðu ekki lokið verk-
efni sínu.
Klukkan sex boðaði samninga-
nefnd ríkisins samninganefnd
BHMR til fundar í fjármálaráðu-
neytinu. Á fundinum var kynnt
bréf sem þrár konur undirrituðu
f.h. ijármálaráðherra og var efni
bréfsins á þá leið að ráðherrann
óskaði eftir að ágreiningur aðila
færi til úrskurðarnefndar skv. 9.
grein samningsins. Fulltrúar
BHMR útskýrðu fyrir fulltrúum
fjármálaráðherra að ágreiningur
um 4,5% hækkun 1. júlí heyrði
ekki undir þessa nefnd og að
BHMR myndi reka málið fyrir Fé-
lagsdómi ef samningurinn yrði ekki
efndur. BHMR krafðist þess einnig
að fulltrúar fjármálaráðherra í
starfsnefndum tækju upp störf og
lykju sameiginlegum verkum.
2. júlí skipaði fjármálaráðherra
fulltrúa sinn í úrskurðarnefnd og
óskaði eftir tilnefningu BHMR.
Daginn eftir óskaði yfirborgardóm-
ari eftir tilnefningu BHMR. 4. júlí
útskýrði samninganefnd BHMR
fyrir yfirborgardómara hvers
vegna BHMR myndi stefna fjár-
málaráðherra fyrir Félagsdóm og
óskaði samninganefndin eftir því
að beðið yrði niðurstöðu dómsins.
Yfirborgardómari féllst á röksemd-
ír BHMR.
Hinn 12. júlí krafðist samninga-
nefnd BHMR svara við þeirri
spurningu til fjármálaráðherr hvort
Birgir Björn Sigurjónsson
„BHMR hefur misst
kjarasamning sinn og
viðsemjanda. Helsta
verkefni samninga-
nefnda og félagsmanna
BHMR er nú að finna
nýjan viðsemjanda í
Qármálaráðuneytið
sem hægt er að treysta
og endurheimta almenn
lýðréttindi.“
fulltrúar hans í nefndum muni ljúka
þar störfum. Ekkert svar barst.
Niðurstaða Félagsdóms var
kynnt 23. júlí. Samhljóða dómur
staðfesti rétt félagsmanna til 4,5%
launahækkunar frá 1. júlí vegna
þess að lokaálit um kjarasaman-
burð var ekki tilbúinn. Frávísunar-
og sýknukröfum fjármálaráðherra
hafnað enda eintómur málatilbún-
aður sem studdist hvorki við rök
úr kjarasamningnum eða samn-
ingsréttarlögum.
Fjármálaráðherra opinberaði
undrun sína á því að dómurinn
gengi gegn ríkinu og kvað lögfræði
dómaranna vera í efnahagslegu
tómarúmi. Fyrir BHMR-félags-
mönnum var dómurinn tákn um
tilvist réttarríkisins.
Ríkisstjórnin boðaði fulltrúa
BHMR á fund í Stjórnarráðinu 25.
júlí og afhenti bréf án tilgreinds
viðtakanda þar sem þeim ásetningi
ríkisstjórnarinnar var lýst að segja
upp samningi ríkisins og BHMR.
Fulltrúar BHMR upplýstu ríkis-
stjórnina um að hún gæti ekki sagt
upp samningnum fyrr en eftir 30.
september 1990 skv. ákvæðum
samningsins og að myndi hann,
skv. samningsréttarlögum, gilda
uns nýr hefði verið gerður. Ríkis-
stjórnin virtist komin í þrot.
Hinn 26. júlí var haldinn fundur
með forsetum ASÍ á Grensásvegi
að þeirra ósk. Forsetar ASÍ kröfð-
ust þess að BHMR afsalaði 4,5%
hækkun fyrir hönd félagsmanna
og tæki 15. grein samningsins,
verðtryggingu hans, úr sambandi
og fengi í staðinn kaupmáttar-
tryggingu ASI. Forsetar ÁSÍ töldu
samning sinn frá febrúar 1990 rétt-
hærri en samning BHMR frá 1989.
BHMR-fulltrúar reyndu að útskýra
fyrir forsetum ASÍ hvaða verði
þessi 5 ára samningur var keyptur
og að forysta BHMR væri ekki
kjörin til að makka við aðila útí
bæ um rýmun á samningum. For-
setar ASÍ sögðu BHMR í reynd
standa frammi fyrir tveimur kost-
um: sá fyrri væri að fallast á „sjón-
armið ASÍ“ en hinn væri lagasetn-
ing.
Fulltrúar BHMR spurðu forseta
ASÍ hvort forysta ASÍ væri tilbúin
að tryggja framgang leiðréttinga
til BHMR eftir tímabil þjóðarsáttar
ef fallist yrði á frestun á launaleið-
réttingum. Svarið var neikvætt.
Eftir fundinn með forystu ASI
var samþykkt í samninganefnd
samflotsfélags BHMR að bjóða
ríkisstjórninni að breyta ákvæði um
verðtryggingu á launum BHMR-
manna (sbr. 15. gr. samningsins)
til að taka fyrir hugsanleg víxlverk-
unaráhrif sem haldið var fram að
fælist í samningnum. Var forsætis-
ráðherra kynnt þessi „opnun“ sam-
dægurs.
