Morgunblaðið - 23.08.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
43
Morguríblaðið/Árni Sæberg
Kylfingar frá Sundridge Park og Golfklúbbi Reykjavíkur áður en keppnin hófst í Grafarholti á þriðjudag.
GOLF
Enskir kylfíngar við framandi
aðstæður á Grafarholtsvelli
Hópur kylfinga frá sundridge
Park golfklúbbnum í Brom
ley í Englandi lét ekki suðvestan
hvassviðri og lárétta rigningu
aftra sér frá því að leika golf á
Grafarholtsvelli í fyrradag.
Haldin var sveitakeppni milli
Englendinganna og Golfklúbbs
Reykjavíkur og fóru leikar svo
að heimamenn sigruðtí nokkuð
örugglega, enda aðstæðurnar
framandi fyrir ensku gestina.
Þeir luku þó miklu lofsorði á
Grafarholtsvöllinn og höfðu á
orði að gaman væri að koma aft-
ur og leika völlinn á fallegum
sumardegi.
Undanfarin ár hafa GR og
Sundridge Park átt mikil samskipti
og var Jóhann Sigurðsson, fyrrum
framkvæmdastjóri Flugleiða í
London, upphafsmaðurinn að þeim.
Að þessu sinni kom.hingað um 30
manna hópur frá Sundridge Park á
vegum Jóhanns og voru kylfingarn-
ir með frá 0 og upp í 25 í forgjöf
þannig að um blandaðar sveitir var
að ræða í keppninni. Elstu ensku
gestirriir voru um áttrætt. Auk
skoðunarferða um Reykjavík og
nágrenni og keppninnar f Grafar-
holti var einnig komið við í Hvamm-
svík í Hvalfirði í íslandsferðinni, en
Ólafur Skúlason í Laxalóni lagði í
upphafi dijúgt af mörkum til að
gera þessi vinaklúbbasamskipti að
veruleika.
í haust fer hópur íslenzkra kylf-
inga héðan til Bromley og verður
leikið við kylfinga frá Sundridge
Park 5. október í svokallaðri Anglo
Icelandic-keppni. Verður þetta í
þriðja skiptið. sem þessi keppni fer
fram í Bromley, en keppnin í Graf-
arholti á þriðjudaginn var fyrsta
keppnin af þessum toga hérlendis.
COSPER
Ég hefi skipt um skoðun.
Til söiu er Man 16-320, árgerð 1975. Með framdrifi og búkka. 6m. fast-
ur pallur, HIAB 550 krani. Bíllinn er í góðu standi, ekinn 230 þús. km.
Upplýsingar í síma 92-14949.
Hraðlestrarnámskeið
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Viltu lesa meira af góðum bókum?
Vilt þú ná góðum árangri í skólanum í vetur?
Á hraðlestrarnámskeiðum lærir þú að margfalda
lestrarhraðann með bættri eftirtekt.
Næsta námskeið hefst 29. ágúst.
_________Skráning er f síma 641091.________
HRAÐLESTRARSKOLINN
E
10ÁRA
Frábær uppskrift að fríinu
er einnai?^®*fVTTfBí
bJóðas,áf^ZZT
IViæsti
ferðaþjónustubær er
ávallt skammt undan.
GÆÐAÞJÓNUSTAÁGÓÐU VERÐI
Ferðaþjónusta bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg
Símar 623640,623643 og 19200.
Kjörvari og Þekjukjörvari
- kjörin viðarvöm utanhúss
Þurfir þú að mála við utanhúss, hvort sem um er að ræða sumarhús, glugga eða
grindverk, þarftu fyrst að ákveða hvers konar áferð þú óskar eftir. Sé ætlunin að halda
viðaráferðinni skalt þú nota Kjörvara sem er gegnsæ viðarvörn og til í mismunandi
litum. Ein til þrjár umfcrðir nægja, allt cftir ástandi viðar.
Kjósir þú aftur á móti hálfhyljandi áfcrð, sem gefur viðnum lit án þess að viðarmynstrið
glatist, mælum við með Þekjukjör-
vara sem einnig fæst í mörgum litum. .
Tvær umferðir eru í flestum tilvikum
nóg. Sé viðurinn mjög gljúpur skal
grunna hann fyrst með þynntum glær-
um Kjörvara og mála síðan yfir með
Þ ekj ukj ör vara.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús — kynntu þér þá hvaðan málningin er
lmálninghif
- það segir sig sjdlfi -