Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 41

Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 41 Gunnar E. Bjama- son - Minning Fæddur 11. nóvember 1922 Dáinn 14. ágúst 1990 Aðfaranótt þriðjudagsins 14. ágúst sl. veiktist Gunnar Bjarnason skyndilega og lést skömmu síðar. Okkur hjónunum var illa brugðið, þegar við fréttum andlát hans, því að aðeins nokkrum dögum fyrr höfð- um við hitt Gunnar hressan að vanda. Gunnar fæddist í Hafnarfirði 11. nóvember 1922. Foreldrar hans voru Bjarni Erlendsson húsasmíðameist- ari og kona hans Júlía Magnúsdóttir húsfreyja. Þau hjón eignuðust sjö börn og var Gunnar þeirra elstur. Eftirlifandi systkini hans eru: Magn- ús, Gróa, tvíburarnir Eygerður og Sigríður, Kristrún og Ásthildur. Gunnar var húsasmíðameistari. Vann hann m.a. mikið á St. Jósefs- spítala, Hafnarfirði. Verður hans þar sárt saknað, því að hann var alltaf boðinn og búinn til starfa þegar hans var þörf. Árið 1954 kynntist Gunnar eftirlif- andi konu sinni Bryndísi Björgvins- dóttur frá Þórkötlustöðum, Grindavík. Þau gengu í hjónaband 26. desember 1955. Gunnar og Bryndís voru mjög samrýnd og var hjónaband þeirra afar farsælt. Þau hjón eignuðust tvö börn: Erlend húsasmið sem kvæntur er Andreu Ólafssdóttur og eiga þau tvö börn Selmu Kristínu og Gunnar, Áslaugu sem lært hefur og starfar við offset- skeytingu og plötugerð, en maður hennar er Þröstur Guðnason vélsmið- ur. Ég dáðist alltaf að því hversu samhent öll fjölskyldan var og hve mikla umhyggju og ástúð foreldrar og börn sýndu hveiju öðru. Gunnar og Bryndís bjuggu allan sinn búskap á hinu fallega heimili sínu að Suður- götu 64 Hafnarfirði. Þau hjónin voru góð heim að sækja enda einstaklega gestrisin. Gunnar var félagslyndur maður. Ungur gerðist hann skáti og tók virk- an þátt í starfsemi Hraunbúa og hjálparsveitar skáta. Hann var félagi í karlakómum Þrestir. Á yngri árum vann hann með Leikfélagi Hafnar- fjarðar. Auk þess var Gunnar mikill sjálfstæðismaður alla tíð. Mín fyrstu kynni af Gunnari voru fyrir sextán ámm, þegar Hjálmar eiginmaður minn kynnti mig fyrir systur sinni og mági. Þau kynni urðu upphaf mikillar og góðrar vináttu. Fáum mönnum hef ég kynnst, sem voru hjálpsamari én Gunnar. Hann var bókstaflega alltaf reiðubúinn til aðstoðar, hvort sem var að nóttu eða degi. Aldrei heyrði ég Gunnar hall- mæla nokkmm manni. Gunnar var að mínum dómi maður, sem ekki mátti vamm sitt vita. Með þessum orðum kveð ég Gunn- ar. Við hjónin og börn okkar vottum Bryndísi og allri íjölskyldunni inni- legustu samúð okkar. Guðrún Guðjónsdóttir Á kveðjustund langar mig til að þakka Gunnari E. Bjarnasyni fyrir góða viðkynningu. Vinátta okkar hófst árið 1945, þegar skátafélagið Hraunbúar í Hafnarfirði réðst í það stórvirki að reisa skátaskála við Kleifarvatn. Einhver úr félaginu benti stjórnendunum á að það mundi verða gæfa Hraunbúa við skálasmíð- ina ef Gunnar fengist til verksins. Hann var þá nýlega orðinn sveinn í húsasmíði og talinn efnilegur og dugandi við þau störf. Og skátafélag- ið Hraunbúar fór ekki halloka í við- skiptunum við Gunnar, sem tók að sér starfið. Hann gekk meira að segja í félagið og vann því svo vel, að það kæmi mér ekki á óvart, að það búi að því enn. Skátafélagið Hraunbúar var ekki eina félagið í Hafnarfirði, sem fékk að njóta krafta Gunnars. Hann var um árabil einn af félögum Leikfélags Hafnaríjarðar og þó að hann kæmi ekki oft fram í sviðsljós- ið var hann einn af þessum traustu liðsmönnum, sem sáu um að smíða og hagræða leiktjöldunum og annast þá muni sem nauðsynlegir voru þeg- ar leikið var. Þeir vita það best, sem fengist hafa við