Morgunblaðið - 23.08.1990, Page 51
toém
FOLK
■ SIGURÐUR Sveinsson, hand-
knattleiksmaður hélt í gær til Spán-
ar, en hann mun sem kunnugt er
leika með Atletico Madrid í vetur.
■ ANDERLECHT vann PSV
Eindhoven 3:0 á sterku fjögurra
liða móti á Spáni. Leikurinn fór
fram á hinum nýja Ólympíuleik-
vangi í Barcelona og var fyrsti
leikurinn sem spilaður er á þeim
vélli.
I MÖRK Anderlecht komu öll á
síðustu 20 mínútum leiksins og
voru það Brasilíumaðurinn Oli-
veira, Van der Linden og Ver
Heyer sem gerðu þau.
■ BARCELONA vann Spartak
Moskvu 1:0 á þessu sama móti með
marki Bakero.
■ MARADONA, fyrirliði arg-
entíska landsliðsins í knattspymu,
hefur lýst því yfir að hann hafi
áhuga á að taka að sér þjálfun liðs-
ins fyrir heimsmeistarakeppnina í
Bandaríkjunum 1994. Samningur
Maradona við ítalska liðið Napolí
rennur út 1993, en þær sögur
ganga að Maradona hyggist freista
þess að losna fyrr, jafnvel í lok
næsta keppnistímabils.
■ CARLOS Bilardo, þjálfari arg-
entíska landsliðsins undanfarin sjö
ár, sagði af sér eftir að liðið hafði
unnið silfurverðlaunin á Ítalíu fyrr
í sumar. Flestir veðja á að arftaki
hans verði Daniel Passarella sem
var fyrirliði Argentínumanna þeg-
ar þeir unnu heimsmeistaratitilinn
1978.
■ BRIAN Robson, hinn sein-
heppni fyrirliði Manchester United
og enska landsliðsins í knattspyrnu,
. verður líklega að taka sér frí frá
I knattspymuiðkun næstu þijá mán-
I uði. Robson hefur verið með ein-
dæmum óheppinn með meiðsli á
I ferli sínum sem knattspyrnumaður
1 og gekkst undir enn einn uppskurð-
inn á dögunum.
■ LEEDS United, sem á síðasta
keppnistímabili vann sér rétt til
þess að leika í 1. deild, hefur feng-
ið harðorða aðvömn frá enska
knattspyrnusambandinu vegna ól-
áta áhangenda liðsins. í maí síðast-
liðnum gengu tvö þúsund manns
berserksgang á leik Leeds og Bo-
urenmouth með þeim afleiðingum
að tuttugu áhorfendur og þijátíu
lögreglumenn slösuðust.
H í tilkynningu enska knatt-
spyrnusambandsins sagði að frekari
ólæti af hálfu bullanna sem fylgja
j Leeds myndu leiða til þess að liðið
þyrfti að leika næstu fjóra heima-
leiki fyrir luktum dymm, án áhorf-
i enda. Ennfremur sagði í tilkynning-
unni að ef Leeds stæði ekki við að
auka öryggisgæslu á vellinum gæti
i komið til þess að liðinu yrði vísað
úr knattspyrnusambandinu.
■ ÍTALSKA liðið Roma og
Benfica frá Lissabon gerðu 1:1
jafntefli í vináttuleik í gærkvöldi.
Giovanni Piacentini skoraði fyrir
Roma og Brito gerði mark
Benfíco.
■ CARL Lewis og félagar í Santa
Monica æfingahópnum gerðu
fimmtu tilraunina á árinu til þess
að bæta heimsmetið í 4x100 metra
boðhlaupi í gærkvöldi, en án árang-
urs. Sveitin hljóp á móti í Aust-
urríki og sagði Lewis eftir á að
kalt veður hefði sett strik í reikning-
inn. „Við vitum að í næsta sinn sem
I við hlaupum fellur metið,“ sagði
Lewis.