27. júlí var fjármálaráðherra
kynnt tilboð BHMR um afnám svo-
kallaðs „víxlverkunarákvæðis" í
samningum BHMR. Fjármálaráð-
herra hafnaði tilboðinu og ítrekaði
kröfu sína um að BHMR félli frá
samningi sfnum á tímabili þjóðar-
sáttar og fengi einungis þær hækk-
anir sem ASI/VSÍ höfðu samið um.
Fulltrúar BHMR spurðu ráðher-
rann hvort hótun VSÍ um launa-
hækkun réttlætti kröfu ríkisins til
BHMR-félagsmanna að gefa eftir
samning sinn. Ráðherrann taldi
það.
Fulltrúar BHMR ítrekuðu fyrir-
spurnir um hvenær unnt yrði að
leiðrétta laun BHMR-manna ef fall-
ist yrði á frestun þeirra nú. Ráðher-
ann gat engu lofað í þeim efnum.
Um hádegisbil komu forsetar og
aðrir forystumenn ASÍ fyriivaral-
ítið til fundar við viðræðunefnd
BHMR. Þeir kröfðust þess að
BHMR gæfi eftir samning sinn um
launaleiðréttingu og kröfðust þess
að BHMR gerðist áskrifandi að
samningi ASÍ. Þeim var sagt frá
tillögum BHMR um ný verðtrygg-
ingarákvæði sem þeir töldu alveg
ófullnægjandi. Þeir mærðu sig af
því að hafa knúið önnur stéttarfé-
lög til að gefa eftir sína samninga
og fallast á samning ASÍ. Forysta
BHMR upplýsti að hún væri kosin
til að bæta kjör félagsmanna og
knýja á um efndir samninga og hún
hefði ekki umboð til annars. For-
ysta ASÍ gaf ekki mikið fyrir þessi
rök og taldi BHMR aðeins hafa val
á milli þess að gangast inn á samn-
ing ASI eða verða að lúta lagasetn-
ingu (forspárgeta ASÍ-forystunnar
sannaðist eftirminnilega 3. ágúst).
Forsætisráðherra tilkynnti for-
manni BHMR síðdegis að ríkis-
stjórnin væri að ganga frá úrslitat-
ilboði til BHMR sem hann teldi ólík-
legt að BHMR gæti gengið að.
Síðar sama dag kynnti fjármálaráð-
herra „tilboð“ ríkisstjórnarinnar:
(1) Samningi BHMR og ríkisins
yrði sagt upp. (2) Hækkun frá 1.
júlí yrði tekin af félagsmönnum
BHMR. (3) Verðtrygging BHMR-
samningsins yrði afnumin en tekið
upp kaupmáttartryggingarkerfi
ASÍ, (4) Öllum umsömdum leiðrétt-
ingum til BHMR yrði frestað fram
yfir 15. september 1991, (5)
BHMR-menn fengi sömu orlofs-
uppbót og ASÍ-fólk 1991. Tilboðið
var skilyrt því að samkomulag
tækist fyrir 31. júlí.
Fjármálaráðherra hótaði að fella
samning BHMR úr gildi 1. nóvem-
ber 1990 og breyta samningsrétt-
arlögunum þannig að umsamdar
hækkanir kæmu ekki til fram-
kvæmda eftir uppsögn samningsins
ef BHMR gengi ekki að tilboði
hans. Hótun ráðherrans um laga-
breytingu vísaði til 2. ml. 12. grein-
ar samningsréttariaga:
Nú rennur kjarasamningur út
og skal þó eftir honum farið uns
nýr kjarasamningur hefur verið
gerður. “
Fjármálaráðhera kryddaði „til-
boðið“ með ógnvekjandi sögum um
að „bráðabirgðalagasetningar-
gengið“ biði rétt utan við dyr fund-
arsalarins. (Síðar kom í ljós að
þetta „gengi“ var einmitt í fundar-
salnum.)
Viðræðunefnd BHMR ítrekaði
vilja sinn að fjalla um nýtt verð-
tryggingarákvæði í samningnum
en sagði umboð sitt ekki ná til við-
ræðna um að fella leiðréttingar-
ákvæði samningsins úr gildi.
Hinn 29. júlí ítrekaði samninga-
nefnd BHMR vilja sinn að ræða
nýtt form verðtryggingar. Auk þess
lagði hún fram spurningar til ríkis-
stjórnarinnar sem vörðuðu fyrirætl-
anir hennar um lagasetningu o.fl.
Fjármálaráðherra gaf munnleg
svör við spurningum BHMR sem
voru algerlega ófullnægjandi og
útskýrðu alls ekki lagalegar for-
sendur hugsanlegrar samnings-
gerðar. Fjármálaráðherra bauð
síðan að BHMR héldi 4,5% hækkun
frá 1. júlí en missti kaupmáttar-.
trygginguna sem því næmi. Auk
þess vildi hann ræða um rannsókn-
Til sölu er Geir BA-326 sem hefur 213 tonna þorskígildakvóta.
Báturinn er smíðaður 1981. Vél frá 1987. Bátur í toppstandi. Allar nánari upplýsíngar veitir
undirritaður í síma 17752. GústafÞ.Tryggvason hdl.,Tjarnargötu 10D, Reykjavík.