Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990 43 hann átti eftir að starfa hjá til æviloka. / Þar leið honum vél. Honum var sýndur trúnaður og falin stjórnun- arstörf og hann eignaðist ijölda vina úr röðum samstarfsmanna og úr þeirra röðum fann hann eiginkonu- efni sitt, Ragnhildi Þóroddsdóttur gjaldkera hjá Pósti og síma. Þau giftu sig 23. apríl 1966, við vissum, sem til þekktum að Addi hafði eignast nýjan bakhjarl, konu sem vildi veg hans sem mestan konu sem var reiðubúin til að standa honum að baki til að stuðla að því að hæfileikar hans fengju að njóta sín. Addi var fulltrúi aðalbókhalds Pósts og síma og hafði að síðustu umsjón með erlendum viðskiptum stofnunarinnar á árunum 1966- 1977, en frá miðju ári 1977 var hann yfirmaður símamálaskrifstof- unnar allt til dauðadags. Síðasta starf Adda var að gera Telefax- símaskrá en að því starfi vann hann milli uppskurða sem hann gekkst undir í sínum erfiðu veikindum. Hvað réði því að þessum símvirkja voru falin öll þessi trúnað- arstörf? Jú, svarið liggur í augum uppi. Andrés var alltaf að auka við menntun sína og þekkingu og átti eiginkona hans Ragnhildur eða Agga eins og hún er kölluð ekki síst sinn þátt í, en hún var óþreyt- andi við að beina honum að þeim leiðum í lífinu sem honum yrðu til góðs. Með vinnu sinni las hann utan- skóla við sinn gamla skóla Mennta- skólann í Reykjavík árin, 1971- 1974 og þaðan lauk hann stúdents- prófi 1974 með 1. einkunn. Hann stundaði nám í heimspekideild HI árin 1974-1977 og lauk þaðan þriðja stigs prófi í ensku með 1. einkunn. Þetta nám og frábær íslenskukunnátta gerði honum kleift að taka að sér og sjá um útgáfu Póst- og símatíðinda. Hann var frá 1979 í ritstjórn Símablaðs- ins og sá sérstaklega um skrif er vörðuðu félagsmál. Frá sama tíma sá hann um enskukennslu á ýmsum námskeiðum í Póst- og símaskólan- um auk þess sem hann sá um þýð- ingar tæknimáls fyrir Póst og síma. Hvar er svo persóna Andrésar Fjeldsted Sveinssonar þegar lýsingu á starfsævi hans er lokið? Getur hún hafa gleymst? Nei, síður en svo. Hann var þannig maður að hann var sífellt að leita sér aukinn- ar þekkingar. Þetta gerði hann fyrst og fremst með lestri góðra bóka og stöðugri þekkingarleit í erlend- um tímaritum. Hann sótti námskeið Dale Carnegie í ræðumennsku, mannlegum samskiptum og um samskipti við starfsfólk fyrirtækja og áður en mjög mörg ár liðu var hann sjálfur orðinn fyrirlesari og leiðbeinandi á námskeiðum þessum. Hann hafði einnig öðlast réttindi sem leiðsögumaður eftir nám á veg- um Ferðaskrifstofu ríkisins. Þegar ég kom á heimili Adda á biðilsbuxunum eftir eldri systur hans hafði ég gaman af. Ekki að- eins að kynnast konuefni mínu á heimili foreldra sinna heldur og að kynnast fjórum „snargeggjuðum" unglingum, bræðrum hennar með undantekningu þó, að einn „herra- maður“ væri á meðal þeirra, - Andrés! Að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram að „lafðin“ var frú Ásta, sem hélt sinni stóisku ró á hveiju sem gekk. Vera má að okkúr Andrési hafi strax orðið vel til vina vegna þess að ég hafði þá þegar haslað mér völl í pólitík. Það hafði hann Iíka gert því strax sextán ára gekk hann í félag ungra sjálfstæðismanna. Sjálfsagt var þetta ekki föður hans að skapi, sem hann fékk jú að heyra, því