Morgunblaðið - 09.09.1990, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 09.09.1990, Qupperneq 36
36 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 MYNDÞERAPÍA Verklegt námskeið Aðallega ætlað kennurum, fóstrum, þroskaþjálfum og öðru fagfólki í uppeldis- og heilbrigðisþjónustu. Myndlistarkunnátta engin forsenda. Á námskeiðinu fá þátttakendur raunhæfa æfingu í ýmsum þáttum, er eiga sér stað í myndþerapíu. • Sjálfsprottin myndsköpun • Myndskoðun • Sjálfsskoðun • Sjálfstjáning • Sjálfsstyrking • Hópumræða (hámark 9 manns) Leiðbeinandi verður Sigríður Björnsdóttir, löggiltur aðili að „The British Association of Art Therapists" (BAAT). Innritun og nánari upplýsingar ísíma 17114 í kvöld eftir kl. 19, nk. þriðjudag milli kl. 15 og 17 og flest kvöld milli kl. 22 og 22.30. Skrifstofa og lager Til leigu er nú þegar mjög gott, ca 340 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði í Skútuvogi. Sérlega hentugt fyrir innflutningsverslun. Upplýsingar veitir undirritaður: Tryggvi Agnarsson hdi., Garðastræti 38, Reykjavík, sími 28505. Njóttu þess besta -útilokaðu regnið, rokið og kuldann íslensk veðrátta er ekkert lamb að leika við. Þess vegna nýtum við hverja þá tækni sem léttir okkur sambúðina við veðrið. LEXAN ylplastið er nýjung sem gjörbreytir möguleikum okkar til þess að njóta þess besta sem íslensk veðrátta hefur að bjóða - íslensku birtunnar. LEXAN ylplastið er hægt að nota hvar sem hægt er að hugsa sér að Ijósið fái að skína, t.d. í garðstofur, yfir sundlaugar, yfirbyggingu gatna, yfir húsagarð, anddyri og húshluta. Möguleikarnir eru óþrjótandi. LEXAN ylplast • Flytur ekki eld. Er viðurkennt af Brunamálastofnun. • Mjög hátt brotþol. DIN 52290.. • Beygist kalt. • Meiri hitaeinangrun en gengur og gerist. • Hluti innrauðra geisla ná í gegn. GENERAL ELECTRIC PLASTICS LEXAN ylplast - velur það besta úr veðrinu. SINDRI BORGARTÚNI 31 • SlMI 62 72 22 BAKÞANKAR Fögur er hlíðin eftir Ólaf Gunnarsson Nú fer hún að renna af fjalli blessuð sauðkindin. Þegar ég sé ær í haga fæ ég vatn í munn- inn. Þegar ég sé fallega rollu með litlu lömbin sín sé ég þau fyrir .... mér á fati með brúnaðar kartöfl- ur i kring. Rétt eins og tilveran væri teiknimynd. Ég er ákaflega veikur fyrir svið- um og hefur svo verið frá barn- æsku. Samt á ég i vandræðum með hnakkaspik. Það gerðist einu sinni að ég kom í hús, þar voru nokkrar konur að laga sviðasultu fyrir sjötugsafmæli. Sem þær ætla að reiða fullt fat af hnakkaspiki ofan í ruslapoka verður mér á að segja; Hendið ekki matnum stúlk- ur, færið mér. Ég át af troginu. Þarna fékk ég mig fullsaddan af hnakkaspiki í eitt skipti fyrir öll. Ykkur að segja. Faðir minn átti afgirtan kart- öflugarð í eina tíð. Svarta rollan átti sumarið 1960. Þetta var grindhoruð ær, kolbikasvört, hún var eins og háfætt negrastelpa og hoppaði yfir girðinguna á hverri nóttu og hakkaði í sig kartöflu- grösin. Svo fótfrá var hún að eng- in leið var að festa á henni hend- ur. Svo kom okkur til aðstoðar spretthlaupari í lögreglunni. Hann gómaði svörtu rolluna og við ókum með hana til Hveragerð- is. Næsta morgun þegar faðir minn leit út um gluggann varð honum að orði: Ansans ári er hún seig! Svarta rollan var að éta kart- öflugrös. Hún hafði skokkað Hell- isheiðina um nóttina til að kom- ast í gotti-nammið sitt. Þetta sum- ar lærði ég að bera virðingu fyrir sauðkindinni. Er til nokkuð notalegra i ver- öldinni en myndir af íslendingum í útreiðartúr á siðustu öld. Síðskeggja karlar og konur á peysufötum í lyngmóa, einn réttir silfurpela mót ljósmyndara. Ann- ar verkar með vasahníf af sviða- kjamma. Klárarnir grípa niður. Slegið hár stúlknanna glóir við sólu. Ég held ég sé fæddur á vit- lausri öld. Ég skrapp með kunningja mínum í Fljótshlíðina um daginn. Við klifum Stóra-Dímon. Ekki mun reyndum fjallgöngumönnum þykja mikið til þessa afreks koma, en það var þrekvirki fyrir mig. Stóri-Dímon stendur við Markar- fljót og svo sagði mér jarðfræðing- ur að fjallið væri tindur á enn stærra fjallið' sem sokkið hefði í sandinn endur fyrir löngu. Þetta fannst mér merkilegt og við lá ég yrði alvarlega lofthræddur þegar ég sat á grasivöxnum tindinum og hugsaði um alla þá ómældu kílómetra sem fjallið er á lengdina í jörðu. Þarna eigum við íslending- ar okkar Everest. Meinið er: Það er niðurgrafið. Við snæddum nestisbita á tind- inum. Ég hafði vitaskuld með mér svið, félagi minn hafði grillað sér kjúkling. Þarna í fjallinu gekk fram á okkur rolla og jarmaði sturluð. — Hvað er að kindinni, spurði ég og át af kjammanum. — Hvað heldurðu drengur, sagði félagi minn. — Hvað myndir þú gera ef þú gengir fram á rollu sem sæti með mannshöfuð í fang- inu. Nú gerðist nokkuð stórmerki- legt. Að dreif maðkaflugnaský sem var sem bergnumið af kjammanum mínum. Þær litu ekki við grilluðum fugli félaga míns. Þær hó_puðust suðandi í kringum mig. Eg skar af hnakka- spikið og þeytti því neðar í Stóra- Dímon. — Hva, hendirðu því besta, sagði félagi minn. — Já, svona þjóðlegar flugur eiga það skilið að maður veiti þeim vel, svaraði ég, Maðkaflugurnar hurfu að sinna sínum skammti. Þær eru því vanastar flugurnar í Fljóts- hlíðinni að menn leggist í lautu og taki fram íslenskt nesti. Svið skulu það vera. Ekkert útlenskt gums. Vonandi var svarta rollan snædd á þessum slóðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.