Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
21
Skömmtun —
ekki trygging
eftir Grím
Sæmundssen
Launþegi, sem er rúmlega sex-
tugur, hefur verið hjá sama vinnu-
veitanda í 20 ár. Honum hefur mjög
sjaldan orðið misdægurt en leitaði
til læknis sl. vor vegna versnandi
verkja í ganglim. Verkirnir ollu
stöðugri vanh'ðan og nú óvinnu-
færni.
í ljós kom slit í lið á háu stigi.
Hægt er að lækna meinið með
gerviliðaaðgerð. Verkir og vanlíðan
munu hverfa og full vinnufærni
fást að nýju.
Til þess að þessi markmið náist
þarf innlögn í sjúkrahús. En þar
stendur hnífurinn fastur í kúnni.
Rúmið sem þessi einstaklingur
þarnfast stendur tilbúið á lokaðri
sjúkradeild vegna „sparnaðarað-
gerða“ heilbrigðisyfirvalda.
Hann hefur nú beðið í sex mán-
uði eftir því að verða kallaður inn
á sjúkrahúsið til aðgerðar. Hann
getur þurft að bíða sex mánuði til
viðbótar.
Hann hefur nýtt að fullu rétt sinn
til veikindalauna hjá vinnuveitand-
anum, hann þiggur nú greiðslu úr
sjúkrasjóði stéttarfélagsins og
sjúkradagpeninga frá Trygginga-
stofnun. Umsókn vegna örorkubóta
hjá lífeyrissjóðnum er í undirbún-
ingi. Hálfs árs vinnuframlag þessa
einstaklings til verðmætasköpunar
i þjóðarbúið er þegár glatað.
Þá er ótalin vanlíðan vegna stöð-
ugra verkja og þess að vera upp á
aðra kominn.
Þetta er raunverulegt dæmi úr
íslensku velferðarþjóðfélagi.
Skömmtun — Ekki trygging
í 41. gr. almannatryggingalag-
anna stendur: „Hveijum þeim, sem
sjúkratryggður er skv. 40. gr., skal
tryggð ókeypis vist að ráði læknis
í sjúkrahúsum, þar með talið fæð-
ingarstofnunum. Sjúkrahúsvist skal
tryggð eins lengi og nauðsyn krefur
ásamt læknishjálp og lyfjum og
annarri þjónustu sem sjúkrahúsið
veitir.“
Einstaklingurinn, sem dæmið er
tekið um hér að framan, er ekki
tryggður. Hann á engan rétt. Hon-
Grímur Sæmundsen
„Hálfs árs vinnufram-
lag þessa einstaklings
til verðmætasköpunar í
þjóðarbúið erþegar
glatað.“
um er skömmtuð þjónusta frá mið-
stýrðu kerfi í samræmi við það, sem
því hentar, í frumstæðum tilraunum
þess til sparnaðar.
Það er brýn nauðsyn að trygg-
ingahugtakið verði endurvakið í
íslensku heilbrigðiskerfi þ.e. að
tryggingaiðgjöld verði aðgreind frá
öðrum tekjustofnum og renni ein-
göngu til þess að standa straum
af heilbrigðisþjónustu en ekki sívax-
andi ríkisbákni á öðrum sviðum.
Menn verða aftur að öðlast rétt
til heilbrigðisþjónustu þegar þeir
þurfa á því að halda, en ekki þegar
kerfinu þóknast.
Höfundur situr í heilbrigðis- og
trygginganefnd
Sjálfstæðisflokksins.
Faðir: Hervar 963 frá Sauðárkróki.
Móðir: Terna 5777 frá Kirkjubæ.
Eigandi: Þorvaldur Sveinsson,
Kjartansstöðum.
Aðall 1159 frá Aðalbóli. Jarp-
ur, fæddur 1986. Faðir: Sirkus
1015 frá Húsavík. Móðir: Freisting
5518 frá bárðartjörn. Eigandi: Hös-
kuldur Þráinsson, Aðalbóli.
Nasi 1160 frá Hala. Rauðnös-
óttur, fæddur 1985. Faðir: Þokki
1048 frá Garði. Móðir: Glóa frá
Hala. Eigandi: Markús Ársælsson,
Hákoti.
Djákni 1161 frá Sleitustöðum.
Brúnskjóttur, fæddur 1985. Faðir:
Hrafn 802 frá Holtsmúla. Moðir:
Kvika frá Sleitustöðum. Eigandi:
Sigurður Sigurðsson, Sleitustöðum.
Sokki 1162 frá Sólheimum.
Brúnskjóttur, fæddur 1986. Faðir:
Krummi frá Sólheimum. Móðir:
Sokka frá Sólheimum. Eigandi:
Valdimar Ó. Sigmarsson, Sólheim-
um.
Kveikur 1163 frá Miðsitju.
Brúnn, fæddur 1986. Faðir: Gustur
923 frá Sauðárkróki. Móðir: Perla
4119 frá Reykjum. Eigendur: Jó-
hann Þorsteinsson Miðsitju og fleiri.
Goði 1164 frá Ytra-Skörðugili
Jarpur, fæddur 1986. Faðir: Þáttui
722 frá Kirkjubæ. Móðir: Brúð-
kaups-Jörp 5678 frá Vatnsleysu
Eigandi: Finnur Björnsson, Ytra-
Skörðugili.
Þokki 165 frá Höfn. Jarptví-
stjörnóttur, fæddur 1986. Faðir:
Stormur frá Bjarnanesi. Móðir:
Gláma frá Eyjarhólum. Eigandi:
Olgeir Ólafsson, Höfn.
Funi 1166 frá Skálá. Rauður,
fæddur 1984. Faðir: Hervar 963 frá
Sauðárkróki. Móðir: Iða frá Tungu-
felli. Eigandi: Jóhannes Sigurðsson,
Kópavogi.
Gustur 1167 frá Vindási. Rauð-
ur, fæddur 1984. Faðir: Sörli 653
frá Sauðárkróki. Móðir: Sokka frá
Vindási. Eigandi: Jon Þorvarðarson,
Vindási.
Hlöðvir 1168 frá Hindisvík.
Jarpur, fæddur 1985. Faðir: Ófeig-
ur frá Hindisvík. Móðir: Ör frá
Hindisvík. Eigandi: Hindisvíkur-
búið, Vatnsnesi.
Þokki 1169 frá Kílhrauni.
Brúnn, fæddur 1985. Faðir: Gustur
923 frá Sauðárkróki. Móðir:
Þokkadís frá Kílhrauni. Eigandi:
Guðmundur Þóðrarson, Kílhrauni.
Mánatindur 1170 frá Úlfstöð-
um. Rauðtvístjörnóttur, fæddur
1985. Faðir: Kjarval 1025 frá Sauð-
árkróki. ’ Móðir: Lipurtá frá Úlfs-
stöðum. Eigandi: Öskar Halldórs-
son, Úlfsstöðum.
Djarfur 1171 frá Vorsabæ.
Móbrúnn, fæddur 1985. Faðir:
Gassi 1036 frá Vorsabæ. Móðir:
Dáð 5564 frá V-íragerði. Eigandi:
Björn Jónsson, Vorsabæ II.
Vorboði 1172 frá ípishóli.
Rauðblesóttur. fæddur 1984. Faðir:
Atli 1016 frá Syðra-Skörðugili.
Móðir: Blesa frá Lundi. Eigandi:
Siguijón Jónasson, Syðra-Skörðu-
gili.
r um
í dag!
Radíóbúðin hf.
Sími: (91) 624 800
Apple-umboðið
Skipholti 21, Reykjavík.