Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
211. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólland:
Lech Walesa býður
sig fram til forseta
Varsjá. Reuter, dpa.
LECH Walesa, þekktasti leiðtogi Samstöðu, hreyfingar pólskra lýðræð-
issinna, lýsti yfír því í gær að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér
í væntanlegum forsetakosningum í Póllandi. Líklegt er talið að þær
verði annaðhvort síðar í ár eða i byrjun þess næsta.
Nánustu aðstoðarmenn Walesa
höfðu boðað að hann myndi gefa
kost á sér en sjálfur hafði hann þrá-
faldlega látið að því liggja að sú
yrði raunin. Walesa skýrði frá þess-
ari ákvörðun sinni í Gdansk og sagði
í yfirlýsingu hans að þetta væri í
samræmi við heit er hann hefði gef-
ið í ágústmánuði árið 1980 er hann
lýsti yfir því að hann hygðist berjast
til þrautar fyrir því að lýðræði yrði
innleitt í Póllandi.
Líklegt er talið að Tadeusz
Mazowiecki, forsætisráðherra Pól-
lands og fyrrum samheiji Walesa,
bjóði sig einnig fr'am í forsetakosn-
ingunum. í sumar varð ijóst að klofn-
Meirihluti
Finna vill
aðild að EB
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SAMKVÆMT nýlegri skoðana-
könnun eru 53% Finna hlynnt
aðild Finnlands að Evrópubanda-
laginu (EB). Mikill meirihluti
þeirra sem styðja aðild setur samt
það skilyrði að Svíar gangi í EB
um leið og Finnar.
Talsmenn sænskra jafnaðar-
manna, þ. á m. Ingvár Carlsson for-
sætisráðherra og Sten Anderson ut-
anríkisráðherra, hafa sagt að Svíar
geti gengið í EB fáist tryggingar
fyrir því að bandalagið gegni ekki
hernaðarlegu hlutverki. Finnskir
jafnaðarmenn virðast ekki jafnrót-
tækir _og sænskir flokksbræður
þeirra. í Finnlandi eru það helst full-
trúar hægri manna sem hafa verið
fylgjandi EB-aðild.
I skoðanakönnuninni kemur fram
að það er helst menntað fólk í þétt-
býli í Suður-Finnlandi, sem er hlynnt
EB-aðild.
Lech Walesa
ingur væri kom-
inn upp í röðum
Samstöðumanna
vegna ágreinings
um lýðræðisþró-
unina í landinu.
Fylgismenn for-
sætisráðherrans
væna Walesa um
valdagræðgi en
hann og stuðn-
ingsmenn hans vilja að forsetanum
verði tryggt verulegt framkvæmda-
vald likt og tíðkast í Bandaríkjunum
og Frakklandi. Walesa hefur á hinn
bóginn gagnrýnt Mazowiecki og
ríkisstjórn hans og boðað að hraða
beri bæði áformum um einkavæð-
ingu og lýðræðisþróuninni í landinu.
í dag, þriðjudag, koma helstu
stjórnmálaleiðtogar Póllands saman
til fundar til að ræða hvort flýta
beri þing- og forsetakosningum.
Flest þykir benda til þess að Jaruz-
elski, núverandi forseti og fyrrum
leiðtogi pólskra kommúnista, sé
reiðubúinn að leggja niður völd en
almennt er talið að staða Walesa sé
mjög sterk.
Fagnaðarfundur í Moskvu
Reuter
Ronald Reagan, fyrrum forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokks-
ins, féllust í faðma er þeir hittust á ný austur í Moskvu í gær. Fyrr um daginn hafði Reagan ávarpað Æðsta
ráð Sovétríkjanna og farið lofsamlegum orðum um umbótastefnu Gorbatsjovs, sem bauð honum í heimsókn
til Moskvu. TASS-fréttastofan kvað Sovétleiðtogann og aðra ráðamenn sovéska hafa sagt að þakka bæri
Ronald Reagan sérstaklega fyrir framlag hans til bættra samskipta risaveldanna.
Ráðgjafí Gorbatsjovs segir efnahagsástandið fara síversnandi:
Frekari hörmungum aðeins
afstýrt með markaðskerfí
Moskvu. Reuter, dpa, The Daily Telegi'aph.
EINN helsti efnahagsráðgjafi i bágbornara en almennt væri talið
Míkhaíls S. Gorbatsjovs, leiðtoga og sagði að meiriháttar hörmung-
sovéska kommúnistaflokksins, ar blöstu við yrði þegar í stað
lýsti yfir því í ræðu á þingi í gær ekki mörkuð sú leið sem fara
að efnahagsástandið væri mun I bæri til að koma á markaðshag-
Hneykslismál í Noregi:
Syse hyggst ekki segja af sér
Ósló. Frá Helge Sörensen, frétlaritnra Morgunblaðsins.