hans annars ágæti faðir og tengdafaðir minn var jú fæddur framsóknarmaður og því fékk eng- inn breytt fremur en norðurljósun- um! Adda þótti því gott að fá nýjan mann með sér á vígvöllinn. En svona var mágur minn. Skoðanir hans sjálfs á mönnum og málefnum réðu öllu hjá honum. Hann var einlægur stuðnings- maður Sjálfstæðisflokksins alla tíð og þess naut ég öll þau ár sem ég var í pólitík. En Addi hugsaði víðar og stærra. Strax við stofnun sam- taka um vestræna samvinnu gekk hann til liðs við þann félagsskap og studdi hann með ráðum og dáð til hinstu stundar. Hann gegndi formannsstöðu í félagi ofnæmis- og astmasjúklinga um a.m.k. íjögurra ára skeið og hefur auk þess setið í stjórn félagsins um langt árabil. Eg og fjölskylda mín ásamt þeim Adda, Óggu og Kristínu frænku hennar höfum átt um langt árabil eitt kvöld saman. Það er aðfanga- dagskvöld. Við komum saman á heimili mínu og konu minnar, við borðuðum saman og sátum síðan og fylgdumst með þegar börnin og síðar barnabörnin opnuðu jólapakka sína. Þá leið Adda vel, því hann var afburða barngóður og hafði yndi af því að vera í nálægð bama. Þeirra stunda munum við öll minn- ast ekki síður börnin sem nú eru búin að ná fullorðinsaldri. Þeir sem stunduðu mág minn þau ár sem hann háði sína erfiðu sjúk- dómsbaráttu eru sammála um að Andrés hafi sýnt aðdáunarverða þolinmæði sem fáir hefðu betur getað sýnt. Auk þess að hafa þrek til að þola það sem fáir hefðu getað borið. Undir þessu stóð Andrés ekki einn. Við hlið hans alla sjúkdóms- baráttuna stóð eiginkona hans, sat við hlið hans á spítalanum fylgdi honum og þjónaði í Hveragerði og heima hjá þeim síðustu vikurnar með dásamlegri hjálp heimahlynn- ingar Krabbameinsfélagsins. Fórn- fýsi hennar og þrek hefur verið ein- stakt. Hér koma vissulega fleiri til bæði bræður hans, æskuvinir og spilafélagar sem haldið hafa saman um tugi ára. Því miður hitti ég Andrés mág minn ekki svo oft sem ég vildi síðustu mánuðina en þegar ég kom þá kveinkaði hann sér aldrei en bar sína byrði með karlmannlegri reisn. Húmorinn sem hann var þekktur fyrir var við hún til hinstu stundar. Eg vil hafa sem lokaorð mín þau orð sem mér finnast lýsa honum best: Hann tók örlögum sínum með æðruleysi og kjarki, þolinmæði og ótrúlegum viljastyrk. í gegnum líf sitt reyndist Andrés öllum hinn besti drengur hjálpsam- ur og kurteis, hinn fæddi hefðar- maður. Fari mágur minn vel og hafi hann þakkir fyrir það lífshlaup sem við áttum saman. Ég færi ykkur, systkinum hans, mínar innilegustu samúðarkveðjur og þá ekki síður ykkur Ástu móður hans og Ragnhildi eiginkonu sem ber sérstaka þökk fyrir fórnfýsi sína og ástúð sem hún sýndi Adda til hinstu stundar. Guð veri með ykkur öllum. Pétur Sigurðsson Sigursteinn D. Eyj- ólfsson — Kveðjuorð Sunnudaginn 22. júlí sl. lést í Árborg Vestur-íslendingurinn Sig- ursteinn Davíð Eyjólfsson 71 árs að aldri. Sigursteinn, eða Steini eins og hann var ævinlega kallaður, fædd- ist 7. desember 1918 og ólst upp á Geysi í Manitoba. Á yngri árum stundaði hann íþróttir og einna helst glímu og var síðar þekktur kennari í þeirri íþrótt. Árið 1944 kvæntist hann eftirlif- andi konu sinni, Sollu Sigvaldason, og saman hófu þau búskap það ár á eigin jörð í Árborg, þar sem þau bjuggu síðan. Börn þeirra tvö eru Joan, sem gift er Ahmed Hideib, og eiga þau tvö börn, og Melvyn, en kona hans heitir Audrey og eiga þau fjögur börn. Þeir feðgar bjuggu saman félagsbúi síðustu árin. Áhugi og dugnaður Steina við búskapinn var rómaður og reyndist hann afar lánsamur og dugandi bóndi. Jafnhliða búskapnum stund- aði hann talsvert veiðar á Winnipegvatni. Steini var einstaklega glaðvær og félagslyndur og hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Þá var hjálpsemi hans við brugðið og minnast eflaust margir íslendingar hans fyrir þær sakir eftir ferðalög til Kanada'á liðnum árum. Um leið og við frændfólk hans á íslandi þökkum Steina góð kynni og vináttu viljum við senda konu Legsteinar Sérfræðingctr í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12 Framleiðum allar stærðir og gerðlr af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. .HELfiASON HF TEINSMIDJA MMUVEGI48.SIMI 7667? á horni BergstaðBsirætis sími 19090 hans og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Ingibjörg og Ingólfnr á Grænahrauni. Blómastofa Friöfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- elnnig um helgar. Skreytingar við öll tílefni. Gjafavörur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- þel við fráfall og jarðarför, LEIFS ÁSGEIRSSONAR prófessors. Hrefna Kolbeinsdóttir og fjölskylda. Í Útför föður okkar, tengdaföður og afa, MEYVANTS SIGURÐSSONAR frá Eiði, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 19. september kl. 13.30. Börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SOFFÍU SIGURHELGU SIGURHJARTARDÓTTUR, Sigurhjörtur Pálmason, Anna Pálmadóttir, Haukur Pálmason, Hreinn Pálmason, Friðrik Pálmason, Sigríður Pálmadóttir, °9 Unnur Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Aðalheiður Jóhannesdóttir, Karoia Sander, Kristján Sæmundsson barnabörn. + Eiginmaður minn, KRISTJÁN V. JAKOBSSON, frá Patreksfirði, Jökulgrunni 1-B, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. septem- ber kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hins látna láti líknarfélög njóta þess. Fyrir hönd vandamanna, Þorbjörg Jónsdóttir. + Af heilum hug, þökkum við sýndan kærleik, vináttu og stuðning' í veikindum við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður og tengdaföður, HARALDAR BJÖRNS ÞÓRARINSSONAR, Garðarsbraut 36, Húsavfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans. Ásdís Kristjánsdóttir, Þórarinn Þórarinsson, Sigþór Haraldsson, Brynja Ragnarsdóttir, Kristján Viðar Haraldsson, Sólrún Birgisdóttir. + Kæru vinir fjær og nær. Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlý handtök, heimsóknir og vinarhug við andlát og útför móður minnar, eiginkonu og syst- ur okkar, MILDRÍÐAR SIGRÍÐAR FALSDÓTTUR frá Barðsvík, Grunnavíkurhreppi, N-ís. húsfreyju fyrr í Bolungavík siðar í Bólstaðarhlfð 50, Reykjavík. Helgi Falur Vigfússon, Vigfús Jóhannesson, Jakob Kristján Falsson og fjölskylda, (safirði, Gunnvör Rósa Falsdóttir, Dvalarheimilinu Felli, Skipholti 21, Reykjavik. Lokað í dag, frá kl. 14.00-16.00, vegna jarðarfarar ÓLAFAR HELGADÓTTUR. Fatahreinsunin Snögg. Lokað eftir kl. 12.00 á morgun, 19. september vegna jarðarfarar KRISTJÁNS JAKOBSSONAR frá Pat- reksflrði. Vélsmiðjan Faxi hf., Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.