Morgunblaðið - 23.08.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
Fulltrúar frá Lands-
málaþingi Finnlands-
svía í heimsókn
FULLTRÚAR frá Landsmálaþingi
Finnlandssvía verða í heimsókn í
Reykjavík dagana 23.-27. ágúst.
Gestimir eru Jan Rosquist og
Ralf Nordgren varafoar þingsins,
Christian Brandt ritari og Dag
Lindber varatitari. Jan Rosquist
starfar hjá heilbrigðisstofnunni
Folkhálsan, Ralf Nordgren er rit-
höfundur og lektor, Christian
Brandt er þingmaður og skrifstofu-
stjóri þingsins og Dag Lindberg
starfar aðallega að byggða- og
menntamálum auk málefna er
varða norræna samvinnu.
Með heimsókninni vilja fulltrú-
amir stuðla að betri kynnum og
samskiptum við íslendinga og
kynna málefni og stöðu Finnlands-
svía. Þeir munu hitta Guðrúnu
Helgadótttír forseta sameinaðs Al-
þingis að máli og heimsækja
men ntamál aráðuneytið.
Sunnudaginn 26. ágúst klukkan
16 verður dagskrá í Norræna hús-
inu, þar sem fluttir verða stuttir
fyrirlestrar um málefni Finnlands-
svía. Jan Rosquist, talar um störf
og verkefni landsmálaþingsins og
Chr. Brandt segir frá ýmsum stað-
reyndum varðandi Finnlandssvía.
Auk þess flytur Ralf Nordgren
fmmsamin ljóð og ljóð eftir aðra
höfunda. Tónlist verður flutt af
snældu og myndband sýnt.
Landsmálaþingið hefur starfað
frá 1919 og gætir hagsmuna
sænskumælandi íbúa Finnlands, en
þeir em um þijúhundruð þúsund
(6% af íbúafjölda Finnlands). Þingið
kemur saman árlega. Þingmenn em
75 frá sex stjórnmálafiokkum.
Stærsti flokkurinn er Sænski þjóð-
arflokkurinn, en Sænski sósíal-
demókrataflokkurinn fylgir fast á
eftir.
Allir em velkomnir að koma í
Norræna húsið og kynnast málefn-
um Finnlandssvía.
(Fréttatil ky nningr)
Morgunblaðið/Jón Karl Snorrason
Bærinn Jörfi í Víðidal. Fjósið og hlaðan sem kviknaði í eru lengst
til hægri á myndinni.
Jörfí í Víðidal:
Hlaða og fíós brunnu
ELDUR kom upp í hlöðu og sambyggðu fjósi á bænum Jörfa í Víðidal
í Vestur-Húnavatnssýslu i fyrrinótt. Hlaðan er nær ónýt eftir brun-
ann og hey bóndans farið forgörðum. Fjósið stendur uppi, en
skemmdist talsvert.
Tilkynnt var um eldinn um klukk-
an tvö um nóttina og fóm slökkvi-
lið Hvammstanga og Blönduóss á
staðinn. Slökkvistarf gekk nokkuð
vel, en hlöðunni varð ekki bjargað.
Hún var steypt í hálfa hæð, en efri
hlutinn var jámklædd timburgrind
og brann algerlega, auk þess sem
heyið eyðilagðist.
Fjósþakið skemmdist mikið í eld-
inum og einnig innréttingar í fjós-
inu. Kýr vom úti, en nokkmm kál-
far í húsi. Þeim var bjargað heilum
á húfi.
Talið er að kviknað hafi í vegna
hita í heyi. Ábúendur em ekki alveg
heylausir þótt hlaðan hafi bmnnið,
þar sem talsvert hafði verið heyjað
í rúllur, sem vom utan dyra. Bygg-
ingarnar voru tryggðar, en ekki
hefur verið metið hversu mikið tjón-
ið er.