leiklist, hversu mikil- svert það er að hafa trausta og ábyggilega menn að tjaldabaki. Gunnar hafði fallega tenórrödd og var einn af söngmönnum karlakórs- ins Þrasta. Það sýnir ásamt því sem áður er sagt að hann taldi ekki eftir að lofa öðrum að njóta þess sem skaparinn hafði gefið honum í vöggu- gjöf. Gunnar E. Bjarnason var dagfars- prúður maður og vel látinn af sam- ferðafólkL.Ef ég ætti að lýsa honum með einu orði, eins og hann kom mér fyrir sjónir, mundi ég segja að Gunnar hafi verið líkur kærleikanum, eins og Páll postuli lýsir honum í fyrra bréfinu til Korintumanna 13.4. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður; kærleikurinn öfundar ekki; kærleikurinn er ekki raupsam- ur, hreykir sér ekki upp. Þannig var Gunnar E. Bjarnason í mínum aug- um. Það er skarð fyrir skildi, þegar góðir menn eru kallaðir burt og það ýtir óneitanlega við okkur sem eftir sitjum, þegar brottkvaðningin gerist svo fyrirvaralaust eins og hér átti sér stað. Við héldum öll sem þekktum Gunnar að sjúkdómar væru honum víðsfjarri. Hann bar utan á sér merki hraustleikans og hafði alla tíð lifað grandvöru lífi. Við kunningjar Gunn- ars munum sakna þess að hitta hann ekki oftar, en við eigum minninguna um góðan vin og félaga, sem ekki taldi eftir sér að gera vinum sínum greiða, þegar svo bar undir. Þó að vinirnir sakni Gunnars hlýt- ur söknuðurinn að vera mestur hjá Bryndísi eiginkonu hans og börnun- um, Erlendi og Áslaugu. Eg trúi því að einnig falli lítil tár af hvörmum ungra systkina, sem nú kveðja afa, sem þeim þótti svo vænt um. Um leið og ég þakka Gunnari E. Bjarna- syni samfylgdina bið ég fjölskyldu hans Guðs blessunar. Blessuð veri minning Gunnars E. Bjarnasonar. Markús B. Kristinsson Minning um góðan mann lifir, hún býr um sig hið innra og gleym- ist aldrei. Þegar Binna hringdi og sagði að Gunnar væri dáinn, þá var ég lengi að átta mig og skilja, svo fjarri mér var það. Gunnar sem aldrei var veikur, dáinn á örskots- stund, það var ótrúlegt, en það er margt sem við ekki skiljum. Kveðjuorð: Erla Pálsdóttir Fædd 6. júní 1932 Dáin 13. ágúst 1990 Erla Pálsdóttir fæddist í Hnífsdal og ólst þar upp. Hún fluttist suður til Reykjavíkur til skólanáms,_ og Iauk hjúkrunarnámi 1954. Árið 1956 giftist hún Eiríki Bjarnasyni, augnlækni. Þau bjuggu í Svíþjóð í áratug, meðan Eiríkur stundaði sérnám, en fluttust heim 1967 og bjuggu í Reykjavík. Þeirra synir tveir eru Auðunn og Bjarni. Hún starfaði við hjúkrun fyrstu árin eft- ir nám og einnig á síðari árum. Erla var vel gerð kona með trausta skapgerð, sem skýrast birt- ist síðasta hálfa árið, frá því bana- meinið gerði vart við sig. Hún lað- aði að sér vini, var vinföst og boðin og búin til hjálpar þegar þurfti. Hún var vandvirk, smekkvís og vandlát og góður uppalandi sona sinna. Hún var góðlynd og jafnlynd en ákveðin í skoðunum og föst fyrir. Jafnræði var með þeim hjónum Erlu og Eiríki og hjónabandið farsælt. Hún var gestrisin og áttum við hjónin marg- ar ánægjustundir á heimili þeirra hjóna. Erla hafði yndi af ferðalög- um, bæði erlendis, en þó einkum á íslandi. Naut hún sín vel á ferðum um landið í góðra vinahópi. Margra ferða höfum við hjónin notið með henni og Eiríki, og fleirum. Það er sárt að missa þá sem okkur þykir vænt um, það vitum við sem eftir lifum. Það vekur til umhugsunar hve lífið er stutt þegar rifjaðar eru upp gleðistundir, en það eru þær stund- ir sem ég man í minningunni um Gunnar Bjarnason. Ég er búin að þekkja hann síðan ég var 10 ára og vera vinur þeirra hjóna frá byrjun búskapar þeirra, þar sem við bjuggum í næsta húsi við þau fyrstu árin okkar og hefur sú vinátta