| B SVÍAR léku með B-lið gegn
Norðmönnum í Noregi í gær-
kvöldi og unnu óvænt, 2:1, í vináttu-
| landsleik í knattspyrnu. Aðeins
tveir leikmenn úr HM-liði Svía léku
- Thomas Brolin og markvörður-
inn Thomas Raveili, sem lék sinn
76 landsleik, en það eru fleiri lands-
leikir heldur allir aðrir leikmenn
sænska liðsins og varamenn hafa
j leikið.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 51
FRJALSAR IÞROTTIR
„Á báðum áttum hvort'
ég eigi að fara til Spl‘rt“
- segir EinarVilhjálmsson, sem á við meiðsli að stríða í hné. „Ef mótið væri alþjóðlegt boðs-
mótfæri ég ekki." Einar, Sigurður Matthíasson og Vésteinn kepptu í Svíþjóð í gærkvöldi
Einar Vilhjálmsson er í vafa hvort hann eigi að fara til Split.
„ÉG er á báðum áttum hvort
ég eigi að fara til Split í Júgó-
slavíu til að taka þátt t Evrópu-
meistaramótinu. Ef mótið í
Split væri alþjóðlegt boðsmót
myndi ég ekki fara,“ sagði Ein-
ar Vilhjálmsson, spjótkastari,
við Morgunblaðið eftir að hann
náði sér ekki á strik á móti í
Borás í Svtþjóð í gærkvöldi, þar
sem hann kastaði spjótinu
77,60 m.
rnr
Eg mun sofa á þessu í nótt og
tek ákvörðun á morgun [í dag]
eftir að ég hef rætt við forráða-
menn Fijálsíþróttasambands ís-
lands. Það fylgir því viss áhætta
að fara til Split. Annað hvort fer
ég þangað og læt reyna á hnéð, eða
pakka nú saman og set stefnuna á
heimsmeistaramótið á næsta- ári,“
sagði Einar, sem hefur verið slæm-
ur í hné frá því að hann meiddist
sl. vetur. Áður en hann setti ís-
landsmetið í Malmö á dögunum
fékk hann bólgueyðandi sprautu.
„Það er mikil áhætta að fá tvær
þannig sprautur á sama stað á
stuttum tíma, þannig að ég ætla
ekki að láta sprauta mig aftur,“
sagði Einar, en hann sagðist hafa
verið hálfdrættingur í atrennunni í
Borás, eins og í Grimsby á sunnu-
daginn. „Eg kiknaði undan fullum
hraða í atrennunni.“
Einar, Sigurður Matthíasson og
kringlukastarinn Vésteinn Haf-
steinsson náðu sér ekki á strik á
Ryavallen í Borás.
Einar kastaði lengst í sínu fýrsta
kasti - 77,60 m og hafnaði í öðru
sæti í keppninni, sem Svíinn Dag
Wennlund vann með því að kasta
79,24 m. Wennlund náði þó ekki
að tryggja sér farseðilinn á EM í
Split, en til þess varð hann að kasta
yfir 80 m í gærkvöldi. Sænska
fijálsíþróttasambandið, sem var
búið að tilkynna hann sem kepp-
anda þar, gaf honum tækifæri í gær
til að kasta yfir 80 m. Sigurður,
sem er slæmur í öxl, varð í þriðja'
sæti með 74,30 m og fjórði og
síðastur var Hákan Konstenius,
með 63,68 m.
Vésteinn kastaði lengst 59,78 m
og varð í öðru sæti. Vaclavas Kidik-
as frá Litháen varð sigurvegari —
kastaði 60,38 m og Svíinn Dag
Solhaug varð þriðji og síðastur með
53,98 m.
Kastseríur þeirra voru þannig í
gærkvöldi:
■Einar: 77,60-75,40-ógilt-74.82-
75.86—ógilt.
■Sigurður: 71,38-69,90-74,39-
72,70-72,72-71,28.
■ Vésteinn: 59,22-59,00-58,26—
58,06-59,00-59,78.
HANDKNATTLEIKUR
Tékkitil KA
Þrjátíu og níu ára fyrrum landsliðsmaður
FYRRUM tékkneskur lands-
liðsmaður í handknattleik,
Mikas Pavel, leikur með 1.
deildarliði KA frá Akureyri í
vetur. Hann er væntanlegur
til landsins í dag. Pavel er
útileikmaður — rétthent
skytta. Hann er 39 ára að
aldri.
