Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKffTI AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990 > Fjármál SPROTI — Sproti hf. sem framleiðir Icy vodka gaf fyrir skömmu Háskóla íslands sérstakan tækjabún- að til rannsókna á áfengissýnum til nota á rannsóknarstofu lyfjafræðideildar. Þessi tækjabúnaður verður einnig til gæðaeftirlits með framleiðslu áfengra drykkja á íslandi svo og til væntanlegra rannsókna og tilrauna á blóðsýnum hjá alkóhólistum. Alkóhólsdeild rannsóknarstofunnar hefur frá því í desember annast hreinleika- próf á Icy vodka sem framleitt er hjá Mjólkursamlagi Borgfirðinga. Á myndinnis sést dr. Þorkell Jóhannes- son, læknir, taka við gjöfinni úr hendi Olafs Sigurðssonar, eins af eigendum Sprota. Auk þess eru á mynd- inni Orri Vigfússon, framkvæmdastjóri Sprota ásamt fulltrúum hins bandaríska umboðsaðila, Brown Forman. KYNNTU ÞER EFTIRFARANDI VALKOSTI í LENGRA NÁMI: FJARMALANAM, 40 klst., hefst l.okt. MARKAÐS- OG SOLUNAM 60 klst., hefst 2. okt. "PUBLIC RELATIONS" almennlngstengsl, 42 klst., hefst 30. okt. STJORNANDINN OG STARFSMAÐURINN, 54 klst., hefst 15. ókt. STJORNUN I FRAMLEIÐSLU, 60 klst.. hefst 2. okt. STJORNUNARNAM, 60 klst., hefst 1. okt Óhyggilegtað knýja fram samein- ingu Ijárfestingarlánasjóða — segir Bragi Hannesson forstjóri Iðnlánasjóðs FORSTJÓRI Iðnlánasjóðs telur óhyggilegt að knýja fram samein- ingu Iðnlánasjóðs og annarra óskyldra fjárfestingalánasjóða, en bæði Jón Sigurðsson, viðskipta- ráðherra og Halidór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, hafa talið sameiningu og fækkun þessara sjóða brýnt verkefni. í grein í fréttabréfi Iðnlánasjóðs ræðir Bragi Hannesson, forstjóri sjóðsins, þau sjónarmið sem fram hafa komið um nauðsyn á samein- ingu fjárfestingarlánasjóðanna en segir að ekki megi horfa fram hjá þeim markmiðum sem stefnt sé að. Með sameiningu í bankakerfinu náist t.d. ekki sú hagræðing sem að sé stefnt fyrr en til hefur komið veruleg fækkun starfsmanna, og afgreiðslu- staða og útbúa ásamt tölvuvæðingu og aukinni sjálfsafgreiðslu. Þó að fjárfestingalánasjóðirnir séu 18 talsins, skiptist aðallega í atvinnu- vegasjóði og ibúðarlánasjóði, og ólik- ir að stærð og stjórnun, þá eigi þeir það allir sameiginlegt að rekstur þeirra sé mjög fábrotin í samanburði við bankanna. Þegar starfsmenn bankanna skipti hundruðum séu starfsmenn sjóðanna þar sem flest er eins og í litlu bankaútibúi, og sömu andstæðurnar séu varðandi húsnæði banka og fjárfestingalánasjóða. Ástæðurnar sem knúðu á um samein- ingu bankanna gildi samkvæmt þessu ekki um sjóðina. Bragi vitnar til orða viðskiptaráð- herra um að vegna myndunar sam- eiginlegs fjármagnsmarkaðar Evr- ópuríkja þurfi fjárfestingarlánasjóð- irnir hér að búa sig undir aukna samkeppni jafnt við innlendar sem erlendar fjármálastofnanir og að það verði best gert með því að sjóðirnir sameinist til að halda rekstrarkostn- aði í lágmarki og ná hagkvæmustu stærð. Hann segir einnig að setning almennrar löggjafar um fjárfesting- arlánasjóðina sem viðskiptaráðherra hefur boðað, sé athyglisverð. Ákvæði slíkrar löggjafar um lágmark stofn- fjár og eiginljár, vanhæfni stjórnar- manna, ábyrgð á skuldbindingum, endurskoðun og afnámi ríkisábyrgða o.fl. sé til þess fallin að menn fari að meta stöðu sjóðanna í nýju ljósi. Hins vegar telur Bragi ólíklegt að Alþingi setji beinlínis lög um samein- ingu sjóðanna ef slíkt er í andstöðu við samtök atvinnuveganna sem standi að sterkustu sjóðunum. Hann bendir þar á að forystumenn iðnaðar- samtakanna hafi lýst andstöðu sinni við þátttöku í því að sameiná Iðnlána- sjóð öðrum fjárfestingarlánasjóðum ríkisins, enda hafi sjóðurinn verið byggður upp með skatti á iðnaðinn í fullri samvinnu við iðnaðarsamtök- in. Farsælla sé því að endurskoðun sjóðakerfisins gerist neðanfrá með almennri löggjöf fremur en valdboði að ofan. „Móti þeirri staðreynd verður ekki mælt að Iðnlánasjóður hefur verið byggður upp með skatti á iðaðinn og honum hefur verið stjórnað af fulltrúum iðnaðarins með þeim ár- angri að hann er einn af öflugustu og traustustu fjárfestingarlánasjóð- um í landinu," segir Bragi Hannes- son. „Þess vegna væri mjög óhyggi- legt að knýja fram sameiningu hans og óskyldra sjóða, einkum og sér í lagi þegar svo virðist sem tilgangur- inn sé að bjarga vandræðum ann- arra.“ ÞRÓUN VÖRU OG ÞJÓNUSTU, 44 klst., hefst 18 sept. Stjórnunarfélag íslands byggir á 30 ára reynslu og hápi þrautreyndra leibbeinenda. Slátbu á þrábinn í síma 621066 A Stjórnunarfelag íslands ÁNANAUSTUM 15, 101 REYKJAVlK VERÐSPRENGING! m, mrn SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SfMI 91 -670000 OG 674300 ■ ■ ■ Isuzu Geminl. LT þrigg'a dyra hlaðbakur kostar aðeins Jfofo þúsund og LT Ijögurra fyraJQ^ þúsund krónur. Isuzu Gemini er kallaður STÓRISMÁBÍLUNN, vegna hins ótrúlega rýmis sem í honum er. í Gemini sameinast frábœrstjórnsvörun, sparneytni, viðbraðgssnerpa og þœgindi. Vélin er 1300cc. 72 hö„ hann er framhjóladrifinn, 5 gíra, með aflstýrí, aflhemlum, PCV-lœsingavara á hemlum og upphitaðri afturrúðu. ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN! Álega koma fulltrúar framleiðenda hingað tii lands og skoða bílana, eigendum að kostnaðarlausu. ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ! Við bjóðum nú þriggja ára ábyrgð á þessum frábœru bílum. Greiðslukjör eru við allra hœfi. Öll verð eru staðgreiðsluverð. Bílarnir eru ryðvarðir, skráðir, tilbúnir á götuna meðútvarpiog segulbandi. Komdu með tjölskylduna og reynsluaktu þessum frábœrabíi! VERDUR ÞÚ (ENNÞÁ) í STJÓRNUNARSTÖDU EFTIR TVÖ EDA TÍU ÁR?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.