Morgunblaðið - 23.08.1990, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
Treystiröu annarri íilmu
fyrir dýrmœtu
minningunum þínum?
MÖBLER
Rólegt Og
gott að búa
í Breiðholti
Til Velvakanda.
Tilefni skrifa minna er árásin á
strætisvagnabílstjórann. Alltaf eru
það unglingamir úr Breiðholtinu
sem verða fyrir barðinu ef eitthvað
kemur þessu líkt upp.
Ég hef búið í Fellahverfi í Breið-
holti í nokkra mánuði. Hér er dá-
samlegt að eiga heima, rólegt og
gott. Eg hef ekki orðið var við þenn-
an svokallaða skríl. Ég bjó áður í
Norðurmýri þar sem var ekki nokk-
ur friður með bíla, en eftir að ég
flutti í Fellahverfi er þetta allt ann-
að líf.
Þessir hringdu
Enginn fótur fyrir
hækkunum á fargjöldum?
Hrönn hringdi:
„ Alveg er ég undrandi á því hvem-
ig staðið hefur verið að þessum
verðhækkunum hjá ferðaskrif-
stofunum. Engu líkara en að þær
hafí gripið kærkomið tækifæri til
að koma með afsökun fyrir því
að hækka verð á fargjöldum, þeg-
ar ljóst var að olíuhækkanir gætu
orðið. Og nú virðist sem enginn
fótur sé fyrir hækkununum og
flestar ferðaskrifstofanna hafa
dregið þær til baka. Ef Verðlags-
stofnun hefði ekki gripið í tau-
mana væru ferðalangar að greiða
2,5% hærra verð fyrir ferðir sínar
nú. Hvernig var útreikningum
ferðaskrifstofanna háttað?"
geta ekki haft veðurfréttirnar eins
og þær voru finnst mér að þeir
ættu að sleppa nauðungarsköttun
og nota áskriftarlykla svo fólk
geti þá valið. Það var mjög gott
form á veðurfréttunum eins og
þær voru og gott fyrir menn sem
hafa fylgst með þeim í áraraðir
að átta sig á hvernig veðurhorf-
urnar eru. Ég er viss um að það
er fullt af fólki sem er sama sinn-
is og ég. Núna skipti ég yfir á
Stöð 2 til að horfa á veðurfréttirn-
ar."
Fress í óskilum
Kolsvartur ca. 4ra mánaða gam-
all fress er í óskilum á Lindargötu
56. Kötturinn sem fannst á
Laugaveginum er með svarta
flauelsól með bjöllu, en ekkert
merkispjald. Þeir sem kannast við
köttinn geta hringt í síma 20375.
Tók úlpuna
Bryndís hringdi:
„Ég var ásamt 4ra ára dóttir
minni í Hagkaupum á Laugaveg-
inum 10. ágúst. Það var mjög
heitt í veðri og skildi télpan úlp-
una sína eftir inni í Hagkaupum.
Þegar ég uppgötvaði það um
hálftíma síðar fór ég strax til
stúlknanna í upplýsingum. Þá
hafði ung stúlka komið sem sagð-
ist vera að passa bamið sem ætti
þessa úlpu og var henni því af-
hent úlpan. Síðan hef ég ekki séð
úlpuna og veit ekki hvaða sjtúlka
þetta var sem tók hana. Úlpan
er fjólublá með grænu mynstri
og fjólubláum strikum, með renni-
lás og uppábroti á ermum. Þeir
sem vita um úlpuna eru beðnir
að skila henni í Hagkaup á Lauga-
veginum eða hringja í síma
686852.“
Lágmark að hleypa
starfsfólki inn hálf-
tíma fyrir opnun
Til Velvakanda.
Við undirrituð beinum orðum
okkar til Securitas. Það er alveg
óviðunandi að upp á hvern einasta
laugardag í sumar hefur starfsfólk
Kjörgarðs þurft að bíða úti til kl.
10 ogjafnvel lengur eftir að starfs-
menn ykkar komi ti! að opna hús-
ið. Þar sem búðirnar opna kl. 10
sér hver maður að það er lágmark
að hleypa starfsfólki inn 30 mínút-
um fyrir opnun. En við vitum að
ef opið væri í Hagkaup þá væri
búið að opna a.m.k. 30 mínútum
fyrir opnunartímann. Þar sem
margoft hefur verið hringt og
kvartað yfír þessu en allt setið við
það sama sáum við enga aðra
lausn en að setja þetta í blöðin
með von um úrbætur.
Asgerður Jóhannesdóttir
Unnur Eiríksdóttir
Erla Óskarsdóttir
Hafdís Guðmundsdóttir.
FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK
Tapaði myndavél
Hver á að þrífa í kringum
Hallgrímskirkju?
Reykvíkingur hringdi:
„Ég var að lesa í Velvakanda um
það hver ætti að þrífa í kringum
Borgarleikhúsið en hver á að þrífa
í kringum Hallgrímskirkju? Mér
finnst vera hálf sóðalegt í kring-
um kirkjuna og þá sérstaklega
norðaustan við hana. Þarna kem-
ur aragrúi af útlendingum og
ætti því að hafa snyrtilegra þarna
í kring.“
Lágmark að hafa almenni-
legar veðurfréttir .
Nýleg myndavél í gráu hulstri
tapaðist á BSÍ sunnudagskvöld
fyrir um viku. Átekin fílma er í
vélinni. Finnandi hringi í síma
667102.
Taska full af fötum týnd
Magnea hringdi:
„Dóttir mín fór á þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum og var stolið af henni
grárri og rauðri Look handtösku
sem var full af fötum. Reyndar
fékk hún jakka og skilríki til baka
en vantar töskuna með öllum hin-
um fötunum. Ef einhver veit um
töskuna bið ég þann hinn sama
að hringja í síma 98-34440.“
Þ.Þ. hringdi:
„Ég vil taka undir með Önnu og
Jónda járnsmið sem eru að ræða
um veðurfréttirnar í ríkissjón-
varpinu. Þegar maður er neyddur
til að borga afnotagjöldin af ríkis-
sjónvarpinu fínnst mér lágmark
að þeir hafí almennilegar veður-
fréttir, eins og þær voru. Ef þeir
Kettlingur týndur
Ca. 4-5 mánaða kettlingur týndist
frá Laugavegi fyrir um viku.
Kettlingurinn er svartur með
hvíta bringu, hvítar loppur og
svarta doppu á annars hvítu trýni.
Þeir sem vita um hann eru beðnir
að hringja í síma 29862.
nú getum við boðið þér það besta sem hægt er að fá frá
Bretlandi í sófasettum
Ouíiíne
Húsgagnstitöllin
REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI