Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ VmSKDPTIfflVINNUIÍr ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990 31 Hafnarfjörður Opnun Bónusversl- unar leiðir til auk- innar samkeppni Hjá Fjarðarkaupum lækkar vöruverð, en hjá Miklagarði er lögð áhersla á vikuleg tilboð OPNUN Bónusverslunar í Hafnarfirði hefur orðið til þess að verslunin Fjarðarkaup hefur nú þegar lækkað verð á ýmsum vörutegundum, en hjá versluninni Miklagarði í Garðabæ fengust þær upplýsingar að þeir leggja áherslu á að vera með tilboð á daglegum neysluvörum. Sigurbergur Sveinsson eigandi Fjarðarkaupa sagði í samtali við Morgunblaðið, að erfiður tími hefði verið hjá þeim á sl. árum vegna þeirra verslana sem hefðu hætt rekstri bæði í Garðabæ og Hafnar- firði. Þær verslanir hefðu iðulega boðið lágt vöruverð til þess að laða til sín viðskiptavini, en hefðu síðan ekki getað haldið rekstrinum gang- andi. Þeir hefðu staðist þá sam- keppni og þeir mundu mæta annarri samkeppni á sama hátt. „Fjarðar- kaup eru þekkt fyrir lágt vöruverð og við lögum okkur að samkeppninni eins og hún er hveiju sinni. Núna höfum við lækkað verð á svipaðri vöru og Bónus er með. Við viljum ekki að viðskiptavinir okkar þurfi að fara á marga staði til að kaupa inn. Utkoman hefur verið góð hjá okkur á sl. árum og við höfum greitt háa skatta. Við getum allt eins lækkað vöruverð og látið viðskiptavinina njóta þess. Hitt er annað mál að verslun eins og Bónus hefur mjög takmarkað vöruúrval, er ekki með kjötborð og reksturinn byggir á allt öðrum forsendum en hjá okkur.“ Ljósmyndun Eiríkur Sigurðsson verslunarstjóri Miklagarðs í Garðabæ sagði að þeir hygðust ekki lækka vöruverð, hins vegar væri það stefna þeirra - og hefði verið undanfarna 2 mánuði - að vera með vikuleg tilboð í gangi á daglegum neysluvörum. Þeirra fram- lag til lækkaðs vöruverðs væri einnig að koma með ný vörumerki á lágu verði, sem væru innflutt af Mikla- garði. Ennfremur legðu þeir áherslu á gott vöruúrval og rúman opnun- artíma. Jón Asgeir Jóhannesson verslun- arstjóri í Bónus í Hafnarfirði sagði að þeir væru mjög ánægðir með við- tökurnar, sérstaklega þar sem þeir hefðu ekkert auglýst ennþá. Hann sagðist halda að samkeppnin væri rétt að byija, það kæmi sennilega ekki í ljós fyrr en með haustinu hvernig málin þróuðust. „Það er auð- vitað gott mál, ef Bónus verður til þess að vöruverð lækki í Hafnar- fírði. Það er sennilega ein besta kjarabót Hafnfirðinga," sagði hann. Hins vegar benti hann á að Bónus væri rekið á allt öðrum grundvelli en aðrar verslanir. Fuji Velvia valin fílma ársins FUJICHROME Velvia ljósmyndafilman hefur verið valin filma ársins í Evrópu 1990-1991. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt val á filmu fer fram en árlega hafa ljósmyndavörul'ramleiðendur hlotið verðlaun fyrir myndavélar, myndbandsupptökuvélar og þær nýjungar sem þykja skara fram úr á ljósmyndasviðinu. Dómnefnd sem skipuð er ritstjór- um helstu ljósmyndatímarita í fjórtán Evrópulöndum annast dómgæslu í samkeppninni. Verðlaunin verða af- hent 4. október n.k. við hátíðlega athöfn í Cologne í Þýskalandi. í þeim felst viðurkenning fyrir tæknilega fullkomnun, gæði og aðra eiginleika sem taldir eru uppfylla ítrustu kröfur atvinnuljósmyndara. Dómnefndin taldi Velvia búa yfir mikilli skerpu, litadýpt og litgæðum. Gríptu tækifæríð! GoldStar síminn m/símsvara á aðeins kr. 9.952.