Æ FLEIRI spurningar vakna nú um pólitíska framtíð Jans P. Syse,
forsætisráðherra Noregs, eftir að upp komst um óreiðu í rekstri hluta-
félaga sem hann hefur verið í forsvari fyrir og ítrekuð lögbrot.
Syse sagðist í gær hvorki hafa í
hyggju að segja af sér sem forsætis-
ráðherra né sem flokksleiðtogi en
harmaði mistökin. Það hversu skjótt
málið hefur verið upplýst og vissan
um að ekki sé von á fleiri uppljóstr-
unum koma þó sennilega í veg fyrir
að mjög hart verði lagt að Syse að
segja af sér. Lögbrot Syse voru tii
umræðu á ríkisstjórnarfundi í gær
og forsætisráðherrann aflýsti kvöld-
verði með Manfred Wörner, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, til þess að fá meira ráðrúm
til að fara yfir reikninga hlutafélag-
anna.
Um er að ræða þijú hlutafélög
sem stofnuð voru um rekstur fjölbýl-
ishúsa. Syse á hlut í þeim öllum og
hefur verið stjórnarformaður
tveggja þeirra. Svo virðist sem rekja
megi óreiðuna í hlutafélagarekstri
Syse aftur til ársins 1986. Hvað al-
varlegast þykir að löggiltur endur-
skoðandi fór ekki yfir ársreikninga
félaganna heldur gjaldkeri eins
þeirra, Jon Elden að nafni, sem jafn-
framt er náinn vinur Syse. Einnig
hefur komið í ljós að Syse tók veru-
lega upphæð að láni hjá einu hlutafé-
laganna á meðan_ hann var þar
stjórnarformaður. Á sama tíma var
það rekið með halla og eiginfjárstaða
þess var neikvæð. Þar fyrir utan lét
Syse undir höfuð leggjast í þijú ár
að boða til aðalfundar í félögunum.
Syse
kerfi í Sovétríkjunum. Fyrir þing-
heimi. liggja tvær tillögur um
framtíðarstefnu stjórnvalda á
vettvangi efnahagsmála. Önnur
þeirra kveður á um að markaðs-
kerfi verið innleitt á 18 til 24
mánuðum, hin, sem þykir mun
hófstilltari, er lögð fram í nafni
Nikoljas Ryzhkovs forsætisráð-
lierra sem mjög á nú undir högg
að sækja en á sunnudag kröfðust
þúsundir Moskvubúa afsagnar
hans.
Ráðgjafi Gorbatsjovs, Abel Ag-
anabegíjan, sagði að vöruskorturinn
og ólgan í sovésku samfélagi kynni
að reynast bamaleikur einn saman-
borið við það sem í vændum væri
yrði þegar í stað ekki brugðist við
þessu ófremdarástandi. „Efnahags-
ástandið er hörmulegt og mun verra
en það virðist á yfirborðinu," sagði
Aganabegíjan á fundi Æðsta ráðsins
sem Míkhaíl ,S. Gorbatsjov var við-
staddur. Voru þessi orð ráðgjafans
túlkuð sem aðvörun til forustusveitar
kommúnistaflokksins en á þingi Sov-
étríkjanna er enn deilt um hvort
koma beri á markaðshagkerfi á 18
til 24 mánuðum eins og hagfræðing-
urinn Staníslav Sjatalín hefur lagt
til eða hvort fara beri að hugmynd-
um Nikolajs Ryzhkovs forsætisráð-
herra, sem þykja liggja mun nær
hefðbundnum kennisetningum sov-
éskra kommúnista.
Um 30.000 manns komu saman
í miðborg Moskvu á sunnudag og
kröfðust þess að Ryzkov segði af
sér en Gorbatsjov sagði í gær að
þessi krafa væri með öllu óraunhæf.
Breytingar á forystusveitinni nú
myndu einungis auka á óvissuna í
sovésku samfélagi. Hins vegar var
farið gagnrýnum orðum um Ryzhk-
ov og ríkisstjórnina í forystugrein í
fiokksmálgagninu, Prövdu.
Gorbatsjov lýsti óvænt yfir því í
gær að efna bæri til þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvort leyfa ætti ein-
staklingum að eignast land. Nú geta
sovéskir bændur fengið landskika á
leigu frá ríkinu en á dögum Jósefs
Stalíns var ræktunarland allt þjóð-
nýtt og bændur neyddir til að taka
upp samyrkjubúskap. Staníslav Sjat-
alín lýsti sig þegar í stað andvígan
þessari hugmynd og sagði að undir-
búningur þjóðaratkvæðagreiðslu
myndi taka sex mánuði hið minnsta.
Þjóðin mætti á hinn bóginn ekki við
þvi að málinu yrði slegið á frest með
þessum hætti. Athygli vakti að Gorb-
atsjov kvaðst telja að áætlun Sjat-
alíns væri um margt gölluð en áður
hafði hann lýst sig fylgjandi þeim
róttæku breytingum, sem hún kveð-
ur á um.
Sjá „Tugþúsundir krefjast af-
sagnar Ryzhkovs" á bls. 22.