CX
Morgunblaðið/KGA
Á Kjarvalsstöðum í gær. Frá vinstri: Kristján Davíðsson, Jóhannes Jóhannesson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Guðmundur Benediktsson, Steinþór Sigurðsson og Hafsteinn Austmann.
Kjarvalsstaðir;
Yfirlitssýmng Septem-
ber/Septemhópanna
Starfseminni mun ljúka með sýningunni
SEPTEMHÓPURINN opnar yfírlitssýningu á verkum September-
hópsins 1947 til 1952 og Septemhópsins 1974 til 1990 næstkom-
andi laugardag klukkan 16.00. Á sýningunni, sem stendur yfir til
9. september, eru verk eftir Ásmund Sveinsson, Nínu Tryggva-
dóttur, Siguijón Ólafsson, Gunnlaug Scheving og fleiri meðlimi
September og Septem hópanna.
Septemberhópurinn var upp-
haflega stofnaður af Jóhannesi
Jóhannessyni, Kjartani Guðjóns-
syni, Kristjáni Davíðssyni, Valtý
Péturssyni, Þorvaldi Skúlasyni,
Siguijóni Ólafssyni, Nínu
Tryggvadóttur, Snorra Arinbjarn-
ar og Gunnlaugi Scheving árið
1947. Auk þeirra sýndi Tove Ól-
afsson, eiginkona Siguijóns, með
hópnum.
Stofnun Septemberhópsins hef-
ur verið talin bein afleiðing þeirra
andstæðna sem komnar voru upp
í íslenskri myndlist milli þeirra
sem gerðu þá kröfu að listin
skyldi gera mynd af veruleikanum
samkvæmt klassískri hefð um
rökrétta heild milli tíma, mynd-
rýmis og allra einstakra þátta
myndefnisins og þeirrar skoðunar,
sem var öðru fremur grundvöllur
hópsins, að listamaðurinn ætti að
skapa nýjan veruleika sem notið
yrði á eigin forsendum og hefði
sín sérstöku lögmál. Ef frá eru
talin árin 1949 og 1950 hélt Sept-
emberhópurinn sýningar á hveiju
ári. Ekki tóku þó allir meðlimir
hópsins þátt í öllum sýningum en
með árunum bættust fleiri í hóp-
inn.
Septemberhópurinn starfaði til
ársins 1952 en árið 1974, eftir
að deilur um það hvort listin ætti
að vera mynd af veruleikanum,
voru hjaðnaðar stofnuðu nokkrir
félagar úr hópnum Septemhópinn
svokallaða sem starfað hefur allt
til þessa dags.
Steinþór Sigurðsson, einn úr
Septemhópnum, sagði í samtali
við Morgunblaðið að hópurinn,
sem upphaflega samanstóð af sjö
listamönnum, væri orðinn fáliðað-
ur og ákveðið hefði verið að ljúka
starfseminni með stórri yfirlits-
sýningu í báðum sölum Kjarvals-
staða. í Austursalnum eru verk
Septemberhópsins til sýnis en í
Vestursalnum verk Septemhóps-
ins._
Á sýningunni, sem ber yfír-
skriftina September/Septem, eru
verk sextán myndlistarmanna,
bæði málverk og skúlptúrar.
Eltingaleik-
ur við ölvað-
an ökumann
LÖGREGLAN stöðvaði ölvað-
an ökumann með því að aka
í veg fyrir bíl hans utan vegar
við Ananaust í fyrrinótt. Öku-
maðurinn hafði vakið athygli
lögreglu er hann ók bíl sínum
á öfugri akrein á Nóatúni.
Eltingaleikur lögreglu og
þess ölvaða barst um Laugaveg,
Skúlagötu, Tryggvagötu og
Mýrargötu. Er ökuþórinn kom
að mótum Mýrargötu og Ána-
nausta náði hann ekki beygjunni
og ók út af. Lögreglumenn óku
þá í veg fyrir hann og skullu
bílamir saman, en hvorki urðu
meiðsl á mönnum né miklar
skemmdir á bifreiðunum.