haldist alla tíð og það eru gleðistundirnar sem hæst ber. Allir sem þekktu Gunnar Bjarna- son sáu að þar fór valmenni. Við hjónin vorum lánsöm að eiga hann að vini. Minningin um hann er geymd og mun ylja okkur þega við minnumst hans. Binna, Elli, Áslaug, Andrea, Þröstur, afabörnin Selma Kristín og litli Gunnar, öldruð tengdamóðir og systkini, megi góður Guð styrkja ykkur og minning um góðan dreng búa í hjörtum okkar. Sigga og Sverrir Elskulegur afi okkar Gunnar E. Bjarnason húsasmíðameistari lést 14. ágúst. Það er undarlegt að afi, svona hress og kröftugur, sé farinn frá okkur. Afi var fæddur 11.11. 1922 og elsti sonur hjónanna Júlíu Magnús- dóttur og Bjarna Erlendssonar hús- asmíðameistara. Afi giftist eftirlifandi ömmu okk- ar Bryndísi R. Björgvinsdóttur fæddri 25.1. 1936 árið 1956 ogþau eignuðust tvö börn, Erlend Gunnar Gunnarsson fæddan 3.2. 1955, hann er giftur Andreu Ólafsdóttur, og Áslaugu Gunnarsdóttur fædda 25.5. 1964, unnusti hennar er Þröstur Guðnason. Við viljum kveðja elskulegan afa okkar og þakka honum fyrir yndis- legar og góðar stundir. Hann var alltaf svo góður við okkur. Við kveðjum afa okkar með miklum söknuði með þessum sálmi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Selma Kristín Erlendsdóttir Gunnar Erlendsson Hún kvaddi að morgni 13. ágúst í góðu ferðaveðri. Við söknum hennar mjög. Agnes og Gunnsteinn t Útför bróður okkar, HANNESAR GUÐLEIFSSONAR, bifreiðastjóra, Þangbakka10, Reykjavík, verður frá Fossvogskapellu föstudaginn 24. ágúst kl. 10.30. Guðmundur Guðleifsson, Steinunn Guðleifsdóttir, Sigurður Guðleifsson, Guðrfður Guðleifsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, sonur minn, bróðir og mágur, INGÓLFUR ARNAR JÓNSSON bifreiðastjóri, Gyðufelli 2, sem lést 17. ágúst, verður jarðsunginn föstudaginn 24. ágúst kl. 15.00 frá Áskirkju. Aðalbjörg Jónsdóttir, Haraldur Ingólfsson, Kristín Ingólfsdóttir, Þorleifur Sigurðsson, Inga Ingólfsdóttir, Jón Þór Helgason, Jón Arnar Ingólfsson, Elín Ingólfsdóttir, Andri Már Helgason, Ingrid Baldvinsdóttir, Kristine Jónsdóttir, Ólafur Þorláksson, og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRNIÁRNASON, Lyngholti 5, Akureyri, verður jarðsetturföstudaginn 24. ágúst kl. 13.30frá Glerárkirkju. Guðrún Jakobsdóttir, Baldur Arnason, Bragi Árnason, Þór Árnason, Óðinn Árnason, Sigriður Árnadóttir, Jenný Lind Árnadóttir, Ólöf Árnadóttir, Anna Guðrun Árnadóttir, Hulda Lilý Árnadóttir, Hulda Þorvaldsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Gunnþóra Árnadóttir, Ingvi Flosason, Þorleifur Jónsson, Hörður Þórhallsson, Guðmundur Antonsson, Oddur Árnason og afkomendur. + Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls litla sonar okkar og bróður, GUNNARS BJARNATÓMASSONAR, Hólatúni 4 Sauðárkróki. Hjördís Gunnarsdóttir, Tómas Kristjánsson, Sigurlína D. Tómasdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför BORGHILDAR JÓNSDÓTTUR, Þingvallastræti 2, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Seli. Jakob Frfmannsson, Jakob Frfmann Magnússon, Borghildur Magnúsdóttir. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls eiginmanns míns og föður okkar, CHARLES E. BURRELL. Guðrún Burrell, Carl O. Burrell, Christian Friðrik Burrell. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för sonar okkar, bróður, fósturbróður og sonarsonar, STEFÁNS HERBERTS SVAVARSSONAR, Heiðmörk 51, Hveragerði. Árný Ingibjörg Filippusdóttir, Svavar Rúnar Ólafsson, Guðríður Svavarsdóttir, Ólafur Svavarsson, Berglind Harpa Sigurðardóttir, Guðríður Svafarsdóttir, Ólafur Halldór Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.