- (stgr.,m/vsk). • Sími og símsvari í einu tæki • Fjarstýranlegur án aukatækja úr öllum tónvaissímum - hvaðan sem er «10 númera skammvalsminni • Fullkomnar leiöbeiningar á íslensku • 15 mánaða ábyrgð • Póstsendum. KRISTALL HF- SÍMI 685750 - FAX 685159 - SKEIFAN 11B -108 REYKJAVÍK LwE%w fí - 'ýiqjsk [ir 7. - PM ?s'r 'mSs r[< Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson STOFNFUNDUR — Frá stofnfundi Landssamtaka fjarvinnslustofa, sem haldinn var á Hvamm- stanga í sumar. Frá vinstri: Guðjón Ingvi Stefánsson, Borgarnesi, Steingrímur Steinþórsson, Hvammstanga, Bóthildur Sveinsdóttir, Seyðisfirði, Bjarney Valdimarsdóttir, Hvammstanga, Elín Erlingsdóttir, Selfossi, Páll Pétursson, Vík, Björn Einarsson, Bessastöðum, V-Hún. og Kristján Björnsson, Brún. Fyrirtæki Stofnfundur Landssambands fjarvinnslustofa á Hvammstanga í SUMAR komu fulltrúar ljarvinnslustofu saman á Hvammstanga og stofnuðu landssamtök fjarvinnslustofu. Þar kom fram, að nauðsyn- legt er talið að skilgreina hugtakið „Ijarvinnslustofa", þannig að ijóst sé hvaða skilyrði i uppbyggingu slík stofnun skuli uppfylla. Fundinn sóttu fulltrúar frá Frú Láru sf. á Seyðisfirði, Víst sf. í Vík í Mýrdal, Landkostum á Selfossi, Orðtak hf. á Hvammstanga svo og Guðjón Ingvi Stefánsson í Borgar- nesi, sem er fulltrúi íslands í sam- tökum norrænna fjarvinnslustofa. Fundarmenn ræddu um þá meg- inþætti, sem ijarvinnslustofa skuli uppfylla, en þeir eru m.a. að velta fyrirtækjum og stofnunum alhliða tölvuþjónustu óháð búsetu, að hafa opna starfstöð fyrir almenningi á svæðinu og standa fyrir námskeið- um og kynningu á tölvu- og upplýs- ingatækinni. Fram kom í máli fund- armanna, að miklar vonir eru bundnar við þennan atvinnurekstur og horfðu aðilar þá helst til hins opinbera, stjórnsýslunnar og ríkis- fyrirtækja. Forsvarsmaður lands- samtaka fjarvinnslustofa var kjör- inn Kristján Björnsson, Brún, V- Húnavatnssýslu, en hann er stjórn- arformaður Orðtaks hf. ÆFIN G ABEKKIR HREYFINGAR (áður Flott form - Engjateigi 1) Leiðbeinandi: Sigrún Jónatansdóttir Nuddbekkur Fótabekkur Mittisbekkur Er 7 bekkja æfingakerfið fyrir big? Reynslan hefur sýnt að þetto æfingakerfi hentar sérlega vel fólki ó öllum aldri sem ekki hefur stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma. Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk sem ekki stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva o.fl. 7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til vöðva þann- ig að rúmmál þeirra minnkar. Einnig gefur það gott nudd og slökun. Getur eldra lólk notið góðs at bessum bekkjum? Lærabekkur Magabekkur Nuddbekkur' Slökunarbekkur Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun. Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk. Opnunartími kl. 9-13 og 16-20 Frír kynningartímL HREYFING Ármúla 24 Sími 680677

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.