Stærsta rall ársins í hættu vegna
lítils yfírvinnukvóta lögreglu
SÝSLUMENNIRNIR í Gullbringusýslu og Árnessýslu hafa hafnað
beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, BÍKR, um leyfi til að
halda Kuhma-rallkeppnina í umdæmunum dagana 29. ágúst til 2.
september næstkomandi. Ástæðan er að yfirvinnukvóti lögreglunn-
ar í umdæmunum er svo lítill að hann dugi ekki til að halda uppi
venjubundinni löggæslu, hvað þá löggæslu við rallkeppni nema
til komi sérstök heimild frá dómsmálaráðuneytinu um aukna yfir-
vinnu.
BÍKR hefur staðið reglulega
fyrir rallkeppnum hér á landi und-
anfarin 15 ár og að sögn Birgis
Bragasonar, formanns BIKR, hef-
ur klúbburinn jafnan greitt lög-
reglunni fyrir löggæslu við slíkar
keppnir. Birgir sagði að sér skild-
ist að fyrir tveimur árum hefði
verið gerð sú breyting að greiðslur
einstaklinga og félagasamtaka til
lögreglunnar fyrir löggæslu við
dansleiki, íþróttakeppnir og annað
slíkt, renni beint í ríkissjóð en
ekki til þess embættis sem innti
störfin af hendi eins og áður hefði
verið. Unnin yfírvinna hafí síðan
verið dregin af yfirvinnukvóta við-
komandi embættis.
Birgir sagði að fulltrúi sýslu-
manns í Gullbringusýslu hefði
staðfest það í samtali við sig að
sýslumannsembættin í Gullbringu-
og Árnessýslu væru með þessari
synjun að tefla BÍKR fram til að
knýja fram þá leiðréttingu við
dómsmálaráðuneytið að greiðslur
frá einstaklingum og félagasam-
tökum fyrir löggæslu rynni beint
til viðkomandi lögregluembættis
og þau störf ekki dregin frá yfir-
vinnukvóta þeirra.
„Þetta var nú ekkert til að hafa
eftir mér og ég get náttúrulega
ekki gengist við því að hafa sagt
þetta,“ sagði Ásgeir Eiríksson,
fulltrúi sýslumanns í Gullbringu-
sýslu, þegar þetta var borið undir
hann.
Hann sagði jafnframt að það væri
ekki rétt að fyrirkomulaginu hefði
verið breytt fyrir tveimur árum
heldur snerist málið um það að
aukavinnukvótinn væri minni
núna.
Birgir sagði að greiðslur BÍKR
fyrir löggæslustörf vegna rall-
keppni hefðu numið 156.756 kr.
árið 1988 og 218 þúsund kr. í
fyrra. Birgir sagði vafa leika á því'
hvort BÍKR væri skaðabótaskyld-
ur gagnvart erlendum rallöku-
mönnum sem hafa skráð sig til
keppninnar. Fjórar erlendar
áhafnir, tvær frá Bretlandi og
tvær frá Frakklandi, 10-15 manns,
hafa skráð sig í rallkeppnina og
eru á leið til landsins. „Hins vegar
munum við gera allt sem við get-
um til að koma í veg fyrir að þeir
bíði fjárhagslegt tjón af þessu.
Við erum aðilar að alþjóðasamtök-
um og viijum ekki að verða fyrir
álitshnekki á erlendum vettvangi
vegna vitleysu hérna heima. Það
eru lög í þessu landi sem heimila
að haldnar séu akstursíþrótta-
keppnir og dómsmálaráðherra gaf
út reglugerð sem tók gildi 12. júlí
sl. um hvernig framkvæma skuli
slíkar keppnir. Framkvæmdavald-
ið er að stöðva það sem Iögin Ieyfa
okkur að gera og það finnst mér
erfiðasti bitinn að kyngja í þessu
máli,“ sagði Birgir.
Forsvarsmenn BÍKR gengu í
gær á fund forsætisráðherra sem
kom á fundi með þeim og dóms-
málaráðherra í dag.