Skv. þeim upplýsingum sem
KA-mönnum bárust um leik-
manninn hefur hann leikið í 18 ár
í tékknesku 1. deildinni; fyrst með
hinu fræga liði Dukla Prag en
síðari árin með Bohemia frá sömu
borg. Hann lék um níu ára skeið
með landsliðinu, en hefur ekki
verið með því allra síðustu ár.
Pavel er önnur skyttan sem
kemur í herbúðir KA fyrir kom-
andi keppnistímabil. Hans Guð-
mundsson verður einnig með lið-
inu í vetur. KA-menn hafa hins
vegar misst unglingalandsliðs-
manninn Karl Karlsson. Hann
verður með Fram.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Skagastúlkur náðu hefndum
ÍA sigraði Val með tveimur
mörkum gegn einu í 1. deild
kvenna í gærkvöldi. Með sigr-
inum tryggðu Skagastúlkur sér
annað sætiö í deildinni, en
stöllur þeirra úr Val urðu að
láta sér lynda þrjðja sætið. Það
má því segja að ÍA hafi tekist
að koma fram hefndum frá því
í bikarúrslitaleiknum á sunnu-
dag. Þá léku þessi tvö lið og
vann Valur með einu marki
gegn engu.
Slæmt veður hafði mikil áhrif á
gang mála í leiknum. Liðin
áttu í erfiðleikum með að hemja
boltann í rokinu, það rigndi allan
tímann og undir lokin var komið
haglél.
Júlía Sigursteinsdóttir átti mjög
góðan leik fyrir IA. Hún kom
Skagaliðinu yfir um miðjan fyrri
hálfleik með fallegu skallamarki.
Þegar tíu mínútur voru til leiksloka
jafnaði Guðrún Sæmundsdóttir fyr-
ir Val með góðu skoti utan af
kanti. Júlía kom aftur við sögu rétt
fyrir leikslok þegar hún var felld
innan vítateigs Vals. Ragna Lóa
Fj.leikja u j T Mörk Stig
BREIÐABUK 10 8 0 2 19: 5 24
ÍA 9 6 1 2 13: 7 19
VALUR 10 4 2 4 21: 12 14
KR 10 3 3 4 17: 19 12
ÞÓR 10 3 1 6 11: 16 10
KA 9 1 1 7 5: 26 4
Stefánsdóttir, þjálfari ÍA, skoraði
úr vítaspyrnu sem dæmd var og
tryggði liði sínu sigur.
Helena markahæst
Einn leikur er eftir í 1. deild
kvenna. KA og ÍA leika laugardag-
inn 25. ágúst kl. 14.00. Helena
Ólafsdóttir, KR, er markahæst í
deildinni með 7 mörk. Ragna Lóa
er markahæst hjá ÍA með 3 mörk
og Hjördís Úlfarsdóttir hefur skor-
að mest fyrir KA, 2 mörk. Það er
því ólíklegt annað en Helena verði
markahæst í sumar. Guðrún Sæ1-
mundsdóttir úr Val hefur gert sex
mörk í sumar og Bryndís Vals-
dóttir úr Val er með 5 mörk líkt
og Ellen Óskarsdóttir úr Þór Akur-
eyri.
SIGLINGAR
íslandsmót
kjölbáta
Islandsmót kjölbáta verður
fram haldið helgina 24. til
26. ágúst, en það hófst með
Faxaflóakeppni 21. júlf síðast-
liðinn. Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Siglingasambandi ís-
lands er búist við mikilli þátt-
töku á mótinu, allt að 20 bátum.
Upphaf hverrar umferðar er sem
hér segir:
1. umferð kl. 16.00 á föstudag.
2. umferð kl. 10.00 álaugardag.
3. umferð síðar á laugardag.
4. umferð kl. 10.00 á sunnudag.
Lokaskráning í mótið er í
dag, fimmtudag, milli kl. 18.00
og 22.00 við Brokeyjarbryggju
í Reykjavíkurhöfn.